Dagur - 10.12.1966, Page 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
miklu
RÉTT eftir fyrri heimsstyrjöldina
voru afgreidd á Alþingi f járaukalög,
sem í blöðum og manna á milli voru
kölluð „fjáraukalögin miklu“. I það
sinn höfðu útgjöld ríkisins farið svo
lagt fram úr áætlun, að flestum
blöskraði. Nú er allt útlit fyrir, að
fjárlög Magnúsar Jónssonar fyrir ár-
ið 1967 hljóti hliðstætt viðurnefni í
stjórnmálasögunni og verði kölluð
verðbólgufjárlögin miklu. Slíkan
svip setur óðaverðbólgan á fjárlaga-
afgreiðsluna, sem nú fer fram á Al-
þingi. Vegna kosninganna, sem í
hönd fara, leggur ríkisstjómin
áherzlu á að dylja þessa verðbólgu.
En því meira, sem gert er að því að
dylja verðbólguna, því meir hækka
útgjöld fjárlaganna. Til þess að geta
sýnt greiðslujöfnuð á fjárlagaáætlun,
er gert ráð fyrir, að innflutningur
vara, þarfra og óþarfra, haldi enn
áfram að aukast á næsta ári, og að í
vaxandi mæli verði haldið áfram að
flytja inn erlendan iðnaðarvaming í
samkeppni við íslenzka framleiðslu
og tolltekjumar þannig auknar.
„Tertubotna“pólitíkin er komin, í
stað skattanna í fyrra.
Áætlaðar ríkistekjur — og greiðsl-
ur úr ríkissjóði nálgast nú óðum
fimm milljarða, og eru tekjur vega-
sjóðs, rúmlega 260 millj. kr., þá ekki
meðtaldar, en séu þær teknar með,
kemst umsetningin í heild eitthvað
á sjötta milljarðinn. Gert er ráð fyr-
ir, að hækkun f járlaganna á einu ári
muni að þessu sinni verða nálægt
1000 milljónum króna. Hækkunin
ein er því rúmlega 100 millj. kr.
meiri en öll fjárlagaupphæðin fyrir
1958.
Viðureign þeirra Halldórs E. Sig-
urðssonar framsögumanns minni-
hluta fjárveitinganefndar og Magn-
úsar f jármálaráðherra við 2. umræðu
fjárlaganna 2. des. sl. var ójafn leik-
ur. Munu þau fá dæmi, að fjármála-
ráðherra hafi borið svo skarðan hlut
frá slíkum átökum. Ekki stafaði
þetta af því, að núverandi fjármála-
ráðherra skorti hæfileika eða vilja til
að verja málstað sinn og þeirra, sem
með honum hafa staðið að stjóm
landsmála. En bersýnilega var hon-
um sjálfum Ijóst, að vonir þær, sém
einhverjir kunna að hafa haft um,
að hann gæti rétt fjármálastjómina
við frá því, sem hún var í tíð fyrir-
rennara hans, hafa bmgðizt. Töl-
umar tala. Og vitnisburður þeirra
er, því miður, á þá leið, að erfitt er
um vonir. □
Kristján frá Djúpalæk:
I víngarðinum. Kvæðasafn.
Bókaútgáfan Sindur h.f.
Akureyri.
HÉR er á ferðinni ný kvæða-
bók. í ávarpsorðum til lesenda
segir skáldið: „Ástæður til þess,
að ég hef ráðizt í útgáfu bókar
þessarar eru einkum tvær: Ein
hvern veginn hefur farið svo,
að bækur mínar eru ekki leng-
ur á markaði, utan þær allra
nýjustu. Svo er hitt, að Bjami
Benediktsson frá Hofteigi, sem
oft hefur skrifað vinsamlega
um Ijóðagerð mína, kom ein-
hvemtíma þeirri flugu í koll
mér að gera mætti sæmilega
bók, ef tekið væri það bezta úr
öllum ljóðabókum mínum.
Þegar ég nú komst að því, að
árið 1966 yrði ég, án undan-
bragða, fimmtugur, þá þótti
mér hlýða að athuga hversu
mér hefði tekizt yrkingin í vín-
garði drottins."
