Dagur - 15.11.1967, Side 1

Dagur - 15.11.1967, Side 1
HOTEL Herbergla- pantanir. Ferða- skrifstoían Túngötu 1. Akureyri. Sími 11475 Ferðaskrifsfofan Túngötu 1. Sími 11475 Skipuleggjum ódýrustu ferðirnar til annarra landa. Læasfa inn- í GÆR voru opnu'ð lilboð ]tau í tvö 1000 lesta skip Skipa- útgerðar ríkisins, sem boðin höfðu verið út. Viðsíaddir vorú, stjórnar- nefndarmenn Skipaútgerðar- innar og tæknilegir ráðunaut- ar hennar og ráðuneytisstjóri, fiiiltrúar erlendra sendiráða, umboðsmenn erlendra skipa- smíðastöðva og forstjórar og fulltrúar innlendra skipa- smíðastöðva. Alls bárust 23 tilboð í smíði skipanna, þar af þrjú innlend; frá Slippstöðinni á Akureyri, Stálsmiðjum í Reykjavík og Stálvík og Þorgeiri og Ellert, Akranesi sameiginlega. Lægsta innlent tilboð var 47.9 millj. kr. (mun vera frá Akureyri), en það hæsta 55 millj. kr. Lægsta erlendt til- boð ^’ar 35—3tí millj. kr., en það hæsta var 63.6 millj. kr. Eftir er að gera samanburð á tilboðunum. Erlendu tilboðin voru frá Bretlandi, Hollandi, Frakk- landi, V.-Þýzkalandi, Dan- mörku, Noregi, Spáni, ftalíu, Júgóslavíu og Færeyjum. □ Frá vinstri: Indriði Ketilsson, Baldur Baldvinsson, Stefán Reykjalín, Eggert Ólafsson og Gísli Guðmundsson í ræðustól. (Ljm.: E. D.) Kj ördæmisþiiig Framsóknarmanna lialdið á Akureyri uni síðastliðsia lielgi Eggert Ólafsson bóndi í Laxárdal var endur- kjörinn formaður samtakanna KJÖRDÆMISÞING Framsókn armanna í Norðurlandskjör- dæmi eystra, hið áttunda aðal- þing þessara samtaka, frá því þau voru stofnuð eftir síðustu kjördæmabreytingu, var haldið 11. og 12. nóvember. Að þessu sinni var Akureyri valin, sem þingstaður og fór þinghaldið fram í Hótel KEA við liinar beztu aðstæður. Veður versnaði skyndilega, Verður opið almenningi á morgun kl. 2-4 síðd. Á SUNNUDAGINN buðu Zontakonur á Ákureyri frétta- mönnum til kaffidrykkju í Nonnaihúsi og minntust þess við það tækifæri, að Nonnasafnið er 10 ára um þessar mundir. Formaður Zontaklúbbsins, Þór hildur Steingrímsdóttir, bauð gersti velkomna en Jóhanna Jóhannesdóttir, formaður hús- nefndar, rakti sögu safnsins. Stefanía Ármannsdóttir safn- vörður og Ragnheiður O. Björnsson sögðu frá heimsókn- um erlends fólks, sem sumt kom hingað í einskonar píla- grímsför til að sjá æskuslóðir Nonna, en eins og öllum er kunnugt er Nonnasafn til minn (Framhald á blaðsíðu 5). enda kominn vetur, og komu af þeim sökum færri til þingsins en ella hefði orðið, m. a. nokkr- ir fulltrúar úr Norður-Þing- eyjarsýslu og Ólafsfirði. Við þingsetninguna voru þó mættir 59 menn alls, bæði fulltrúar, sambandsstjórn og alþingis- menn. Síðar bættust fleiri við og urðu alls nær 70 manns. Kjörbréfanefnd starfaði og hafði Áskell Einarsson síðan orð fyrir henni. Berriharð Stefánsson fyrrv. alþingismaður var kjörinn fyrsti forseti þingsins en vara- forsetar þeir Stefán Reykjalín og Baldur Baldvinsson á Ófeigs stöðum. Þingskrifarar voru Indriði Ketilsson, Fjalli og Jón Baldvinsson frá Rangá. Eggert Ólafsson bóndi í Lax- árdal í Þistilfirði, stjórnarfor- ÞAÐ. SEM EKKT MÁ GLEYMAST í SKÝRSLU sinni á Kjördæm isþinginu um þingmál á Al- þingi vék Gísli Guðmundsson m. a. að þeirri tillögu til þings ályktunar, sem þingmenn Framsóknarflokksins hér í kjördæminu ásamt nokkrum öðrum þingmönnum flokksins flytja nú, um að gerð verði áætlun um fullnaðaruppbygg- ingu þjóðvegakerfisins á til- teknum tíma. Er G. G. hafði að þessu vikið fórust honum