Dagur - 20.09.1967, Page 1
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
skrifstofan
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
r ** | «r i t Túngötu 1.
Ferðaskrifstofansími n«?5
Skipuleggjum
ódýrustu
ferSirnar
tíl
annarra
landa.
1
Nýja stálskipið Eldborg vekur mikla alhygli
ELDBORG GK 13 kom til
heimahafnar, Hafnarfjarðar,
sl. fimmtudag. Þetta er lang
stærsta íslenzka stálskipið,
sem srníðað hefur verið hér-
lendis, glæsilegt á að líta,
557 lestir að stærð (eftir
gömlu máli en 415 lestir sam
kvæmt nýjum reglum þar
um).
Þetta skip er smíðað í
Slippstöðinni á Akureyri, en
framkvæmdastjóri hennar
er Skafti Áskelsson. Aðal-
eigendur Eldborgar eru
Gunnar Hermannsson og
Þórður Helgason.
Til nýjunga má m. a. telja,
að þilförin eru tvö. Það er
búið bæði kæli- og frysti-
lestum og á að geta stundað
jöfnuð höndum síldveiðar,
togveiðar og línuveiðar.
Skipið kostaði 28 milljónir
króna og þolir því verðsam-
anburð við innflutt fiskiskip
í sama gæðaflokki.
Eldborg er ekki aðeins
stærsta skipið, sem íslend-
ingar liafa sniíðað, heldur er
það líka stærsta skip ís-
lenzka fiskiskipaflotans, þeg
ar togarar eru frá teknir. □
Blóði safnað á Akureyri og nágrenni
Á FÖSTUDAGINN, 22. sept-
ember, mun Blóðsöfnunarbíll
Rauðakross íslands koma hing-
að til Akureyrar. Blóðsofnunin
,fer frarn í Gagnfræðaskólanum
frá kl. 10.30—12.00 og kl. 3.00
til kl. 7.00. Heitir Rauðikrossinn
á almenning að bregðast vel og
drengilega við og gefa blóð.
Allir fullorðnir, frískir menn,
geta sér að skaðlausu gefið
þann skammt, sem venjulega er
SÉRA BENJAMÍN AÐ FLYTJA
SÉRA Benjamín Ki'istjánsson
prófastur á Laugalandi mun nú
ætla að hætta prestskap og
flytja suður síðar í haust. Á
hann þó fjögur ár eftir til
þeirra aldurstakmai’ka, sem við
er miðað um opinbera starfs-
menn stéttarinnar.
Eyfirðingar leggja að sjálf-
sögðu ekki stein í götu hans en
hins vegar mun þeim finnast
þeir sviptir mikilli og heilla-
drjúgri andlegri forsjá með
brottför hans. En Benjamín hef
ur þjónað í Grundarþingum í
þriðjung aldar, hlotið óvenju-
legar vinsæídir og virðingu
bæði í embætti og utan, svo
segja má, að hann yrði spá-
maður í sínu föðurlandi —
mikilhæfur leiðtogi á sínum
æskuslóðum. □
Blóðsöfnunarbíllinn kom til
landsins í vetur og hefur verið
notaður til blóðsöfnunar undan
farið á Suður- og Suðvestur-
landi með góðum árangri. En
þetta er í fyrsta sinn, sem hann
kemur hingað til Norðurlands
og mun hann fara héðan til
Húsavíkur, Ólafsfjarðar og e. t.
v. víðar í þessari sömu norður-
ferð. Starfsfólk Blóðbankans
kemur hingað og annast fram-
kvæmdir. ' □
Séra Birgir Snæbjömsson, Sesselja Eldjárn og séra Pétur Sigur-
geirsson' við Sesseljubúð. (Ljósm.: E. D.)
Sesseljubúð á Öxnadalslieiði
Vígsla fór fram síðastliðinn sunnudag
Séra Benjamín Kristjánsson,
prófastur.
KLUKKAN ÞRJÚ á sunnudag
inn hljómaði sálmasöngur í ný-
'byggðu húsi Slysavarnafélags-
ins á Öxnadalsheiði við undir-
leik Birgis Helgasonar. Tveir
hempuklæddir prestar, þeir
séra Pétur Sigurgeirsson og
séra Birgir Snæbjörnsson fluttu
messu og báðu húsinu guðs
blessunar. Sesselja Eldjárn
flutti ávarp, þar sem hún til-
Rúirlega 135 þúsund krónur fil skíðalyftunnar
SÍÐASTLIÐINN sunnudag, kl.
