Dagur - 14.12.1966, Side 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Sítnar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðamiaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
MAGNÚSI FIPAÐIST
VÖRNIN
ÞEGAR Magnús fjármálaráðherra
átti í vök að verjast á dögunum,
vegna verðbólgufjárlaganna miklu,
greip liann til þess úrræðis að halda
því fram, að fjárlögin ,fyrir viðreisn*
hefðu í rauninni verið ca. helmingi
hærri en venjulega væri talið. Sagði
hann, að útgjöld fjárlaga 1959 hefðu
verið 1180 milljónir en útgjöld út-
flutningssjóðs á sama tíma 1135
milljónir, sem eiginlega væri fjár-
lagaupphæðin árið 1959. En hér
skjátlaðist Magnúsi illa, þótt skýr sé.
í stjórnmálaritinu „Viðreisn“ sem
ríkisstjórnin sendi inn á hvert heim-
ili á ríkiskostnað árið 1960, segir á
bls. 31, að útgjaldaaukning ríkis-
sjóðs vegna afnáms Útflutningssjóðs,
hafi ekki verið nema 113 milljónir
kr., sem ríkissjóður varð að taka á
sig vegna niðurgreiðslna á vöruverði
innanlands, sem útflutningssjóður
hefði séð um. Öll önnur útgjöld
Ú tflutningssjóðs voru tekin af þjóð-
inni með gengisbreytingunni 1960
og eru fjárlögunum óviðkomandi.
Hér var um að ræða fjárlögin 1959,
þ. e. fjárlög hinnar svonefndu „Al-
þýðuflokksstjórnar“, sem Sjálfstæðis-
menn komu á laggirnar meðan þeir
voru að afnema gömlu kjördæmin.
En fjái'lögin fyrir 1958, síðustu fjár-
lögin, sem kennd hafa verið við
Framsóknarflokkinn, voru mun
lægri. Heildarupphæð þeirra, ef með
eru teknar til samræmis, niður-
greiðslur Útflutningssjóðs það ár,
var 882,5 millj. kr. Sú liækkun, sem
orðið hefir á þeirri upphæð, upp í
rúml. 5000 milljónir, að meðtöldu
vegafé, hefir orðið á valdatímum
núverandi stjórnarflokka.
Mörgum stuðningsmönnum ríkis-
stjórnarinnar mun vera farið að
skiljast það nú, að gengisbreytingin
1960 var óhæfilega mikil og með
skattahækkunum, sem framkvæmd-
ar voru samtímis, var vegið í sama
knérunn. En íslendingum var kennt
það þegar á þjóðveldisöld, að ef veg-
ið væri tvisvar í sama knérunn,
myndi illt af hljótast fyrir þann, senr
það gerði. Hér hefði þó ef til vill
farið betur en á liorfðist, ef stjóm-
in liefði borið gæfu til að sætta sig
við hina hófsamlegu kjarasamninga
á árinu 1961. Það axarskaft hennar,
að breyta genginu að nýju það ár,
vegna þessara kjarasamninga, verður
nú meir áberandi með ári hverju.
Sumir segja, að sú gengisbreyting
Iiafi verið hugsuð sem refsibragð, en
sé svo, hefir refsingin komið niður
á orðstír stjómarinnar og kaupmætti
íslenzkrar krónu. □
íslenzkum sljórnmálum
Ný viðhorf í
SEM framhald af frásögn um
heimsókn stjórnar SUF til Ak-
ureyrar, er hér útdráttur úr
ræðu Ólafs R. Grúnssonar.
Ólafur Ragnar Grímsson ræddi
í upphafi um skoðanir ýmissa
manna á íslenzkum stjórnmál-
um. Þeir teldu þau einn alls-
herjar skrípaleik, þar sem að-
al kúnstin væri, að blekkja
sem flesta. Að þeirra áliti væri
helzta inntökuskilyrði í sam-
tökin að geta farið í gegn um
sjálfan sig að minnsta kosti
einu sinni á ári og oftar ef þörf
krefði; sagt eitt í dag og annað
á morgun. án þess að blikna.
