Dagur - 24.05.1967, Blaðsíða 5

Dagur - 24.05.1967, Blaðsíða 5
4 S Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. KOSNINGARNAR Á ALÞINGI íslendinga sitja 60 full- trúar, 49 kosnir hlutfallskosningum í 8 kjördæmum landsins, en 11 þing- menn liljóta til viðbótar rétt til þing- setu í eins konar happdrætti. Þessir menn eru oft kallaðir uppbótarþing- menn. Hér er ráðandi nokkurs kon- ar uppbótarkerfi, ens og nú tíðkast í efnahagsmálunum og allir kannast við, og er stjórnmálaflokkunum út- hlutað uppbótarsætunum eftir viss- um og flóknum reglum. Hér í kjördæminu eru sex þing- menn kjörnir. Við síðustu alþingis- kosningar fékk Framsóknarflokkur- inn 4530 atkvæði, Sjálfstæðisflokkur- inn 2856 atkvæði, Alþýðubandalagið 1621 atkvæði og Alþýðuflokkurinn 1012 atkvæði. Samkvæmt þessu voru kjörnir þrír Framsóknarmenn, tveir Sjálfstæðismenn og einn Alþýðu- bandalagsmaður. Alþýðuflokkurinn fékk engan þingmann kjörinn. Þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins vann í uppbótarhappdrættinu og sat á þingi. Hversu mál skipast í þessum kosn- ingum, skal ósagt látið, og geta aðrir um úrslitin spáð. Hitt hefur engum dulizt, enda opinskátt um það rætt í Islendingi, að Sjálfstæðisflokkurinn er á undanhaldi og spáir sjálfum sér fylgistapi. Enginn gerir slíkt að gamni sínu, og ef sá spádómur reyn- ist réttur mun þriðji maður á lista þeirra, Bjartmar á Sandi, ekki sitja næsta þing, hversu sem fer með Magnús fjármálaráðherra. í umræð- um og blaðaskrifum virðist sú skoð- un ríkjandi, að Framsóknarflokkur- inn sé í örum vexti í kjördæminu, einkum vegna aukinnar þátttöku ungra manna og kvenna. Undanfam- ar kosningar hafa líka sýnt þessa þró- un. Á sama tíma og Sjálfstæðismenn afmunstra Bjartmar er Alþýðubanda lagið upptekið við sín ófriðsömu heimilismál og þann ágreining, sem þar ríkir. Hvorki syrgir Dagur eða fagnar slíkum átökum og nýjum flokksbrotum. En tæplega getur slíkt stuðlað að auknu fylgi fólks við Al- þýðubandalagið. Eðlileg viðbrögð margra fyrri fylgjenda þess, ef þeir era íhaldsandstæðingar af heilum hug, væra þau, að styðja öflugasta íhaldsandstæðinginn í landinu, Framsóknarflokkinn. Alþýðuflokkur inn hefur verið í álögum undanfarin ár og þjónar íhaldinu af þeirri orku sem hann má. Sennilega verður hann samgróinn því, visnar upp og deyr, ef hann minnist ekki nú í þessum kosningum uppruna síns og fyrri baráttu. Heimsþekktir listamenn skrevta deild Finnlands á „Expó i67” í SÝNINGARSKÁLA Norðurlandanna á Heimssýningunni í Montreal, Expo '67, eiga Finnar mikla og fallega deild. Kjörorð finnsku deildarinnar er „Hið skapandi Finnland.“ Finmi lieims- þekktir listamenn sýna þar, hver á sinn hátt, hvernig hversdags- leg efni eru notuð á hugvitsamlegan og skapandi hátt og með að- stoð nútímatækni. Fyrir augu þess, sem inn kemur í finnsku deildina, ber fimm veggmyndir, sem rísa á ská upp frá gólfinu og eru cfið er með ryjaaðferð af Uhra Simberg-Ehrström, og að lok- um er veggmynd úr samlímd- um viðarþynnum, eftir Tapio Wirkkala. Þessi sama saga um hinn skap andi huga mannsins er sögð á veggjunum í kring og nú með því að sýna allskonar iðnaðar- framleiðslu, eins og hún gerist sýnis — er komið fyrir með og innan .um óunnin efni og annað, sem höfðar til verka listamann- anna, en á þann veg er undir- strikuð brúin milli hins skap- andi hugvits og hagnýtra af- kasta iðnaðarins. Q Birger Kaipiainen vinnur að veggmynd sinni. hvorki meira né minna en 430 ferfet