Dagur - 28.02.1968, Page 2
Þór sigraSi Ármann í framlengdum leik
SL. LAUGARDAG lék 1. deild
ariið Þórs í körfuknattleik við
lið Ármanns, Rvík, og fóru leik
ar svo að Þór sigraði eftir fram
lengdan leik með 56:53 stigum.
Þetta var ekki góður leikur hjá
Þór og var Ármann yfir allan
timan þar ti'l á síðustu mínútu,
að Þórsurum tókst að jafna
leikinn.
Ármenningar byrjuðu vel og
eftir fáeinar. mínútur höfðu Ár-
menningar skorað 8 stig gegn
Frá Bridgefélagi Ak.
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag
lauk annarri umferð í einmenn
ingskeppni Bridgefélagsins. —
Keppnin er fjögur kvöld. Röð
efstu manna er þessi: stig'
1. Dísa Pétursdóttir 785
2. Baldur Árnason 770
3. Sigurbjöm Bjarnason 761
4. Hörður Steinbergsson 756
5. Jóhann Helgason 742
6. Adam Ingólfsson 732
7. Mikael Jónsson 732
8. Rósa Sigurðardóttir 724’
9. Soffía Guðmundsdóttir 709
10. Jóhannes Kristjánsson 708
11. Sveinn Sigurgeirsson 706
12. Jóhannes Sigvaldason 701
- Ferðamálaráðstefna
2 stigum Þórs. Þessi munur
hélzt svo til óbreyttur allan
fyrri hálfleik og í leikhléi var
staðan 22:17 fyrir Ármann. Pét-
ur skoraði flest stig fyrir Þór
í fyrri hálfleik, 7 stig, en Einar
Bollason skoraði 4.
Seinni hálfleikur var mjög
jafn eins og sá fyrri. Ármann
skoraði fyrstu 2 stigin, þá skor-
uðu Einar og Pétur fyrir Þór,
síðan Ármann 2 stig, þá skoraði
Einar 2 körfur fyrir Þór (4 stig)
og var nú staðan 26:25 fyrir Ár-
mann, 1 stigs munur. Liðin
skiptust nú á að skora, en Ár-
mann heldur frumkvæði í leikn
um og er 5 mínútur eru eftir af
leik er 7 stiga munur Ármanni
í vil. Samkvæmt leikreglum er
síðustu 5 mín. dæmd víti á öll
brot og hófst nú vítakeppni sem
stóð látlaust til leiksloka og
hafði Þór betur í þeirri viður-
‘eigri, enda var framkoma áhorf
enda þessar síðustu mínútur
ósmekkleg í fyllsta máta, og hef
ur trúlega ráðið úrslitum í leikn
um. Með látlausu púi og óhljóð
um kömu áhorfendur leik-
mönnum Ármanns úr jafnvægi
meðan þeir tóku sín vítaköst, en
algjör þögn var í salnum er leik
merín Þórs tóku sin. Þarna
sýndu áhorfendur ekki dreng-
skap og vonandi endurtekur
slíkt sig ekki, það er sjálfsagt að
hvetja sitt lið en það eru tak-
mörk fyrir því hve langt menn
geta gengið, og í þessu tilfelli
var farið út fyrir takmörk vel-
sæmisins. Á þessum síðustu
mínútum skoraði Einar Bolla-
son 8 stig úr vítum og jafnaði
leikinn fyrir Þór. Á markatöfl-
unni stóð að vísu 48:47 Ármanni
í vil þegar leiktíma lauk og
stóðu áhorfendur í þeirri mein-
ingu að Ármann hefði sigrað og
yfirgáfu húsið þar eð ekki var
sýnna en að leik væri lokið, en
við endurskoðun á stigum hjá
ritara, (en ritari var nú reynd-
ar búinn að láta breyta á marka
töflu undir lok leiksins og færa
1 stig hjá Ármanni), kom í ljós
að stig voru jöfn. Þar sem þær
reglur gilda í körfuknattleik, að
lið mega ekki skilja jöfn og
skipta með sér stigum, eins og
í öðrum knattleikjum, var fram
lengt í 5 mínútur samkv. leik-
reglum.
Leikar fóru svo í framleng-
ingu, að Þór skoraði 9 stig en
Ármann 6. — Þór hefur nú leik
ið 6 leiki í 1. deild og hlotið 6
stig. Þeir eiga eftir að leika tví-
vegis við ÍR og við ÍKF og Ár-
mann syðra.
Um næstu helgi leikur Þór
við ÍR í íþróttaskemmunni, og
má geta þess, að með ÍR leikur
nú aftur Þorsteinn Hallgríms-
son, sem talinn er einn bezti
körfuknattleiksmaður landsins.
(Framhald af blaðsíðu 1).
sagði frá störfum Ferðamála-
félags Akureyrar. Öll voru
erindin fróðleg, hvert á sinn
hátt. En að þeim loknum hófust
hinar fjörugustu umræður.
