Dagur - 27.03.1968, Side 2
2
Ákureyringar sigruðu ÍR-inga og komu á óvart
SL. LAUGARDAG léku ÍBA
og ÍR í Iþróttaskemmunni, og
var leikurinn tvísýnn frá byrj-
un til leiksloka og úrslit ekki
ráðin fyrr en á síðustu mínút-
um leiksins, og er þetta tvímæla
laust skemmtilegasti leikur,
sem fram hefur farið í 2. deild
hér í vetur. Akureyringar fengu
góðan stuðning frá áhorfendum
í síðari hálfleik og á Einar
Helgason lirós skilið fyrir for-
göngu sína um að hvetja liðið á
réttu augnabliki og náði þá ÍBA
liðið yfirhöndinni og komst 4
mörk yfir, sem nægði til sigurs,
en 3 mörk skildu liðin að í leiks
lok 29:26. Úrslit þessa leiks
komu á óvart fyrir sunnan, því
að flestir töldu sigur ÍR vísan
og þar með sigur í 2. deild, en
margt fer öðru vísi en ætlað er
og enginn leikur er unninn eða
tapaður fyrir fram. Liðin í 2.
deild eru miklu jafnari í ár en
undanfarin ár og hafa Akureyr
ingar nú sigrað öll Reykjavíkur
liðin, ÍR, Ármann og Þrótt einu
sinni. Þrem leikjum hafa Akur-
eyringar tapað með litlum mun,
fyrir ÍBK með 1 marki, fyrir
Þrótti með' 1 marki og fyrir ÍR
með 2 mörkum.
LEIKURINN.
ÍR skoraði fyrsta markið, en
Halldór jafnaði fyrir ÍBA. Liðin
skiptust síðan á að skora og á
8. mín. var staðan 3:3, á 10. mín.
6:6, á 12. mín. 7:7, á 13. mín.
komast Akureyringar marki
yfir 8:7 (Halldór), þá skorar
Þorleifur 9. markið og Aðal-
steinn 10., og á 17. mín. er stað-
an 10:7 fyrir ÍBA, þá skorar ÍR
8. mark sitt, Þorleifur skorar
11. mark ÍBA, en nú taka ÍR-
ingar góðan sprett og skora 4
mörk í röð og á 23. mín. er stað
an 12:11 ÍR í vil, en Halldór
jafnar 12:12, en þá skorar ÍR
tvö mörk og á 27. mín. er staðan
14:12, en þá skora Samúel, Við-
ar og Stefán fyrir ÍBA, en ÍR-
ingar skora 2 síðustu mörkin í
fj'rri hálfleik og var staðan 16:
15 fyrir ÍR í leikhléi.
ÍR-ingar skoruðu 1. markið í
síðari hálfleik, en Halldór skoi'-
ar 2 næstu mörkin og er staðan
þá enn jöfn 17:17, Þorleifur
skorar 18. markið en ÍR jafnar,
þá skorar Aðalsteinn 19. mark-
ið og enn jafna ÍR-ingar. Aðal-
steinn skorar nú 3 mörk fyrir
iBA og um miðjan síðari hálf-
leik er staðan 22:19, og eftir það
hafa Akureyringar frumkvæðið
í leiknum til loka, en tvisvar
munaði aðeins 1 marki 23:22 og
25:24, en Akureyringar voru
sterkari síðustu 3 mínúturnar
og skoraði Aðalsteinn 2 mörk,
en Halldór og Stefán sitt mark-
ið hvort, en ÍR-ingar skoruðu
2 mörk, og þannig lauk þessum
skemmtilega leik með þriggja
márka sigri Akureyringar 29:26
mörkum. Síðustu mínútur leiks
ins var ÍBA-liðið hvatt vel af
áhorfendum, og er slíkt ómetan
legt.
f-----
ÁRMANN OG ÍBA
leika á laugardaginn
o C
RÁÐGERT hafði verið, að
íslandsmeistararnir í hand-
knattleik, Fram, kæmu í
heimsókn um helgina og
léku tvo lpiki við lið ÍBA,
en af því verður ekki að
sinni. — Framkvæmdaaðili
Handknattleiksmóts íslands,
sem ei' Handknattleiksráð
Reykjavíkur, hefur bannað
Fram að fara norður, þrátt
fyrir mótmæli Handknatt-
Ieiksráðs Akureyrar, og ekki
þýðir að' deila við dómar-
ann.
HKRR hefur skipað svo
jfyrir, að Ármenningar skuli
leika hér í íþróttaskemm-
unni um helgina, en leikur-
j inn féll niður í verkfallinu
j um daginn, vegna þess að
■ekki var flogið, og verður
HRA að hlíta þeim úrslit-
ium.
| Leikur JBA og Ármanns
jfer framJkL 4 ndc. laugardag
og vil ég hvetja íþrótta-
unnendurjtil að fjölmenna í
íþróttaskemmuna og hvetja
ÍBA-liðið vel.