Þetta eru ástæðumar fyrir út
gáfu bókarinnar. Valdi Bjarni
ljóðin í samráði við höfundinn.
í bókinni eru kvæði úr öllum
átta ljóðabókum skáldsins, þó
ekki vilji það telja bókina
hreint úrval.
Kristján frá Djúpalæk er fyr
ir löngu viðurkenndur einn af
okkar snjöllustu ljóðskáldum,
og þarf því engan að undra þó
að margt sé góðra kvæða í
þessari bók.
Bókin hefst á þrem kvæðum
úr fyrstu ljóðabók Kristjáns
„Frú nyrztu ströndum“, sem út
kom 1943. Hér er síðasta vísa
úr kvæði um æskustöðvar hans
— Langanesstrandir:
Já, lífið er fábreytt og örðugt
hjá yztu töngum
og arður af mannanna striti
oft næsta smár.
En hugsunin vakir þar, við-
kvæm og spurul löngum
og verða að Ijóðmælum
hjartnanna bros og tár.
Úr hinu svipmikla kvæði
„Uggur“ þar sem skáldið lýsir
óttanum, er leggst á mannlegar
sálir, eru þessi erindi:
Örlög jarðar, þyrmið
eyju hvítra mjalla.
Munið hennar nýskóg
og maríustakk.
Dögg á ljósu vori.
Verndið hennar blómstur
Draumasól í holti.
og börn.
Sannleikur skal vinna
sigur fyrr en lýkur.
Góðvild rými hatri
og grimmdarhug.
Fegurðin er guð minn.
Frelsið er hans boðorð.
Bræðralagsins fána
ég ber.
Annars staðar eru bjartari og
léttari tónar í hörpi} skáldsins.
Hér eru tvær vísur úr hinu gull
falíega kvæði „Vorið kom.“
Vorið kom á vængjum Ijósum,
veg minn stráði hvítum rósum,
þíddi brjóstsins þunga trega,
þrá mér aftur gaf.
Vakti gleðifræ, sem falið
feigðarskugga var og kalið
svaf.
Nóttin bak við leiti læddist.
Loðinn hreiðurbúi fæddist.
Lítið brölti í laut á fætur
lamb með hrokkinn feld.
Ástin snart hin ungu hjörtu.
Urðu hláturmild hin björtu
kveld.
Margur mundi óska að geta
gengt svo vel köllun sinni í vín
garði Drottins eins og þessar
vísur bera vott um. Snilld
þeirra er einföld og auðskilin.
Þarf að nefna fleira til að sýna
hve vel er ort í þessari bók?
Annars liggja höfuðeinkenni
Kristjáns í að gera ákveðinni
hugmynd skil í stuttu saman-
þjöppuðu formi og eru mörg
slík kvæði í bókinni.
Einu erindi verður hér bætt
við. Það er fyrsta erindið í
kveðjuljóði, sem skáldið orti
eftir vin sinn, séra Jakob Krist
insson. Það er úr síðustu ljóða-
bók Kristjáns.
Nú leggur þú á hinn ljósa vog,
sem liggur á milli stranda.
Þér verður fagnað af vinum þar,
sem verðir himnanna standa
sem alkomnum bróður, úr
útlegð, heim
af eyðimörk reginsanda.
Kvæðasafn Kristjáns er fal-
legt að ytra frágangi og ánægju
legur mílusteinn á vegferðinni
eftir 50 ára för um eylandið
hvíta. Smekkleg káputeikning
er eftir Guðnýju Stefánsdóttur,
kennara.
Hannes J. Magnússon:
Gaukur verður hetja.
Bókaútgáfa Æskunnar.
ÞETTA er drengjasaga, sem
Hannes J. Magnússon hefur rit-
að, en Bókaútgáfa Æskunnar
gefið út. En Hannes er ekki að-
Hannes J. Magnússon.
eins þekktur fyrir bamabækur
sínar heldur einnig margt
fleira, sem hann hefur ritað.
Hann hefur lipran frásagnar-
hátt og hefur sent frá sér marg-
ar ágætar bamabækur.