Að áliti þessara manna breyti
engu hver sé í stjóm, þetta sé
allt sama tóbakið. Þó þjóðinni
sé sem stendur boðið í nefið úr
viðreisnardósum, myndi hún
hnerra eins mikið og líða jafn
bölvanlega þótt skipt væri um
dósir. Þeir telji, að það sé sama
hver skeri, — tóbakið breytist
ekki.
Ótrúlegur fjöldi manna fyr-
irlíti allt, sem kallast pólitík og
finnist vægast sagt furðulegt,
að annars prýðilegustu menn
skuli blanda sér í hana. íslenzk
stjórnmál séu, að áliti þessara
manna, gráthlægilegur hruna-
dans, þar sem blekkingunni,
lyginni og og spillingunni sé
sungið æðsta lof. Gersamlega
gagnslaust sé að ganga í þenn-
an leik, því að sagan sýni, að
allt sé hvort sem er unnið fyr-
ir gíg. Vinstri stjórn eða við-
reisn, það komi í sama stað
niður: Verðbólgan og öll hringa
vitleysan blífi eftir sem áður.
En sem betur fer væru ekki
allir á sama máli, það sé til
fólk, ungt fólk, sem líti stjórn-
málin öðrum augum. Það unga
fólk, sem nú vex upp í landinu,
láti sig framtíð sína miklu
varða og ætli sér alls ekki að
láta afskiptalausa mótun þess
þjóðfélags, sem það mun búa i
sín manndómsár. Unga fólkið
viti, að þrátt fyrir allt, séu
stjómmálin eina leiðin til að
hrinda í framkvæmd þeim
breytingum, sem það telji
brýna nauðsyn á. Fyrir okkur,
hina nýju kynslóð íslands, séu
stjórnmálin ekki stríð um stöð-
ur, völd, bitlinga eða metorð,
ekki endanleg sókn eftir stund-
arframa, ekki loddaraleikur lát
lausra auglýsinga eða áróðurs,
heldur fyrst og fremst tæki til
að framkvæma ákjósanlega
stefnu, koma í verk því, sem
við teljum statt og stöðugt vera
nauðsynlegt og óhjákvæmilegt.
Það sé vissulega tími til kom-
inn, að þeir menn, sem telji
sig þess umkomna að fyrirlíta
öll stjórnmál og velja því heit-
ið sirkusa og loddaraleikja,
viti, að upp er vaxinn í land-
inu stór hópur fólks, ungra
karla og kvenna, sem líti á
stjórnmálin sem markvisst verk
svið, ekki leiksvið ón alvöru
eða tilgangs. Unga fólkið viti,
að það sé vissulega margt, sem
á bjáti, og verkefnin séu mörg
og erfið. en það sé samt sem
áður sannfært um, að hægt sé
með þrautseigju, þori og sam-
stilltum vilja, að færa lausn
þeirra heila í höfn.
Það sé að æra óstöðugan, að
að fara að lýsa því ófremdar-
ástandi, sem ríki í íslenzku efna
hags- og þjóðmálalífi og rekja
feril þeirra skammsýnu og á-
hrifalausu stundaraðgerða, sem
núverandi ríkisstjórn hafi grip-
ið til. Hvert mannsbam í land-
inu viti, að algert neyðarástand
ríkir í öllum atvinnugreinum,
fjöldi fyrirtækja sé kominn að
hruni, fjármálaspilling sé með
eindæmum, margir telji ísland
konungdæmi braskara og alls-
konar fjármálaspekúlanta. Það
sé hægt að rekja endalaust ó-
farnaðarsögu núverandi stjóm-
ar, en það sem mestu máli
skipti sé hins vegar, að gera
grein fyrir þeim úrræðum, sem
hægt sé að beita, til að ráða bót
á ástandinu.
Hér þurfi að koma til alger-
lega ný og róttæk vinnubrögð,
það þurfi að grípa til róta
þeirra vandamála, sem fyrir
Ólafur Ragnar Grímsson.
liggja. Tilgangslaust sé að
reyna að leysa þessi mál með
einhverjum stundaraðgerðum.
