Dagur - 15.02.1967, Page 2
2
KÖRFUKNATTLEIKSMENN ÚR ÞÖR SIGURS/ELIR
UM SÍÐUSTU HEUGI léku
Þói-smenn 2 leiki í Islandsmót-
; inu í köi-fuknattleik, 2. deild, og
sigruðu í báðum. Fyrri leikur-
i inn var háður í íþróttahúsinu á
Hálogalandi við lið íþrótta-
i bandal. Vestmannaeyja sl. laug
ardag. Hluti af liði ÍBV vax-ð
veðurtepptur í eyjum, en piltar
úr liðinu, sem eru við nám í
Háskólanum fengu fyllt í sköi-ð
Fyrri hálfleikur milli þessara
liða var jafn og skemmtilegur
i og endaði með 18 stigum gegn
17 fyrir Þór. Seinni hálfleikur
var spennandi og náði ÍBV 9
stiga foi-skoti um miðjan síðari
hálfleik. Síðán jafnaðist leikur-
inn og mátti vart milli sjá, en
Þórsax-ar sigu á og náðu forystu
er 5 mínútur voiu eftir af leik
og sigruðu með 53 stigum gegn
50. Stigahæstu menn Þórs voru
Jón Fi-iðriksson 22 stig, Magnús
Jónatansson 15 stig og Pétur
Sigux-ðsson 10' stig. Dómarar í
þessum leik voru Marinó Sveins
son og Ólafur Hai-aldsson.
KR sigraði ÍBÁ með yfirburðinn
SL. LAUGARDAG fór fram í
íþróttaskemmunni hér í bæ leik
ur í Handknattleiksmóti ís-
lands, 2. deild, milli KR og ÍBA.
Leikar fóru svo að KR sigi-aði
með yfii-bui-ðum, 29:14. í hálf-
leik var staðan 11:5 fyrir KR.
Mikil hai-ka var í leiknum og
var 2 Akureyx-ingum og 1 KR-
ing vísað af velli í 2 mínútux-.
Þá voru dæmd ein 10 víti á
ÍBA-liðið, en mun færri á KR.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn og voru Akureyringar
•mjög óheppnir með sín mark-
skot, og áttu þeir mörg tæki-
færi, sem ekki nýttust.
í síðari hálfleik var harkan
alls ráðandi og var þá dæmt
hvert vítið á fætur öðru á Akur
eyringa og virtist dómarinn
missa öll tök á leiknum í þeim
hálfleik. Þó merkilegt megi
heita var dæmt meira á brot
Akureyringa, þótt þeir virtust
ekki eins harðskeyttir og KR-
ingar. Sérstaklega var það áber
andi hve illa var farið með línu
mennina og þeim miskunnar-
laust haldið föstum.
Það sést vel í þessum leik, að
Akureyringar eiga mikið ólært,
enda varla við því að búast að
þeir standi jafn þrautþjálfuðu
liði og KR á sporði. Karl Jó-
hannsson, landsliðsmaður, er
aðal driffjöður KR-liðsins og er
hann mjög skemmtilegur leik-
maður. Þjálfari KR er Ingólfur
Óskarsson, landsliðsmaður.
Að lokum má geta þess að
KR-ingar hófu sínar æfingar í
september í fyrra og hafa æft
3—4 sinnum í viku síðan, og
leikið auk þess fjöLmarga leiki
í Reykjavíkur- og fslandsmóti.
Liðið er skipað ungum mönn-
um og harðskeyttum, sem leik-
ið hafa saman í yngri flokkum,
en ganga nú upp í meistara-
flokk.
Á sunnudag fór fram hrað-
keppni. A og B lið KR og A og
B lið ÍBA og var hún all
skemmtileg. Fyrst léku A-lið
ÍBA ög B-lið KR. Leiktími var
2x12 mín. Með B-liði KR lék
þjálfarinn, Ingólfur Óskarsson,
og var gaman að sjá hann leika
hér. Að loknum leiktíma var
staðan jöfn 11:11, og var fram
lengt í 2x2 mín. í framlengingu
skoruðu Akureyringar 3 mörk
en KR ekkert, og lauk leiknum
14:11 fyrir ÍBA. Þá léku A-lið
KR og B-lið ÍBA og sigraði A-
lið KR með 22:7. Því næst léku
B-liðin saman og var það
skemmtileg viðureign og lauk
henni með sigri ÍBA 11:9. Að
lokum léku svo A-liðin. Akur-
eyringar byrjuðu vel og höfðu
frumkvæðið framan af, en urðu
að láta í minni pokann undir
lokin, og töpuðu með 6 marka
mun, 16:10.
