Dagur - 03.06.1967, Qupperneq 7
7
Nii kýs ég Framsóknarflokkmn
(Framhald af blatSsíðu 8.)
sem gælir við útlendinga eins
og.fram kemur í undirlægju-
hætti hennar á erlendum vett
vangi, svo serh atkvæðagreiðsl
ur fulltrúa íslands hjá Sam-
einuðu þjóðunum bera vott
um. Þámá nefna sjónvarpsmál
ið fræga og auknar hernaðar-
aðgerðir Bandaríkjamanna í
landinu. Er ekki annað sýnna
en að það sé óskadraumur rík
isstjórnar Bjarna Benedikts-
sonar að gera ísland að einu af
Bandaríkjum Norður-Amer-
íku. Ætti þetta að vera íslend
ingum nægilegt viðvörunar-
efni í þessum kosningum, til
þess að kjósendur geti gert
sér sem bezta grein fyrir
stefnu stjórnarinnar í utanrík
ismálum. Þá þarf enginn að
efast um afstöðu ríkisstjórnar
íslands til hervarnarsamnings
ins, sem þjóðinni ber að taka
afstöðu til á næsta kjörtíma-
bili.
Hin almennu landsbyggð-
armál myndu einnig verða
hornreka vegna Stór-Reykja-
víkursjónarmið stjórnarinnar,
ef stjórnin en ekki þjóðin geng
ur með sigur af hólmi. Má þar
nefna atvinnuuppbyggingu,
skólamál, sem mjög hafa ver-
ið afrækt í sveitum landsins
undanfarið og vegamál, sem
nú á að leysa með hraðbraut-
arsjónarmið Reykjavíkur fyr-
ir augum. Nýr fulikominn veg
ur fi'á Reykjavík til Norður-
og Austurlands, sem -er lífs-
skilyrði atvinnuveganna í
þessum landshlutum myndi
vart sjá dagsins ljós undir
handleiðslu núverandi stjórn-
ar.
Hömlulaus aukning dýrtíð-
arinnar og ofríkisstefna stjórn
arinnar í peningamálum ætti
- SKÁTADAGUR
(Framhald af blaðsíðu 1)
eyri. Skátadeginum lýkur síðan
með því, að kveikt verður á
blysum og skotið upp flug-
eldum.
Er það von skátanna, að þessi
fjölbreytta útiskemmtun hafi
upp á eitthvað að -bjóða fyrir
allá fjölskylduna og að Ákur-
eyingar og nærsveitamenn fjöl-
menni á Gleráreyrar á sunnu-
daginn.
Skátafélögin, Akureyri.
að minna kjósendur á, hvers
bændur og verkamenn megi
vænta, haldi stjórnin velli.
Framkvæmdir kísiliðj umáls-
ins eru glöggt dæmi um fram-
kvæmd áhugamála ríkisstjórn
arinnar fyrir hin útvöldu fjár-
aflasjónarmið, sem á að halda
uppi í formi stórra almenn-
ráðherra hefur upplýst, að á
ingshlutafélaga. En fjármála-
slíku sé mikil þörf í þjóðfélag-
inu. til þess, að því er virðist,
að tcrvelda aðstöðu hinna
dreifðu byggða til þátttöku í
atvinnuuppbyggingunni. í
þessu sem öðru ætlar stjórnin
að stjórna með tilskipunum
eins og hún hefur gert í formi
allskonar bráðabirgðalaga sem
hún hefur gefið út um hin
furðulegustu efni. Og ekki má
gleyma kosningapésanum til
hinna ungu kjósenda, sem nú
hefur verið sendur út ekki
einu sinni heldur tvisvar til
þeirra, sem nú eiga að kjósa í
fyrsta sinn. Áróðursvél stjórn
arinnar er nú í fullum gangi.
Nú er um það kosið hvort ís-
lendingar skuli eiga ísland
ófram eða hvort þeir eiga að
afsala landsréttindum sínum í
hendur útlendinga fyrir er-
lend dollara.
