Dagur - 18.04.1968, Blaðsíða 1
„Óvænt heimsókn" frumsýnd
/
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
æfir nú sitt þriðja verkefni á
þessu leikári. Hin fyrri voru
Gísl og Frú Alvís. Leikstjórar
voru Eyvindur Erlendsson og
Ragnhildur Steingrímsdóttir. —
Leikrit það, sem nú er æft og
verður frumsýnt fyrir mánaða-
mótin næstu er „Ovænt heim-
sókn“ og leikstjóri er Gísli Hall
dórsson. Þetta þriðja og síðasta
verkefni L. A. á þessu leikári
er eftir J. B. Priestley en Valur
Gíslason þýddi. Leikendur eru
sjö talsins og fara flestir með
veigamikil hlutverk. í því leika
Guðmundur Gunnarsson, Júlíus
Oddsson, Sigurveig Jónsdóttir,
Guðlaug Hermannsdóttir, Ólaf-
ur Axelsson og Sæmundur Guð
vinsson.
Óvænt heimsókn er alvarleg-
ur leikur en spennandi. Senni-
legt er, að snjall leikstjóri skili
hér góðu verki í leikhúsi Akur-
eyrar, ásamt þekktum leikur-
um bæjarins. □
Örniiin, liaftyrðill-
inn og þórslianinn
FUGLAVERNDARFÉLAG ís-
lands vinnur m. a. að því að
yernda arnarstofninn íslenzka.
arnarungar hafi. orðið fleygir í
sumar en stofninn er í lágmarki
og enn ekki séð hvort hann
fyrirmyndar
orðnir til næstu héraða. Þá var
vegurinn frá Akureyri upp í
Hlíðarfjall fær öllum bílum og
jók það mjög aðsókn bæjar-
manna.
Togbrautirnar voru stöðugt
notaðar og nýja stólalyftan
flutti um þrjú þúsund manns
annan dag mótsins og má af því
ráða fólksfjöldann í fjallinu. En
hvern dag mótsins voru þar
þúsundir manna — sumir álíta
4—5 þúsund manns.
Bæjarstjórn Akureyrar hef-
ur mjög greitt fyrir viðunandi
íþróttaaðstöðu í bænum, ein-
staklingar hafa sýnt í verki
lofsverðan íþróttaáhuga, svo
og ýmis félög. Þetta hefur —
hvað skíðaíþróttina snertir —
skapað Akureyri algera sér-
stöðu umfram aðra kaupstaði
landsins.
Landsmótið var sett miðviku-
daginn 10. apríl af Stefáni
Kristjánssyni formanni SKÍ, er
minntist þess, að þetta lands-
mót er hið þrítugasta í röðinni,
síðan það var upp tekið 1937,
en tvisvar hefði það fallið nið-
ur, í bæði skiptin vegna far-
sótta. Þetta væri því afmælis-
(Framhald á blaðsíðu 5).
Frá lögreglunni
GÍFURLEG umferð var á Akur
eyri um páskana, einkum í sam
bandi við Skíðamót íslands. Á
þriðja hundrað bílar voru við
SkiðsJhótehð þegar flest var og
vantar þar stærri bílastæði. Óll
umferð gekk slysalaust.
Upplýstur er þjófnaður sá,
sem fyrr var frá sagt, í sam-
bandi við innbrot í Trésmíða-
verkstæðið Smára. Þar var ung
ur maður að verki.
Tvö ávísanafals-mál hafa
verið í rannsókn og er annað nú
upplýst. Hafði maður sá, er þar
var viðriðinn, komizt yfir ávís-
anahefti og gefið út ávísanir,
nokkur þúsund krónur. Hitt
málið er enn í rannsókn.
Rólegt var í bæum þótt margt
væri um manninn. □
Frá landsmótinu í Illíðarfjalli upp við Stromp.
(Ljósm.: F. Vestmann)
Félagið greiddi landeigendum
arnarvarps kr. 45.500.00 bæði
sem landleigu og verðlaun fyrir
friðun. Talið er að 18 eða 19
Nokkur fiskigengd á
norðlenzkum miðum
SÍÐAN ÍSINN fjarlægðist land
ið og aftur var hægt að stunda
veiðar, hefur afli verið góður
bæði í botnvörpu og net hér
fyrir norðan. Sem dæmi má
nefna, að bátar af Árskógsströnd
hafa fengið upp í 9 lestir í net,
og togbátarnir hafa -aflað vel,
einnig togaramir. Hinsvegar
hefur afli verið tregur á línu.
Hrognkelsaveiði stunda all-
margir að þessu sinni og virðist
veiði ætla að verða sæmileg.
Netatjón varð víða mikið í
norðlenzkum verstöðvum af
völdum hafíss.
