Dagur - 28.02.1968, Page 8
SMÁTT OG STÓRT
Á FIMMTUDAGINN voru
fréttamenn sjónvarps og blaða
kallaðir upp í Menntaskólann á
Akureyri. Steindór Steindórs-
son settur skólameistari tjáði
fréttamönnum, að búið væri að
setja upp sænskt brunaaðvör-
unarkerfi í gamla menntaskóla
húsinu, sem gerði aðvart um
Nýtt brunavarnakerfi
eld hvar sem hann kynni upp
að koma í húsinu.
En það bar til nokkrum dög-
um áður, að varnarkerfið gerði
aðvart um brunahættu. Orsök-
in var sú, að gamall miðstöðvar
ketill var í ólagi og hitaði kyndi
klefann óeðlilega mikið. Frá
þessu var sagt í útvarpi. Eldur
Skákfélag Akureyrar
FYRIR skömmu var haldinn
aðalfundur Skákfélags Akur-
eyrar og voru eftirtaldir menn
kosnir í stjórn fyrir næsta ár:
Formaður Gunnlaugur Guð-
mundsson, ritari Guðmundur
Búason, gjaldkeri Halldór Jóns-
son, Skákritari Jóni Ingimars-
son, og áhaldavörður Þorgeir
Steingrímsson. □
var -enginn,- e'n varnakerfið
„skynjaði" hættuna og slökkvi-
liðið kom þegar á vettvang.
Síðan hefur ;mikið verið spurzt
fyrir um eldhættuna í gamla
skólahúsinu, sagði skólameist-
ari, og ekiki að ástæðulausu. En
eirímitt þéss yggna væri ástæða
til að fagna því, að í hverju ein-
asta herbérgi skólaris og jafn-
vel í sumum skápum og göng-
um, hefði verið settur upp
„skynjari“ eða hitamælitæki,
sem gerði aðvart ef hiti þess
staðar yrði óeðlilega mikill,
alls á 140 stöðum. Skólameistari
sagði, að í gamla skólahúsinu
byggju um 30 manns en þar
væru hálft fimmta hundrað
nemendur við nám á daginn.
Nú var fréttamönnum sýnt
hvernig þessi aðvörunartæiki
vinna. Hættumerki var gefið.
Nemendur hlupu út án troðn-
ings, enda eftir kennslutíma og
því tiltölulega fáir í húsinu.
Áður en fullar þrjár mínútur
voru liðnar voru tveir slökkvi-
liðsbílar komnir á staðinn, til-
búnir að hefja slökkvi- og björg
unarstörf. Aðal hvatamaður
þess, að brunavarnarkerfið var
sett umm, var Gunnar Stein-
dórsson starfsmaður bruna-
varnaeftirlits ríkisins og skýrði
hann notkun þeirra og taldi þau
mjög örugg. Uppsetningu ann-
aðist Raforka h.f., en forstöðu-
maður hennar er Sigtryggur
Þorbjömsson. Fjórir sérstakir
símar eru í húsinu, og eru þeir
í beinu sambandi við Slökkvi-
stöð bæjarins, notaðir ef eldur
verður laus.
Hin nýju tæki leysa vöfcu-
menn M.A. af hólmi cg eiga að
hafa öruggara eftirlit en þeir,
ef eldsvoða ber að 'höndum.
Eldvarnarkerfið mun uppsett
hafa kostað yfir 200 þús. krón-
ur. □
ENN KÆRKOMNAR
KVEÐJUR
Blaðinu hafa enn borist margar
kærkomnar kveðjur — bæði í
bundnu máli og óbundnu —
vegna 50 ára afmælis þess, m.
a. frá öllum andstæðingablöð-
unum í bænum og persónuleg-
ar kveðjur frá sumum ritstjór-
unum. Þessar kveðjur, og líka
margar aðrar árnaðaróskir, sem
komu á seinni skipunum,
voru þó jafn kærkomnar og
hinar. Og er þá ljúft og skylt
að minnast þess, sérstaklega í
sambandi við andstæðingana,
að þótt greini á um margt, er
fleira sameiginlegt og engum
til gagns að gleyma því, að all-
ir erum við á sama báti. Fyrir
allar þessar kveðjur þakka ég
af alhug. — Ritstj.
