Dagur - 31.05.1967, Síða 2

Dagur - 31.05.1967, Síða 2
Unga fólkið hefur orðið Vegaframkvæmdir minnka ár frá ári segir Þórarmn Þórarinsson, bóndi, Vogum í VOGUM í Kalduhverfl hittum við að máli, seint á sauðburði, Þórarin Þórarinsson yngri, bónda þar. Þórarinn er rúmlega þrítug- ur, kvæntur og á þrjú börn, og þess má geta, að sonur hans heit- ir einnig Þórarinn og er sá 7. í beinan karllegg með því nafni. — Þú ert fæddur hér og upp- alinn? — Já. Ég tók landspróf á Laugum 1954 og árið eftir próf frá búnaðarskólanum á Hólum. Síðan hef ég mest verið við bú- skapinn, en þó öðrum þræði við akstur, t. d. hef ég síðustu þrjú árin ekið mjólk til Húsavíkur á móti Sigvalda í Garði, en nú er hann alveg tekinn við bvx. — Þið hafið verið að íjölga kúnum? — Mjólkurframleiðslan hér í sveitinni hefur vaxið allört þessi þrjú ár. Annars vilja Keldhverf- ingar yfirleitt heldur hafa kind- ur, en það hefur verið hagstæð- ara að hafa.kýr, og ég gæti trú- að að svo yrði enn um sinn. Samt sem áður má segja, að bændur hér séu mjög óráðnir í þessum efnum, og þeir byggja ekki stór fjós eins og stendur, en það gæti sjálfsagt orðið ef veg- urinn batnaði. Við höfum verið núna með 5—6 kýr hér í Vog- um og hátt í 300 f jár, en ég bý félags'oúi með föður mínum. — Samgöngumálin eru ykkur erfið? —SamgöngU.mál okkar eru sérlegá- dapurlegriÉg hef unnið hjá Vegagerðinni eitthvað árlega í ein níu ár, og framkvæmdirnar háfá minnkað ár frá ári, einkum viðhaldið. Reyndar var fyrir skömmu byggður upp ca. 6—7 km spotti frá Lindarbrekku upp að Söndum,_en í upphafi var að- eins borið o’fan í þann veg helm- ingur þess, sem þurft hefði, og svo er viðhaldið ekkert, svo að þetta hrekkur skammt. Vetrar- samgöngurnar hafa legið alveg niðri mánuðum saman tvo síð- ustu veturna, en þær myndu strax batna, ef byggður væri upp vegarkaflinm næst norðan við Húsavík á Tjörnesvegi. Trygg- ari vetrarflutningar myndu auð- vitað stórauka möguleika okkar á kúabúskap. Betri samgöngur yrðu líka kannski til þess, að við færum að eygja von um að fá póst vikulega, en á veturna kemur pósturinn oft á þriggja vikna fresti, enda er hann stund- um sendur til Raufarhafnar. Yf- irleitt hafa þessar tveir vetur sýnt okkur, að við megum ekki treysta á vetrarsamgöngur. — En hafið þið mikið beiti- land íyrir sauðfé? — Já, heiðarnar eru allvíð- lendar, en þær eru nær eingöngu lyngi vaxnar, og mýrar eða gras- lendi vantar, enda hraunið alls staðar undir. A sumrin er því oft vátnsskortur í afréttinni. Við höf ÍBÁ tapaði fyrir Keffvíkingum í fyrsfa leik sínum FYRSTI leikuritm í I. deild ís- landsmeistaramótsins í knait- spyrnu í sumar fór fram í Njarð vík sl. laugardag, og áttust þar við Akureyrngar og Keflvíking ar. Keflvíkingar unnu með 2:1. Samkvæmt frásögn Páls Jóns sonar í Keflavík í Tímanum var fyrri hálfleikur mjög jafn og Góðir sigurmöguleikar (Framhald af blaðsíðu 8). dæmi, ef þetta ætti að koma til, og er það 14—15% aukn- ing