Þessi bók er um dreng, Gauk
Atlason, sem var fæddur fatl-
aður. Móðir hans er fátæk
ekkja, sem vinnur ein fyrir
drengnum sínum. Óvandaðir
drengir í skólanum stríða Gauk
vegna fötlunar hans. Hann
hrökklast þaðan og lendir á gott
sveitaheimili.
En nú fer að rætast úr fyrir
Gauk. Hann vinnur verðlaun í
ritgerðasamkeppni og er það
flugfar til Kaupmannahafnar.
En þangað hefur hann alltaf
langað, því að þar er von um,
að hægt sé að bæta úr fötlun
hans með læknisaðgerð. En þá
vantar fé til þess að sú aðgerð
geti farið fram,
Og gæfan er enn í för með
Gauk litla. Honum tekst að
bjarga frá drukknun drengn-
um, sem hafði verið honum
verstur í skólanum. Faðir
drengsins, sem var vel efnaður,
vill launa vel fyrir björgun son
ar síns og býðst til að kosta
læknisaðgerð handa hönum, í
Kaupmannahöfn.
Dýrmætasti draumur Gauks
rætist að lokum. Hann fær bót
á meini sínu.
Hér verður ekki farið fleiri
orðum um þessa bók. En allir
vinir Hannesar hér nyrðra,
fagna því að hann hefur aftur
tekið upp þráðinn og er á ný
farinn að rita barnabækur. Bæk
ur hans eru hvorttveggja í senn
skemmtilegar og gott lestrar-
efni handa börnum. Og ég veit
að margir drengir munu um
næstu jól lesa sér til ánægju
þessa geðþekku drengjabók,
sem hér hefur verið sagt frá.
Eiríkur Sigurðsson.
ÞORBJÖRG ÁRNADÓTTIR:
LEYNIGÖNGIN
ísafoldarprentsmiðja.
SJALDGÆF bók og dásamleg!
„Ég sat hreyfingarlaus í stóln
um og starði á aringlæðurnar,
og hugurinn þaut fram og aft-
ur um leynigöng lífs míns.
Þar urðu fyrir mér dyr á báð
ar hendur, dyr inn í afhýsi ævi
minnar. Á hverja hurð er letrað
eitt orð: bernska, æska, skóla-
ár, blaðamennska .... “
Þannig hefst saga blaðamanns
ins unga sem er fréttaritari stór
blaðs eins í háskólaborg í Banda
ríkjunum. Stefán er fæddur í
fjallasveit vestur á Kyrrahafs-
strönd. Faðir hans var sonur
íslenzkra hjóna, sem fluttust
ung vestur um haf og námu
land í þessari fjallasveit. Móðir
hans var írsk.
— Þetta er dásamleg saga.
Ógleymanleg. Þú leggur hana
ekki frá þér við lestrarlok. Hug
ur þinn er hljóður. Þú hefur
lesturinn þegar á ný, lest suma
kafla upp aftur og aftur. Marg-
sinnis. — ---
Fyrstu kaflar sögunnar segja
frá bernsku drengsins, og hve
örlögin kipptu skjótt í taumana.
Og þegar hann er nýbyrjaður í
unglingaskóla ferst faðir hans í
ægilegu slysi við skógarhögg.
Og þá verður drengurinn fyrir-
vinna heimilisins um hríð. En
móðir hans vill að ósk föður
hans rætist um skólagöngu
sonarins.
Stefán hefur nám í blaða-
mennskudeild Ríkisháskólans í
borginni og lýkur þar námi. Þar
hafa þau Dóra fellt hugi saman.
Síðan vinnur hann í fréttadeild
stórblaðs borgarinnar. Þá skell-
ur á síðari heimsstyrjöldin, og
atburðirnir verða jafnvel nær-
göngulir og sárir. Loks býður
hann sig fram sem sjálfboða-
liði. En þá grípa örlögin enn í
taumana. Við læknisskoðun
kemur í ljós að hann er með
næman sjúkdóm í lungum og
er sendur á heilsuhælið að
FURUHLÍÐ. Og þar hefst eigin
lega sagan um Leynigöng lífs-
ins. Þá skrifar hann Dóru og
leysir hana frá trúnaðarheiti
sínu.
„Furuhlíð var heimur út af
fyrir sig. Hingað kom fólk, sem
hafði borizt áfram í hringiðu
daganna eins og ég sjálfur. Hér
urðum við að fara okkur hæg-
ara. Við höfðum nógan tíma til
að hugsa og tókum eftir mörgu
smálegu, sem annars fer fram-
hjá okkur í ös og önnum, og
vingjamlegt orð eða hlýlegt
bros vermdi okkur og gladdi
meira en flest annað“.
Hér er fjölbreytt líf og.fjöl-
litt: Hvítir og svartir, brúnir,
gulir og rauðir. Og sömuleiðis í
Barriahælinu skammt frá aðal
hælinu. Hér eru tugatugir sjúkl
inga, og margt aðstoðarmanna,
sem áður hafa notið hælisvistar
og náð heilsu. Þama er m. a.
ungi vísindamaðurinn Karl og
stúlkan hans, spánska dans-
meyjan Elíza, sem var sjúkling
ur, þarna er Rósa, sem þóttist
vera orðin frísk og strauk burt,
— en kom svo aftur til að
deyja. Þama er Toni, ítalski að-
stoðarmaðurinn, og garðyrkju-
snillingarnir Vong Kínverji og
Japanirnir Tsunahara og Mata-
suma, Sam svertinginn dauð-
vona, sem alltaf er glaður og
þakklátur þeim sem vilja lesa
fyrir hann úr Bókinni miklu á
borðinu hans. — Fjöldi fólks
kemur hér við sögu. —
Sagan skiptist í 31 kafla,
flesta fremur stutta, suma ör-
stutta. Og hver kafli er í raun-
inni sjálfstæð saga, sem skilur
eftir hjá lesanda fjölbreytt geð-
hrif og vekur furðulegar sál-
rænar kenndir. — Hvílík heilsu
bót að vera einn með sál sinni
um hríð, utanvið hraða, ys og
þys hversdagslífsins! — En
gegnum alla þessa stuttu, fjöl-
breyttu þætti rennur hinn líf-
þrungni rauði þráður blaða-
mannsins. Dyr leynigangsins
opnast og lokast til skiptis.
Sumir þættirnir frá heilsu-
hælinu mikla í Furuhlíð eru
furðulega forvitnilegir og lær-
dómsríkir. Þannig hlýtur 15.
kafli að vera æsi-spennandi fyr
ir ungar hjúkrunarkonur og
nema á sjúkrahúsum. Þetta er
dásaihlegur kafli og efnisþrung
inn. Furðulegur eins og dulúð-
ugt ævintýri. Hér er hver þátt-
urinn öðrum dásamlegri. Jafn-
vel þeir örstuttu! Þú lest þá
margsinnis upp aftur og aftur.
Allir skilja þeir eftir sálræn
geðhrif. Sum ógleymanleg. Hug
ur lesandans hverfur í fjöl-
breyttan hælis-hópinn og sam-
einast honum. T. d. 19. þáttur:
Hús barnanna, samtal blaða-
mannsins við<Önnu er prýðileg
ur þáttur. En aðeins eitt orð
nær yfir alla þættina, undan-
tekningarlaust: dásamlegir!
Frásagnarháttur höfundar er
látlaus, hreinn og tær. Lifandi
sálrænn og innilegur, svo les-
andi finnur glöggt hjartslátt
höfundar, heitt og sterkt, gegn-
um margvíslega sálræna við-
burði nærri hvers kafla. Og
þessi djúpu áhrif sleppa ekki
tökum á lesanda lengi eftirá.
Hann nemur staðar hljóður og
hlustar á eintal sálar sinnar.
Og í sögulok fyllist einnig sál
hans „djúpum unaði“ og friði.
Þetta er dúsamleg bók!
Helgi Valtýsson.
- SMÁTT 0G STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
millj. kr. á árinu 1967, miðað
við fjárveitingar þær, sem nú
eru í fjárlagafrumvarpinu, en
sennilegt er, að hún hækki
meira, ef hafnarframkvæmdir
verða ekki hindraðar beint eða
óbeint af hálfu stjómarvalda.