NORÐURLANDSAÆTLUN
Á ALÞINGI
Nýlega er lokið umræðu á Al-
þingi um fyrirspurn þá, er Gísli
Guðmundsson og Ólafur Jó-
hannesson báru fram varðandi
Norðurlandsáætlunina, hvenær
hennar mætti vænta.
Ríkisstjórnin hét þessari áætl
un vorið 1965, en dráttur hefur
á orðið. Magnús Jónsson fjár-
málaráðherra sagði í blaðavið-
tali 4. júní í sumar, að áætlunin
kæmi á árinu. Eklii varð af því.
Nú sagði hann í þinginu, að
hann „vonaði“‘ að hún kæmi á
árinu 1968, en bætti síðar við
að svo myndi verða.
SÍLDARMJÖLI BJARGAÐ
Danska flutningaskipið, sem
strandaði út af Sléttu á dög-
unum, er talið ónýtt og verður
því ekki bjargað. Það var með
átta hundruð tonna síldarmjöls-
farm innanborðs. Út var boðinn
hluti farmsins og buðu Hús-
víkingar hæst, 100 þús. kr. og
var því tilboði tekið. — Fyrir
lielgina höfðu þeir bjargað 50
tonnum og verður meiru bjarg-
að ef veður leyfir.
HNEFALEIKAR BANNAÐIR?
Hnefaleikar eru með lögum
bannaðir á íslandi. Var um
deilt á sinni tíð, hvort banna
skildi. Á fundi Norðurlanda-
ráðs, fyrir nokkrum dögum,
kom mál þetta á dagskrá. Var
þá vitnað til fslands, sem fyr-
irmyndar. — Saimað þykir að
lmefaleikar hafi orsakað
mun fleiri og alvarlegri heila-
skenundir en áður var talið. —
Virðist bann við hnefaleikum
eiga vaxandi fylgi að fagna á
hinum Norðurlöndunum.
HREINDÝR OG HROSS
Nokkrar umræður hafa undan-
farið verið um hreindýr, sem
talið var (áður en hlánaði) að
myndu falla í byggð á Austur-
(Framhald á blaðsíðu 2).
Nckkur hreindýr hafa faliið cg hjukrun misfekizt
Egilsstöðum 26. febrúar. Talið
er, að allur hreindýrastofninn
dvelji nú í byggðum austan-
lands. Þau komu óvenju
snemma til byggða, sennilega
vegna áfreða uppi á hálendinu.
En hér varð, svo sem allir vita,
síðar háglítið og haglaust öllum
skepnum vegna svellalaga, sem
Ævintýraferð til Hafnar
FYRIR RÚMLEGA ÁRI síðan
efndu barnablaðið Vorið og
Æskan ásamt Flugfélagi íslands
til verðlaunakeppni og voru 1.
verðlaun ákveðin ferð með
„Gullfaxa“ hinni nýju þotu
Flugfélags íslands til Kaup-
mannahafnar og nokkurra daga
dvöl þar. Hlutskörpust urðu
þau María Gísladóttir, Akur-
eyri, sem hlaut 1. verðl. í spurn
ingakeppni Æskunnar og Ingólf
ur Amarson, Reykjavík, sem
hlaut 1. verðl. í ritgerðarsam-
keppni Vorsins. Með í ferðinni
til Kaupmannahafnar voru
BATNANDI HORFUR
Á SIGLUFÍRÐI
EFRIR mánaðamótin hefst nið-
urlagning síldar í niðurlagning-
arverksmiðjunni á Siglufirði. —
Fá þar flestar konur atvinnu,
sem nú vantar hana sárast. —
Tunnuverksmiðjan er í gangi
og meiri fiskur hefur borizt
hraðfi'ystihúsinu í febrúar en
nokki'u sinni áður.