Loðna gekk fyrir nokkru
og var í torfum undir lagísn-
um á Akureyrarpolli. í gær var
þar mikið af hnísu, enda lag-
ísinn farinn veg allrar veraldar.
deyr út eða heldur velli, sem
flestir vona.
Fuglaverndarfélagið hefur lát
ið sér annt um haftyrðilsvarpið
í Grímsey, sem er ekki nema
nokkur hreiður árlega. Fyrrum
var það töluvert og á fleiri stöð
um en fuglinn virðist hafa fært
varpstöðvar sínar lengra norð-
ur síðustu áratugina, vegna
hlýnandi veðráttu, að því fróðir
menn ætla. Og enn hefur félag-
ið gengist fyrir friðun Þórs-
hanans, sem verpir á Suður-
nesjum, en er fágætur fugl hér
á landi.
Hér á landi eru margir fugla-
vinir og fuglaskoðarar í tóm-
stundum. Fuglaverndunarfélag
inu væri mikill styrkur að slík-
um félögum. Árgjaldið er 250.00
krónur.
Stjórn þess skipa nú: Magnús
Magnússon, prófessor, Ámi
Waag og Aron Guðbrandsson.
Samtökin hafa pósthólf 1800,
Reykjavík. □
amóf íslan
i
Akureyringar sigruðu mjög óvænt í boðgöngu
SKÍÐAMÓT ÍSLANDS 1968
var að þessu sinni haldið í Hlíð-
arfjalli við Akureyri um pásk-
ana. Mun það vera eitt ánægju-
legasta landsmót í þessari
íþróttagrein, sem haldið hehir
verið, bæði fyrir keppendur og
áhorfendur. Studdi margt að
þessu. í fyrsta lagi var sólskin
alla daga mótsins og mjög hlýtt
veður, svo að frysta þurfti sum-
ar skíðabrautir. Undirbúningur
þótti hafa tekizt með ágætum,
samkvæmt viðtölum við að-
komukeppendur og stjórn móts
ins var mjög góð.
Flugsamgöngur voru greiðar
og þúsundir manna komu til
Akureyrar þessa mótsdaga, og
voru vegir flestir greiðfærir
Mlkil afvinna á Siglufirði
maga- og grásleppuveiðar.
Rauðmaginn er saltaður, svo og
BENZÍNIÐ HÆKKAR
SAMKVÆMT fregnum að sunn
an í gær, kemur hækkun á
benzíni sennilega til fram-
kvæmda í dag. Verður það þá
kr. 9.34 lítrinn. □
DREGIÐ hefur verið um röð
flokkanna í útvarpsumræðum,
sem fram fara frá Alþingi 17.
og 18. apríl. Röðin er þessi fyrra
kvöldið: Alþýðubandalag og
ræðumenn Karl Guðjónsson,
Jónas Árnason og Eðvarð Sig-
urðsson. Sjálfstæðisflokkur,
Bjarni Benediktsson, Ólafur
Björnsson og Gunnar Gíslason.
Framsóknarflokkur, Ólafur Jó-
hannesson, Jón Skaptason og
Björn Pálsson. Alþýðuflokkur,
Emil Jónsson og Eggert G. Þor-
steinsson.
Síðara kvöldið er röð flokka
og ræðumanna á þessa leið í
þrem umferðum: Framsóknar-
flokkur, Einar Ágústsson, Stef-
án Valgeirsson, Gísli Guðmunds
son og Þórarinn Þórarinsson.
Alþýðuflokkur, Gylfi Þ. Gísla-
son, Benedikt Gröndal og Sig-
urður Ingimundarson. Alþýðu-
bandalag, Magnús Kjartansson,
Gils Guðmundsson og Lúðvík
Jósefsson. Sjálfstæðisflokkur,
Ingólfur Jónsson, Jón Árnason,
Magnús Jónsson og Sigurður
Bjarnason.
Gert er ráð fyrir, að þing-
lausnir fari fram á laugardag-
inn. □
Siglufirli 17. apríl. Einn og einn
ísjaki minnir á hafísbreiðuna,
sem þokazt hefur frá Norður-
landi, en ennþá er lagís innst í
firðinum.
Siglfirðingur landaði í gær
120 tonnum eftir viku útivist.
Hafliði hefur mikinn afla og
landar bráðlega. Það er nóg að
gera á Siglufirði um þessar
mundir.
Ein átta úthöld stunda rauð-
grásleppuhrognin. Veiði er
sæmileg og grásleppan, sem
jafnan kemur seinna að land-
inu, er að koma.
Strákagöngin greiða sam-
göngurnar en Fljótavegur er
illfær eins og er. J. Þ.
Sigurður, Halldór, Stefán og Júlíus.
(Sjá opnu.)
EFNAVERKSMIÐJAN SJOFN
Dagur
LI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 18. apríl 1968 — 16. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING