Dagur - 10.12.1966, Side 8
8
TOGARINN HRÍMBAKUR liggur eriti á strandstað, við Glerárósa á Akureyri. Hann missti
skrúfuna og stýrið, er dældaður og kjalarhællinn lagður út á hlið, en allt ber merki þess, að
skipið hafi steytt á skeri á leið á strandstað. En þar sem það liggur nú, er sandfjara. Á stór-
straumsflóði í næstu viku er áformað að ná Hrímbaki á flot. (Ljósmynd: E. D.)
Ný viðhorf í íslenzkum sljórnmálum
Frá heimsókn stjórnar SUF til Akureyrar
LAUGARDAGINN 3. desem-
ber kom hingað til Akureyrar
stjórn Sambands ungra Fram-
sóknai-manna og var það níu
manna sveit. Fyrst skoðuðu
gestirnir nokkur fyrirtæki í
bænum og ræddu við forstöðu-
menn þeirra og starfsfólk, en
þágu síðan hádegisverðarboð
hjá KEA, ræddu við ýmsa úr
röðum verkalýðsfélaga og
stjórnum Framsóknarfélaganna
í bænum. Síðar um daginn
höfðu gestirnir fund með nem-
endum Menntaskólans og svöi'-
uðu þá m. a. mörgum fyrir-
spurnum. Var fundur þessi heit
ur og til hinnar mestu ánægju.
Á sunnudaginn gengust sunn
anmenn og Félag ungra Fram-
sóknarmanna fyrir almennum
stjórnmálafundi á Hótel KEA,
sem áður var auglýstur hér í
blaðinu. Umræðuefnið var: Ný
viðhorf í íslenzkum stjórnmál-
um. Þar fluttu framsöguerindi,
Baldur Óskarsson form. SUF,
Ólafur Ragnar Grímsson og
Björn Teitsson. Voru erindi
þeirra hin athyglisverðustu. Að
frumræðum loknum hófust um
ræður. Hér er útdráttur úr ræð
um Baldurs og Björns.
BALDUR ÓSKARSSON, for-
maður Sambands ungra Fram-
sóknarmanna minntist í upp-
hafi á ýmsar tillögur um úrbæt
ur í íslenzkum stjórnmálum,
ásamt ákvörðunum um nýjar
starfsaðferðir, sem samþykktar
voru á síðasta þingi SUF. Með-
al þeirra eru kynnisferðir fram
kvæmdastjómar þess út um
land, einkum í kaupstaði. Akur
eyri væri fyrsti áfangastaður og
hefðu móttökur hér verið allar
hinar ágætustu og meðlimir
NÓTTIN HELGA
heitir fallega litla listaverka-
bókin, sem vinur séra Jóns
Sveinssonar — Nonna — gaf
Nonnahúsi til fjáröflunar fyrir
starfsemi sína. Bókin kostar að
eins 75 krónur og er til sölu í
Verzlun Ragnheiðar O. Bjöms-
son. □
framkvæmdastjómar átt fróð-
legar og gagnlegar viðræður við
forráðamenn atvinnulífs, laun-
þega og Framsóknarfólksins á
Akureyri, ásamt hóp mennta-
skólanema.
íslenzkt þjóðfélag gerðist æ
umfangsmeira og flóknara og
slík þróun krefðist betra skipu-
Baldur Óskarsson.
" *;': f;; .
lags og breyttra starfshátta í
.stjómmálum. Á núverandi
stjómartímabili hefði hins veg
ar flest verið látið reka á reið-
anum og happa- og glappaað-
ferðinni beitt við lausn mála,
en eðlilega án nokkurs teljandi
árangurs. Ráðherrarnir sjö, sem
í byrjun ætluðu að viðreisa
þjóðiriá Værú fýrir löngu orðn-
ir að aðgerðarlitlum dvergum í
augum alþjóðar. Atvinnuvegir
þjóðarinnar væru eftir einstakt
góðæri í kalda koli. Forstöðu-
menn iðnaðarfyrirtækja á Akur
eyri sjá fram á að lítilsigldir
ráðherrar leggja ævistarf þeirra
og heillar kynslóðar, sem byggt
hefur upp þennan atvinnuveg,
í rúst: Lausna á vandamálum
islendinga er; ekki að leita í
líknarfaðmi þéirra manna, sem
löngu eru búnir að missa trúna
á sjálfa sig og þjóðina, og eru
með sífellt nöldúr og nagg um
riorðurhjara heims.
