Dagur - 08.04.1967, Síða 1
Herbergis-
pantanir.
FerSa-
skriístoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
r * I ■/ i f Túngötu 1.
Feroaskrifstofan sími 11475
Skipuleggjum
ódýrustu
íerðirnar
til
annarra
landa.
Úr annál verðbólgunnar
LÆGSTI tímakaupstaxti Verka
mannafélagsins Dagsbrúnar,
sem árið 1958 var að meðaltali
á því ári kr. 21.30, var kr. 47.16
að meðaltali árið 1966, hvort-
tveggja að meðtöldu orlofi o. fl.,
sem hér er með reiknað. Stöð-
ugt verðlag og stöðugt kaup-
gjald er grundvöllur heilbrigðs
efnahagslífs, segir stjórnin.
ÞJÓÐARHÚS Á
ÞINGVÖLLUM
NEFND SÚ, sem Alþingi skip-
aði til að gera tillögur um
hversu mirmast beri 1100 ára
byggðar á íslandi, hefur skilað
áliti og þingið hefur lagt fram
tillögu um, að nefndarmenn
verði skipaðir í „þjóðhátíða-
nefnd 1974“.
Nýja dráttarbrautin getur tekið 2 þús. tonna skip. — Viðlegukanturinn. Hús skipasmíðastöðvarinnar er að baki. (Ljósm.: E. D.)
Vitamálaskrifstofan stöðvaði liafnarfram-
kvæmdir á Aknreyri
Agremingur um stjórn framkvæmdanna
Hafnarnefnd leggur málið fyrir ráðherra
ÞEGAR blaðamaður var byggð dráttarbraut, þar sem
staddur á Oddeyrartanga á nú er Slippstöðin h.f. og smá-
fimmtudaginn, var verið að bátahöfnin.
flytja uppmoksturstœki, sem Blaðið sneri sér þegar til
byrjað var að nota við fyrir- setts bæjarstjóra, Valgarðs
hugaðar hafnarframkvæmdir Baldvinssonar, og Péturs
við dráttarbrautina, í burtu. Bjamasonar nýráðins verk-
Nýbyrjað verk var stöðvað að fræðmgs hafnarsjóðs Akur-
skipan vitamálaskrifstofunn- eyrar, til að leita frekari
ar. Þama er um að ræða byrj frétta. Ennfremur hafði blað-
un á verki, sem áætlað er að ið samband við formann hafn
kosti 42 milljónir, þ. e. dýpk- arnefndar í gær, Stefán
un, viðlegukantur og endur- Reykjalín, sem ásamt Áma
Jónssyni hafnamefndarmanni, viðlegukant norðan hennar.
var kominn til Reykjavíkur í samvinnu við vitamála-
þeirra erinda að leysa fram- stjóra og Innkaupastofnun rík
kvæmdatruflun þá, sem svo isins voru vorið 1966 gerðir
óvænt bar að höndum fyrsta samningar um kaup á efni til
góðviðrisdag vorsins. Þeir þessarar mannvirkjagerðar og
hafnamefndarmenn höfðu hefur þegar verið fest kaup á
ekki nýjar fregnir að segja, efni fyrir um 20 millj. króna
sem naumast var von, þar sem en samkvæmt áætlun vita-
þeir voru nýkomnir suður. — málastjóra mun heildarkostn-
Málið hefur verið lagt fyrir aður verða um 42 millj. króna.
viðkomandi ráðuneyti. Samkvæmt lögum um hafn
Nokkur atriði þessa máls argerðir og lendingabætur ber
liggja Ijós fyrir, eftir samtali ríkissjóði að greiða 40% af
blaðsins við bæjarstjóra og heildarkostnaði við slíka
verkfræðing. Þau eru m. a. mannvirkjagerð, enda séu all-
þessi: ar áætlanir um framkvæmd-
Á síðastliðnu ári samþykkti imar samþykktar af sam-
bæjarstjórn Akureyrar að ráð göngumálaráðuneytinu, enn-
ast í byggingu dráttarbrautar fremur er það skilyrði fyrir
á Oddeyri fyrir allt að 2000 styrkveitingu úr ríkissjóði, að
tonna skip að eigin þunga og (Framhald á blaðsíðu 7.)
UM FRAMLESÐSLUÞÖRF OG NIÐURGREIÐSLUR
Nefndin gerir m. a. tillögu
úm, að „þjóðarhús“ verði byggt
á Þingvöllum, þar sem Alþingi
yrði sett hverju sinni og væri
sá staður um leið, sem kjörinn
til margskonar funda- og þing-
halda. Þá bendir nefndin á út-
gáfu bóka og rita, kvikmynda-
gerð, ýmiskonar mannvirkja-
gerð og síðast en ekki sízt legg-
ur nefndin áherzlu á mikinn
hátíðisdag allrar þjóðarinnar.