að stærð. Þær eiga að tákna sameiningu hugmynda- flugs, tækni og hópstarfs í iðn- aðarframleiðslu nútímans. Ein myndanna er gerð úr bláu keramiki, og er höfundurinn Birger Kaipiainen, önnúr er úr kopar eftir Laila Pullinen og sú þriðja er búin til úr blásnu gleri, en hana hefur Timo Sarpaneva gert. Fjórða vegg- myndin er úr ullargarni, sem S20 þúsund | sjónvörp | TALA útvarps- og sjón- j ; varpstækja fer stöðugt vax- I I andi í Finnlandi, en talið er j : að hún sé þó að nálgast há- j ; mark. í lok síðasta árs voru ) [ útvörp orðin rúmlega j j 1.600.000 talsins og sjónvörp ; j in voru 820.000. Á síðustu ár : j um hefur 85% seldra út- j j varpa verið framleidd í Finn : j landi sjálfu, og á síðasta ári j j voru 20 þúsund finnsk sjón- : j vörp og útvörp seld úr landi, : j flest til hinna Norðurland- : j anna. O : í dag, tæknilegri framkvæmd verka og arkitektur. Byssum, rafmagnsvírum, sauna-ofnum og mælitækjum — svo aðeins séu nefndir nokkr ir þeir hlutir, sem þarna eru til Norðurlandaskálinn á Expo ’67. Hann liefur lilotið mikið lof allra þeirra, sem hann hafa séð, og fyrir- komulag innan dyra er einnig talið mjög listrænt og smekklegt. Sumilenzkir bændur verðlauna Ungfrú Norðurlönd, Satu Östr- ing frá Finnlandi sést liér í bún ingi þeim er þær stúlkur klæð- ast, sem aðstoða gesti á Norður- landa-sýningunni á Expo ’67. Finnskur tízkuteiknari Pi Sarpaneva hefur teiknað bún- inginn. Þá sést einnig listaverk Wirkkala, sem hann hefur gert úr samlímdum viðarþynnum. snyrtilega ALLIR, sem leið eiga um sveit- ir þessa lands, vita hve ánægju legt getur verið að líta heim að reisulegum, vel hirtum og vel skipulögðum bændabýlum, en því miður vill stundum verða misbrestur á, að snyrtimennsk- an sé höfð í þeim hávegum, sem rétt væri. Nú hefur Búnaðar- samband Suðurlands ákveðið að veita þeim bændum viður- kenningu, sem bezt og snyrti- legast ganga um á jörðum sín- um, í þeim landshluta, og verða verðlaun afhent á komandi hausti. Búnaðarsamband Suðurlands hefur haft þetta mál til um- ræðu að undanförnu, og á aðal- fundi í fyrra var því vísað til stjórnarinnar, sem tók málið til nánari athugunar í vetur, en á síðasta aðalfundi var svo sam- FINNAR ERU FRÆGIR FYRIR VEFNAÐARVÖRUR FINNSKAR vefnaðarvörur hafa notið mikilla vinsælda utan heimalands síns um langt árabil, og virðist svo sem þær vinsældir séu á engu undan- haldi, því árið 1966 jókst út- flutningurinn á þessum vörum um 32% miðað við árið þar á undan og útflutningsverðmætið nam 1300 milljónum íslenzkra króna. Þar með voru vefnaðar- vörurnar orðnar stærsti út- flutningsliðurinn á lista yfir út- flutning finnskra neyzluvara. Þessi grein iðnaðar í Finnlandi hefur alltaf verið mjög stór, og i dag vinna 7% alls iðnverka- fólks þar við framleiðslu vefn- aðarvara. Elzta vefnaðarfyrirtækið í Fiimlandi hefur starfað óslitið frá því árið 1738, en mörg yngri hafa þegar haldið upp á hundr- að ára afmæli sín. Enda þótt slík fyrirtæki séu samtals um 300 talsins í landinu eru það fjögur aðalfyrirtæki, sem fram- leiða um 90% af öllu ullargami og efnum, sem framleidd eru þar, og i baðmullarframleiðsl- unni eru það 6 fyrirtæki, sem annast 85% allrar framleiðsl- unnar. Línframleiðslan fer hins vegar mest öll fram á vegum eins fyrirtækis. 