yfir landið, sem er engin ósköp. Annað eins hefur svo sem komið fyrir og kom raun ar fyrir á síðasta ári í flestum kaupstöðunum í bæjarstjórn- arkosningunum að því er ein- mitt Framsóknarflokkinn varð aði, því að þá vann flokkurinn meira á en þessu nemur. Hér hefur verið sýnt fram á vinningslíkur Framsóknar- manna, og þær eru yfirleitt mun meiri en vinningslíkur Alþýðubandalagstns. Þar við bætist, að Alþýðubandalagið er klofið og ekki líklegt til að vinna mikið á. Eini möguleik- inn til að fella stjómina er því að Framsóknarflokkurinn bæti við sig sæti eða sætum nú í kosningunum. Q skemmtilegur og þóttu Akur- eyringar koma nokkuð á óvart, því að þeh- .hafa verri æfinga- aðstöðu á vorin en nokkurt'ann að fyrstudeildarlið. Fyrsta markið skot;aði .þó-Jón Jóhanns son fyrir Keflavík á 8. mínútu. Skúli Ágústsson jafnaði á 25. mín., og vár það gott mark, en Skúli komst í eyðu, sem kom í vörn Keflvíkinga vegna mis- taka, og skoraði án þess að markvörðurinn fengi rönd við reist. Keflvíkingar skoruðu síðara mark sitt á 33. mín., eftir að dæmd hafði verið aukaspyrna á Akureyri, og var það harður dómur dg mjög umdeildur. Aukaspyrnan var tekin rétt ut- ari vítáteigs og hrökk knöttur- inn í Einar Gunnarsson og í mark. í síðari hálfleik sóttu Akur- eyringar mun meira í upphafi, en tókst ekki að skapa sér veru lega hættuleg tækifæri. Síðast í leiknum tók Akuréyringa að skorta úthald og voru þá Kefl- víkingar meira í sókn, en nýttu ekki tækifæri sín. Keflavík hafði sterkari vörn og réð það úrslitum, en þó mætti segja að jafntefli hefði verið sanngjarnari úrslit. Þjálf- ari Keflvíkinga hefur verið Rík harður Jónsson. um hug á að bæta úr þessari ein- hæfni, og von er til að í sumar verði gerð allmikil tilraun með lyngeyðingu og notkun áburðar á beitilandið. — Hvernig hefur afkoman ver- ið hjá bændum hér undanfarið? — Mjög slæm síðasta árið, og tekjur afar lágar miðað við aðr- ar stéttir og líklega aðra bænd- ur. Menn vantar meiri ræktun og meira öryggi. Heybirgðir hafa verið knappar í vor vegna harð- indanna, og þessi miklu kjarn- fóðurkaup hafa veruleg áhrif á afkomuna, sem hlýtur að verða slæm á þessu ári. — Hvernig helzt Kelduhvetfi á sínu fólki? — Þessari sveit hefur yfirleitt haldizt vel á fólki, en á síðasta ári fóru þrjár jarðir í eyði og talsverð bein fólksfækkun varð. Menn fara fremur vegna slæmrar afkomu en vegna þess að þeir vilji ekki vera hér. — Hvernig hugsið þið svo til framtíðarinnar, Þórarinn? — Kjör bænda þyrftu að batna mjög frá því sem nú er, enda má benda á, að góður bóndi þarf að vera meira og minna sérfróður á fjölda sviða. Menn þurfa líka að leggja á sig geysilega vinnu ef allt á að ganga vel, og meiri en sambærilegt er við aðrar stétt- ir. Ekki sízt þurfa bændur að vinna mikið til að geta bætt véla- kostinn, sem er einmitt nauðsyn- legt, ef framleiðnin á að geta aukizt. Núverandi stjórnarstefna er bændum mjög í óhag, og Framlína Akureyrar var