Dagur - 17.12.1967, Síða 7
7
„Sólrún og sonur vitavarð-
arins“ eftir séra Jón Kr. ísfeld
heitir nýútkomin unglingabók
hjá Bókaútgáfu Æskulýðssam-
bands kirkjunnar í Hólastifti.
Séra Jón Kr. ísfeld hefir
skrifað margar unglingabsekur
á undanförnum árum og hefir
hann þegar náð miklum vin-
sældum meðal yngri kynslóðar
innai' bæði fyrir ritstörf sín og
sem upplesari, en margar sögur
sínar hefir séra Jón lesið í
barnatímum Útvarpsins. Þá
veitii' séra Jón Bréfaskóla
ÆSK forstöðu og hefir eflaust
í því starfi kynnzt hugsunar-
hætti og tungutaki unga fólks-
ins í dag.
Þessi bók er framhald af
„Sonui' vitavai'ðarins", er var
fyrsta bókin, sem Bókaútgáfa
ÆSK í Hólastifti gaf út, en þó
má taka hana sem sjálfstætt
verk. „Sólrún og sonur vita-
varðarins“ er fjörlega skrifuð
og atburðarásin ör svo að at-
hygli lesendans er stöðugt vak-
andi — lesanainn er „spennt-
ur“ þar til síðasta blaðsíðan er
lesin. Bókin flytur lesendum
sínum boðskap sanrihjálpar og
mannkærleika með stofnun og
starfsemi hins athyglisverða fé
lagsskapar unglinganna, en þar
eiga þau Sólrún og Sveinn mest
an hlut að og ævintýrin skortir
ekki hvorki á sjó eða landi.
Bókaútgáfan ÆSK í Hóla-
stifti hefir nú gefið út 4 bækur,
þ. e. unglingabækurnar „Sonur
vitavai'ðai'ins“ eftir séra Jón
Kr. ísfeld, „Bítlar eða Bláklukk
ur“ eftir Jennu og Hreiðar og
svo fyrrnefnda bók og auk þess
nótna- og söngvabókina „Unga
kirkjan“, sem einkum er ætluð
til styrktar æskulýðsstarfsemi
kirkjunnar. Tvær síðast nefndu
unglingabækurnar munu nú
fást í öllum bókaverzlunum.
Hér er um að ræða eina grein
í æskulýðsstarfi kirkjunnar,
sem vissulega er tímabær þar
sem hið ritaða oi'ð hefir mikil
áhrif og þeir, sem kaupa bækur
þessarar útgáfu mega treysta
því, að þeir fá góðar bækur.
Saga íslenzkra bókmennta á
liðnum öldum ber vott um það,
að Hólar í Hjaltadal eiga þai'
mikinn þátt og er því vel, að
nafn þessarar kirkjulega bóka-
útgáfu á Noi'ðurlandi sé tengt
nafni Hólastaðar.
(Aðsent)
LIFÐU LÍFINU
LIFANDI
Bókaútgáfan Lindir
„Lifðu lífinu lifandi“ heitir
ný bók, sem Bókaútgáfan Lind-
irhefir sent á markað. Bókin er
eftir 'hinn heimskunna kenni-
mann Norman Vincent Peale.
En margir kannast við bók
hans, er kom út í fyrra.
í inngangsorðum höfundar
kemst hann þannig að orði um
það hver munur sé á þessum
tveimur bókum: „Tilgangur
þessarar bókar er sá að hjálpa
þér til þess að fá notið meiri
gleði og fyllra lífs. Ég stend í
þeirri trú, að þú með því að
lesa —• og það sem meira er —
með því að beita ráðleggingum
bókarinnar, munir öðlast dýpri
vellíðunarkenndar, aukna lífs-
orku og skerptan áhuga fyrir
tilverunni.
Þessi bók mín gengur á viss-
an hátt lengra en sú fyrri, Vörð
uð leið til lífshamingju“, í því
að leggja áherzlu á, hvernig
manni er unnt að öðlast vellíð-
an, lífsfjör, áhuga og árangur í
lífinu. Fyrri bókin gaf leiðbein-
ingar um, hvernig maður á að
hugsa jákvætt varðandi vanda-
mál sín. Þessi leitast við að
sýna þér. fram á, hvernig þér
ber að umbreyta þessum já-
kvæðu hugsunum í fram-
kvæmd, og hvernig þér með því
að trúa á mátt þeirra má takast
að öðlast það, sem þú væntir í
lífinu.“
Bókin er 344 blaðsíður í
Demybroti. Prentuð í prent-
smiðjunni Eddu.
Végna þess að gin- og klaufaveikifaraldur gengur nú
á Bretlandseyjum, vill landbúnaðarráðuneytið vekja
athygli yfirvalda og almennings á því, að stranglega
ber að fylgja reglum laga nr. 11 /1928, um varnir gegn
gin- og klaufaveiki.
Tekið skal fram, að samkvæmt téðum lögum og aug-
lýsingu þessari er:
Bannaður með öllu innflutningur á heyi, hálmi, ali-
dýraáburði, sláturafurðum hvers konar, húðum, mjólk
og mjólkurafurðum sem og eggjurn.
Stórgripahúðir, sem nota þarf við togveiðar hér við
land, má þó flytja inn, enda séu þær sótthreinsaðar
erlendis og einnig þegar þær koma hingað til lands.
Frá Bretlandseyjum er ennfremur bannaður innflutn-
ingur á lifandi jurtum, trjám, trjágreinum og köngl-
um, grænmeti og hvers konar garðávöxtum.