60% prjóna- vöruframleiðslunnar eru fram- leidd hjá tíu eða jafnvel færri verksmiðjum. í öllum þessum greinum hefur Finn- land yfir að ráða stærstu verk- smiðjum á Norðurlöndunum. Ný finnsk vefnaðarmynstur vöktu fyrst verulega athygli í bómullarframleiðslu síðustu ára, og þá bæði í kjólefnum og húsgagnaáklæði. Þekktustu nöfn þeirra sem hugmyndirnar að mynstrunum eiga eru Timo Sarpaneva, Kirsti Uvessale, Uhra-Beata Simberb-Ehrström og Rut Bryk. Aune Gummerus er þekktust fyrir ullarefni og þá sérstaklega mismunandi köflótt efni. Dora Jung er að lokum sú, sem mest hefur borið á í línvefnaðinum. Marjatta Metsovaara og Tonini Jaakkola hafa báðar unnið verðlaun fyrir hugmyndaauðgi í gerð og sniði prjónaðs fatnaðar. Annars hafa Finnar víða unnið sér viður- kenningu fyrir vefnaðar- og fatnaðarvörur sínar, t. d. fóru 34 gullverðlaun til Finnlands eftir alþjóðlegu vefnaðarsýning una í Sacramento 1966, eða fleiri en til nokkurs annars lands. í dag eru 15% finnskra vefn- aðarvara seld úr landi. Aðalviðskiptalönd Finna eru á Vesturlöndum. Norðurlöndin keyptu t. d. 59% af útflutning- inum á þessum vörum, og er aðalástæðan sú, hversu nálæg þau eru Finnlandi, og þekkja vel framleiðsluvörur Finnanna. Bandaríkin, Vestur-Þýzkaland, Bretland, Holland og Sviss keyptu einnig mjög mikið magn, og jafnvel Austur- Evrópulöndin hafa sýnt veru- legan áhuga á finnskum vörum síðustu árin. í finnskri klæðagerð þekkja allar konur að minnsta kosti Marimekko og Finn-Flare, en finnskur fatnaður hefur unnið mjög á, á erlendum mörkuðum, sem sannast bezt á því að út- flutningurinn jókst um 165% á síðasta ári, miðað við árið þar á undan, en heildarútflutnings- verðmæti tilbúins fatnaðar nam 670 milljónum íslenzkra króna. uiiigeiigm þykkt tillaga þar sem ráðunaut um á svæðinu var falið að at- huga í sumar og gera að því loknu tillögur um 10 sveitabýli, sem verði verðlaunuð, eða bú- endum veitt viðurkenning fyrir snyrtilega umgengni. Ráðunaut arnir eiga að vera bunir að skila tillögum sínum til stjóm- ar sambandsins fyrir 1. septem- ber næstkomandi. Sambandsstjórnin mun þá setjast á rökstóla um það, á hvern hátt viðurkenningin verð ur veitt, en ekki er búið að slá því föstu hverning viðurkenn- ingin verður, að því er Stefán Jasonarson í Vorsabæ sagði okkur, en hann er í stjórn Bún- aðarsambandsins. — Til álita getur komið, sagði Stefán, hvort veitt verði ein aðalverðlaun en hinir níu fái viðurkenningu, eða þrenn verðlaun og svo viðurkenning- ar. Við vonum, að þetta geti orð ið til hvatningar og eigi eftir að verða öllum til ánægju og hags- bóta. — Mér er ekki kunnugt um, að verðlaun sem þessi, séu veitt hér á landi um þessar mundir, Þó veit ég að Búnaðarsamband Suður-Þingeyinga og Málning- arverksmiðjan Hai-pa úthlutuðu verðlaunum fyrir nokkrum ár- um, og hlaut þau þá Sigurður Pálsson Skógarhlíð í Reykja- hverfi. — Við verðlaunaáfhending- una verður tekið tillit til alls úti og inni, svo bæði bóndinn og húsmóðirin verða að taka til höndunum. Málningu, húsa- skipan og heimreið verður sér- stakur gaumur gefinn, en tillit verður tekið til aðstæðna, t. d. ef framkvæmdir standa yfir á bæjum og því um líkt. Við byggjum miklar vonir á þessu, og treystum því, að þetta eigi eftir að verða mikil hvatning fyrir menn til að hafa sem fallegast í kringum sig á bæjun um, sagði Steíán Jasonarson að lokum. O - ACÆTIR FIINDIR (Framhald af blaðsíðu 8). var fjölmennari, kom fólk úr Reykjadal, Aðaldal, Mývatns- sveit, Bárðardal og Kinn. Báðir fundirnir voru sæmi- lega sóttir og vel, miðað við það, að í öllum þessum sveitum stendur sauðburður sem hæst, einmitt um þessar mundir, þannig að hér