Dagur - 01.11.1967, Side 7
Kaupum
hreinar léreffifyskur
PRENTVERK ODDS BJORNSSONAR H.F.
HAFNARSTRÆTI 88, AKUREVRI
ENDURSKINSHRINGIR fyrir framljós 5 og 7”
Bifreiðastjórar, sem mæta bifreið með yfirbrunnið
ljósker, sjá móta fyrir báðum, séu notaðir slíkir hringir
ÓDÝRAR RAFHLÖÐUR í ljós og tæki
OLÍUSÍUR í ffesta bíla
RAFGEYMAR
PÚSTRÖR og tilheyrandi
HLJÓÐKÚTAR
KOPARFITTIN GS
DEMPARAR
HÁÞRÝSTI-OLÍUSLÖNGUR í metratali
Saman skrúfuð SLÖNGUTENGI
LYSTADÚN SESSUR
Þægilegar livort sem er í kulda eða lrita.
MIÐSTÖÐVAR
FROSTLÖGUR
ÍSSKÖFUR
GÚMMÍMOTTUR
Fjölbreytt úrval margs konar VARAHLUTA
ÞÖRSHAMAR H.f.
Varalilutaverzlun
§ Hjartans þökk og þakkir til allra þeirra, er senclu *
* mér kveðju sina og hlýjar heillaóskir, bókstaflega og f
STÓR-AFMÆLI mínu þann %
? á dásamlegu blómamáli á
^ 25. október 1967!
HELGI VALTÝSSON.
| Alúðarþakkir fyrir hlýjar kveðjur, gjafir og vinar-
í hug á sjötiii og fimm ára afmcelisdegi minum. <■)
Guð blessi ykkur. f
£ PETRÍNA STEFÁNSDÓTTIR. |
l - .............f
&
Þakka hjartanlega, alúð mér sýnda, á sjötugsafmceli ^
minu þ. 21. október. f
<p
i ÁSTRÚN SIGFÚSDÓTTIR. |
Alúðarþakkir til allra þeirra, er auðsýndu samúð og
vináttu við andlát og jarðarför
JÓNS SIGFÚSSONAR, Skólastíg 9. •
Ragnheiður Pálsdóttir, börn, tengdabörn
og barnabörn.
BERKLAVÖRN hefur spila-
kvöld í Sjálfstæðishúsinu,
litla sal, sunnudaginn 5. nóv.
kl. 8.30 e. h: Góð verðlaun.
Skemmtinefndin.
HJÁLPRÆÐISHERINN! Dag-
ur yngri liðsmannanna er n.k.
sunnudag. Þá verður fjöl-
skyldusamkoma kl. 4 e. h.
Þar fer fram yngri liðsmanna
vígsla. Einnig munu' börnin
syngja, lesa upp og flytja smá
leikþátt. Foreídrár og aðrir
komið með börnunum á Her
kl. 4 á sunnudaginn. Verið
velkomin.
HLUTAVELTA í Alþýðuhús-
inu sunnudaginn 5. nóv. kl.
4 e. h. — Margt mjög góðra
muna. St. ísafold.
FUNDIR í YD (yngri
deild) á mánudögum kl.
5.30 e. h. Allir 9—12 ára
drengir velkomnir. —
Fundir í UD (unglingadeild)
á miðvikudögum kl. 8 e. h. —
Allir drengir 13 ára og eldri
velkomnir.
SKOTFÉLAGAR. Æfing n. k.
föstudag kl. 7 e .h. í fþrótta-
skemmunni.
- Rautt sortulyng
(Framhald af blaðsíðu 5).
komnu tilbreytingar á atburða-
snauðri vegferð rútunnar.
Stundum virðist mér ekki
skorta nema ofurlitla hagræð-
ingu í byggingu til að auka
áhrifamátt sögunnar. Sagan
Mýrarþoka er gott dæmi þess.
Fyrri hluti hennar er foi-kunnar
góður. Kvíðaspenna og vonleysi
grúfir yfir öllu eins og mýrar-
þoka og gefur því ömurlegan
og hálf-óraunverulegan blæ, en
í lok annars kaflans rís raun-
veruleikinn upp úr þokunni og
ber við loft í einfaldri og
sterkri mynd, þar sem kistan á
kviktrjánum sést rórilla eins og
í lausu lofti yfir svartan hrís-
lubbann á ásnum, og þrjú höfuð
fylgja. — Þetta er eins og mál-
verk. — En svo þykir mér
þriðji kaflinn of langdreginn.
Það slævir heildai'áhrif sög-
unnar.