Margt áhorfenda var báða
dagana og virtust þeir skemmta
sér vel, þó Akureyrarliðið tap-
aði.
Nú undanfarið höfum við séð
nokkra af beztu handknattleiks
mönnum landsins leika hér, og
ber vissulega að fagna því.
ÍR-ingar leika á Akureyri urn
næstu helgi.
Um næstu lielgi koma svo
ÍR-ingar og leika hér á laugar-
dag og sunnudag, en þeir eru
nú í 2. sæti í 2. deild, og verður
það næstsíðasta heimsóknin,
sem við fáum í vetur í sam-
bandi við Handknattleiksmót ís
lands. Síðast koma Þróiiarar
11. og 12. marz.
Síðari leikurinn fór fram á
sunnudag í íþróttahöllinni í
Laugardal og lék Þór þá við
Ungmennafélagið Snæfell úr
Stykkishólmi. — Snæfellingar
tóku í upphafi forystuna og
skoruðu 8 stig gegn 2 á fyrstu
fimm mínútunum. Á næstu
mínútum náði Þór að jafna leik
inn og ná góðu forskoti og í
hálfleik var staðan 27 stig gegn
16 Þór í hag. I seinni hálfleik
minnkuðu Snæfellingar forskot
ið og um miðjan síðari hálfleik
skildu ekki nema tvö stig milli
félaganna, en Þór hélt forskot-
inu og jók það allverulega und-
ir það er leiknum lauk, og loka
tölur urðu 42 stig gegn 33 Þór
í hag. Stigahæstu menn Þórs í
þessum leik urðu Magnús Jóna
tansson 16 stig, Guðni Jónsson
10 stig. Dómarar voru Guð-
mundur Þorsteinsson og Helgi
Jóhannsson.
Næsti leikur Þórs verður við
Héraðssambandið Skarphéðinn
og fer sá leikur fram hér á
Akuréyri, væntanlega eftir
hálfan mánuð. Ef Þór sigrar í
þeim leik, hafa þeir tryggt sér
sæti í 1. deild íslendsmótsins í
körfuknattleik næsta ár.
Staðan í 2. deild íslandsmóts-
ins í körfuknattleik er nú þessi:
íþróttafélagið Þór 4 stig
Vestmannaeyjar 2 stig
UMF Skarphéðinn 2 stig
UMF Snæfell 1 stig
Sigurvegarar í flokki 14—16 ára, frá vinstri: Sigþrúður, Sigrún og
Barbara.
Sigurvegarar í flokki 11-
og Olafur.
-12 ára, frá vinstri: Gunnlaugur, Alfreð
Sigurvegarar í flokki 15—16 ára, frá vinstri: Björn, Örn og Jónas.
Skíðamenn frá Akureyri á mófum í Reykjavík og Húsavík
SKÍÐASAMBAND ÍSLANDS liefur ákveðið að fjögur mót, svo-
kölluð „opin mót“ skuli haldin á hverjum vetri, eitt á hverjum
eftirtalinna staða: Reykjavík, ísafirði, Siglufirði og Akureyri. Til
að tryggja þátttöku beztu manna landsins á þessi mót fær hver
þeirra sem lendir í 8 fyrstu sætunum ákveðinn stigafjölda, sem
reiknaður er honum til góða þegar raðað er niður í ráshópa fyrir
Skíðamót fslands og einnig auðveldar þetta starfsmönnum fslands-
mótsins, að meta hæfni keppenda og gerir alla skiptingu í ráshópa
mun auðveldari.
\ . . -
REYKJAVÍK.
Fyrsta „opna mótið“ var háð í Reykjavík sl. sunnudag og var
keppt í svigi og stórsvigi. Ef til vill má kalla þetta tvö mót, þar
sem svig og stórsvigskeppnin báru ekki sama nafn. Svigkeppnin
fór fram við skíðaskála ÍR í Hamragili og bar nafn þess, en stór-
svigskeppnin fór fram í námunda við skíðaskála Ármanns í Jósefs-
dal og hét Stórsvigsmót Ármanns.
Frá Akureyri sóttu mót þetta þau Karólína Guðmundsdóttir,
Guðrún Siglaugsdóttir, Reynir Brynjólfsson, Magnús Ingólfsson,
ívar Sigmundsson og Þorlákur Sigurðsson.
Úrslit urðu sem hér segir:
57.4 = 112.7
60.5 = 113.2
58.1 = 114.5
Stórsvig kvenna. sek.
1. Karólína Guðmundsdóttir Akureyri . .. . 47.1
2. Árdís Þórðardóttir Siglufirði . . . 47.7
3. Hrafnhildur Helgadóttir Reykjavík .. .. . 50.5
4. Guðrún Siglaugsdóttir Akureyri . . . . .. . 50.7
Stórsvig karla. sek.