Gera þurfi ítarlegar áætlanir
um þróun atvinnuveganna, að
raða þurfi verkefnum eftir getu
landsmanna, vinnuafli, véla-
kosti og fjármagni. Pappírsgögn
eins og núverandi framkvæmda
áætlun ríkisstjórnarinnar komi
að engu haldi. Óhjákvæmilegt
sé, að hverri áætlun fylgi grein
argerð um þau tæki, sem beita
á til framkvæmda. Tilgangslít-
ið sé að láta sérfræðinga vinna
mánuðum saman að gerð áætl-
ana, ef ríkisstjórnin leggi ekki
neinar nýjar leiðir til mála, til
að tryggja framkvæmd þeirra.
ítarlegar áætlanir um þróun at
vinnuveganna þarf að undirbúa
vel og rækilega í samráði við
fulltrúa launþega og atvinnu-
rekenda í viðkomandi greinum.
Kanna þarf í starfshópum at-
vinnuveganna framleiðslumögu
leika, fjárfestingaráform, að-
stöðu til aukinnar framleiðslu
með betra skipulagi og nýrri
vélakosti, ásamt breyttum
starfsaðferðum. Slíkar athugan
ir á hag og þróun hverrar at-
vinnugreinar þarf að samræma
í heildar fjárfestingar- og fram
kvæmdaáætlun. Einnig þurfi
að koma til könnun á æskilegri
framtíðarþróun einstakra hér-
aða og landssvæða, en þá eink-
um með tilliti til þróunar þjóð-
arbúsins í heild.
Norðurlandsáætlunin, sem sé
í undirbúningi, sé vissulega
spor í rétta átt, en Norðlend-
ingar verði að gera sér grein
fyrir því, hvernig unnt sé
á raunhæfan hátt að fram-
kvæma tillögur þær, er þar
koma fram. Norðurlandsáætl-
unin megi ekki fara eins og
þjóðhags- og framkvæmdaáætl
unin 1962—1966: Að vera einsk
is nýtt pappírsgagn sem engin
áhrif hefur á þróun atvinnu-
veganna eða á hag landsmanna
yfir leitt.
Á undanförnum mánuðum
hafi forysta Framsóknarflokks-
ins lagt fram tillögu um gerð
slíkra verkefnaáætlana og breyt
ingu starfshátta í stjórn efna-
hagsmála. Breytingar á stjórn-
tækjum væru einkum fimm-
þættar.
Bankapólitíkin væri ekki ein
ungis miðuð við magn útlána
eins og í tíð núverandi stjórn-
ar heldur einnig við tegundir
framkvæmda og staðsetningu
þeirra. — Hverri lánaumsókn
fylgi ýtarleg gi'einargerð um
áformaðan fjárfestingartíma
og nánari framkvæmdaatriði.
Þannig, að tryggt sé, að við-
komandi framkvæmd verði lok
ið á sem stytztum tíma og á
sem hagkvæmasta hátt. Banka
pólitíkin sé svo mikilvægt tæki
í stjórn efnahagsmála að íslend
ingar verði að gera hana marg-
þættari og hæfari til þess að
laga sig að breyttum kröfum og
þörfinni á breyttu skipulagi í
atvinnu- og efnahagsmálum.
Fjárlög og framkvæmdir rík-
is- og sveitarfélaga þurfi að
samræma framkvæmd þjóðar-
búsins í heild. Tryggja verði
að framkvæmdir ríkisvaldsins
komi að sem beztum og hag-
kvæmustum notum og kröft-
um þess sé ekki dreift um of. í
greinargerð fjárlagafrumvarps-
ins í ár kom fram sú hryggi-
lega staðreynd, að núverandi
ríkisstjórn hefur ekki nema
mjög takmarkaða hugmynd um
hvort fjárveitingar hennar fari
raunverulega til þeirra fram-
kvæmda, sem þær eru veittar
til. Viðurkennt er, að fram-
kvæmdir og fjárfesting ríkis-
valdsins séu að mestu eftirlits-
lausar.
Skattalögunum verði breytt í
þá átt, að þau stuðli beinlínis
að framkvæmdum í samræmi
við áætlunina. Til dæmis veiti
ívilnanir vegna nauðsynlegra
skipulagsbreytinga, breytts véla
kosts og breyttra starfsað-
ferða.