Það verður að koma á heild-
arstefnu í íslenzkum stjórnmál
um og taka upp ný og vísinda-
leg vinnubrögð. Safna þarf
nægjanlegum upplýsingum um
þjóðfélagið og fylgjast vel með
á öllum sviðum, hagnýta sífellt
nýjar hugmyndir. Sú kynslóð,
sem um þessar mundir hazlar
sér völl í íslenzkum stjórnmál-
um, ætlar að vinna markvisst
og ákveðið að lausn vandamála
þjóðarinnar. Hún hefur þekk-
ingu og þor til að velta í rústir
og byggja á ný. Hún er gagn-
menntaðasta kynslóð, sem vax-
ið hefur upp á íslandi, fræðzt
mest um erlenda hætti, kynnzt
jafnöldrum þar, skoðunum
þeirra og vinnubrögðum.
Þótt vissulega verði erfitt að
endurreisa íslenzkt þjóðfélag,
þá er það verðugt og heillandi
verkefni, sem í raun og veru
verður auðvelt viðfangs, takist
unga fólkinu að standa saman.
Forysta Sambands ungra
Framsóknai’manna mun ekki
liggja á liði sínu við þessa end-
urreisn og njóta allrar aðstoðar
flokksforystunnar í þessu starfi.
Formaður Framsóknarflokks-
ins hefur margítrekað að æsku-
fólkið sé líklegast til þess að
rífa sig út úr hinu botnlausa
þvargi dægurþrassins og helga
sig einhuga endursköpun þjóð-
félagsins, þar eð hún sé ekki
flækt í svikamyllu fjármála-
brasksins og verðbólgugróðans.
Kjarninn í umbótatillögum
ungra Framsóknarmanna er
endursköpun fjölmargra þátta
þjóðfélagsins. Mörkun nýja afl-
vekjandi einkenna og útrým-
ingu annarra, íhaldssamra og
lamandi. Ríkisvaldið tryggi
framkvæmd skipulagðrar efna-
hagsstefnu, grundvallaða á ýtar
legum áætlunum. Uppbygging
atvinnuvegana verði heildar-
mið bankakerfisins, og framlög
hvers árs samræmd fram-
kvæmdaáætlunum. Vísinda-
(Framhald á blaðsíðu 5).
Framboð í Rey
Á KJÖRDÆMISÞINGI Fram-
sóknarfélaganna í Reykjanes-
kjördæmi sem haldið var í sam
komuhúsinu Garðaholti, Garða
hreppi, á sunnudaginn, var
framboðslisti Framsóknarflokks
ins í Reykjaneskjördæmi við
alþingiskosningarnar, sem fram
eiga að fara á næsta ári, ákveð-
inn. Listinn er þannig skipaður:
1. Jón Skaftason, alþingismað
ur, Kópavogi.
2. Valtýr Guðjónsson, banka-
stjóri, Keflavík.
3. Bjöi’n Sveinbjörnsson,
SMÁTT OG STÓRT
SKILTI MEÐ UPPLÝSINGUM
Stundum sjáum við bæjarstarfs
menn leita að niðurföllum o. fl.
í snjónum og fer óþarfa tíma-
eyðsla í leitina. Upplýsingar um
slíka hluti má festa .á húsahlið-
ar til leiðbeiningar fyrir starfs-
mennina, svo sem gert er víða
í borgum.
LJÓSIN BLINDA
Þar sem götur eru vel upplýst-
ar er ekki aðeins þarflaust að
aka bílum með fullum ljósum,
heldur óæskilegt. Tími mun til
þess kominn á Akureyri, að at-
huga hvort ekki skuli innleiða
aðrar reglur þar um en gilt
liafa. Að sjálfsögðu næði breyt-
ingin, ef gerð yrði, aðeins til
þeirra gatna sem vel eru lýstar.
Yngri og eldri dæmi um það
livernig menn blindast af bíl-
Ijósum sýna bezt hve þörf
breytinganna er rík.
ÍSLENDINGAR í INN-
KAUP AFEEÐUM
Framkvæmdastjóri einn við
kjólaverzlun í Glasgow hefir frá
því sagt að „það sé ekki óvana-
legt að íslenzkir viðskiptavinir
kaupi 18 kjóla og hálft dúsin af
kápum hver og þeir borgi í
reiðu fé á staðnum". Þetta er
samkvæmt frétt frá Associated
Press. 1 sömu frétt segir, að hin
ir íslenzku viðskiptavinir geti
keypt þessar vörur á íslandi, en
þar séu þær bara þrisvar sinn-
um dýrari.
FYLGJAST MEÐ TÍZKUNNI
Þessari frétt fylgir einnig það,
að íslenzka ferðafólkið, sem
komi til að gera jólainnkaupin
í Glasgow fylgist vel með tízk-
unni og viti nákvæmlega að
hverju það sé að leita. Flestir
cyði svona 200 sterlingspund-
um í hverri verzlun!
