Dagur


Dagur - 15.02.1967, Qupperneq 1

Dagur - 15.02.1967, Qupperneq 1
Herbergis- pantanir. Ferða- skrifstofan Túngötu 1. Akureyri. Sími 11475 L. árgangur — Akureyri, miðvikudaginn 15. febrúar 1967 — 12. tbl. r * ■ .# . t Túngötu 1. Feroaskrifstofan sími n«s Gísli Guðmundsson alþingis- maður Hóli Langanesi. Ingvar Gíslason alþingismaður Akureyri. Stefán Valgeirsson bóndi Auðbrekku Hörgárdal. Jónas Jónsson cand. agro. ráðunautur frá Yztafelli. Bjöm Teitsson stud. mag. Brún Reykjadal. Sigurður Jóhannesson skrif- stofumaður Akureyri. Ingi Tryggvason kennari og bóndi Kárhóli Reykjadal. Margt ungt fólk skipar lista Fram- sóknarmanna í pessu kjiirdæmi Amþór Þorsteinsson forstjóri Eggert Ólafsson bóndi Akureyri. í Laxárdal. Flokksþing Framsóknarmanna FLOKKSÞING FRAMSÓKNARFLOKKSINS verður hald- ið í Reykjavík dagana 14.—19. marz n.k. Þar verður kosn- ingabaráttan undirbúin, gerðar ályktanir um helztu þætti þjóðmálanna og einnig verður 50 ára afmælis Framsóknar- flokksins minnzt. Verður því þing þetta öðrum þræði hátíða- þing Framsóknarmanna um leið og flokkurinn mun sameina krafta sína til nýrrar sóknar á stjómmálasviðinu. Framsóknarfélögin um land allt em minnt á að kjósa full- trúa á flokksþingið og tilkynna þátttöku. Q Straumurinn mun liggja !il Framsóknaflokksins um land allt í alþingiskosningunum nú í vor DAGUR birtir hér á síðunni myndir af frambjóðendum Framsóknarflokksins í Norð urlandskjördæmi eystra. En framboð flokksins í þessu kjördæmi var endanlega ákveðið 9. febrúar sl. á auka kjördæmisþingi á Akureyri. Fyrsti þingmaður kjör- dæmisins, Karl Kristjánsson alþingismaður á Húsavík, lætur nú af þingmennsku sökum aldurs. Fyrsti vara- þingmaður flokksins í kjör- dæminu, Hjörtur E. Þórar- insson á Tjörn í Svarfaðar- dal, hafnaði einnig sæti sínu á listanum. Framboðslistinn eins og hann er nú skipaður, hefur því tekið miklum breyting- um frá síðustu Alþingiskosn ingum og mun það vekja at- hygli live margt af ungu fólki skipar hann að þessu sinni. Kjördæmisstjóm og fram- boðsnefnd, sem unnu að skipun listans í vetur og lögðu hann fram á aukakjör dæmisþinginu, voru ein- huga um þessa skipan hans og kjördæmisþingið sam- þykkti hann síðan með öll- um greiddum atkvæðum. Að sjálfsögðu munu skoð- anir skiptar um það, liversu skipa beri 12 manna fram- boðslista í kjördæmi sem þessu, sem spannar yfir 3 sýslur og 3 kaupstaði og skiptast menn jafnan á skoð- unum um þau mál. En full- víst má telja, að hinn nýi framboðslisti hljóti örugg- ann og mikinn stuðning ekki aðeins Framsóknarfólks heldur einnig kjósenda ann arra stjórnmálaflokka í kjör dæminu og hins mikla fjölda ungs fólks, sem nú neytir kosningaréttar síns í fyrsta sinn. Straumurinn liggur til Framsóknarflokksins um þessar mundir. Ungu fóiki innan raða hans hefur fjölg- að ört og lætur það meira að sér kveða en nokkru sinni áður. Bæjarstjómarkosning- arnar á síðasta voi sýndu vaxandi ugg vegna mistaka ríkisstjómarinnar í efna- hags-, atvinnu- og utanríkis- málum, og að æ fleiri treysta Framsóknarflokkmim til sóknar og varnar í málefn- um þjóðarinnar. Kosningabarátta sú, sem í hönd fer, verður væntanlega bæði málefnaleg og drengi- leg. □

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.