Styrkir verði veittir til þró-
unar sérstakra svæða og at-
vinnugreina, sem standist hag-
rænt mat áætlunarinnar og
þjóðfélagslegs gildismats. Stuðl
að verði að flutningum til
byggðakjarna í stað suðvestur-
svæðisins, til dæmis með styrkj
um til íbúðakaupa. Vandræði
séu, sagði ræðumaður, og reynd
ar algjöf óhæfa, að hæfir fram-
kvæmda- og félagsmálamenn
geti ekki setzt þar að, þar sem
byggðakjarnar eru, vegna hús-
næðisskorts.
Þjálfaðir verði betur en hing
að til bæði stjómendur og
verkafólk. Erlendar þjóðir leggi
nú æ meiri áherzlu á menntun
og þjálfun framkvæmdamanna
sinna og íslendingar geti ekki
vanrækt þann þátt.
Gera verði nauðsynlegar
breytingar á stjórnkerfinu, í
samræmi við breytta staTÍs-
hætti og betri skipulagningu á
starfsemi hins opinbera.
Skapa verði launþegasam-
tökunum aðstöðu til þess að
geta stuðzt við ítarlegar rann-
sóknir í samningum sínum,
hafi aðstöðu til þess að kynn-
ast hag og afkomu einstakra
atvinnugreina og fyrirtækja —
þannig, að staðreyndir verði
lagðar til grundvallar kaup- og
kjarasamningum. Hin fjöl-
mennu íslenzku launþegasam-
tök verði að hafa jafna aðstöðu
til þess að geta beitt þekkingu
og rannsóknum í þágu hags-
munamála sinna.
Margt fleira mætti rekja, til
að benda á þær mörgu leiðir,
sem færar eru til að baeta og
skipuleggja betur efnahags- og
athafnalífið á íslandi, en þetta
verði að nægja að sinni. Það
sýni þó, að fjarri sé því, að ekki
sé hægt að stjórna þessu landi
eftir öðrum leiðum en núver-
andi ríkisstjórn hefur gert.
Hin unga kynslóð, sem nú
vex upp á íslandi og senn hasl-
ar sér völl í íslenzkum stjórn-
málum, veit fyllilega hve mikil
nauðsyn er á eflingu atvinnu-
veganna og betra ástandi í ís-
lenzkum efnahagsmálum. En
hún gerir sér einnig grein fyrir
því, að leggja verði rækt við ís-
lenzka menningu, þjóðerni og
andlegt sjálfstæði. Hinni ungu
kynslóð bíði í rauninni það
verkefni, að skapa íslenzkri
menningu svo traustan grunn,
að hún geti í órofa samhengi
haldið áfram að dafna og efl-
ast þrátt fyrir ásókn er-
lendra áhrifa og holskeflur út-
lendra strauma, sem æ tíðar
munu skella á landi og þjóð.
Hennar verkefni sé að sanna í
reynd, að smáþjóðir eigi enn
sinn tilverurétt, verkefni henn-
ar í nútíð séu svo mikilvæg, að
sjálfstæði hennar beri að varð-
veita, skerfur hennar til heims-
menningar svo máttugur, að
enginn dirfist að troða á lífs-
rétti hennar, heldur meti og
virði hennar verðleika og veiti
henni tvímælalausan jafnrétt-
issess í sölum veraldarþinga.