Ég er einn af þeim sem
studdi núverandi ríkisstjórn
til valda, því miður. Eftir því
hef ég séð meira en flestu
öðru. Ég óttast afleiðingarnar,
ef ríkisstjórnin sigrar, ekki
sízt fyrir unga fólkið, sem á
að erfa landið, og öll hin miklu
ónotuðu gæði þess. Það er því
skylda mín sem annarra, sem
vilja leitast við að meta málin
frá sjónarhóli íslendingsins, að
kjósa eftir málefnum. Það,
sem mestu máli skiptir, er að
fella ríkisstjórnina, og því
mun ég kjósa Framsóknar-
flokkinn að þessu sinni af því
að ég treysti honum til þeirr-
ar þjóðmálaforystu, sem þjóð-
inni er nú hvað mikilvægust.
Það verða allir að gera sér
ljóst, sem í dreifbýlinu búa,
að það mun ekki verða tekið
mjúku.m tökum á bændum og
verkamönnum með aðgerðum
þeim, er nu bíða úrlausnar í
efnahagsmálum eftir kosning-
ar, ef viðreisnarflokkárnir
undir ‘ forsæti Bjarna Bene-
diktssonar halda völdum.
Hermóður Guðmundsson,
Árnesi.
Maðurinn minn, sonur minn, faðir okkar, bróðir,
tengdafaðir og afi,
ANTON SIGURÐUR MAGNÚSSON,
Hafnarstræti 53,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn
3. júní kl. 1.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Jóhanna Sigurjónsdóttir.
Eiginmaður minn,
MAGNÚS ALBERTSSON, húsgagnasmíðameistari,
Grundargötu 3, Akureyri,
andaðist 31. maí í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Jarðarförin er ákveðin mánudaginn 5. júní kl. 1.30 frá
Akureyrarkirkju. — Þeim sem vildu heiðra minningu
hins látna er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd barna og tengdabama.
Sveinbjörg K. Pálsdóttir frá Vatnsenda.
dregst mjög
saman
JÓHANN HAFSTEIN lýsir
þróun iðnaðarins fagurlega
og segir aðra hafa uppi bar
lóm. Því miður tala stað-
reyndir öðru máli. Iðnverka
fólki á höfuðborgarsvæðinu
hefur fækkað um tvo
fimmtu. f .einni iðngrein að-
eins, fataiðnaðinum, er búið
að Icka 14 fyrirtækjum. Er-
lend fyrirtæki hafa nú tekið
að sér verkefni þessara fyrir
tækja — en milljónatuga fjár
festing í iðnfyrirtækjum
stendur nú óarðbær. —
Tillögur um
17. júní
ÞJ ÓÐHÁTÍÐ ARNEFND Akur-
eyrarbæjar hefur nýlega tekið til
starfa og munu hátíðahöldin fara
fram með svipuðu sniði og und-
anfarin ár. Nefndin myndi þó
feginshugar taka til greina nýjar
hugmyndir um breytt fyrirkomu-
lag ef bærust frá blöðum eða
einstaklingum.
Að þessu sinni skipa nefndina
þessir menn: Jón Ingimarsson,
og er hann formaður nefndarinn-
ar, Hermann Sigtryggsson, Krist-
ján Armannsson, Siguróli Sig-
urðsson, Gísli Lórenzson og Þór-
oddur Jóhannsson.
E r z
l A að endurtaka i
viðreisnina44
f rá 1960
STEFÁN V ALGEIRSSON =
spurði stjórnarflokkana að =
því í útvarpsumræðunum á 1
þriðjudaginn hvað fælist í i
! þeirri yfirlýsingu þeirra, að \
; halda áfram viðreisninni, ef j
| þeir fengju ráðið eftir kosn- \
: ingar. =
Ætlar stjómin að fella \
I gengið eins og þá varð? j
; Hækka verð erlends gjald- j
i eyris um 135% eða kannski ;
; 160% eins og gert var 1960 j
; og 1961? Á að hækka vext- j
j ina og á enn að auka fryst- ;
; ingu sparif jár? Á að hætta j
j að greiða vísitöluuppbót á;
j kaup o. s. frv.?
