Dagur - 22.11.1967, Blaðsíða 1

Dagur - 22.11.1967, Blaðsíða 1
L. árg. — Akureyri, miðvikudagmn 22. nóvember 1967 — 72. tölub. HOTEL Herber9’*' pantanir. Ferða- skrifstoían Túngötu 1. ’Akureyri. Sími 11475 Fjórar trillur sukku Hrísey 20. nóvember. Hér var feikileg veðurhæð á laugar- dagskvöldið og sunnudagsnótt- ina, svo ég man ekki slíkt. Rokið stóð af suðvestri. Þrjár trillur sukku og þá fjórðu rak á land. Allar eru þær brotnar rheira og minna og ein er talin ónýt. Búið er að ná þeim upp, sem sukku. Sjógangur var mikill og gróf undan sjóvarnargarðinum, sem Baldur Sigui'ðsson hefur verið að gera hér. — Þá fauk allt lauslegt og brotnuðu skjólvegg- ir kring um garða en um var- anlegt tjón var ekki að ræða. Ekkert hefur enn verið farið á sjó sökum ógæfta nú að und- anförnu. S. F. Þök fuku af húsum í Ólafsfirði Ferðaskrifsfofan Túngötu 1. Sími 11475 Skipuleggjum ódýrustu feröirnar til annarra landa. Ilin nýja húsgagnaverzlun Valbjarkar h.f. (Ljósin.: G. P. K.) VALBJÖRK OPNAR MYNDARLEGA KÚSGAGNAVERZLUN Ólafsfirði 21. nóv. Hér var mik- ið rok um helgina og fuku þök af tveimur húsum og var annað þeirra í smíðum. Skíðalyftan ekki vígð um helgina SAMKVÆMT upplýsingum er blaðið fékk hjá fonn. íþrótta- ráðs, er undirbúningi enn ekki lokið við skíðalyftuna og vígsla fer því ekki fram urn helgina eins og fyrirhugað var. NÚ ER að hefjast umfangs- mesta fræðslu- og upplýsinga- starfsemi hér á landi, sem um getur í umferðarmálum Hún er tvíþætt: Anhars vegar endurskoðun umferðar- mála og áróður fyrir stórauk- inni umferðarmenningu og hins vegar breyting umferðarinnar, frá vinstri- til hægri umferðar. En hægri umferðin kemur til framkvæmda 26. maí í vor, sam kvæmt lögum frá Alþingi hinn 3. raaí 1966. En þau lög voru staðfest af forseta tíu dögum síðar. Rétt er að geta þess, að breyting þessi var samþykkt með 36 atkvæðum gegn 17. Sam þykktin hefur mælzt illa fyrir og mætt 'harðri andstöðu al- mennings. Gerðar hafa verið til raunir til þess að fá málið tekið upp á Alþingi á ný, en verið hafnað af öllum stjórnmála- flokkum. Hægri handar breytingunni eða H-umferðinni verður því að taka sem staðreynd hvort sem mönnum líkar betur eða Kvenfélagið Æskan í Ólafs- firði hélt nýlega upp á 50 ára afmæli sitt með samsæti í Tjarnarborg. Fyrsti formaður var Sigríður Vilhjálmsdóttir á Vatnsenda en núverandi for- maður er Helga Eðvaldsdóttir. Kvenfélagið hefur látið margt gott af sér leiða á undangengn- um árum. Og það hefur nú beitt sér mjög fyrir byggingu elli- heimilis, en grunnur þeirrar byggingar er þegar tekinn og á elliheimilið að rísa sunnan við kaupstaðinn. Hér eru ógæftir og aflaleysi. Múlavegur er greiðfær. B. S. verr og búa sig undir hana svo sem kostur er. Framkvæmda- nefnd H-umferðar skipa: Val- garð Briem hdl., Einar B. Páls- son verkfr. og Kjartan J. Jó- hannsson læknir. En fram- kvæmdastjóri nefndarinnar er Benedikt Gunnarsson tækni- fræðingur og fulltrúi hans Gest Á LAUGARDAGINN gafst fréttamönnum og ýmsum gest- um kostur þess, að sjá og skoða nýja húsgagnaverzlun Valbjark ar h.f. í Geislagötu 28. Þar er myndarlegt, nýtt húsnæði og mikið úrval vara. Valbjörk h.f., sem er hús- gagnaverkstæði, opnaði verzlun fyrir framleiðslu sína í Reykja- vík á síð^ta ári, og hér nú. En auk verzlunarinnar tekur fyrir tækið í notkun mikið, nýtt