Hin unga kynslóð sé staðráð-
in í því að vilja skapa þjóðfé-
lag sem með hreinskilni og ein-
urð, opinberum og hlutlægum
umræðum og ítarlegum rann-
sóknum kappkostar að leysa
sín vandamál. Þjóðfélagið, sem
umsvifalaust hafnar öllum yf-
irborðshringlanda og látalátum
frambornum í áróðursskyni af
pólitískum loddurum, sem
einskis svífast vegna frama-
vona og valdabrölts. Þjóðfélags,
sem eigi líði svindl og ,brask
spillingu í fjálmálum. Þjóð-
félags, sem meti andansmenn
meira en byggingabraskara og
uppmælingaraðal, skapi þeim
aðstöðu til að fullnýta hæfi-
leika sína og krafta og gefi al-
menningi, hvar á landinu sem
hann býr, kost á að njóta verka
þeirra. Þjóðfélags, sem skilji
það til fullnustu að framtíð
þess sé fyrst og fremst undir
því komin, að því takist að
skapa hugverk, sem gild eru á
mælikvarða veraldar, leggja af
mörkum hæfar hugmyndir, er
í senn þroski þjóðina og eru
skerfur þeirrar þekkingarþraut
ar, sem alls staðar eru óleyst-
ar. Þjóðfélag, sem sitji ekki að-
gerðarlaust hjá meðan þjarkað
er um örlög heimsfriðar, held-
ur sýni friðarvilja sinn í verki,
sendi dugandi menn til hjálp-
ar vanþróuðum, miðli öðrum
af eigin reynslu. Þjóðfélag, sem
viti að þótt lóð þess sé létt, þá
finni vogarskálin samt fyrir
þunga þess. Hin unga kynslóð
íslands viti, að það verði að
treysta trú þjóðarinnar á sjálfa
sig, mátt sinn og-megin. Eigi
þjóðin að dafna um ókomin ár,
megum við ekki glata reisn
okkar. Urtölur manna, vol og
víl um yztu mörk hins byggi-
lega heims sé tungutak, sem
sæmi illa ráðherrum íslend-
inga. Að stefna á brattann,
bera höfuðið hátt, takast á við
vandann og æðrast ekki, hafi
ávallt verið aðall þessarar þjóð
ar, sagði Ólafur að lokum. □
Raunliæf verðstöðvun
(Framhald af blaðsíðu 1).
Við slíkum vinnubrögðum í
þessu erfiða þjóðfélagsvanda-
máli varar verkalýðshreyfingm
alvarlega og tekur afstöðu gegn
hvors konar haldlausum kák-
ráðstöfunum.
Verði reyndin sú um fram-
kvæmd á frumvarpi ríkisstjórn
arinnar til laga um lieiniild til
verðstöðvunar og því fáist ekki
breytt í raunhæfara horf með
þeirri afleiðingu að dýrtíðin
verði ekki stöðvuð, lýsir verka-
lýðshreyfingin ábyrgðinni af
því á hendur ríkisstjóminni
einni saman.“ □
B
Nokkrar nýjar bækur frá Ægisútgáfimni
BLAÐINU hafa borizt nokkr-
ar bækur frá Ægisútgáfunni í
Reykjavík og eru þær þessar:
FÍONA eftir Densie Robins í
þýðingu Óla Hermanns er eld-
heit ástarsaga, sem hvorki vant
ar í funa eða staðfestu. Hún
fjallar um fagra dóttur auðugs
og ráðríks skipaeiganda, sem
trúlofast ung en finnur síðar
ástina og þá með öðrum marnii
og um það er sagan.
A FÖRNUM VEGI eru viðtöl
Lofts Guðmundssonar, er hann
hefur átt við ýmsa mæta menn,
svo sem Halldór Laxness, Sig-
urð Sveinbjörnsson predikara,
skyggnu konuna Jakobínu
Þorvaldsdóttur, Ólaf Ólafsson
kristniboða o. fl. Alls eru við-
tölin 11 og bregða þau upp
margs konar þjóðlífsmyndum,
sem betur eru varðveittar en
gleymdar. Loftur Guðmunds-
son er kunnur blaðamaður,
höfundur bóka og bókaþýðari.
Á förnum vegi er 220 blaðsíðna
bók, prentuð í Prentsmiðjunni
Odda h.f.
KASTAÐ í FLÓANUM er bók
um upphaf togveiða við ísland
og höfundurinn er Ásgeir Jak-
obsson, vestfirðingur að ætt,
stundaði lengi bóksölu á Akur-
eyri, er pennafær og hugkvæm
ur höfundur og viðfangsefnið
þekkir hann frá sínum sjó-
mannsárum. Bók þessi er í senn
heimildarrit og skemmtileg bók
um 240 blaðsíður, prentuð í
Prentverki Akraness.
GLAJDIR DAGAR heitir lítil
bók eftir Ólöfu Jónsdóttur —
margir stuttir þættir — ritaðir
handa yngstu kynslóðinni. I
bókinni eru teikningar eftir
Vigdísi Kristjánsdóttur.
GADDASKATA eftir Stefán
Jónsson fréttamann er á ýms-
an hátt svipuð bók hans Kross-
fiskar og hrúðurkarlar og eru
þessar bækur óvenjulegar að
efni og efnismeðferð, tilheyra
ekki neinum flokki bókmennta
en gera flestum lesendum glatt
í geði. Þetta er annars fimmta
bók höfundar en hinar eru:
Krossfiskar og hrúðurkarlar,
Mínir menn, Þér að segja, og
Jóhannes á Borg.