! En þetta voru ráðin, sem ;
j bjarga áttu þjóðinni í efna-
! hagsmálum! Þetta voru við-
! reisnarráðin! □
iiiiiiiiniumii
- Nýtt símstöðvarhús
(Framhald af blaðsíðu 1).
innar íbúð fyrir símstöðvar-
stjórann. - {•
Nokkuð er búið að setja nið-
ur af kartöflum, og er það ekki
seinna en verið hefur síðustu
árin.
Nýja skipið Vörður, sem héð-
an er gert út er nú komið á síld,
en ekki hefur frétzt um, að það
hafi fengið síld enn sem komið
er. S. G.
ST. GEORGS-GILDIÐ.
Fundurinn. er i Skáta-
heimili Dalvíkur mánu
daginn 5. júní kl. 9 e. h. —
Stjórnin.
GJAFIR OG ÁHEIT. í Freyju-
söfnunina kr. 535 frá Hrein-
dísi Hreinsdóttur, Líneyju
Ámadóttur, Steinunni Áx-
fjörð og Hildi Gísladóttur. —
Frá E. G. Ó. kr. 500,00 til
kristniboðs í Konsó og kr.
500,00 til Vestmannsvatns. —
Til fólksins sem missti allt í
eldsvoðanum: kr. 300,00 frá
N. N., kr. 400,00 frá Þ. J. og
kr. 100,00 frá G. og S. — Til
Sigurlaugar Vigfúsdóttur, er
gekkst undir uppskurð í
Ameríku, kr. 500,00, frá móð-
ur. — Beztu þakkir. -— Birgir
Snæbjörnsson.
MINNINGARSPJÖLD Hjarta-
og æðasjúkdómsvamarfélags-
ins fást í öllum bókabúðum
bæjarins.
MINNIN G ARSP JÖLDIN fyrir'
kristniboðið í Konsó fást hjá
frú Sigríði Zakaríasdóttur,
Gránufélagsgötu 6. — Sími
11233.
í „Ferðum“ segir
frá Ólafsfjarðar-
múla
FERÐIR, blað Ferðafélags Ak-
ureyrar, maí-hefti 26. árgangs
er komið út. Þar í er að finna
greinargóða og mikla lýsingu á
Ólafsfjarðarmúla. Skiptist frá-
sögnin í tvennt: Veginn, þar
sem sagt er frá tildrögum til
vegarlagningarinnar, fram-
kvæmd hennar og kostnaðar,
og Leiðarlýsingu. Greinina skrif
ar Þórir Jónsson á Ólafsfirði.
Fjöldi-' myndá' fylgir,' :og hafa
þeir Karl Hjaltason, Sigurbjöm
Bjarnason og Sverrir Pálsson
tekið þær.
Þá eru í blaðinu ferðaáætlan
ir Ferðafélags Akureyrar og
Ferðafélags Svarfdæla sumarið
1967. Ferðafélag Akureyrar hef
ur á dagskrá sinni 21 ferð í vor
og sumar. Sú fyrsta átti að vera
30. apríl sl., en sú síðasta ef ráð
gerð 8. október. Er það ferð í
Villingadal. Um næstu helgi er
ætlunin að fara í tveggja daga
ferð í Náttfaravík. Þátttakend-
ur í ferðum leggi sér til tjöld og
séu að öllu leyti vel búnir, en
Ferðafélagið mun leggja til hit-
unartæki og ráðgert er að hafa
sameiginlegt matarfélag, þegar
því verður við komið.
Níu ferðir eru á ferðaáætluh
Ferðafélags Svarfdsela. Sú
fyrsta var 24. maí sl. í Skíða-
hótelið í Hlíðarfjalli, en næsta
ferð verður 25. júní í Hörgár--
dal og Öxnadal. Síðasta -ferðin
verður 3. september, gönguferð
á Rimar. Ennfremur em ráð-
gerðar kvöldferðir eftir ástæð-
um, sem ekki. hafa verið -aug-
lýstar enn.