5 e. h., kvaddi stjóm Lions-
klúbbsins Ilugins saman til
fundar í Skiðahótelinu og var
þar afhent myndarleg fjárupp-
liæð, sem klúbburinn hafði safn
að til skíðalyftv.nnar í Hlíðar-
fjalli.
Mættur var Bjarni Einarsson
DOKTORSVORN
AGNAR Ingólfsson Davíðsson-
ar frá Hámundarstöðum á Ár-
skógsströnd varði nýlega
doktorsritgerð sína við háskól-
ann í Ann Aibor í Bandaríkj-
unum og var hún um fugla-
fræðileg efni. Formaður dóm-
nefndar lauk lofsorði á ritgerð-
ina. Agnar hafði áður lokið
prófi í dýrafræði við háskólann
í Aberdeen í Skotlandi. Kona
hans er Linda Wendel. □
bæjarstjóri, íþróttaráð, íþrótta-
fulltrúi og stjórn Lionsklúbbs-
ins Hugins. Haraldur Sigurðs-
son bankagjaldkeri núverandi
formaður klúbbsins bauð gesti
velkomna og sagði meðal ann-
ars, að aðalstarf Lionsklúbb-
anna væri að styrkja ýmis fram
faramál í þágu bæjarfélagsins.
Þá tók til máls Gísli Eyland,
fráfarandi formaður klúbbsins,
(Framhald á blaðsíðu 5)
kynnti, að Slysavarnadeild
kvenna á Akureyri gæfi húsið
Slysavarnafélagi íslands. Hann
es Hafstein þakkaði gjöfina fyr
ir hönd Slysavarnafélags ís-
lands og voru eigendaskiptin
innsigluð með kossi.
Þessi fjallaskáli á Öxnadals-
heiði er útbúinn á svipaðan
hátt og skipbrotsmannaskýhn
alþekktu, með upphitun, ein-
hverjum matarforða og síðast
en skki sízt loftskeytastöð.
Stærð hans er 3.5x5.5 metrar og
geta því margir samtímis notið
þarna skjóls. Á norðurhlið skál
ans stendur nafnið Sesseljubúð
og felur nafnið í sér þakklæti
til þeirrar konu, sem af svo
miklum dugnaði og óeigingirni
hefur unnið að slysavarnamál-
um um áratugi og alkunnugt er.
Skálanum var valinn stað-
ur á Flóanum, austantil á Öxna
dalsheiði, litlu austan við Grjót
á. Grjótá rennur úr Grjótárdal
að vestan en gegnt henni renn-
ur önnur á úr Kaldbaksdal og
falla þær saman vestur af heið
inni og sameinast Norðurá.
Veður var rysjótt á Öxnadals
heiði þennan dag og gekk á
með hvössum byljum en ekki
fannst, að húsið yrði þess vart,
enda stendur það á steyptum
steinstólpum, gröfnum í grjót
niður. Allur er skálinn þiljaður
innan og snyrtilegur. Þar eru
set- og svefnbekkir, kolavél og
senditœki. Öðrum tilheyrandi
(Framhald á blaðsíðu 4).
Norðlenzk frystihús eru yfirfull
Gestirnir eru liér að skoða forstöð nýju skíðalyftunnar. Ljm.: S.J.
NÝLEGA var frystur fiskur
fluttur á bifreiðum frá Húsavík
til Ólafsfjarðar, til geymslu. En
ýms norðlenzk frystihús hafa
ekki getað komið útflutnings-
vörum sínum nógu ört frá sér.
Hjá Ú. A. á Akureyri horfði illa
í þessu efni, allar geymslur
fullar, en þá kom Selfoss og
bjargaði málinu í bráð. Fram-
leitt hefur verið umsamið magn
á Rússlandsmarkað, en reynt er
að semja um meiri viðskipti.
Akureyrartogarar hafa feng-
ið reitingsafla að undanförnu.
En í sumar hefur aflazt meira
af karfa og ufsa en minna af
þorski og er það óhagstætt. □
DALVÍKINGUR
LÉZT ERLENDIS
ÞAU tíðindi hafa borizt að Dal-
víkingurinn Henry Sveinsson,
ungur maður og ókvæntur, hafi
látizt af slysförum í rússneskri
höfn. En hann var háseti á
Arnarfelli. Um aðdraganda er
1 _'X'í „ . . „ 1 -1 - t lriivmnrtt I I