SJÓSLYS OG SVAÐILFARIR,
sannar sagnir, skrásettar og
þýddar af Jónasi St. Lúðvíks-
syni er rúmar 170 bls. með all-
mörgum myndum. íslenzkar
frásagnir eru fimm og jafn
margar erlendar. Prentsmiðjan
Ásrún annaðist prentunina.
MADDAMA DOROTHEA er
síðasta skáldsaga Sigrid Undset
og er óþarft að kynna höfund-
inn. Sagan gerist í Noregi á 18.
öld, er stórbrotin og viðburða-
rík. Þýðingu annaðist Arnfríð-
ur Sigurðardóttir, en Prent-
verk Akraness annaðist prent-
unina. □
- SMATT OG STORT
(Framhald af blaðsíðu 8).
prestar gerast afliuga búskap,
en afleiðingin þá sú, að bújarðir
þeirra, sem yfirleitt eru í beztu
jarða röð, dragast afturúr, að
því er umbætur varðar, og
verða ekki sveitarfélagi sínu til
fullra nytja. En auðvitað væri
hægt, að ráðstafa jörðunum til
annars aðila, þó að lög ákveði
að prestsetur séu á sömu stöð-
um og þau hafa verið. Að sjálf-
sögðu getur prestur, ef rétt
þykir, átt hemia á jörð og liaft
þar einhverjar landsnytjar, þótt
hann liafi hana ekki til ábúðar.
Þorsteinn Jósefsson.
LANDIÐ ÞITT
BÓK Þorsteins Jósefssonar —
Landið þitt — er saga og sér-
kenni nær tvö þúsund einstakra
bæja og staða á íslandi, sem
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
h.f. gefur út og er á fimmta
hundrað blaðsíður í stóru broti.
Fjörutíu góðar myndir prýða
bókina og munu sumir hafa
búizt við þeim miklu fleiri.
Upphaflega var bókin ætluð
þeim öðrum fremur, sem ferð-
ast vildu um landið. En hún er
einnig góður lestur þeim, sem
sytja kyrrir á sama stað og
vilja þó kynna sér landið af
frásögn annarra. Aftast í bók-
inni er nafnaskrá til að auð-
velda lesendum leit að hinum
nKYNNIZT
KJÖRUM
AB
ENGIN
FÉLAGS-
GJÖLD I AB
GERIZT
FÉLAGS-
MENN AB
GÓÐAR
BÆKUR
ANÆGJULEGT OG
ÞROSKANDI HEIMILISLÍF
JV*ÆW5C
\ffl J
ÆV/SÖGUR OG
ÞJÓÐLEG
FRÆÐ/
ISLENZKIR MALSHÆTTIR
Bjarni Vilhjálmsson og Óskar Halldórsson
lóku saman. Sígilt uppsláttarrit með yfir 7000
málsháttum. fél.m.verð kr. 495.00.
KVÆÐI OG DANSLEIKIR
l-ll
Jón Samsonarson tók saman þetta grund-
vallarrit i þjóðlegum bókmenntum.
fél.m.verð kr. 695.00.
ÍSLENZKAR BÓKMENNTIR
í FORNÖLD
Afburða ritverk eftir próf. Einar Ólaf Sveinsson,
um glæstasta skeið íslenzkra bókmennta.
fél.m.verð kn 295.00.
ÞORSTEINN GÍSLASON,'
SKÁLDSKAPUR OG
STJÓRNMÁL
Úrval Ijóða og ritgerða Þorsteins Gíslasonar
ritstjóra. í bókinni er m.a. stjórnmálasaga
Islands árin 1896-1 918. fél.m.verð kr. 350.00.
LÝÐIR OG LANDSHAGIR
l-ll
eftir dr. Þorkel Jóhannesson. Hagsaga (slands
og atvinnuhættir, æviágriþ merkra manna og'
bókmenntaþættir. fél.m.verð kr. 590.00.
