Dagur


Dagur - 29.03.1967, Qupperneq 8

Dagur - 29.03.1967, Qupperneq 8
8 SMÁTT OG STÓRT Þrjú hundruð hreindýr í Klausturseli Klausíurseli 16. marz. Hér hef- ur verið slæm veðrátta undan- farnar vikur. Snjór er töluvert mikill og víða svo til haglaust. Langt er síðan flestir tóku hesta sína á hús. Hér í Klaust- urseli hefur alltaf verið dágóð beitarjörð, en lítið verið notuð vegna illra veðra. En beitin hef ur verið notuð þó veður hafi verið slæm, því hreindýrin fóru að sjást hér upp úr ára- mótum og nú síðasta mánuðinn hefur verið ótrúlegur fjöldi af þeim. Núna fyrir nokkrum dög um var talið á svæðinu frá bæn um hérna og út að Treglu, sem er landamerki Klaustursels og Merkis og á þessu svæði voru þann daginn þrjú hundruð hreindýr. Svipað mun oft vera af hreindýrum fyrir innan bæ. Hér er alltaf reiknað með að beita töluvert að vetrinum, þess vegna kemur sér ákaflega illa að þessi hjörð Guðs og ríkisins skuli vera búin að eyðileggja beitina fyrir féð þegar góð veð- ui' fara að koma. Þetta verkar svipað hjá okkur og kveikt væri í nokkur hundruð hestum KENND LIFGUN UR DAUÐABÁI Fjalli 12. marz. — Lionsfélagið Náttfari, sem starfar í Aðaldal og Reykjadal, keypti sl. haust svokallaða „brúðu“, sem nota á til æfinga og kennslu við lífgun úr dauðadái með blástursað- ferð. Þetta er talið vandað tæki enda kostaði um 13 þús, kr. í febrúar sl. var Hannes Haf- stein, erindi'eki Slysavarnafé- lags íslands á ferð um héraðið og varð þá góðfúslega við til- mælum Lionsmanna að leið- 'beina um notkun tækisins. Mætti hann á fundi, sem sveitar búum var boðið á, bæði á Breiðamýri og í barnaskólanum að Grenjaðarstað og einnig kom hann í allar deildir Laugaskóla. Skýrði erindrekinn í orði og at- hö^fn þessa lífgunaraðferð (inn- blástur og hjartahnoð) og sýndi einnig kvikmynd um sama efni. Ennfremur leiðbeiningamynd um öryggisbúnað og meðferð (Framhald á blaðsíðu 7) af heyi- þar sem alltaf er gefið inni, að eyðileggja beit fyrir fjögur til fimm hundruð fjár. Það er enginn vandi að fæla hreindýrin frá ef menn vilja hafa sig til þess. Þau myndu ekki véra lengi hérna ef skotið væri á þau eða hundum sigað á þau. En það er ekki mannsæm- andi þegar saklausar skepnur eiga í hlut. Það gæti orðið til þess að þau væru að ráfa um á algerðri hagleysu dögum sam- an. G. A. Kvenfélag Nessóknar þrítugf Fjalli 12. marz. Fyrir skömmu átti Kvenfélag Nessóknar í Aðaldal þrítugsafmæli og minnt ist þeirra tímamóta með hófi í samkomuhúsinu á Hólmavaði 19. febrúar sl.. Kom þar saman þorri sóknarfólks og átti ánægjulega kvöldstund, Var ýmislegt til skemmtunai'. Nú- verandi formaður félagsins er Jóhanna Steingrímsdóttir, Ár- nesi og stýrði hún samkomunni, er stjórnina skipa að öðru leyti: Þuríður Bjarnadóttir, Árbót, ritari, Sigríður Sigurðardóttir, Núpum, féhirðir, Bergljót Bene diktsdóttir, Hjarðarbóli og Úrsúla Sigurðsson, Tjörn, með- stjórnendur. Aðalfrumkvæði og forgöngu um stofnun Kvenfélags Nes- sóknar hafði Kristín Eiríksdótt ir, ljósmóðir á Hafralæk og var hún fyrsti formaður þess. Hún er nú látin fyrir nokkrum ár- um og á þessum tímamótum barst félaginu myndarleg fjár- upphæð, minningargjög frá eft- irlifandi manni hennar, Þór- halli Andréssyni, Hafralæk. Danskennsla. Sú nýbreytni er hér í sveit að halda