Dagur - 29.03.1967, Side 1
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
skrifstoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
Ferðaskrifstofan
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
Láflaus hörkuveður í Þistilfirði
Gunnarsstöðum, Þistilfirði 28.
marz. Hér er búin að vera nær
látlaus stórhríð marga daga og
kominn óhemjumikill snjór. Á
skírdag var þó bjart og 20 stiga
frost. Allir vegir eru ófærir bíl-
um en snjóbíllinn hefur nóg
verkefni og bætir úr samgöngu
erfiðleikum eftir mætti. í vik-
unni henti þó það slys með
•hann, þar sem hann var á ferð,
utan vegar auðvitað, að hann
féll niður í djúpan pytt, sem
hulinn var snjó. Bílstjórinn
komst út, upp um þakið. Allar
vörur ónýttust, enda tveggja
feta djúpt vatn ofan á bílþak-
inu. Jarðýta frá Þóz-shöfn vó
bílinn upp með símastaur. Snjó
bílstjóri var Kristján Ragnars-
son frá Þórshöfn og þótti hann
hafa vel sloppið.
Á páskadagsnótt valt snjó-
bíll af, Heiðarfjalli með fjóra
Bandaríkjamenn, er þeir vor.u
á heimleið frá snjómokstri» —
Mennimir meiddust ekki og
(Framhald á blaðsíðu 7)
Enn eiff snjóflóð úr Bjélfinum
Egilsstöðum 28. marz. Úr fjall-
inu Bjólfi, sem stendur norðan-
vert við Seyðisfjarðarbotn,
hljóp snjóflóð í gærmorgun.
En þar hafa mörg snjóflóð fall-
ið fyrr og síðar og sum með
hörmulegum afleiðingum. Að
þessu sinni tók snjóflóð 50 m.
breiða sneið af mjölskemmu
síldarverksmiðjunnar Hafsíldar
og braut hana í rúst og
skemmdi einnig sjálfa verk-
smiðjuna eitthvað. En hér er
um ný mannvirki að ræða, yzt
á svonefndri Öldu við norðan-
verðan fjörðinn.
Allir vegir eru nú ófærir á
Héraði vegna’snjóa, enda hefur
verið grimmdar stórhríð. Rifið
er af fellum og ásum en stór-
fenni á milli. Yturnar eru nú að
fara af stað til að ryðja snjó af
vegum, hver af annarri.
Um hátíðina héldu menn sig
inni í húsum sínum og þorðu
naumast að reka nefið út af ótta
við að það fyki þá af. Auðvitað
féllu niður messur og verald-
Ishrafl fyrir Norðurlandi og Vestfjörðum
Nær allir vegir landsins tepptust vegna snjóa
HIN hvassa norðanátt að und-
anförnu hefur rekið íshrafl að
Norðurlandi og Vestfjörðum.
Berast daglega fregnir um
þetta frá veðurathugunarstöðv
um og skipum. Víða eru ísjakar
á siglingaleiðum og sjást illa
eða ekki í ratsjám. Ekki var
búið að fara ískönnunarflug þeg
ar þetta er ritað og því óvist
um legu aðalíssins.
Stór ísspöng klofnaði á pásk-
um um Grímsey og rak helming
ana hratt í átt til lands. 1 gær-
morgun sást íshrafl austur af
eyjunni. Skipstjórinn á póst-
bátnum Drang sá í fyrradag
nokkra jaka fyrir minni Héðins
fjarðar. Þeir sáust ekki í ratsjá
skipsins. Hann telur siglingu í
myrkri mjög hættulega á þess-
lun slóðum. Frá Máná á Tjör-
nesi sást ís á reki í gærmorgun,
ekki langt frá landi. Frá Hrauni
á Skaga bárust í gær ísfréttir
og einnig frá Vestfjörðum.
Á sama tíma og „hinn fomi
fjandi“ minnir á sig hér nyrðra,
hafa harðviðri geisað um land
allt. Á laugardaginn fyrir páska
voru nær allir akvegir landsins
taldir ófærir bifreiðum. Á Skeið
arársandi voru 40 bílar í hálf-
gerðum nauðum vegna roks og
sandbyls, sem öllum stórhríðum
er verri.. Og fréttir bárust um
bíla á ýmsum leiðum, einkum
sunnanlands, sem fastir sátu í
snjósköflum, en ekki er vitað
um manntjón.