ekki nógu beitt en þó sýndu þeir Kári, Steingrímur og Skúli skemmtileg tilþrif. Veður var gott, en völlurinn blautur. Undanfarin ár hafa Akureyr- ingar yfirleitt tapað fyrstu leikj um sínum, þar eð þeir hafa slæma æfingaaðstöðu á vorin. Virðist þetta enn ætla að endur taka sig, en vonandi tekst þeitn þó að ná sér upp innan tíðar. IBA-FRAM í sunnudaginn? SAMKVÆMT upplýsingum Hreins Óskarssonar, starfs- manns íþróttavallarins á Akur- eyri, sem einnig er formaður KRA, eru líkur á, að Fram leiki hér n.k. sunnudag kl. 16 við lið ÍBA í I. deildarkeppni íslands- mótsins í knattspyrnu. Sam- þykki íþróttaráðs þarf þó til, að leika megi á vellinum. Ef góða veðrið helzt út þessa viku má búast við að Akureyringar sjái lið sitt í keppni í fyrsta sinn á þessu sumri n.k. sunnudag. Q Þórarinn Þórarinsson. bændur treysta nú á það, að kjörum þeirra yrði meiri gaumur gefinn, ef Framsóknarflokkurinn kæmizt til aukinna áhrifa á næst- unni, því að þeim flokki geta þeir helzt treyst, segir Þórarinn Þór- arinsson að lokum. Dagur þakkar honum viðtalið. Bj. T. - Slysið á Hjalteyri (Framhald af blaðsíðu 5.) segja þeim góða manni, að eng- inn dómur, hvort sem hann er felldur af héraðsrétti eða Hæsta- rétti, megnar að leysa Kveldúlf frá þeirri skyldu að greiða Jó- hannesi fullar slysabætur. Hann var í þjónustu Kveldúlfs, meira að segja við hættulegt starf, þeg- ar slysið varð. Honum hafði áður verið sagt, að hann væri tryggð- ur gegn öllum slysum. Þetta er mergurinn málsins. Þá mætti einnig benda á ann- að, sem siðalög kallast. Eru það ekki óskráð lög flestra góðra fyr- irtækja, að reynast starfsmönn- um sínum haukur í horni, þegar á reynir. Nú er Kveldúlfur lands- kunnugt féla^, 'Sem æti£S_ hefu^ hlotið vefðskúidað hfös" fyrir hjálpsemi og greiðvikni við starfsmenn sína til sjós og lands. og ekki sízt þá, sem orðið hafa fyrir slysum eða óhöppum, og mun Olafur Thors, sá heiðurs- maður, hafa markað þá stefnu. Vilja núverandi forstjórar Kveldúlfs ekki halda á lofti manndómsmerki hans, eða vilja þeir heldur setja smánarblett á nafn félagsins, með því að láta fátækan, slasaðan verkamann sinn synjandi frá sér fara? Eg veit að vísu, að Kveldúlf- ur h.f. á við fjárhagsvandræði að stríða, eins og mörg önnur fyrir- tæki í dag, en á það að bitna á Jóhannesi? Ég vil minna á atvik, sem gerðist á Akureyri fyrir nokkrum árum síðan. Ungur maður varð fyrir því slysi, að missa hendina við starf sitt. Fyrirtækið, sem hann vann hjá, greiddi honum fullar slysabætur, eða um V4 milljónar, og sýndi með því höfð- ingslund, sem aðrir mættu taka sér til fyrirmyndar. Má þó, /el vera, að niðurstaða hjá dóm- stólum og tryggingafélagi hefði orðið á sömu lund og í Hjalteyr- armálinu, ef til þeirra kasta hefði komið. Ég vil að lokxim beina þeirri áskorun til Kveldúlfs h.f., að endurskoða fyrri ákvörðun sína og greiða Jóhannesi Björnssyni nú þegar fullar slysabætur, sem hann á vissulega siðferðilega kröfu