Farþegar og áhafnir farartækja skulu gefa yfirlýsingu
samkvæmt 4. gr. laganna um dvöl sína á Bretlands-
eyjurn, strax og þau koma til íslands.
Brot á lögum nr. 11 /1928 og auglýsingum, sem settar
eru samkvæmt Jreim, varða sektum.
Landbúnaðarráðuneytið 12. des. 1967
iar Seibergsbækur
BLAÐINU hafa borizt þrjár
Setbergsbækur.
Minningar Stefáns Jóhanns
Stefánssonar, síðara bindi. f
þessu síðara bindi æviminninga
sinna eru 11 kaflar, og nefnast
þeir: Á tímamótum, Stjórnar-
myndun 1947, Utanríkismál,
Andstaðan innan og utan, Brot
ið blað, Hræðslubandalag og
vinstri stjórn, Sjálfvalin útivist
um árabil, Svipmyndii' nokk-
urra samtíðarmanna, Erlendir
skoðanabræður, Heimilið er til
heilla bezt og Litið um öxl og
áleiðis. Bókin er 226 blaðsíður,
kápuskreytingu gerði Kristín
Þoi'kelsdóttii'. Allmargai' mynd
ir prýða bókina. Bókarhöfund-
urinn var um aldarfjórðungs
skeið einn af leiðtogum Alþýðu
flokksins, áhrifa- og valdamað
ur í íslenzkum stjórnmálum um
fjölda ára og starfaði síðan í
utanríkisþjónustunni. Ritfær
maður úr röðum meiriháttar
stjórnmálamanna, eins og Stef-
án Jóhann, hefur frá mörgu að
segja, sem bæði er gaman að
lesa og fróðlegt mjög. Ljósi er
varpað á ýmsa sögulega þætti
stjórnmálanna, sagt frá mönn-
um og málefnum. Hvort bókin
sé óyggjandi heimíldarrit veit
ég ekki ,erl eflaust er heiðar-
lega að henni unnið, því höf-
undurinn var og er bæði
„hreinni og beinni" en ýmsir
flokksbræðui' hans fyrr og síð-
ar.
Heim til íslands heitir önnur
Setbergsbókin, höfundur Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson. Bók
þessi ei' endurminningar hjón-
anna Elísabetar Helgadóttur og
Thor J. Brand, 180 blaðsíðu bók
með mörgum myndum og 18.
bók höfundar og sú síðasta; er
hann skrifaði. Formála ritar
Ingólfur Kristjánsson og kynn-
ir þau mætu hjón, sem bókin
greinir frá. En Thor var um
skeið þjóðgarðsvörður á Þing-
völlum. Hann er Austfirðing-
ui' en kona hans fædd og upp-
alin í Kanada. Fyrri hluti bók-
arinnar nefnist Sonur tveggja
þjóða, en sá síðari Frá Sandy
Bay til Þingvalla. Það leiðist
engum með þessa bók í hönd-
um.
Daggardropar heitir þriðja
bókin. Höfundur er Bjarni J.
Blöndal, sem áður hefur getið
sér orð með nokkrum vinsæl-
um bókum. í þessari bók eru
9 þættir um ólík efni, og leynir
sér hvergi hinn næmi náttúru-
unnandi og dýravinur, sem
jafnframt er íþróttamaður við
lax- og silungsveiðar. Þættir
bókarinnar heita: Mamma,
Drúði, Glámur, Slatti í poka,
Horft undir hönd, Oddvitabæli,
Jörundur, Smælingjar og
Straumandarsaga. Bók þessi er
190 blaðsíður, skemmtileg af-
lestrar. Q
Auglýsing varðandi
gin- og klaulaveski
Vegna þess að gin- og klaufaveiki hefur náð mikilli
útbréiðslu á Stóra Bretlandi er samkvæmt heimild í
lögum nr. 11 /1928 um varnir gegn gin- og klaufaveiki
bannaður innflutningur á fóðurvörum þaðan.
Ennfremur er fyrst um sinn lagt bann við því að nota
matarleifar og sláturafurðir hvers konar, til gripafóð-
urs, sbr. lögnr. 124/1947.
Brot gegn banni þessu varðar sektum. I
Landbúnaðarráðimeytið 12. des. 1967
DRATTARVÉLA-
TRYGGINGAR
Slys af völdum dráttarvéla fara ört vaxandi, enda fjölgar þessum vélum stöðugt
í landinu. Trygging dráttarvéla er því siálfsögð öryggisráðstöfun. óhöpp gera
ekki boð á undan sér, en öilum dráttarvéiaeigendum standa til boða eftirfarandi
tryggingar með mjög hagstæðum kjör’jm:
1
L ÁBYRGÐARTRYGGINGAR, ER
TRYGGJA GEGN ÖLLU TJÓNI, ER DRÁTTAR-
VÉLARNAR KUNNA AÐ VALDA ÖÐRUM.
2TRYGG1NG FYRIR BRUNATJÓNI Á
b DRÁTTARVÉLUM.
3aKASKO-TRYGGING FYRIR SKEMMDIR
Á VÉLINNI SJÁLFRI.yi
^T.ÖKUMANNSTRYGGING Á STJÓRNANDA VÉLAR-
INNAR, HVORT SEM ÞAÐ ER EiGANDi EÐA EINHVER ANNAR.
GREIÐSLA TEKJUAFGANGS TRYGGIR IÐGJÖLD FYRIR SANNVIRÐI.
SAMVINNUTRYGGINGAR
.ir~ TT1
i M
ÁRMÚLI 3, SfMI 38500