Ég gat þess áðan, að mér
þætti margar sögurnar um of
kyrrstæðar. Kannski er það af
því, að höfundurinn hefur ekki
losað sig við vinnubrögð ljóð-
skáldsins. Ljóðrænn skáldskap-
ur er í eðli sínu kyrrstæður.
Þar tjáir skáldið hugsun sína
eða hugblæ, stemningu stundar
innar, vetfangsins, og það hefur
engan tíma. Framvindan er
hins vegar burðarás hins episka
skáldskapar. Smásagan er að
vísu löngum beggja blands. —
En það kostar áreiðanlega mik-
ið átak fyrir skáld að skipta um
skáldskaparform á roskinsaldri.
Mér virðist langir kaflar í sög-
um Guðmundar vera nánast
prósaljóð. Við lestur þeirra datt
mér hvað eftir annað í hug
ættarmót af Hel eftir Sigurð
Nordal.
Og kannski er þetta þá mis-
skilningur minn, að þær séu of
hægstreymar. Má vera, að það
sé aðeins eirðarleysi nútímans
í mínum eigin beinum, sem
veldur því, að mér finnst það.
Kannski er þetta einmitt tján-
ingarform þess tíma, sem um
er fjallað. Við áttum okkur bet
ur á því, þegar frá líður. Skáld-
in skynja slíkt af næmi sínu
betur en við, hversdagsmenn-
irnir. — Víst er um það, að
þetta voru skáldlegir tímar,
fullir af rómantík, og það er
ánægjulegt að finna ilm þeirra
og lit leggja á móti sér á ný og
finna óminn af máli þeirra í
sínum gömlu sveitamannseyr-
H um. Árni Kristjánsson.
I.O.O.F. — 1501138y2
□ RÚN .-. 59671117 .•
- 5
AKUREYRARKIRKJA. Mess-
að verður n.k. sunnudag kl.
2 e. h. (Allra heilagra messa).
Minnzt verður látinna. Sálm-
ar nr. 447, 350, 472, 351 og
196. — B. S.
MÖÐRUV ALL AKL AU STURS-
PRESTAKALL, Messað verður
að Glæsibæ n.k. sunnudag kl.
4 e. h. Stund með börnunum
á eftir. — Birgir Snæbjörns-
son.
BRÚÐHJÓN. 2. september sl.
voru gefm saman í hjóna-
■band í Illugastaðakirkju af sr.
Friðriki A. Friðrikssyni, ung-
frú Sóli'ún Hafstemsdóttir frá
íteykjum, Fnjóskádal og Val
geir Stefánsson frá Auð-
brekku, Hörgárdal.
BRÚÐHJÓN. Þann 26. október
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju Fríða Að-
alsteinsdóttir og Jóhann Stein
mann Sigurðsson, verkstjóri.
Heimili þeirra er að Stór-
holti 6, Akureyri.
SUNNUDAGASKÓLI AKUR-
EYRARKIRKJU er á sunnu-
daginn kl. 10,30 í kapellunni
og kirkjunni. — Strætisvagn
gengur úr Glerárhverfi tily
kirkjunnar með sunnudaga-
skólabörn. — Sóknarprestar.
KRISTNIBOÐS - OG ÆSKU-
LÝÐSVIKA. — Dagana 5. til
12. nóv. n.k. 'halda KFUM,
KFUK og Kristniboðsfélag
kvenna á Akureyri kristni-
boðs- og æskulýðsviku í Zion
og hefst vikan, eins og fyrr
segir, sunnudaginn 5. nóv'. og
verður síðan samkoma á
hverju kvöldi kl. 8,30 alla
vikuna. — Ræðumenn verða,
auk heimamanna: Ingunn
Gísladóttir,, hjúkrunarkona,
Gunnar Sigurjónsson, cand.
theol. og Jónas Þórisson. —
Allir eru hjartanlega vel-
komnir á samkomur þessar.
FÍLADELFÍA Lundargötu 12.
Opinber samkoma hvern
sunnudag kl. 8.30 e. h. Allir
hjartanlega velkomnir. —
Sunnudagaskóli hvern sunnu
dag kl. 1.30 e. h, Öll börn vel-
komin. Saumafundir hvern
miðvikudag kl. 5.30 e. h. All-
ar telpur velkomnar. —
Fíladelfía.
KVENFÉLAG Akureyrar-
kirkju heldur sinn árlega
Bazar í kirkjukapellunni
laugardaginn 4. nóvember kl.