Fram kom mikill áhugi á, að
endurreisa Ferðamálafélagið,
sem var hætt að starfa, endur-
skoða alla möguleika á því, að
stórauka ferðamannastrauminn
til bæjarins, koma upp ferða-
miðstöð og fá nýjar hugmyndir.
í sambandi við ferðamálin
kom það fram, að mjög æski-
legt væri fyrir hvern þann bæ,
sem vill beina til sín ferðafólki,
að leggja álierzlu á einhvern
einn þátt sérstaklega. Sumir
bæir halda sínar árlegu leik-
sýningar, tónlistarhátíðir og tón
listarkeppni, skíðamót, lista-
verkasýningar o. s. frv. Væntan
lega verða ferðamálin nú tekin
rækilega til athugunar, ef bæj-
arfélagið sjálft og margir ein-
staklingar vilja í alvöru vinna
að því að gera Akureyri að
ferðamannabæ.
Valur Arnþórsson var fundar
stjóri ráðstefnunnar en ritari
fundar Gunnlaugur P. Kristins
son. □
ÁGÆTUR FUNDIÍR
HJÁ F.U.F.
KV ÖLDVERÐARFUNDUR
ungra Framsóknarmanna sl.
föstudagskvöld var hinn
ánægjulegasti. Bjarni Einars-
son bæjarstjóri var frummæl-
andi og var framsöguerindi
hans hið fróðlegasta. Fundur-
inn var fjölmennur og er bæjar
stjóri hafði lokið máli sínu hóf-
ust fjörugar umræður og var
fjölmörgum fyrirspurnum beint
til bæjarstjóra, sem hann svar-
aði jafnóðum. — Nánar verður
sagt frá umræðum síðar. □
- VÍÐ ÞURFUM AÐ SPi
(Framhald af blaðsíðu 5).
undirlendis, ef ekki væri rek-
inn landbúnaður þar? f mesta
lagi annars flokks fiskiþorp og
annað ekki. Hvað um vestan-
vert Norðurland, þrjár stórar
sýslur? Allt samfellt eyðisvæði
án landbúnaðar. Auðvitað er
bændastéttin orðin fámenn mið
að við það, sem áður var, en það
rýrir ekki gildi hennar, síður
en svo. Mig langar til að orða
þetta svo á líkingamáli, að þar,
sem bændastéttin var áður fyrr
allur þjóðarlíkaminn og jafnvel
ura aldamót bæði höfuð og bol-
ur, þá sé hún nú orðið lítið
meira en bláasta hryggsúlan.
En hryggsúlan er líka býsna
þýðingarmikill hluti líkamans.
Hvernig viltu haga þeirri
gagnsókn?
Það hef ég nú ekki mikið
•hugsað, en mér dettur í hug, að
sú mikla landbúnaðarsýning,
sem halda á i Reykjavík næsta
sumar, gæti verið góð byrjun.
Þar gefst vonandi tækifæri til
að sýna fólkinu við Faxaflóa og
víðar, að íslenzkur landbúnað-
ur í dag er ekkert fornaldar-
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
landi, og um skagfirzk hross,
sett á guð og gaddinn að ein-
hverju leyti. Má hafa það orða-
lag um ásetning fyrr og síðar,
sem miður er við útigöngu að
mestu. I flestum árum dugar
en í harðæri ekki. Lögboðið er
að til séu- hús yfir hross. Meiru
varðar, að til sé nægilegt fóð-
ur og einhver skjólstaður til að
gefa úti. Stóðhross og hreindýr
eiga það sameiginlegt að þola
illa húsvistina.
ÖA VÖRN f SÓKN
fyrirbæri, heldur atvinnuvegur
á hraðfara leið tækniþróunar og
leggur þjóðfélaginu til gnægð
ómissandi og ómetanlegra mat-
væla fyrsta flokks að gæðum.
Þá væri það ekki síður mikils
vert, ef sýningin gæti styrkt
bændur og sveitafólk betur í
trúnni á sjálft sig og mikilvægi
sitt í þjóðfélaginu. Ég myndi
segja, að búnaðarfélögin í hrepp
unum ættu að skipuleggja ferð-
ir suður fyrir meðlimi sína og
greiða jafnvel hluta af ferða-
kostnaðinum, ef þau geta, svo
að sem allra flest bændafólk
geti heimsótt höfuðstaðinn,
meðan á sýningunni stendur.
Svo þurfum við að hefja sterk
an áróður fyrir bættri menntun
stéttarinnar og ef til vill endur-
skipuleggja samtök okkar frá
rótum, en út í þá sálma getum
við ekki farið að þessu sinni.
Dagur þakkar viðtalið. E. D.
Úrval af PILSUM
víðum og beinum
SOKKABUXUR,
þykkar og þunnar
teg. Tauscher og Hudson
FERMINGARKÁPUR
koma næstu daga.