er um að ræða mjög erfiðan tíma til funda- halda. Q Hvar er Norðurlandsáætlun? í JÚNÍBYRJUN 1965 gáfu ráðherrarnir Bjarni Benedikts son og Gylfi Þ. Gíslason út, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, yfirlýsingu um atvinnumál á Norðurlandi. Þar segir m. a. orðrétt: „Þegar á næsta hausti verði hafizt handa um heildarat- hugun á atvinnumálum norð- anlands og að þeirri athug- un lokinni undirbúin fram- kvæmdaáætlun, er miði að þeirri eflingu atvinnurekstrar í þessum landshluta, að öllu vinnufæru fólki þar verði tryggð viðunandi atvinna. Verði í senn athugað um staðsetningu nýrra atvinnu- fyrirtækja á Norðurlandi, svo sem í stálskipasmíði, skipa- viðgerðum, veiðarfæragerð og fleiri greinum iðnaðar og kannaður gaumgæfilega hagur núverandi iðnfyrirtækja og leitað úrræða til að tryggja framtið þeirra iðngreina og vöxt.“ Þetta var sem sé erindis- bréf um Norðurlandsáætlun. Nú hefur það loks gerzt, að á s.l. vetri komu sérfræðingar í efnahagsmálum norður og gerðu sínar athuganir. Undir- búningur framkvæmdaáætlun arinnar virðist hins vegar skammt á veg kominn, hvað þá að framkvæmdir séu hafn- ar. Augljóst er, að ríkisstjórn- in hefur dregið málið um of á langinn. Norðlendingum líkar ekki við þessi vinnubrögð, enda ástandið sums staðar þannig, að eitthvað hefði þurft að vera búið að gera. í kosning- unum fer ekki hjá því, að þetta mál verði haft í huga, og virðast vanefndir stjórnar- flokkanna á ofanrituðum lof- orðum ekki líklegar til að afla sömu flokkum vinsælda nú í vor. Er nú spurt, hvar hún sé, Norðurlandsáætlun- Verml uiii íuglana yfir varptímann SINUBRUNAR BANNAÐIR Á ÞESSUM TÍMA ÁRS ' STJÓRN Sambands Dýravernd unarfélaga íslands hefur sent frá sér fræðslurit um ýmis at- riði úr lögum þeim og reglu- gerðum, sem í gildi eru um vel- ferð fugla. — Fjallar ritið um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi, greint er frá því hvaða fuglar séu friðaðir á fs- landi og livenær og síðasti kafl- inn heitir „Gæsimar, skotin og smölunin“. Bannað er að kveikja í sinu og brenna sinu innan kaupstaða eða kauptúna eða í þéttbýli, nema með sérstöku leyfi yfir- valda og þurfa þá sérstakar ástæður að liggja til. í sveitum er heimilt að brenna sinu, ef næg aðgát er höfð, en þó aðeins langvía, stuttnefja, teista og lundi, og ófriðuð frá 15. október til 22. desember er rjúpan. Friðunin, hvort sem hún er alger eða tímabilsbundin, tekur ekki aðeins til lífs fugla heldur einnig eggja og hreiðra þeirra, nema öðruvísi kveði á í lögum um fuglaveiðar og fuglafriðrm, t. d. um eggja- og ungatekju, þar sem slíkt telst til hefðbund- inna hlunninda jarða, segir í fræðsluriti SDÍ. Frá 15. apríl til 14. júlí ár hvert eru öll skot bönnuð nær friðlýstum æðar- vörpum en 2 km, nema brýna nauðsyn beri til. Um gæsirnar segir: „Nokkurs misskilnings gætir um friðun grágæsar. Margir 2. Að fengnu samþykki menntamálaráðuneytisins og til lögum fuglafriðunamefndar geta hreppstjórar fyrir hönd veiðiréttarhafa aflað leyfa til veiði grágæsa í umdæminu, þar sem þær valda miklum og al- mennum spjöllum á nytja- gróðri. Rétt er að vekja athygli á því, að þótt hreppstjóri afli slíks leyfis fyrir umdæmi sitt, þá geta handhafar veiðiréttar þ, e. eigendur lögbýla í umdæm- inu, sem ekki óska veiða á grá- gæs, bannað veiði á grágæs í landareignum sínum. 