4 síðdegis. Félagskonur og
aðrir velunnarar kii'kjunnar
eru beðnir að koma munum
til eftirtalinna nefndar-
kvenna: María Ragnarsdóttir,
Möðruvallastræti 3, Gréta
Jónsdóttir, Helgamagrastræti
34, Kristín Sigurbjarnardótt-
ir, Sólvöllum 8, Signý Stefáns
dóttir, Möðruvallastræti 1,
Klara Nilsen, Norðurgötu 30,
Sigurjóna Frímann, Ásvegi
22, Tómasína Hansen, Vana-
byggð 2D.
I.O.G.T. Haustþing Umdæmis-
stúkunnar nr. 5 verður hald-
ið að Bjargi laugardaginn 4.
nóvember kl. 4 e. h. Venju-
leg dagskrá. Stigveiting. —
Umdæmistemplar.
BARNAVERNDARFÉLAG Ak
ureyrar þakkar öllum, sem
aðstoðuðu við fjáröflun fé-
lagsins um síðustu vetrar-
komu. — Einnig þakkar það
öllum þeir, er styrktu félagið
á einn eða annan hátt. Sér-
stakar þakkir eru færðar
eigendum og forstöðumönn-
um kvikmyndahúsanna fyrir
þeirra mikilvægu liðveizlu. —
Þeztu þakkir, öll. — Stjórn
Barnaverndarfél. Akureyrar.
M.F.Í.K. Konur í Akureyrar-
deild. Munið félagsfundinn að
Hótel KEA kl. 20.30 í kvöld,
(miðvikudagskvöld) Stjórnin
SKÁKMÓT Ungmenna-
samb. Eyjafjarðar — 4
manna sveitakeppnin —
hefst í Freyvangi þriðju
daginn 7. nóvember kl. 9 e. h.
BRUÐHJON. Þann 28. október
voru gefin saman í hjónaband
Ólöf Guðbjörg Kristjánsdótt-
ir og Ingimar Snori'i Karls-
son, húsasmiður. — Heimili
þeirra er að Stafholti 3.
BRÚÐHJÓN. Laugardaginn 28.
október voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju
ungfrú Edda Hrönn Stefáns-
dóttir og Björgvin Björg-
vinsson, húsasmíðanemi. —
Heimili þeirra verður að
Stórholti 1.
ST. GEORGS-GILDIÐ.
Fundurinn er í Kapell-
unni 6. nóvember kl.
e. h. — Frk. Ingibjörg
Magnúsdóttir yfirhjúkrunar-
kona mætir. — Stjórnin.
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99
heldur fund í Varðborg (nýja
salnum, gengið inn að vestan)
fimmtudaginn 2. nóv. kl. 8.30
e. h. Inntaka nýrra félaga.
Rætt um SKT o. fl. upplestur,
3 lesarar. Kaffi á eftir fundi.
— Æ.t.
ÍBÚAR á Akureyri! Takið eftir
auglýsingu um vélritunarnám
skeið. Notið þetta tækifæri.
Frú Cecilía Ilelgason hefur
kennt vélritun í marga ára-
tugi.
FRÁ Þingeyingafélaginu. Akur
eyri. Annað spilakvöld félags
ins verður að Bjargi laugar-
daginn 4. nóv. og hefst kl.
20.30. Góð verðlaun. Skemmti
atriði. Nefndin.
AKUREYRINGAR! — fslenzk
glíma verður kennd og æfð í
vetur í íþróttahúsinu, meira
eða minna, eftir þátttöku.
Þeir, sem vildu vera þar með,
gjöri svo vel að mæta til við-
tals á nefndum stað fimmtu-
daginn 2. nóv. n. k. kl. 20.30.
— ÍBA.
KVENFÉLAGIÐ FRAMTÍÐIN
hefur enn látið gera nýja teg-
und jólamerkja, sem fást í
Pósthúsinu á Akureyri. —
Ágóði merkjasölunnar rennur
til Elliheimilissj óðs Akureyr-
ar og styrkja menn því gott
málefni, er þeir kaupa þetta
fallega jólamerki. .
GJÖF til Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri frá Óskari
Jónssyni kr. 1.000.00. — Með
þökkum móttekið. G. K. P.
KVENFÉLAGIÐ Baldursbrá
heldur félagsvist að Bjargi
föstudaginn 3. nóv. kl. 8.30
e. h. Hljómsveit skemmtir.
Félagskonur fjölmennið og
takið gesti með. Nefndin.
FRÁ ÞÝZK ÍSLENZKA FÉ-
LAGINU. — Lesstofan, Geisla-
götu 5, verður opin fram-
vegis á þriðjudögum kl. 8 til
10 síðdegis. — Útlán bóka og
tímarita fer fram á sama
tíma. Ennfremur mikið úrval
segulbanda með fjölbreyttri
músik.