dansnámskeið. Kvenfélög og ungmennafélag sveitarinnar tóku höndum saman og réðu danskennara frá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar í Reykja vík. Kom hann um sl. mánaða- mót og kenndi fyrst í samkomu húsinu á Hólmavaði. Sóttu þangað um 40 börn og rúmlega 50 unglingar og fullorðið fólk. Síðan hófst annað námskeið í barnaskólanum hjá Grenjaðar- Stað og voru þar nokkru færri. Er því nú að ljúka. Námstíminn er 12 stundir fyrir fullorðna (2 stundir daglega í 6 daga), en 10 stundir fyrir börn. Veðrátta og færi hefur oft verið erfitt þennan tíma og hef ur það eitthvað hindrað þátt- töku, en flestir hafa ekki látið aftra sér og lagt mikið á sig til að mæta. Almenn ánægja er með þessa nýbreytni og mikill áhugi á að fá kennarann, Sigurð Hákonar- son, aftur að vetri, því ekki eru allir orðnir útlærðir strax, þrátt fyrir góða tilsögn hans. Þess má geta að yngstu nem- endur munu hafa verið 4 ára, en elztur var 65 ára bóndi og vai' hann enginn eftirbátur. Félögin sem að þessu stóðu eiga þakkir skildar fyrir fram- takið. I. K. RÆKJUVEIÐARNAR í febrúarmánuði stunduðu 23 bátar rækjuveiðar í Isafjarðar- djúpi og öfluðu frá vertíðar- byrjun 732 lestir. Frá Bíldudal voru gerðir út 5 rækjubátar og frá Drangsnesi 3 bátar. Fram eru komnar nýjungar í rækju- veiði og rækjuvinnslu, sem e. t. v. verður minnzt á síðar. ÁSKORUN Alþýðumaðurinn hefur skorað á Dag að birta tiltekna ræðu, sem flutt var á kirkjuvikunni á Akureyri fyrir skemmstu. Ef- laust eiga ræður þær allar, er þar voru fluttar, nokkurt erindi til almennings. Og sú ræða, sem Alþýðumaðurinn ber svo mjög fyrir brjósti, mun sóma sér vel á prenti, ekki síður en í flutn- ingi í kirkju. Líklega hefur rit- stjóra Alþýðumannsins ekki dottið það snjallræði í hug að birta hana sjálfur í blaði sínu og er honum hér bent á þann möguleika. Að öðru leyti óskar Dagur að ráða efnisvali sínu sjálfur þótt ábendingar séu að sjálfsögðu vel þegnar. REFSINGAR Okuleyfissviftingar vegna brota á umferðarlögum eru áhrifarík ar refsingar. Fyrir tiltölulega litlar yfirsjónir í umferðinni þykir á sumum stöðum erlendis hæfileg refsing að taka bifreið ökumanns úr umferð j’fir næstu lielgi. Þjóðverjar telja slíka áminningu gefa góða raun, einkum þegar ungt fólk á í hlut. FÉSEKTIR Fésektir vegna vítaverðrar framkomu í umferð eða á öðr- um stöðum, sem þó ekki valda eignatjóni eða meiðingum, þykja á sumum stöðum úreltar refsingar. Hin gamla regla, rnn Dorga upp um ís á vötnum Laugum á pálmasunnudag 1967. Nú líður senn að lokum góu og verSur ekki annað sagt, en skipt hafi í tvö horn um þau öldnu heiðurshjón Þorra og Góu á þessum vetri. Þorri var stilltur og blíður um veðurfar allt. Þá var hjarnfæri um heiðar, svo að hægt var að aka þar um vítt og breitt á jeppum. Gerðu nokkrir það og renndu jafnvel um leið dorgarfæri niður um ís á vötnum. Gott færi var um vegi og gátu menn auðveldlega komið saman til félagsstarfsemi og mannamóta. Áður hefur verið getið um söngskemmtanir Karlakórs Reykdæla. Af öðr- um samkomum mætti nefna samkomu Kvenfélags Reyk- dæla, ungli’ngadansleik, bingó á vegum Lionsklúbbsins Náttfara og sveitakeppni í bridge á milli Mývetninga og Reykdælinga, þar sem hinir fyrrnefndu sigr- uðu með miklum yfirburðum. Allar voru samkomur