Hrísey 28. marz. Ógæftir hamla
veiðum, en fiskur er sæmilegur
þegar á sjó gefur, bæði í net og
einnig á handfæri. Tveir menn
á báti fengu t. d. rúmt tonn á
handfæri einn daginn. Sjómenn
eru því vongóðir um afla þegar
veður breytast og unnt verður
Veðurofsann lægði í fyrri-
nótt og var víðast sæmilegt
veður í gær. Voru þá öll tiltæk
ráð notuð til að opna vegi. En
snjór er víða mikill orðinn og
(Framhald á blaðsíðu 7.)
að stunda sjósókn að staðaldri.
Vegna óveðurs varð messu-
fall á sunnudaginn og dansleik
varð einnig að fresta nú um há
tíðina af sömu sökum. Við urð-
um því að vera án guðsorðs og
skemmtunar í þetta sinn.
S. F.
Fiskur þegar gefur á sjóinn
legar samkomur. Jafnvel út-
varpsmessur brugðust vegna
bilunar á raflínu.
V. S.
Mánafoss var í ísbrynju, er hann kom til Akureyrar á dögunum, en búið að berja af nafni
skipsins. (Ljósm.: F. V.)
MARKAR TÍMAMÓT í SÖGU KJÖTVÖRtJ-
FRAMLEIÐSLU HÉR Á LANDI
Á MIÐVIKUDAGINN liafði
Kaupfélag Eyfirðinga boð inni
í tilefni af því, að Kjötiðnaðar-
stöð þess, hin nýja, er full-
hyggð, allur vélakostur kominn
á sinn stað og öll starfsemi í full
um gangi.
Það vekur nú furðu þeirra
manna, sem til þekkja og hafa
fylgst með þróun þessara mála,
að'svo lengi skyldi vera unnt
að halda uppi kjötiðnaði í
gömlu Pylsugerðinni og í eins
ríkum mæli og gert var þar,
svo gjörólík var aðstaða öll þar
þeirri aðstöðu, sem nú er fyrir
hendi. En jafnframt er hér um
mjög mikla og dýra fjárfest-
ingu að ræða, sem krefst mik-
illar umsetningar í framleiðslu-
vörum. En hér virðist vera
byggt fyrir alllanga framtíð og
af miklum stórhug.
Kjötiðnaðurinn hér á landi
hefur þróast mun hægar en í
nágrannalöndum okkar og á
hann mikil verkefni framundan.
Sem dæmi um hina hægu þró-
un má nefna, að sumar álitlegar
kjötiðnaðarvörur, sem farið er
að framleiða hérlendis, vekja
grun um óleyfilegan innflutn-
ing. Kjötiðnðarstöð KEA hefur
alla aðstöðu til þess að jafna
þennan gæðamun og til þess
beinlínis að marka þáttaskil í
kjötiðnaðarsögu landsins, svo
langt ber hún af öðrum kjöt-
vinnslustöðvum. Gott hráefni
ætfi hana ekki að skorta mitt
í einu bezta landbúnaðarhéraði
landsins og ef innlendir mark-
aðir bregðast, er um mistök að
ræða.
Boðsgestir KEA á miðviku-
daginn, þeirra á meðal landbún
aðarráðherra, Ingólfur Jónsson,
Svanþjörn Frímannsson. banka
stjóri, fulltrúar frá SÍS og ýms-
ir gestir að sunnan, svo og
I Kjötiðnaðarstöð KEA, starfsfólk og gestir. Meðal gesta er Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðherra. —
fréttamenn blaða, útvarps og
sjónvarps að norðan og sunnan,
skoðuðu fyrst stöðina sjálfa
undir leiðsögn stjórnenda Kjöt-
iðnaðarstöðvarinnar en snæddu
síðan hádegisverð á Hótel
KEA, þar sem framleiðsluvörur
stöðvarinnar voru á borðum.
Jakob Frímannsson kaupfé-
lagsstjóri bauð gestina vel-
komna með ræðu og Ingólfur
Jónsson, landbúnaðarráðherra,
flutti hamingjuóskir og þakkaði
þátt KEA í því, fyrr og síðar,
að gera landbúnaðarvörurnar
góðar söluvörur. Lauk hann
miklu lofsorði á nýju Kjötiðn-
aðarstöðina og lýsti einhuga
stuðningi sínum við bann á inn
flutningi erlendra búvara.
Hann taldi nýju stöðina hreint
brautryðjendastarf og hið merk
asa framtak.
Valgarður Baldvinsson, sett-
ur bæjarstjóri, kvaddi sér
hljóðs við þetta tækifæri, þakk
(Framhald á blaðsíðu 2.)
HIN NÝJA KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA Á AKUREYRI