Sv. O.
Á R S Þ I N G
íþróttabandalags Akuí-
eyrar hefst n.k. miðviku-
dag 27. þ. m. kl. 8.30 e. h.
í Sjálfstæðishúsinu
(Litla sal).
íþróttabandalag
Akureyrar.
Leikur Akureyringa var góð-
ur í þetta sinn, baráttuvilji frá
upphafi til leiksloka og yfirveg
aður leikur, og tókst Matthíasi
vel að stjórna liðinu, þótt ekki
væri hann heppinn með skot.
Sérstaka athygli vöktu yngri
menn ÍBA-liðsins, og lofa þeir
góðu. Halldór Rafnsson átti
sinn bezta leik í vetur og Aðal-
steinn og Þorleifur voru og
ágætir, þó fóru ÍR-ingar ómild-
um höndum um Þorleif á lín-
unni. í heild var þessi leikur
(Framhald á blaðsíðu 4).
TIL SÖLU:
Chevrolet vörubifreið,
árgerð 1955.
Til sýnis hjá
Bíla og vélasölunni
næstu daga.
LANDROVER
TIL SÖLU:
Diesel-Landrover,
árgerð 1966,
ekinn 48 þús. km.
Sími 1-28-75.
Bíla- og vélasalan
Land Rover, benzín, ’67,
ekin 5 þúsund krn.
Höfum kaupendur að
V. w. ’63 og ’66.
Staðgreiðsla.
Opið 3—6, sírni 1-19-09.
LÍTIL ÍBÚÐ
óskast nú þegar eða í vor.
Uppl. í síma 2-11-45
eftir kl. 8 á kvöldin.
Húseignin
LUNDARGATA 5
er til sölu.
Fimm herbergi og eldhús
óg bað. í kjallara er
geymsla rnikil. Stór lóð.
Þeir, sem hafa áhuga,
snúi sér til eiganda
hússins
Guðlaugs Stefánssonar,
sími 1-21-24.
Vil koma 10 ára dreng í
SVEIT í SUMAR.
Sími 2-11-95.
Tökum að okkur
HREIN GERNING AR
Pantið tímanlega.
Sími 1-29-34.
+
Innilegar þakkir og kveðjur sendum við öllum
þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við and-
lát og útför
HELGU DANÍELSDÓTTUR,
Grænugötu 6, Akureyri.
Jón G. Jónsson.
Daníel Jónsson, Ólafur Jónsson, Valgarður Jónsson,
Gunnar Jónsson,
Guðrún Daníelsdóttir, Magnea Daníelsdóttir
og aðrir vandamenn.
NOTUÐ BORÐSTOFUHÚSGÖGN TIL SÖLU
(Borð, 6 stólar og skápur). Tækifærisverð. Upplýsingar í síma 1-12-64.
Óska eftir
TVEGGJA HER-
BERGJA ÍBÚÐ til leigu
frá 1. júní.
Uppl. í síma 1-24-72
frá kl. 5-7.
HÚSEIGENDUR!
Tveggja til þriggja her-
bergja íbúð óskast til
leigu í vor. Tvennt í
heimili. Reglusemi
áskilin.
Uppl. í síma 1-16-93
frá kl. 10-12 f. h.
Yil kaupa nokkra
ÓGANGFÆRA BÍLA
til niðurrifs.
Tilboð er greini verð, ár-
gerð og tegund leggist inn
á afgr. Dags merkt
O 0
„Verzlun“.
TIL SÖLU:
SONY, T. C. 200,
4ra rása stereo,
SEGULBANDSTÆKI.
Uppl. í síma 1-20-58.
%
GAMANLEIKURINN
Sælt er það liús
Sýning í Laugarborg föstudagskvöld kl. 9.
Sætaferðir frá Sendibílastöðinni.
LEIKFÉLAGIÐ
Hentugar fermingargjafir!
SKÍÐI - STAFIR - BINDINGAR
MYNDAVÉLAR - MYNDAALBÚM
TRANSISTOR FERÐATÆKI - GASTÆKI
VIND-
SÆNGUR
SVEFNPOKAR
TJÖLD
BAKPOKAR
SJÓNAUKAR
SJÁLFBLEKUNGAR - KÚLUPENNAR
Gröfum nöfn á pennana sem við seljum
endurg j aldslaust.
JÁRN- OG GLERVÖRUDEILD
Munið eftir fallegu fermingarskeytunum okkar
á ferniingardaginn. 8 litprentaðar gerðir. Af-
greiðsla í VÉLA- og RAFTÆKJASÖLUNNI
h.f., Geislagötu 14, á fermingartlaginn frá kl.
10 árdegis til kl. 17 síðdegis (5 e. h.). Símar
okkar eru: 1-12-53, 1-29-39 og 1-28-67. Allur
ágóði af sölu skeytanna rennur til siwnarbúð-
anna að HÓLAVATNI.
K.F.U.M. og K.