ÖNGÞVEITI í SKÓLA-
BYGGINGAMÁLUM
í nefndaráliti minnihluta fjár-
veitinganefndar Alþingis segir
svo um byggingarframkvæmdir
í skólamálum: Enn „eru ekki
hafnar framkvæmdir við 40
skólabyggingar, sem Alþingi
hefir tekið á fjárlög. Af þeim
eru 25, sem Alþingi hefur sam-
þykkt að hefja skuli fram-
kvæmdir við-----. Til viðbótar
er nú sótt um fjárveitingar til
40—50 nýrra skólamannvirkja“.
f Iögum um greiðslu skólakostn
aðar er ríkissjóði gert skylt að
greiða sinn hluta af byggingar
kostnaði skóla á 5 ámm. Með
þeim fjárveitingum, sein nú eru
í fjárlagafrumvarpinu virðist
vera stefnt út í hreint öngþveiti
í þessum málum.
5
JóEafargjöld Flugfélagsins fyrir
FYRIR mörg undanfarin jól
hefur Flugfélag íslands auð-
veldað skólafólki ferðir heim
um hátíðarnar með því að
veita því sérstakan afslátt af
fargjöldum. — Svo mun einnig
verða fyrir þau jól, sem nú fara
í hönd.
Allt skólafólk, sem óskar eft-
ir að ferðast með flugvélum fé-
lagsins um hátíðarnar á kost á
sérstökum lágum fargjöldum,
sem ganga í gildi 15. desember
1966 og gilda til 15. janúar
1967.
Þessi sérstöku fargjöld fyrir
skólafólk eru tuttugu og fimm
af hundraði lægri en venjuleg
fargjöld. Til þess að njóta þess-
ara kjara þarf að sýna vottorð
fi'á skólastjóra, sem sýni að við
komandi stundi nám, og að
keyptur sé tvímiði og hann
notaður báðar leiðir,
Góður árangur af bor-
un á Stórutjörn
Ófeigsstöðum 9. desember. Hér
var vont veður en ekkert af-
takaveður og fært er enn um
byggðir. Beitarjörð er orðin
mjög léleg og tæplega hægt að
nota hana vegna umhleypinga.
Borun hefur staðið yfir á
Stóru-Tjörnum. Úr nýrri holu
rennur ný 62 gráðu heitt vatn,
þrír lítrar á sekundu og er það
meh'a en nóg fyrir væntanleg-
ar skólabyggingar þar.
Til blaðs á Akureyri, sem ís-
lendingur heitir, er svohljóð-
andi skeyti, að gefnu tilefni og
vegna þess, að eitthvað mun
eftir af baðleginum:
Læknast mun íslendings lúinn
er lítið bara ég sel hann,
bjórinn, sem ekki er búinn
blessaður komdu með ,Pelann‘.
B. B.
í gildi 15. des.
Hinn 1. desember gengu í
gildi sérstök jólafargjöld á flug
leiðum Fí til íslands, sem margt
skólafólk sem stundar nám er-
lendis, svo og aðrir íslending-
ar, sem dveljast í útlöndum
notfæra sér til þess að halda
jól og nýjár heima meðal vina
og ættingja. □
Akureyrartogarar
KALDBAKUR var í gær að
fara á veiðar. Hann seldi afla
sinn fyrir hálfum mánuði í er-
lendri höfn, en fór að því loknu
til viðgerðar í Reykjavík og
var rétt kominn þaðan.
Svalbakur seldi í Englandi á
miðvikudaginn, 112 tonn af fiski
fyrir 12.934 pund.
Harðbakur fór áleiðis til Eng
lands í fyrrinótt með ca. 100
tonn af fiski og selur þar vænt-
anlega á miðvikudaginn, 14.
desember.
Sléttbakur seldi í Þýskalandi
á mánudaginn, 97 tonn af fiski
á 101.910 mörk og er væntan-
legur heim um helgina.
Hrimbakur er á strandstað. □
Mæðrastyrksnefndin
SKÁTAR munu í næstu viku
kveðja dyra hjá borgurum bæj-
arins og taka á móti gjöfum til
Mæðrastyrksnefndar. En nefnd
sú úthlutar gjöfunum aftur fyr
ir jólin til fátæks fólks, sem er
fleira en margan grunar. —
Ástæða er til að vekja athygli á,
að í fyrra mun hafa verið út-
hlutað á þennan hátt um 20 þús.
kr. til húsmæðra á hinum
fátæku heimilum í formi pen-
inga eða nauðsynjavara.