LAND OG LÝÐVELDI l-ll
eftir dr. Bjarna Benediktsson. Samtíðarfrásögn
þeirra viðburða, sem hæst ber í sögu íslands
á síðustu áratugum. fél.m.verð kr. 590.00.
HANNES HAFSTEIN l-lll
eftir Kristján Albertsson, rithöfund. Ýtarlegasta
ritverkið um sjálfstæðisbaráttu Islendinga fyrir
og eftir síðustu aldamót. fél.m.verð kr. 820Í00.
HANNES ÞORSTEINSSON,
SJÁLFSÆVISAGA
Bókin, sém geymd var undir innsigli í áratugi
og enginn mátti sjá fyrr en á aldarafmæli
höfundar. íél.m.verð kr. 235.00.
SURTSEY
Sigurður Þórarinsson.
Nýjar útgáfur á ensku, þýzku og dönsku.
fél.m.verð kr. 195.00.
• BÓKASAFN AB
Islenzkar bókmenntir
KRISTRÚN 1 HAMRAVÍK
eftir Guðmund Gíslason Hagalin.
fél.m.verð kr. 195.00.
LÍF OG DAUÐI
eftir dr. Sigurð Nordal. fél.m.verð kr. 195.00.
• ÍSLENZK SKÁLDR/T
MANNÞING
eftir Indriða G. Þorsteinsson.
fél.m.verð kr. 195.00.
TÓLF KONUR
eftir Svövu Jakobsdóttur.
fél.m.verð kr. 165.00.
BAK VIÐ BYRGÐA
GLUGGA
eftir Grétu Sigfúsdóttur. Raunsönn ástarsaga
frá hernámsárunum í Noregr.
fél.m.verð kr. 295.00.
TVÆR
BANDINGJASÖGUR
eftir Jón Dan. fél.m.verð kr. 130.00.
TVÖ LEIKRIT
eftir Jökul Jakobsson. fél.m.verð Kr. 235.00.
VIÐ MORGUNSÓL
eftir Stefán Jónsson. fél.m.verð kr. 235.00.
• LJÖÐABÆKUR
FAGUR ER DALUR
eftir Matthíás Johannessen.
fél.'m.verð kr. 195.00.
í SUMARDÖLUM
eftir Hannes Pétursson. fél.m.verð kr. 100.00.
MIG HEFUR DREYMT
ÞETTA ÁÐUR
eftir Jóhann Hjálmarsson.
- fél.m.verð kr. 195.00.
GJAFABÓK AB árið 7966
er Kormákskver, sem
Jóhannes Halldórsson hefur
tekið saman. Bók þessa fá
að gjöf þeir fé/agsmenn
AB, sem keypt hafa 6 AB
bækur eða f/eiri á árinu.
ALFRÆÐASAFN AB
FLUGIÐ
FRUMAN
HREYSTI OGSJÚKDÓMAR
KÖNNUN GEIMSINS
MANNSHUGURINN
MANNSLÍKAMINN
STÆRÐFRÆÐIN
VEÐRIÐ
VÍSINDAMAÐURINN
fél.m.verð hverrar bókar kr. 350.00.
• ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR
LJÓSIÐ GÓÐA
Karl Bjarnhof. fél.m.verð kr. 265.00.
FÖLNA STJÖRNUR
Karl Bjarnhof. fél.m.verð kr. 130.00. ■
DEILD 7
Valeriy Tarsis. fél.m.verð kr. 125.00.
HLÉBARÐINN.
Giuseppi di Lampedusa. fél.m.verð kr. 235.00.
HÚN ANTÓNÍA MÍN
Willa Cather. fél.m,verð kr. 265.00.
KLAKAHÖLLIN
Tarjei Vesaas. fél.m.ve'rð kr. 195.00.
NJÓSNARINN
sem kom inn úr kuldanum, John le Carré.
fél.m.verð kr. 195.00.
NÓTT í LISSABON
Erich Maria Remárque. fél.m.verð kr. 195.00.
i
• LOND
KANADA
KÍNA
MEXÍKÓ
SÓLARLÖND
SPÁNN
OG ÞJÓÐ/R
fél.m.verð kr. 295.00.
do
fél.m.verð kr. 235.00.
AFRÍKU
do
1
ALMENNA BÓKAPÉLAGIÐ
einstöku stöðum.
□