Dagur - 28.02.1968, Qupperneq 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN
LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 28. febrúar 198S — 9. tölublað
FILMU HÚSIÖ
liafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • r.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
ERAMKÖLLUN - KOPIERIN'G
Oxnadalsheiði opnuð í fyrrinólt
VEGURINN yfir Öxnadalsheiði
er nú opinn. Þrjú tæki Vega-
gerðarinnar voru þar að verki
en ekki ein, því náttúran hjálp-
aði svo um munaði. Eru nú
hvarvetna miklir vatnavextir,
að sögn vegagerðarmanna. Flæð
ir víða yfir vegi því ræsi eru
enn teppt af klaka. Vega-
skemmdir höfðu ekki orðið
verulegar, er um var spurt í
gær, en þó byrjaðar á Svalbarðs
strönd. Víða eru vegir mjög
svellaðir. Fært er orðið til Húsa
víkur.
Samkvæmt fréttum í gær,
voru vatnavextir miklir um
land allt, víða rok og rigning og
tók snjó ört. 'O
TVÖ INNBROT SÖMU NOTTINA
Eldfjallarannsóknaslöð á íslandi?
Rannsóknaraðstaða óvenju góð hér á landi
Bjami Einarsson bæjarstjóri setur ferðamálaráðstefnuna.
Á NÝAFSTÖÐNU þingi Norð-
urlandaráðs í Osló var sam-
þykikt að beina þeim tilmælum
til ríkisstjórna Norðurlandanna
allra, að þær athugi möguleika
á því að koma upp norrænni eld
fjallarannsóknarstöð á íslandi.
En rannsóknaraðstaða er
óvenjulega góð hér á landi í
Daguk
kemur næst út á laugardaginn
2. marz.
þessari grein. Á þessu sviði geta
íslendingar orðið nokkrir veit-
endur, a. m. k. hvað snertir að-
stöðuna.
Margir erlendir háskólar
senda nemendahópa til íslands
til að vinna sjálfstætt að ýmis-
konar náttúrufræðirannsókn-
um. Ungt land eins og ísland,
sem enn er í sköpun, er sem
opin kennslubók í jarðfræði og
skyldum greinum.
Ályktun Norðurlandaráðs er
eflaust það spor í átt að marki,
sem allir íslendingar geta fagn-
að. □
AÐFARARNÓTT sl. föstudags
voru tvö innbrot framin á Akur
eyri, í húsakynni Eimskip og
heildverlun Tómasar Stein-
grímssonar. Á síðari staðnum
var einhverju stolið, einkum
(Ljósm.: E. D.) súkkulaði og þ. h. en hjá Eim-
skip er einskis saknað.
Víða flæddi vatn inn í hús,
bæði á Oddeyri, t. d. Eiðsvalla-
götu, og í Glerárhverfi í gær.
Mikill vatnsflaumur var um
allan bæinn enda rigning öðru
hverju og asahláka. □
Nokkrir gestir ferðamálaráðstefnunnar við Skíðahótelið.
(Ljósm.: E. D.)
Ferðamálaráðstefna á Akureyri
w
BJARNI EINARSSON bæjar-
stjóri á Akureyri efndi til ferða
málaráðstefnu á föstudgainn,
24. febrúar. Þangað voru boðnir
60 manns, flest heimamenn, sem
áhuga hafa á ferðamálum eða
sérstakra hagsmuna eiga að
gæta í sambandi við þau.
Árdegis var haldið í Hlíðar-
fjall og mannvirki skoðuð þar,
einkum nýja skíða-stólalyftan,
sem stöðugt var í gangi og marg
ir brugðu sér í upp að
Strompi og Strýtu, sem eru
fjallakofar hátt uppi í Hlíðar-
fjalli, en þágu síðan veitingar í
Skíðahótelinu.
Margt manna var í Skíða-
hótelinu í Hlíðarfjalli þennan
dag, eða 60—80 nemendur
úr Gagnfræðaskólanum. En um
tveggja mánaða skeið eru nem-
endur Akureyrarskólanna
þarna til skiptis, undir eftirliti
kennara sinna.
Skíðahótelið í Hlíðarfjalli &r
nú eini staður landsins, sem boð
legur þykir erlendu vetrar-
íþróttafólki til dvalar og þar er
eina skíða-stólalyfta landsins.