Líklegt má telja, að þeir fjár
munir, sem bæjarbúar láta af
hendi rakna þegar skátar heim-
sækja þá, verði góðar jólagjaf-
ir, ekki síður fyrir þá, sem gefa.
Frá Bridgefélaginu
ÞRIÐJA umferð fór fram sl.
þriðjudagskvöld. Úrslit urðu
þau að:
Óðinn vann Mikael 6—0
Knútur vann Stefán 6—0
Baldvin vann Óla 6—0
Halldór vann Soffíu 5—1
Eftir þrjár umferðir er stað-
an þannig:
Halldór 15 stig, Baldvin 14
stig, Knútur 12- stig, Soffía 11
stig, Óðinn 10 stig, Mikael 8
stíg, Stefán 2 stig og Óli 0 stig.
4 i» ' . ' r.
1. flokkur.
Magni vann Garðar 6—0
Gunnlaugur v. Bjarna B. 6—0
Guðmundur v. Bjarna S. 4—2
Staðan í 1. ílokki eftir þrjár
umferðir:
Bjarni S. 14 stig, Gunnlaugur
12 stig, Magni 9 stig, Guðmund
ur 8 stig, Garðar 6 stig og
Bjarni B. 5 stig.
Næsta umferð verður spiluð
næstkomandi þriðjudagskvöld.
NÝKOMIÐ:
BRAUÐFORM
KÖKUKEFLI
RJÓMAÞEYTARAR
STEIKARSETT
ELDHÚSSETT
HNÍFABRÝNI
SIGTI
LAUFABRAUÐSHJÓL
DÓSAHNÍFAR
BÚRVOGIR
Járn- og glervörudeild
- Ný viðhorf
(Framhald af blaðsíðu 8)
menn og tæknifræðingar verði
framverðir hins nýja þjóðfélags.
Efling atvinnuveganna og auk-
inn vísindahróður íslands með-
al annarra þjóða, verði megin-
mið endurreisnar íslenzkra
rannsókna.
Menntastofnanir verði efldar.
Skólum fjölgað. Kjör kennara
bætt. Uppfræðsla æskulýðs
gerð að eftirsóknarverðu ævi-
starfi. Listamönnum reistir
glæsilegir sýningarsalir. Skáld-
um og rithöfundum tryggð
örugg afkoma án tillits til stjórn
málaskoðana.
Stuðlað verði að áframhald-
andi byggð í öllum landshlut-
um. Atvinnuvegir þjóðarinnar
krefjast þess, að framtakssamir
menn uni sem víðast glaðir við
verðmætasköpun. Öllum íbúum
íslands verði að veita skilyrði
til ánægjulegs lífs í fjölbreytt-
um og vaxandi félagsheildum í
öllum héruðum landsins.
Ung hjón geti eignast íveru-
stað, án þess að gangast um leið
undir ok fjárkúgara og skatt-
svikara. Kappkostað verði að
bæta svo kjör almennings að
menn njóti rúmra tómstunda og
menn geti dvalið með fjöl-
skyldu sinni og stundað marg-
vísleg áhugamál.
Raddir úrtölumanna verða að
þagna. Heilbrigður þjóðarmetn
aður, þrek, þor og hugprýði
verði boðorð tímans. Hver sem
vilji fái verk að vinna. Efinn
um getu íslendinga og nöldrið
um mörk hins byggilega heims
verði útlæg ger, sagði Baldur
Óskarsson.
BJÖRN TEITSSON sagði í upp
hafi ræðu sinnar, að því hlyti
að fylgja sérstök ábyrgð að
ætla að ræða um ný viðhorf í
islenzkum stjórnmálum. Hins
vegar ætti það ekki sízt við nú
er hin geysifjölmenna kynslóð,
sem fæddist um og eftir stríðs-
lokin, væri að koma til fullra
starfa í þjóðfélaginu, að koma
■fram með ný viðhorf. Nú við
upphaf síðasta þriðjungs 20.
aldarinnar ætti líka vel við, að
menn gerðu sér rækilega grein
fyrir því, að stjórnmálaflokk-
ar ættu að vera sífelldum breyt
ingum undirorpnir, þeh' mættu
ekki staðna.