orð á þessa leið: Ég vil í sambandi við þetta mál og sum önnur, sem ég er búinn að nefna, ekki láta hjá líða, að brý’na það fyrir þessu Kjördæmisþingi okkar Fram- sóknarmanna hér á austan- verðu Norðurlandi, að hvað sem bera kann til tíðinda í stjórnmálum og efnahagslífi það sem eftir er af þessu ári og á næstu árum, og þó að spenna dægurmálarjpa og karpið í hinni pólitísku viður- eign dragi oft að sér mesta athygli, þá verðum við um- fram allt að minnast þess, að fólkið í þessum landshluta og þá fyrst og fremst Framsókn- arfólkið, hefur skilyrði til að háfa og verður að hafa forystu í því á þjóðmálasviðinu, að stuðla að því að byggð blómg- ist og skilyrði séu fyrir hendi til þess hér og annars staðar, þar sem landsbyggð á í vök að verjast. Ég minni á það hér, að höfuðstaður Norðurlands er nú ekki lengur næst fjölmenn asta bæjarfélag landsins. Eitt af sveitarfélögum Stór- Reykjavíkur, sem fyrir 3 ár- um var ekki til sem slíkt, hef- ur á árinu sem leið skákað Akureyri niður í þriðja sæti að því er fjölmenni varðar. Ekki svo að skilja að mann- fjölgun á Akureyri hafi orðið minni á því ári en oft áður. En þetta dæmi er táknrænt, og því nefni ég það hér. Rómverskur stjórnmála- maður sagði í hverri ræðu, sem hann hélt í öldungaráð- inu: Auk þess legg ég til að Cartago sé lögð í eyði. Og það Varð. Við viljum ekki láta leggja neina borg í eyði. Við viljum byggja upp. En okkur ber ei síður en þessum löngu liðna fornaldargarpa að beita mætti endurtekningarinnar í okkar mikla máli. Á hverju þingi og á hverjum fundi, á hverjum útkomudegi blaðsins okkar eigum við að minna á það, sem ekld má gleymast: Að íslendingar mega ekki hopa á hæli í sínu eigin landi. Að landið þarf að vera bvggt til að halda sjálfstæði. Að þar þarf að vera jafnvægi milli landshlutanna. Það er ekki nauðsynlegt, jafnvel ekki æskilegt, að segja þetta alltaf með sömu orðunum — eða allt þetta í senn —. En segjá það alltaf á einhvern hátt — og helzt þannig, að sem 'bezt verði eftir því tekið og á þann hátt að það skiljist, að hugur .maður samtakanna, setti þingið með stuttu ávarpi og flutti síð- an skýrslu stjórnarinnar. Höfðu störfin orðið mikil enda kosn- ingaár. Sigurður Jóhannesson á Akureyri, gjaldkeri kjördæmis sambandsins, las reikninga og skýrði þá. Þennan fyrri þingdag fluttu alþingismenn Framsóknar- flokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra, þeir Gísli Guð- mundsson, Ingvar Gíslason og Stefán Valgeirsson erindi um stjórnmálaviðhorfið og hin ýmsu þjóðmál, sem Alþingi hef (Framhald á blaðsíðu 5). Kindarhöfuð stóð upp úr skaflinum SKJÖLDUR bóndi Steinþórs- son Skáldsstöðum í Saurbæj- arhreppi leitaði kinda, sem hann hafði vantað í 17 daga. Hann fann þær í fönn á mánu- daginn neðan til í Skáldstaða- fjalli. Voru það 4 veturgamlar ær, tvær lifandi og tvær dauð- ar. í leit sinni sá hann kindar- höfuð upp úr skafli og var þar önnur, sem enn var á lífi. Gat hún sjálf gengið til bæjar, hina þurfti að bera. Fátítt er talið, að fé lendi í fönn á þessum slóðum, ef ekki einsdæmi. Enn vantar eitthvað af fé á þessum slóðum og eru menn uggandi um afdi-if þess, síðan fréttist um kindurn- ar frá Skáldsstöðum. □ Sjö umferðaóhöpp Á LAUGARDAGINN urðu sjö umferðaróhöpp en engin slys á fólki. Nokkrir árekstrar hafa orðið síðan, ekið á kyrrstæða bíla, Ijósastaur og brotin rúða í bíl og önnur í húsi. □

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.