HÉR fer á eftir niðurlag á ræðu
Gunnars Guðbjartssonar for-
mann Stéttarsambands bænda,
er hann flutti í útvarp sl.
fimmtudag, á „bændavikunni“.
í fyrsta skipti í mörg ár dróst
mjólkurframleiðslan saman og
sauðfjárframleiðslan jókst
meira en undanfarin ár, þrátt
fyrir mjög óhagstætt árferði.
Nú hafa heyrzt raddir um, að
mjólkin hafi minnkað svo mik-
ið, að mjólkurskortur verði á
innanlandsmarkaði. Til þess hef
ur þó ekki komið ennþá, sem
betur fer. Það þurfti í vetur að
flytja norðan af landi lítilshátt-
ar af nýmjólk og talsvert magn
af skyri og rjóma yfir þann
tíma, sem framleiðslan var
minnst, sunnan- og vestan-
lands. Þetta var nauðsynlegt og
verður vafalaust nauðsynlegt á
næstu árum, ef fullnægja á inn
anlandsmarkaðinum með inn-
lendri framleiðslu en hafa þó
ekki meira til útflutnings en ca.
10—15% af heildarframleiðslu
mjólkurinnar hverju sinni.
Neyzlumjólkurþörfin er lang
mest á haustmánuðunum og
framan af vetri, en mismunur á
mestu mjólkurframleiðslu sum-
arsins og minnstu framleiðslu
er svo mikill, að vart er hugsan
leg svo mikil breyting á þessu
sviði að hún geti nægt til að
tryggja fuilnýtingu markaðsins
með framleiðslu á fyrsta verð-
lagssvæði einu saman. Og hætt
er við, að breytingar í þá átt, að
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Í UTVARPSUMRÆÐU á
A gamlárkvöld sagði forsæt
isráðherrann: „Gætir einkenni
legs hugtakaruglmgs í tali
sumra um, að nú eigi að
greina á milli manna el'tir því,
hvort þeir trúi á landið eða
ekki. íslendingar höfðu þegar
fyrir kristnitöku flestir hætt
að trúa á stokka og steina“.
Mörgum þótti þetta imdar-
lega mælt. Og við nánari íliug
un urðu menn furðu lostnir.
Hér fór ekkert á milli mála.
Forsætisráðherra íslands
hafði verið að líkja trúnni á
landið við heiðni fornaldar
eins og hún leit út í auguni
kaþólskra klerka á fyrstu öld
um kristinnar trúar. í þeirra
augum var heiðinn dómur
leiðtogmn genginn af trúnni á
landið, sem liann á að stjórna!
Ekki stoðar að ámæla
Bjarna Benediktssyni fyrir
þessi orð úr því að liann hugs-
TRÚIN Á LANDIÐ
villutrú „á stokka og steina“,
háskaleg þessa heims og
annarra.
Líklega hefir einhverjum
orðið það að orði, sem kveðið
var: „íslands — óhamingju —
verður allt að vopni“. Þjóðar-
aði svo. Hér er trúfrelsi viður
kennt og þá einnig frelsi til
vantrúar. En sá, sem genginn
er af trúnni, og telur hana
ranga, er ekki líklegur til
afreka í hennar þágu. Það er
þakkarvert, að slíkur maður
segi hug sinn, eins og Bjami
Benediktsson hefur gert. En
hann liefði átt að segja af sér
um leið. Hann getur haldið
áfram að vera þarfur lærdóms
maður á sínu sviði og kannske
gert alheiminum gagn ef hann
trúir meira á hann en land
sitt. En hann á ekki að halda
ófram að vera forsætisráð-
herra á íslandi. Hin íslenzka
smáþjóð má ekki við því að
hafa þann mann í fararbroddi,
sem hefur vantrú á landinu,
sem tilvera hennar og fram-
tíð byggist á. □
ÍSLENDINGAR
FLÆKTIR í FJÁR-
SVIKAMÁL
DANSKA blaðið Politíken seg-
ir frá því í fyrradag, að dómi í
máli Elmo Nielsens hafi ekki
verið áfrýjað. Undirréttur
dæmdi þennan fjárglæframann
í 4 ára fangelsi. En í sambandi
við þetta mál voru tveir dansk-
ir rannsóknarlögreglumenn
sendir til íslands til að rann-
saka viðskipti E. Nielsens við
íslenzka innflytjendur. Danirn-
ir bentu íslenzkum yfirvöldum
á, að líkur bentu til þess, að
mörg íslenzk fyrirtæki væru
bendluð við mál þetta og hefðu
svikið ríkið um stórar fjárhæð-
ir í tollum, eða á fimmtu millj.
ísl. króna. Einn af stærstu inn-
flyjendum hér á landi, er nú í
farbanni. íslenzk yfirvöld hafa
óskað eftir danskri rannsókn á
viðskiptum fleiri aðila við E.
Nielson, að sögn Politíken. □