Formaður F. A. er Tryggvi
Þorsteinsson, en 'formaður
Ferðafélags Svarfdæla ér Pálmi
Jóhannsson. Q
VIÐ bjóðum yður að sjá hina
lifandi og hrífandi nýju lit-
kvikmynd GUÐ GETUR
EKKI FARIÐ MEÐ LYGI.
Sjáið sögu Biblíunnar frá 1.
Mósebók til Opinberunarbók-
arinnar. Sjáið skýrar sannan-
ir um uppfyllingu biblíuspá-
dóma! Sjáið hvernig Biblían
getur hjálpað yður í dag!
Sunnudaginn 4. júní kl. 15.00
áð „Bjargi“ Hvannavöllum 10
Akureyri. — Allt áhugasamt
fólk velkomið. Ókeypis. —
Vottar Jehóva.
GJAFIR til Styrktarfélags van-
gefinna: Frá J. J., Akureyri
kr. 3000,00, frá Bj. G. kr.
1000,00 (móttekið J. Ó. S.),
frá Zontaklúbbnum, Akureyri
kr. 50.000,00 (óafhent), frá
Oddfellowstúkunni „Sjöfn“
kr. 50.000,00 (óafhent), frá
Kvenfélaginu „Baldursbrá“,
Glerárhverfi um kr. 15.000,00
(óafhent). — Söfnun í
Húsavíkurkaupstað um kr.
20.000,00 (óafhent). — Beztu
þakkir. — Félagsstjómin.
SAUÐGRÓÐUR
Hólum í Hjaltadal, 2. júní. Jörð
er nú orðin of þurr, en hina síð-
ustu hlýindadaga hefur gróðri
fleygt fram og verður sæmileg-
ur sauðgróður kominn eftir fáa
daga ef ekki bregður til kald-
ari veðráttu. — Sauðburðurinn
hefur gengið vel en ekki mátti
tæpara standa með fóður og er
vinna við sauðburðinn óvenju-
mikil.
Hér í kjördæminu eru haldn-
ir sameiginlegir framboðsfund-
ir stjórnmálaflokkanna. í gær
var einn á Hofsósi, er var vel
sóttur og stóð fram yfir mið-
nætti og í dag er framboðsfund-
ur á Siglufirði.
Bændur keppast við að bera
tilbúna, áburðinn á. túnin og í
þurrustu garðana er verið að
setja niður kartöflur. H. J.
VOTTAR JEHOVA
fjölraenna á Akureyri
MÓT VOTTA JEHÓVA, sem í
þetta sinn er hér á Akureyri og
hófst í gærkvöld kl. 19.45. Marg
ir mótsgestir hafa þegar komið
til bæjarins, og þegar á fimmtu
dagskvöld voru um 120 komnir,
' aðallega frá Reykjavík og Kefla
vík. Margir gestir hafa fengið
gistingu í heimavist mennta-
skólans, og um 30 á einka-
heimilum.
Á mótinu verður fræðandi og
fjölbreytt dagskrá, sem byrjaði
föstudagskvöld með „Guðsveld-
islegum skóla“ og „þjónustu-
, sámkomu". Hinn Guðveldislegx
skóli er ræðuskóli sem vottar
Jehóva hafa í öllum söfnuðum
sínum, þannig að allir geta feng
ið góða þjálfun fyrir boðunar-
starfið, sem vottar Jehóva álíta
sé kristin skylda. f ræðuskól-
anum á mótinu verður það
■ mikil þátttaka frá Akureyrar-
söfnuði votta Jehóva.
Á laugardaginn heldur mótið
.áfram, en hámark mótsins verð
ur á sunnudaginn 4. júní þegar
hin nýja kvikmynd verður
sýnd, sem er nefnd „Guð getur
ekki farið með lygi“. Vottar
Jehóva vilja þá sérstaklega
“bjóða Akureyringum að koma,
og verður myndin sýnd kl. 15.00.