3. Handhafar veiðiréttar, sem fengið hafa leyfi til grágæsa- veiða samkvæmt framanskráðu, geta með tímabundnu leyfi á tímabilinu frá 1. desember til 1. mai. Þó má veita leyfi til brennslu sinu fram til 15. maí á svæðinu norðan ísafjarðar- djúps og norðan heiða allt aust- ur að Fjarðarheiði og Breið- dalsheiði, ef veðrátta hamlar þvi, að mati hreppstjóra, að brenna sé framkvæmd fyrr, enda mæli sérstakar ástæður eigi gegn því. í lögum um sinubruna segir, að hljótist tjón á eignum manna af völdum sinubruna, fari bóta- ábyrgð eftir almennum reglum. Brot gegn ákvæðum laga þess- ara varða sektum allt frá 200 í 20 þúsund krónum, sem renni í ríkissjóð. Um friðun fugla segir, að ófriðaðir, séu allt árið kjói, svartbakur, sílamáfur og hrafn. Frá 20. ágúst til 15. marz eru ófriðaðir dílaskarfur, toppskarf ur, grágæs, heiðagæs, blesgæs og helsingi. Ófriðaðir frá 1. september til 19. maí eru álka, skotglaðir einstaklingar, svo og hinir svörnu óvinir gæsa, halda, að nú megi herja á grágæsir eins og skæðustu óargadýr, sem mikil landhreinsun sé að út- rýma að fullu. En höfuðreglan er sú, að grá- gæsir njóta friðunar frá 15. marz til 20. ágúst, (sbr. 8. gr. í lögunum). Sú breyting var gerð, að heim ilt er að taka grágæsaregg (skv. 10. gr. 3.), þ. e. fuglinn nýtur ekki alfriðunar. Veiðar á grágæs á framan- sögðu friðunartímabili eru háð- ar eftirfarandi takmörkunum, (sbr. 11. gr. 1. og 2.): 1. Einstakir handhafar fugla- veiðiréttar, þ. e. eigendur lög- býla, geta með tímabundnu leyfi menntamálaráðuneytisins, að fengnum tillögum fuglafrið- unarnefndar, veitt grágæsir, sem valda verulegu tjóni á ræktuðu landi éða öðrum hlið- stæðum nytjum. menntamálaráðuneytisins og samkvæmt tillögum fuglafriðun arnefndar, vegna tilfinnanlegs tjóns grágæsa á nytjagróðri, veitt grágæsir, meðan þær eru í sárum, með því að reka þær í netgirðingar. Ljóst má öllum vera, að leyfi til grágæsaveiða á friðunartíma á ekki að liggja á lausu — og að smölun gæsa í sárum til ',,slátrunar“ er háð tímabundn- um leyfum, sem nokkrar höml- ur eru á að afla. Almenningur þarf að veita skotmönnum aðhald og minnast þess, að engir, nema handhafar veiðiréttar, geta fengið leyfi til þess að skjóta grágæsir — og að slíkt leyfi getur aðeins mennta- málaráðuneytið veitt. Stjórn SDÍ skorar eindregið á allan almenning að láta ekki viðgangast, að skotmenn brjóti lög um fuglavernd og fugla- veiðar. Q Kosningahandbókin 1967 er komin út KOSNINGAHANDBÓKIN, al- þingiskosningamar 1967, er komin út. í bókinni er fyrst að finna úrdrátt úr kosningalögum frá 1959. Listi er þar yfir ráð- herra og ráðuneyti frá 1904 til 1963 og síðan kemur kafli, sem nefnist: Að vera í stjóm eða stjómarandstöðu. Er þar tafla yfir fjölda mánaða, sem hver flokkur hefur verið í ríkisstjóm og í stjómarandstöðu, og tafla er yfir menntun alþingismánna á tímabilinu frá 1923 til 1963. Kosningaúrslit í hverju kjör- dæmi í alþingiskosningunum 1963 eru birt í bókinni, og er þar um leið greint frá þvi, hversu mörg þing hver þing- maður hefur setið. Þá er tafla yfir heildarúrslit alþingis- kosninga frá 1931 til 1963. Kafli er um sögu kjördæmaskipunar á íslandi, og atkvæðatölur frá júní 1959, þegar síðast var kos- ið í gömlu kjördæmunum. Úrslit í bæjarstjómarkosning- unum 1966 er þama einnig að finna, og sömuleiðis skýrt út fyrir lesendum, hvemig úrslit eru reiknuð í kjördæmum, og reglur um úthlutun uppbótar- sæta, og tafla yfir það, hvernig úthlutun uppbótarþingsæta við alþingiskosningamar 9. júní 1963 fór fram. (Framh. bls. 7),

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.