Björn sagði, að þótt unga
kynslóðin á íslandi nú væri bet
ur menntuð en fyrri kynslóðir,
væri ekki þar með sagt, að
skólakerfið hér væri á nokk-
urn hátt fullkomið. Það hlyti
einmitt að vera eitt af helztu
viðfangsefnum þeirra, sem
vildu ný viðhorf í þjóðfélags-
málum að gangast fyrir vísinda
legri athugun á skólakerfinu og
því, hvernig mætti á sem
árangursríkastan hátt laga það
að nútímaaðstæðum. íslenzka
fræðslukerfið væri á flestan
hátt mjög á eftir því, sem gerð-
ist í næstu löndum, enda auð-
skilið, því að síðan fræðslulög-
in hefðu verið sett, 1946, hefðu
orðið miklar breytingar á öllum
sviðum þjóðlífsins. Þá minntist
Björn á, að það gæti farið að
verða mjög áleitin spurning,
hvort þjóðfélagið hefði að öllu
samanlögðu efni á því að láta
langflesta skólanemendur vinna
fyrir sér í miklu lengri sumar-
leyfum en annarsstaðar tíðkast,
því að fyrir bragðið yrði starfs-
aldur þeirra að námi loknu
skemmri en ella myndi, þótt að
hinu leyti fylgdu því auðvitað
vissir kostir að nemendur
kynntust þannig atvinnulífinu
náið. Þá minntist Bjöm nokkuð
á Háskóla íslands og kvað hann
tvímælalaust ekki svo vel bú-
í íslenzkum:
inn kennslutækjum og kennslu
kröftum að hann gæti staðizt
samanburð við háskóla í
Evrópu yfirleitt.
Næst minntist ræðumaður á
það, að þjóðinni væri mjög mik
il nauðsyn að tileinka sér í enn
auknum mæli tækni og verk-
kunnáttu, það væri ekki nóg að
hafa forgöngu um tækni við
síldveiðar, heldur þyrftum við
að herða okkur á enn fleiri svið
um og þó sérstaklega innan
þeirra atvinnuvega, sern fyfir
Björn Teitsson.
eru í landinu og alltaf hlytu að
verða þar.
Björn vék því næst að því,
að þótt aukin tækni og vísinda
leg vinnubrögð í þágu atvinnu-
veganna væru mikil nauðsyn,
þá væri hitt jafnvel enn mikils-
verðara að þjóðin gerði sér far
um að varðveita sína heil-
steyptu og sérkennilegu menn-
ingu án þess þó að á nokkurn
hátt mætti vera um þjóðernis-
hroka að ræða. Það væri hins
vegar Ijóst, að ef þjóðin gæti
ekki haldið við menningarlegu
sjálfstæði sínu, þá væri hún
heldur ekki fær um til lengdar
að viðhalda stjórnmálalégu og
efnahagslegu frelsi. Þetta kvað-
Björn vera algert meginatriði í
málflutningi sínum. íslenzk
tunga hlyti að sjálfsögðu , .að
þróast sífellt, en hitt, væri
óhæfa að leyfa henni að' gegn-
sýrast t. d. amerískum áhrífum,
en úr þeirri átt virtist henrti -
einmitt stafa mest hætta nú.
Ræðumaður sagði, að það
hlyti að verða grundvallaratriði
á komandi árurr), að þjóðin
byggði sem mestan hluta lands-
ins. Eitt alvarlegasta vandariaál
ið með þjóðinni væri fólksflótt-
inn til Reykjavíkur. Þessi fólks
flótti stafaði ekkiisízt af menn-
ingar- og félagslegum ástæð-
um. Gegn honum yrði mf a. að
sporna með því að koma upp
byggðakjörnum, sem yrðu bæði
menningarlegar og stjórnarfars; •
legar miðstöðvar héraðs .'og
landshluta og óháðafi Réykja-
vík en nú væri. 'Hér á Ak’uf-
eyri, sagði ræðuriiaður, á-< að
koma upp slík miðstöð; fyril' <
Norðurland eða a. m. k. miðbik
þess. Hér og annarsstaðár úti
um land þyrfti t. d. .tónlistar-
og leiklistarlíf að eiga 'siria
merkisbera og það sem víðast.