1. Björn Ólsen Reykjavík ... 40.4
2. Reynir Brynjólfsson Akureyri ... 40.9
3. Ámi Sigurðsson ísafirði ... 41.1
4. ívar Sigmundsson Akureyri ... 41.3
5. Hafsteinn Sigurðsson ísafirði ... 41.3
6. Magnús Ingólfsson Akureyri .. . 42.9
Svig kvenna. sek. sek. sek.
1. Hrafnhildur Helgadóttir Reykjavík .. 42.6 — 43.2 = 85.8
2. Árdís Þórðardóttir Siglofirði 61.1 — 39.1 = 100.2
3. Jóna Jónsdóttir Reykjavík 46.6 — 58.5 = 105.0
Guðrún Siglaugsdóttir Akureyri fékk beztan brautartíma 38.4 í
fyrri ferð sinni, en hún datt og sleppti porti í síðari ferð og varð úr
leik.
Svig karla. sek. sek. sek.
1. Árni Sigurðsson ísafirði 54.1 — 48.2 = 102.3
2. fvar Sigmundsson Akureyri 52.4 — 51.0 = 103.4
3. Bjöm Ólsen Reykjavík 51.1 — 54.3 = 105.4
4. Jóhann Vilbergsson Siglufirði 55.6 — 54.8 = 110.4
5. Sigurður Jóhannesson Siglufirði .... 55.3
6. Leifur Gíslason Reykjavík........ 52.7
7. Magnús Ingólfsson Akureyri....... 56.4
Keppendur í kvennaflokki voru 9, og í karlaflokki 26.
Næsta „opna mótið“' fer fram á Akureyri. Það er Hermannsmót-
ið og verður keppt í svigi og stórsvigi laugardaginn og sunnudag-
inn 25. og 26. febrúar n.k. Mæta þá váentálégá til leiks beztu skíða-
menn landsins.
Fulltrúi Akureyringa við mótið í Reykjavík sl. sunnudag var
gamall Akureyringur, Þráinn Þórhallsson, sem nú er búsettur í
Reykjavík. Róma keppendur héðan mjög alla hans fyrirgreiðslu
og aðstoð í sambandi við þessa suðurför.
HÚSAVÍK.
Sl. sunnudag fór fram á Húsavík skíðamót fyrir unglinga. Til
keppninnar voru skráðir alls um 60 keppendur frá Húsavík, Akur-
eyrií Siglufirði og Reykjavík.
Mótsstjóri var Stefán Benediktsson, form. skíðadeildar Völsunga
og brautarlagningu annaðist Svanberg Þórðarson frá Ólafsfirði,
sem starfað hefur við skíðakennslu á Húsavík sl. tyær vikur.
Keppnin fór fram í brekku rétt við bæinn, nálægt togbraut þeirri
sem Húsvíkingar hafa nýlega tekið í notkun. Mótið fór allt mjög
vel og skemmtilega fram og að því loknu bauð íþróttafélagið Völs-
ungur keppendum og starfsmönnum til kaffidrykkju í félags-
heimilinu Hlöðufelli. Þar afhenti mótsstjómin hverjum keppanda
fjölrituð úrslit keppninnar og sýnir það að snör handtök hafa átt
sér stað frá keppnisstað að veizluborði. Vilhjálmur Pálsson íþrótta-
kennari Húsavík stjórnaði hófinu, bauð hina ungu íþróttamenn og
konur velkomin og þakkaði þeim sérstaklega góða framkomu á
mótinu. Þá afhenti mótsstjórinn sigurvegurunum verðlaun og
fararstjórunum Óðni Árnasyni Akureyri og Sigurjóni Erlendssyni
Siglufirði minnispening um komuna. í þessu hófi var Svanbergi
Þórðarsyni þökkuð dvöl hans á Húsavík, en hann hafði einmitt
lokið við skíðanámskeið sín þennan dag. Húsvíkingum var þakkað
ágætt mót og frábærar móttökur, og strax að veizlu lokinni hélt
hver til síns heima. Vonandi fá Akureyringar fljótlega að sjá skíða-
menn Völsunga í keppni hér í Hlíðarfjallinu.
Úrslit urðu þessi:
Drengir 15—16 ára.
1. Björn Haraldsson
sek. sek. sek.
32.0 — 31.0 = 63.0
33.4 — 33.3 = 66.7
35.5 — 35.5 71.0
36.2 — 37.4 — 73.6
34.4 — 39.5 = 73.9
39.1 — 41.5 = . 80.6
Hlið voru 42, lengd brautar 320 m.
(Framhald á blaðsíðu 7)