Má því segja, að horfur séu
batnandi hvað atvinnumálin
snertir, sagði Jóhann Þorvalds-
son blaðinu á mánudaginn. □
tveir menn frá ■ snjónvarpinú,
þeir Hinrik Bjarnason og Þránd
ur Thoroddsen, sem tóku kvik-
mynd af ævintýrum barnanna.
Hún var síðan sýnd sem fram-
haldsmynd í Stundinni okkar,
barnaþætti. sjónvarpsins, sem
Hinrik Bjaj'nason sér um. Flug-
félág ísland bauð Maríu Gísla-
dóttur til Reykjavíkur til þess
að sjá fyrsta þætti myndarinnar
sjónvarpað.
Meðfylgjandi mynd var tekin
í upptökusal sjónvarpsins þar
sem María er að skoða sjón-
varpsmyndavél. Á myndinni
ei-u frá vinstri: Sveinn Sæ-
mundsson, María Gísladóttir,
Hinrik Bjarnason og Grímur
Engilberts ritstjóri. □
lágu yfii’ öllu landi. Hreindýrin
hafa á sumum stöðum, t. d. í
Skriðdal, átt illa ævi og nokkur
dýr hafa fallið. Ei'u það einkum
gamlar kýr og ung dýr. Reynt
hefur verið að hjúkra aðfram
komnum dýrum, en það hefur
mistekizt. Hér á Egilsstöðum
hafa fjögur hreindýr haldið til
í margar vikur og hafa þau ekki
liðið skort. Þau ganga með hest
um hér niður við Fljótið. Hi'oss
in voru fyrst mjög hrædd við
hreindýrin, en samkomulagið er
nú ágætt. Og hreindýrin eru
hætt að óttast manninn.
Nú er góð hláka og vona
menn að fljótt komi upp jörð,
ekki aðeins fyrir hreindýrin,
heldur einnig fyrir sauðfé. Rætt
hefur verið um það manna í
milli, að reka hreindýrin til
fjalla, þar sem haglendi er- ef-
laust mun betra og svéllalög-
lítil. En hreindýrin eru bágræk.
Þó væri þess einhver von, að
unnt væri, með miklum mann-
söfnuði, að reka þau móti vindi
til afréttar.
Vegurinn um Fagradal er
jafnan fær, enda snjólítið. Odds
skarð var rutt í gær, en snjó-
bílar halda 'Úþpi fei'ðum yfir
Fjarðai'heiði. Allir aðalvegir á
Héi'aði eru færir.
Atvinnuleysi hefur ekki ver-
ið hér að neinu ráði, en við sjáv
ai'síðuna hefur það sagt veru-
lega til sín og þar eru viðbrigð-
in mun meiri. Samdi’áttur í
opinberum framkvæmdum er
Ijós og eru margir uggandi um
framtíðina. V. S.
Vinnur að málefnum
kirkju sinnar
Á S.L. ÁRI stóð ungt fólk á
Svalbarðsströnd fyi-ir skemmti-
samkomu til ágóða fyrir orgel-
sjóð Svalbarðskirkju.
Mæltist framtak þessa fólks
vel fyrir og var samkoman vel
sótt. Skemmtu samkomugestir
sér prýðilega.
Þá var í kirkjun.ni haldið
kirkjukvöld s.l.: haust og kom
þar fram, auk sóknarpi'estsins,
ungt tónlistafólk, er lék kirkju-
leg tónvei'k og stjórnuðu kór og
almennum safnaðarsöng.
YFIR 40 FÉLÖG
BOÐA VERKFALL
Á MÁNUDAGINN höfðu 40
verkalýðafélög með 16 þús. fé-
lögum boðað vinnustöðvun frá
4.—6. mai'z n.k., hafi samningar
ekki tekizt fyrir þann tíma. —
í gær bættust fleiri félög við.