þessar á Breiðumýri. Með góu kom rysjóttari veðr- átta, hríðar og umhleypingar einkum nú síðustu dagana. Um hádegi í fyrradag var grimm- asta stórhríð, stillt og bjart veð- ur með frosti um kvöldið, eftir hádegi í gær var kominn suð- vestanstormur með 7 stiga hita, en frost aftur að kvöldi. Sam- göngur hafa verið örðugar, en þó tekizt að halda uppi mjólk- urflutningum með þolanlegu móti. Félagslíf og samkomu- hald hefur'legið niðri, einkum þar sem veðrahamur hefur oft verið mestur rétt fyrir eða um helgar. Þrjár helgai' í röð skyldi hefjast að Breiðumýri sveita- keppni í bridge milli ungmenna félaga í Suðui'-Þingeyjarsýslu, en alltaf vai'ð að aflýsa henni sökum óveðurs og ófærðar. Smátt og smátt styttist til al- þingiskosninga og fleiri og fleiri framboðslistar birtast. í því sambandi skal þess að lok- um getið, að hlutur íbúa Reyk- dælahrepps vix'ðist óvenjumik- ill á framboðslistum hér í kjör- dæmi. Ekki færri en fjórir (Framhald á blaðsíðu 5). sömu fésekt fyrir samskonar brot, þykir nú ekki lengur sann gjöm. Ríkur maður og fátækur hafa ólíka aðstöðu til að inna af hendi sektarféð. Sú sektarupp- hæð, sem er fátækum manni mikil refsing, en lítil refsing fyrir þann ríka. HLUTF ALLS - SEKTIR Til þess að draga úr því „órétt- læti“, sem að framan greinir, hefur gefizt vel, að því er talið er, að leggja tekjur manna til grundvallar vissum tegundum fésekta á þann veg, að ríki mað urinn greiði hlutfallslega jafn mikið af launum sínum í sekt og sá fátæki, fyrir samskonar brot. Slíkt er talið þjóna betur réttlætinu í mörgum greinum. SKÍÐATOGBRAUT Á ÍSAFIRÐI Isfirðingar hafa nú í undirbún- ingi að setja upp 1160 metra skíðatogbraut og hafa efnt tii happdrættis til ágóða fyrir skíða lyftuna. Vinningurinn er bifi- reið, sem um verður dregið fyrsta sumardag. Það eru fleiri en Akureyringar, sem áhuga liafa á bættri aðstöðu skíða- fólks. YRKISEFNI ENN Þau leiðu mistök bæjarfulltnia Sjálfstæðismanna, að lofa Bjama Einarssyni stuðningi sín um, semja við liann um kaup og kjör ásamt öðrum bæjar- fulltrúum og svíkja hann síðan á þann hátt að skila auðu þegar bæjarstjórakjör fór fram, verð- ur íslendingi enn yrkisefni í síð asta blaði. Þessi aumingjaskap- ur íhaldsins var enn átakan- legri vegna þess, að þeir höfðu sjálfir ekki annað bæjarstjóra- efni, sem þeir vildu styðja og var framkoma þeirra því eins óábyrg og framast var unnt. Ummælum forseta bæjarstjóm ar þegar kjör bæjarstjóra fór fram, um að það hryggði sig að fulltrúar Sjálfstæðismanna skyldu bregðast á síðustu stundu, var ekki mótmælt, og eru enn í fullu gildi og segja það, sem segja þarf. KOSNIN GA ALDURINN LÆKKAÐUR Þingskipuð nefnd til að athuga breytingar á kosningaaldri varð sammála um, að lækka kosn- ingaaldurinn um eitt ár eða í 20 ár. I samræmi við þetta hef- ur ríkisstjórnin flutt frumvarp um breytinguna. Hér er um stjórnarskrárbreytingu að ræða, sem samþykkja verður á tveim þingum. Verður frum- varpið væntanlega samþykkt á því þingi, sem nú situr og á þinginu, sem kernur saman eft- ir kosningar. ÍSLENDINGASPJALL BÓK með ofanskráðu nafni, eftir Halldór Laxness, er kom- in út hjá Helgafelli. Bókin skiptist í marga kafla og er eins konar fi-amhald af Skáldatíma.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.