Einnig
HÚFURNAR
margeftirspurðu
MARKAÐURINN
SIMI 1-12-61
Skipulag landbúnaðarframleiðslu
(Framhald af blaðsíðu 1).
salan væri eftir vonum. Um
kjötsöluna væri það að segja
að tæplega væri eins mikið fjör
í henni og verið hefði undan-
farin ár. Þá minntist Kristján á
útflutning landbúnaðarafurða.
Hann gat þess að Norðmenn
hefðu lokað fyrir innflutning á
saltkjöti frá íslandi. Þetta væri
bagalegt, því þetta hefði verið
gamall markaður og verðið á
kjötinu betra en annarsstaðar
erlendis. Það væru norsku
bændasamtökin sem stæðu fyr-
ir þessu, vegna þess að þau
væru í erfiðleikum með að
losna við sína eigin kjötfram-
leiðslu.
Vegna framleiðsluaukningar-
innar á sauðfjárafurðum 1966
og 1967 og aukningar í mjólkur
framleiðslunni á þessu ári,
þýddi ekki að loka augunum
fyrir því að veruleg hætta væri
á að útflutningsuppbæturnar
verði ekki nægar á þessu ári.
í sambandi við þetta minnt-
ist Kristján á að árferði hefði
ekki verið gott til búvörufram-
leiðslu þó stæðu málin svona.
Hvað þó ef árgæzka hefði ríkt
undanfarin ár?
Bréf stjórnar Stéttarsam-
bands bænda til stjórnar bún-
aðarsambandanna var lesið upp
á fundinum og einnig ályktunin
um heimild til skömmtunar á
;Awmw&
RAÐSKONU VANTAR
í 3—4 mánu.ði í nágrenni
Akureyrar. — Engin úti-
vinna. Gott húsnæði.
Má lvafa barn.
Uppl. á Vinnumiðlunar-
skrifstofu Akureyrar
Sírni 1-11-69 og 1-12-14.
FOKHELD ÍBÚÐ
í raðhúsi til sölu.
Uppl. í síma 1-17-89
eftir kl. 7 e. h.
ÍBÚÐ TIL SÖLU
Óska eftir tilboði í norð-
urenda húseignarinnar
LUNDARGÖTU 11.
Upplýsingar á staðnum
eftir kl. 8.30 e. h.
öll kvöld.
Ung, barnlaus hjón
ÓSKA EFTIR ÍBÚÐ
til leigu sem fyrst.
Viðgerð á íbúð kernur
ti! greina.
Uppl. í síma 2-14-31.
Ung hjón með eitt barn
ÓSKA EFTIR ÍBÚÐ
til leigu.
Uppl. í síma 1-12-51.
innfluttu kolvetnafóðri og skatt
lagningu á umframsölunni. Bréf
það og ályktun, sem hér er frá
sagt, verður að bíða birtingar
nú, vegna þrengsla, en kemur
væntanlega fyrir augu lesenda
á laugardaginn.
Að erindi Kristjáns Karls-
sonar loknu hófust umræður.
Til máls tóku: Ármann Dal-
mannsson, Sigurjón Steinsson,
Jón Rögnvaldsson, Jónas Hall-
dórsson, Aðalsteinn Guðmunds
son, Jónmundur Zóphoníasson,
Guðmundur Þórisson, Guð-
mundur Benediktsson, Halldór
Jóhannesson, Ingimar Brynjólfs
son, Jón Hjálmarsson og Jón
Bjarnason. — Fundur stóð fram
yfir miðnætti. Q
VISTHEIMILINU SÓLBORG
hafa barizt þessar gjafir. A.A.
kr. 100,00 (áheit). Benedikt
Kristinsson 100,00. G + S
5.000,00. Hallfríður Sigurðar-
dóttir kr. 1.000,00. — Kærar
þakkir. — J. O. Sæmundsson.
Þeir sem hefðu luig á að
kaupa 1 og 2 ára
SLÁTURHÆNUR
tilbúnar á pönnuna,
Geri pantanir í síma
1-11-82, Akureyri.
TIL SÖLU:
TRILLA, 2*4 tonna,
með 10 hestafla dieselvél.
Uppl. í síma 1-25-68.
BARNAVAGN
til sölu. Ódýr.
Uppl. í síma 1-22-90.
KHÖHLER
ZIG-ZAG SAUMAVÉL
með mótor til sölu.
Sími 1-22-90.
S K I Ð I
með gormabindingum
ásamt skóm nr. 42
til sölu.
Sími 1-22-71.
Japanskt RAFM.ORGEL
(Yama) til sölu. Orgelið
er setm nýtt, en selst með
miklum afslætti.
TÓNABÚÐIN
FERMINGAR-
KJÓLAEFNI
KOMIN
Verzlunin Rún
Sími 2-12-60
TIL SÖLU:
Ný, fimm herbergja ÍBÚÐARHÆÐ í Glerárhverfi.
140 m-. Svefnherbergi í sérálmu. íbúðin er að mestu
leyti frágengin.
RAGNAR STEINBERGSSON, HRL.,
Hafnarstræti 101, 2. hæð.
Viðtalstími 9—12 o gl4—17. Símar 1-17-82 og 1-14-59.