hús- næði á tveim hæðum og er neðri hæðin um 600 fermetrar en sú efri 400 fermetrar. Þessar framkvræmdir kosta 9—10 millj. ur Þorgrímsson. Upplýsinga- og fræðslumið- stöð hefur nú verið sett á lagg- irnar í Reykjavík og hefur hún aðsetur í Aðalstræti 7. Hún ann ast upplýsingastarfsemi í út_ varpi, sjónvarpi og blöðum. For stöðumenn eru: Pétur Svein- bjarnarson, sem annast degleg- króna. Valbjarkarhúsgögn hafa hlotið viðurkenningu og notið vinsælda. Að þessu sinni eru ýmsar vörur nýtízkulegar svo sem sófasett, svefnherbergis- húsgögn, skólahúsgögn o. fl., og er sjón sögu ríkari í því efni. Teikningu að verksmiðj uhúsinu gerði Sigvaldi Thordarsen arki- NÝLOKIÐ. er ráðstefnu lækna, sem Læknafélag íslands boðaði til í Reykjavík. Engar ályktan- ir voru gerðar, en það var meg- an rekstur og Ragnar Kjartans- son, Guðmundur Þorsteinsson er skólafulltrúi upplýsingamið- stöðvarinnar og Kári Jónasson er upplýsingafulltrúi, og Hörð- ur Valdimarsson útbreiðslu- stjóri. Slysav'arnafélag íslands og (Framhald á blaðsíðu 2). tekt, en við staðsetningu véla o. fl. aðstoðuðu erlendir aðilar. Eigendur Valbjarkar h.f. eru: Jóhann Ingimarsson og er hann jafnframt framkvæmdastjóri, Torfi Leosson framleiðslustjóri, Benjamín Jósefsson sölumaður, en verzlun í Reykjavík annars frú Erla Gunnarsdóttir. Verksmiðja og verzlun Val- bjarkar er myndarlegt framtak eigendanna, sem vonandi ber góðan ávöxt. Q insjónarmið, að brýna nauðsyn bæri til að breyta fyrirkomu- lagi á yfirstjórn heilbrigðismál- anna, enda væri það kerfi, sem nú væri notað, 200 ára gamalt og löngu aflagt í öðrum lönd- um og alveg úrelt, — að sögn þeirra, er fréttir veittu blaða- mönnum að ráðstefnu lokinni. Nýtt skipulag yrði að koma til og að stofna þyrfti sérstaka heilbrigðismálastofnun í land- inu, sem hefði með höndum áætlunargerð í heilbrigðismál- um. Sjúkrahúsmálin þyrfti að endurskoða -og læknisþjónustu í dreifbýlinu, læknamenntun o. s. frv. (Framhald á blaðsíðu 2) LÆKKUN STERLINGSPUNDSINS SÍÐASTLIÐIÐ laugardags- kvöld tilkynnti ríkisstjórn Bretlands, að ákveðið hefði verið að lækka gengi sterlings pundsins um 14.3%. Síðan hafa 10 ríki, þar á meðal Dan- mörk, tilkynnt að þau muni fella gengi peninga sinna. En 34 ríki hafa tilkynnt, að þau muni ekki láta fall sterlings- pundsins hafa áhrif á gengi hjá sér. Gengislækkun dönsku krón unnar verður 7.9% eða tals- vert minni en sterlingspunds- ins. Þegar fréttin kom frá Bret- landi ákvað Seðlabankinn að stöðva um sinn yfirfærslur í bönkum hér á landi og fjár- málaráðuneytið að fresta toll- afgreiðslum. Sagt er, að annríki sé nú mjög mikið sýðra, við margs- konar útreikninga, í ráðuneyt um, bönkum og hjá Efnaliags- stofnim ríkisins. Síðdegis í gær ætlaði for- . sætisráðherrann að ræða við formenn stjórnarandstöðu- flokkanna og formenn stéttar- samtakanna. Það munu margir mæla, að varla sé á færi núverandi ríkis stjórnar, svo veik sem hún er, ráðafá um úrræði og stefnu- lítil, að rjála til mima við skráningu gjaldeyris hér á landi, enda þótt skráningar- valdið sé hjá Seðlabankanum. Á fundi með fréttamönnum á Akureyri. Frá vistri: Hannes Haf- stein, Gísli Olafsson, Pétur Sveinbjamarson og Kári Jónasson. Undirbúningur H-umferðarinnar er hafinn Kerfi heilbrigðismálanna 200 ára

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.