Eftir hádegi hófust svo fund-
arhöld á Hótel KEA, með fjór-
um framsöguerindum, sem þeir
fluttu: Bjami Einarsson bæjar-
stjóri og talaði um skipulags-
mál bæjarins með hliðsjón af
auknum ferðamannafjölda, Her
mann Sigtryggsson æskulýðs-
fulltrúi ræddi um Akureyri sem
miðstöð vetraríþrótta, Ingólfur
Ármannsson kennari ræddi um
ferðamanninn og Akureyri og
Gunnar Árnason kaupmaðiH'
(Framhald á blaðsíðu 2).
Um það fjallaði erindi Kristjáns Karlssonar
erindreka á síðasta bændaklúbbsfundi
SÍLDVEIÐAR ]l
SUNNANLANDS ]]
TAKMARKAÐAR
NÚ HEFUR sjávarútvegs-
málaráðuneytið tilkynnt, að !j
bannaðar séu síldveiðar
sunnanlands og vestan frá!;
1. marz til 15. ágúst. Undan-
þágur verða einhverjar, en
við það miðaðar, að heildar-
veiði fari ekki fram úr 50 .
þúsund lestum. — Hafrann- !!
sóknarstofnunin og Fiskiie- !|
lag íslands gerðu ályktun
um þetta mál, sem ráðu- J;
neytið hefur tekið til greina.
En veikir og niinnkandi síld-
arstofnar íslenzku síldarinn- !|
ar er það grundvallaratriði,
sem veiðibannið byggist á. !|
BÆNDUR fjölmenntu á klúbb-
fund sinn á Hótel KEA á mánu
dagskvöldið. Aðal ræðumaður
var Kristján Karlsson erindreki
Stéttarsambands bænda og fjall
aði ræða hans um skipulag á
framleiðslu landbúnaðarins. —
Fundarstjóri var Jón Hjálmars
son bóndi í Villingadal, en um
80 manns sátu fundinn.
Kristján ræddi um framleiðslu
mál landbúnaðarins. Þau mál
eru að komast víða á dagskrá,
vegna samþykkta sem gerðar
voru á aukafundi í Stéttarsam-
bandinu er haldinn var í
Reykjavík dagana 7. og 8. þ. m.
Stjórn Stéttarsambandsins
hefur sent ályktanir aukafund-
arins ásamt bréfi til allra for-
manna búnaðarfélaga í landinu.
í bréfinu eru tilmæli um að efni
ályktananna verði kynnt á fund
um búnaðarfélaganna í vetur.
Þá hefur stjóm Stéttarsam-
bandsins skrifað stjórnum bún-
aðarsambandanna og sent þeim
til umsagnar þá ályktun auka-
fundarins sem fjallar um að ifá
framleiðsluráðslögunum breytt
þannig að í þeim verði heimild-
arákvæði fyrir Framleiðsluráð
til að skammta innflutt kolvetna
fóður miðað við bústofn og
skattleggja umframsöluna til
verðj öfnunarsj óðs.
Það var um þessa ályktun
sem Kristján Karlsson ræddi
fyrst og fremst. Hann gaf yfir-
lit um þróun framleiðslumál-
anna síðustu árin bæði hvað
varðaði framleiðslu sauðfjár-
afurða og nautgripaafurða.
Hann benti á að innvegin mjólk
verðlagsárið 1966 til 1967 hefði
minnkað um 6.8 milljónir kg.
eða 6.4% miðað við verðlags-
árið þar á undan, en að mjólkur
framleiðslan í vetur hefði verið
það mikil að allar líkur væru
fyrir því að samdrátturinn sem
varð á síðasta verðlagsári inn-
ist fyllilega upp.
Þá gat hann þess að sauðfjár-
kjötsframleiðslan hefði vaxið
um 4.5% á síðasta verðlagsári,
og enn aftur síðasta haust um
6.4%. .
Um söluhorfurnar á búvörun
um kom fram, að það væri aukn
ing í neyzlumjólkursölunni sem
svaraði til fjölgunar á fólki i
landinu sem er 9% á 5 árum.
Það hafði að vísu dregið lítið
eitt úr sölunni þegar mjólkin
hækkaði fyrri partinn í vetur
en salan jafnaðist aftur. Smjör-
(Frannhald á blaðsíðu 2).
Kristján Karlsson erindreki.