Ef slíkt brysti, yridi fólkið ekki,
heldur flýði fábreytnina., En
auðvitað þyrfti mjög vel að
rannsaka þær prsakri sém til
fólksflóttans lægju á hverjum
stað, áður en hefjast mætti
handa gegn vandanum í von
um verulegan árangur.
Bjöm kvaðst enn frekar vilja
leggja áherzlu á, að baráttan
fyrir byggðajafnvæginu væri
nú einna brýnasti þáttur þeirr-
ar sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn
ar, sem seint myndi linna.
Fleira kæmi þó til, og væri í
framhaldi af þessu að minnast
á herverndarmálið og sjónvarps
málið á Keflavíkurflugvelli.
Um þessi atriði vísaði ræðumað
ur til samþykktar þings Sam-
bands ungra Framsóknarmanna
nú í haust, þar sem lagt var til,
að gerð yrði fjögurra ára áætl-
un um brottför hersins, og væri
það innifalið að framkvæmd
þeirrar brottfarar gæti hafizt
sem fyrst, en jafnframt tækju
Islendingar við gæzlu mann-
virkja Atlantshafsbandalagsins
hér, þar eð gert væri ráð fyrir,
að við yrðum áfram í Atlants-
hafsbandalaginu að óbreyttum
aðstæðum. Ræðumaður kvaðst
álíta, að helzt væri hægt að fá
aðrar þjóðir innan bandalagsins
til að fallast umyrðalaust á
lausn af þessu tagi, og því
myndi þessi leið vera raunhæf-
ust til að losna við varnarliðið
og skaðleg áhrif þess á íslenzkt
þjóðlíf. Annars væri undir-
lægjuháttur ýmissa afla hér-
lendis gagnvart stóra bróður í
vestri eða austri mjög alvarlegt
mál. Einnig kvað hann slæmt
að mjög margir virtust ekki
gera sér grein fyrir þeim breyt-
ingum, sem orðið hefðu undan
farið á sviði alþjóðamála, t. d. í
hernaðartækni og almennt á
viðhorfum innan Atlantshafs-
bandalagsins. Hins kvað Bjöm
sjálfsagt að geta, að við vildum
vinsamleg samskipti við allar
þjóðir, og ekki sízt þær sem
okkur væru næstar í rúmi og
skyldastar að menningu. Þá
væri og mjög athugandi, hvort
íslendingar gætu ekki lagt
nokkuð að mörkum til styrktar
vanþróuðum þjóðum, og þá án
þess að vilja fá í staðinn stjórn-
málaleg og efnahagsleg ítök í
viðkomandi löndum, eins og
stórveldin yfirleitt reyndu.
Gætum við ef til vill orðið öðr-
um þjóðum fyrirmynd í þessum
efnum, þótt í smáum stíl væri.
Björn Teitsson kvaðst vilja
leggja áherzlu á það, að til að
ná fram áhugamálum nýrrar
kynslóðar og nýrra viðhorfa
■ þyrfti að nota í mjög auknum
■ mæli vísindalegar rannsóknir á
þjóðfélaginu, byggingu þess og
starfsháttum í því. Við endur-
sköpun þjóðfélagsins vildu ung
ir Framsóknarmenn taka sem
mest frumkvæði. Þeir vildu líka
alls ekki að flokkur þeirra
staðnaði, heldur væru þeri m.
a. í Framsóknarflokkinn komn-
ir til að laga hann að sínum við
horfum.
Að lokum hvatti Björn ungt
fólk sérstaklega til að leggja
hönd á plóginn, það ætti að
vera borgaraleg skylda að íhuga
stjórnmál, enda kæmu þau
hverjum einstaklingi þjóðfélags
ins jafnt við. Að slíkri íhugun
lokinni ættu menn að samein-
. ast um lausn á vandamálunum
og þar yrði hver og einn að
finna til ábyrgðar og gera
skyldu sína. Q
Afborgunarskil-
málar.
Jám- og glervörudeild