GJAFMILDIR ÞJÓFAR
f haust var sunnlenzkur maður,
sem hafði ráðið sig fjósamann
í Eyjafirði, handtekinn og flutt
ur til Reykjavíkur og þaðan á
Litlahraun vegna einliverra
yfirsjóna syðra. Sami maður og
félagi hans urðu fyrir nokkrum
dögum uppvísir að þjófnaði í
Hveragerði. Stálu þeir þar fyrr
í haust hátt á annað hundrað
þús. kr. og höfðu með sér í vist
ina á Litlahrauni og vissi eng-
inn um ferðir þeirra eða at-
ferli þá! En þegar samfangi
þeirra einn „útskrifaðist“ fyrir
fáum dögum gáfu þeir honum
eitt „búnt“ af seðlum og sagði
hann frá. Þannig varð gjafmildi
þjófanna til þess að koma upp
um þá.
UNDIRRÁÐHERRA
Sú stjómarathöfn Magnúsar
Jónssonar að ráða sér nú sér-
stakan undirráðherra, hinn svo
nefnda hagsýslustjóra, sem sagt
er, að eigi að endurskoða fjár-
málakerfið frá rótum, og yfir-
lýsingin í greinargerð frum-
varpsins um að ráðuneytið hafi
ekki tök á að gera sér grein
fyrir ríkisrekstrinum, varpa
óhugnanlegu ljósi á fjármála-
stjóm Sjálfstæðismanna undan
farin sjö ár. f því sambandi
minnast menn nú glögglega
hinna „59 sparnaðarloforða",
sem fyrrverandi og núverandi
fjármálaráðhcrrar gáfu út í
sameiningu á ámnum 1960—61,
og fyrirheitanna, sem gefin
vom fyrir 6—7 ámm um gagn-
gerða endurskoðun ríkisbúskap
ar— þessa sömu endurskoðun,
sem M. J. nú segist vera í þann
veginn að hefja með aðstoð hins
nýskipaða undirráðherra síns,
liagsýslustjórans.
DRAUGURINN RÆÐUR FÖR
Magnús Jónsson er án efa nógu
glöggur maður til að gera sér
grein fyrir því, að eins og nú er
komið, er það Hvorki fjármála-
ráðherrann sem slíkur né undir
ráðherra hans, hagsýslustjór-
inn, sem stjórna útgjöldum rík-
issjóðs fram á vorið — heldur
verðbólgudraugurinn, magnað-
ur af mistökum og vanmætti
giftulítillar ríkisstjórnar í 7 ár.
VINUR SEGIR TIL VAMMS
„Aginn á þjóðarskútunni er í
hættu“, segir Þórður Jónsson á
Látrum í grein í Mbl. nýlega.
Dagur liefur það fyrir satt, að
þessi mæti Vestfirðingur hafi
hingað til fylgt Sjálfstæðis-
flokknum að málum eða a. m.
k. einhverjum frambjóðanda
hans á Vestfjörðum. En hann
liefur bersýnilega eins og marg
ir aðrir þungar áhyggjur af
stjómleysinu, sem nú ríkir í
landinu, sjálfræðinu og sóun-
inni, sem stjórnarblöðin kalla
„frelsi“. I hinni ágætu hug-
vekju Jónasar Jónssonar um
„gullhestinn" er fjallað um
skylt efni af gamalkunnri orð-
snilld.
hæstaréttarlögmaður, Hafn-
arfirði.
4. Teitur Guðmundsson,
bóndi, Móum, Kjalarnesi.
5. Jóhann Níelsson, fram-
kvæmdastjóri, Garðahreppi.
6. Óli S. Jónsson, skipstjóri,
Sandgerði.
7. Hilmar Pétursson, skrif-
stofumaður, Keflavík.
S. Jóhanna Bjamfreðsdóttir,
húsfreyja, Kópavogi.
9. Bogi Hallgrímsson, kennari,
Grindavík.
10. Jón Pálmason, skrifstofu-
stjóri, Hafnarfirði.
SKULD RÍKISINS VH)
HAFNARSJÓÐI
Vitamálastjóri gerir ráð fyrir,
að skuld ríkissjóðs við einstaka
hafnarsjóði eða sveitarfélög
vegna hafnarframkvæmda verði
64 millj. kr. samtals nú um ára-
mótin, og eru landshafnirnar í
Rifi, Keflavík og Þorlákshöfn
þá auðvitað ekki meðtaldar,
þar sem þær eru ríkiseign. Hall
dór E. Sigurðsson alþm. áætlaði
á þingi um daginn, að þessi
skuld myndi liækka upp í 80
(Framhald á blaðsíðu 4.)