til. Akureyri, 29. maí 1967. Ámi Bjarnarson. F ermingarbarnamót MÓTIÐ verður í Ólafsfirði n.lc, sunnudag. Lagt verður af stað frá Akureyrarkirkj u kl. 8 að morgni. Þátttakendur fá tvisvar mjólk á mótsstað, að öðru leyti nesti þeir sig sjálfir. Bezt er að vera þannig búin, að geta tekið þátt í útileikjum og íþróttum, Einnig er rétt að hafa með sund föt því þeir sem Vilja geta farið í sundlaug staðarins. Þá eru allir beðnir að taka með Nýja- Testamentið. Mótsgjald vsrður kr. 30 og er þar innifalið allt, sem greiða þarf á staðnum. Far gjaldið (báðar leiðir) frá Akur- eyri verður um 125 krónur. Prestarnir. - FÁEIN ORÐ ... (Framhald af blaðsíðu 5) kaupfélagið á Húsavík á sinni tíð. En brátt óx byggðin og. þaS hraðfara um allan dalinn. Þá var sótt fram frá tveim hliðum. Ann- ars vegar frá Laugaskóla, en hins vegar frá landnámsfyrir- myndinni á Brúrr.* Stundum koma áhrif úr tveimur áttum. Einn af kennurum Laugaskóla er sonur Björns á Brún. Hann gegnir jöfn- um höndum smíðum og kennslu og hefur staðið fyrir mörgum byggingum á Laugum og víðar í héraðinu. Mér liggur við að vona, að sjálfsköpunar- og landnáms- þátturinn í eðli Þingeyinga muni finna næg verkefni handa sínum álitlegu ungu forystumönnum, Birni á Brún og Jónasi frá Yzta- Felli, bæði á þingi og utan þings. Heyrt hefi ég, að þeir og xtuðn- ingsmenn þeirra hafi auga á tveimur verkefnum. I sý;í n ii eru þrjár stórár, vel fallnar txl laxaklaks og veiðiiðju. Þar er hin fræga Laxá úr Mývatni, Skjálfandafljót og Fnjóská. Laxá, mesta veiðivatnið, er stífluð í miðju vegna rafmagnsvirkjunar. 1 sambandi við umtalaða stíflu ofan við Grenjaðarstað og lón- myndun neðst í Laxá er hægt að skapa hæfilega stóra kvísl úr lóninu handa laxinum, og greiða þanpig gptu hans til lífsfrjógvun- ár upp að Arnarvatni. Rafstífla þessi mun kosta tugi milljóna, og ér það gott verk. Laxaland- námið ofan við lónið ætti ekki sinn líka í Norðurálfu. Þar á að koma til greina samvinna milli bænda í héraðinu og ríkisvalds- ins. Það er auðvelt verk, ef beitt er félagshyggju og vísindum til að fylla allar ár Þingeyjarsýslu með dýrmætu veiðifangi. Kosningar eru góðar, einkum ef þær vekja áhuga á aðkallandi lífvænlegum störfum, en vinna í stjórn og á þingi lánast bezt, þegar þeir, sem á hverjum tíma starfa að þjóðmálum, standa jafnframt í lífrænu sambandi við allan almenning í landinu. Sag- an úr Reykjadal, um nýbýlið á heiðarröndinni og skólann við heitu lindina er í eðli sínu kafli úr bókmenntun gáfaðra fram- farasinna og athafnamikilla manna, sem gerðu fábyggðan dal í veglausu héraði að goðfrægri fyrirmyndarsveit í blómlegu landi. Q - NIÐUR BREKKUNA (Framhald af blaðsíðu 1) sem þeim vilja gefa gaum. Þeir sem kjósa Sjálfstæðis- flokkinn og Alþýðuflokkinn taka áhættuna á því að fram lengja þrásetu þessarar ríkis stjórnar. Undir hennar for- ystu erum við nú á leið frá velmegun til vandræða. Q

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.