Dagur - 17.12.1967, Blaðsíða 2

Dagur - 17.12.1967, Blaðsíða 2
2 ísafolclarbækur Brennur París? eftir Larry Collins og Dominique Lapierre. Þýð. Hersteinn Pálsson, ein frægasta saga sem skrifuð hefur verið um lok síðustu heimsstyrjaldar. 330 bls. með mörgum myndum. Verð kr. 446.15. Helreiðin eftir Selmu Lagerlöv. Sr. Kjartan Helgason þýddi. Selmu Lagerlöv þarf ekki að kynna íslenzkum lesendum. Þetta er ein fegursta saga hennar í snilldarþýðingu sr. Kjart- ans í Hruna. Verð kr. 258.00. Landshornamenn. Sönn saga í Há-Dúr kallar Guðmundur Daníelsson þessa bi’áðskemmtilegu frásögn af ýmsum þekkt- um „Landshornamönnum“ á ferð og flugi um landið. 183 bls. Með teikn. eftir Halldór Pétursson. Verð kr. 365.00. Hjá selum og hvítabjörnum eftir Friðþjóf Nansen í þýðingu Jóns Eyþórssonar, prýdd fjölmörgum myndum eftir höfund- inn. Þetta er 'bók fyrir hrausta stráka á öllum aldri frá átta til áttatíu óra. 284 bls. Verð kr. 397.75. Mamma skiiur allt eftir Stefán Jcnsson. „Sagan hans Hjalta litla“ kom út í fyrra í annarri útgáfu. „Mamma skilur allt“ er beint framhald af þeirri bók. -Báðar þessar bækur hlutu fádæma vinsældir þegar þær kcmu út fyrír úfn það bil 20 árum síðan. 264 bls. m. myndum eftir Halldór Pétursson. Verð kr. 236.50. Saga í sendibréfum. Þættir úr ævi séra Sigtryggs á Núpi. Finnur Sigmundsson fyrrum landsbókavörður tók saman. Þetta er sagan af piltinum úr Garðsárdalnum, sem ungur að árum gerð'ist menningarfrömuður í sveit sinni, hóf lang- skólanám 26 ára og varð þjóðkunnur fyrir giftudrjúgt ævi- starf. 230 bls. með myndum. Verð kr. 387.00. Sex daga stríð eftir Randolph og Winston-Chui’chill, Churc- hillfeðgarnir lýsa leifturstríðinU frá í sumar þegar ísraels- menn gjörsigruðu sameinaðan her Araba á sex dögum. 256 bl^. með mörgum myndum. Verð kr. 397.75. Úlfhundurinn eftir Jack London í þýðingú Stefáns Jónsson- ar námsstjóra. Þetta er fimmtándá bókin í ritsafni Jack London. Þetta er góð bók eftir góðan höfund. 264 bls. Verð kr. 236.50. Tvímánuður, skáldsaga eftir Katrínu Ólafsdóttur. Eftir sama höfund hefur komið út bókin „Liðnir dagar“, sú bók seldist upp á skömmum tíma og var gefin út í annarri útgáfu. Þetta er fyrsta skáldsaga Katrínar og mun án efa vekja verðskuld- aða athygli. 200 bls. Verð kr. 365.60. íslenzk frímerki 1968 eftir Sigurð H. Þorsteinsson. Þetta er ellefta árið sem íslenzki frímerkjaverðlistinn kemur út. Bráðnauðsynleg bók fyrir þá sem fylgjast vilja með verð- gildi íslenzkra frímerkja. 128 bls. Verð kr. 161.25. Sjóari á hestbaki, ævisaga Jacks London eftir Irving Stone. Þýð. Gylfi Pálsson. Ævi Jacks London var ein óslitin ævin- týraslóð frá fátækrahverfi um San Francisco til óbyggða Alaska og sólríkra Suðurhafseyja. 312 bls. með mörgum myndum. Verð kr. 349.40. Undir ljóskerinu, sagnaþættir eftir Guðmund L. Friðfinns- son. Guðmundur er þekktur sem skáldsagnáhöfundur en hér kveður hann sér hljóðs á nýjum vettvangi með sagnaþáttum úr Austurdal. 97 bls. með myndum. Verð kr. 295.65. Villieldur, skáldsaga eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Villieldur var síðasta skáldsagan, sem Ragixheiður Jónsdóttir lét frá sér fara áður en starfsorkuna þraut. Sagan er að ýmsu ólík eldri sögum Ragnheiðar en fullvíst er að eklci bregzt höf- undi bogalistin fremur en áður, að segja vel sögu. Verð kr. 349.40. Matrr og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur. Stærsta og fullkomnasta matreiðslubók sem komið hefur út á íslenzku. Kærkomnasta jólagjöf húsmæðranna, nytsöm þeim ungu og óreyndu og einnig þeim sem lengra eru komnar í mat- reiðslulistinni. Stór bók. 638 bls. með mörgum myndum og skýringum. Verð kr. 994.40. Sérstök athygli er vakin á því, að samkvæmt heimild í reglugerð frá 11. marz 1967, eru umferðarmerki við þjóðvegi landsins nú staðsett hægra megin við veg, miðað við akstursstefnu. Undantekning frá þessu eru <þó umferðar- argus-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.