Dagur - 01.05.1968, Síða 8
8
Gjöfin afhcnt í Fjórðungssjúkrahúsinu. - (Ljósm.: G. P. K.)
SMÁTT OG STÓRT
AÐ ENDURTAKA
BINDINDISMÁLAFUND
Ekki hljómar það trúlega en er
þó satt, að mælzt hefur verið til
þess við bindindisfélög hér í bæ,
að endurtaka fund þann um
bindindismál, er fyrir skömmu
var haldinn og hér var frá sagt.
Það hefði einhverntíma þótt
tíðindi til næsta bæjar og eru
það enn, að fólk sé svo áhuga-
samt um þessi mál, að fleiri
sæki fund en húsrými á stærð
við salinn í Hótel Varðborg
rúmi fundargestina.
Brazelíu. Ríkisstofnun, sem
hafði það hlutverk að vemda
þjóðflokkinn, byggja lionum
skóla og búa honum aðstöðu til
menningarlífs á ýmsum svið-
um — brást hlutverki sínu —.
Starfsmennirnir, sem hrósað
var fyrir þá óeigingirni, að
vinna í þágu hins umkomulitla
þjóðflokks, stungu framlögum
ríkisins í eigin vasa og myrtu
90 þúsundir þeirra manna, er
þeir áttu að vernda.
SELDU KONUR
Ríkisstarfsmennirnir hirtu svo
Lionsfélagar gáfu FjórBungssjúkrahúsinu sjúkrarúm
í VETUR fóru félagar úr Lions
(klúbbnum Huginn söluferð um
bæinn og seldu bæjarbúum
kerti og spil. Ágóða af sölunni
var varið til kaupa á sjúkra-
xúmi frá Svíþjóð, er það rúm
ásamt borði og má stilla rúm
ÓVENJU MÍKIL
VEIÐI
NOKKRAR síðustu vikur hef-
ur verið óvenju mikill þorsk-
afli á innanverðum Eyjafirði og
mikið af þeim afla mjög vænn
fiskur. Mest hefur veiðst í net
og stunda 6 trillubátar þá veiði
að staðaldri en 2 eru með línu
og afla miðlungi vel. Sjaldan
aflast vel á færi.
Auk þessarra báta er fjöldi
annarra á sjó um helgar og oft-
ar, þótt eigendur séu í fastri
vinnu.
Mesta dagsveiði trillubáts í
net var á fimmta tonn og þurfti
báturinn fleiri ferðir með afl-
ann í land. □
þgt.ta á ýmsa vegu cg er eink-
urp sptlað, .fyriv hjartveikissjúkl
inga.............
Sl. þriðjudag (23, þ. m.) fór
stjórn klúbbsins á fund stjórnar
sjúkralhússing og afhentu rúm
þetta. .Formaðúr. klúbbsins sagði
það.. von klúbbfélaga að rúm
þetta yrði læknum sjúkrahúss-
ins verulegur stuðningur í hinu
þýðingarmikla starfi þeirra.
Hann gat þess að undirtektir
bæjarbúa héfðu, verið hinar
beztu og sýndi það bezt hug al-
niennin.gs til sjúkrahússins.
Loks gat hann þess að félags-
menn vildu einnig með gjöf
þessari minnast látins klúbb-
félaga, Guðmundar Tómasson-
ar framkvæmdastjóra, sem ver-
ið hefði einn af stofnendum
klúbbsins. Formaður sjúkra-
hússstjórnar, Eyþór Tómasson
og yfirlæknarnir Ólafur Sig-
urðsson og Guðmundur Karl
Pétursson, þökkuðu Hugins-
félögum framtak þeirra og vin-
semd.
Stjórn Hugins skipa þetta
starfsár: Formaður Haraldur
Sigurðsson bankagjaldkeri, rit-
ari Pétur Pálmason verkfræð-
ingur og gjaldkeri Jón Stefáns-
son skrifstofumaður. Formaður
fjáröflunarnefndar er Bergur
Lárusson framkvæmdastjóri. □
SumarbúSimar að Hólavatni
EINS OG undanfarin sumur
Starfrækja KFUM og KFUK á
Akureyri sumarbúðir að Hóla-
vatni í Eyjafirði. — Innritun í
dvalarflokka hefst n.k. fimmtu-
dag, 2. maí. (Sjá auglýsingu
annars staðar í blaðinu). Dval-
Fruntsýning L. A. annað kvöld
ANNAÐ KVÖLD frumsýnir
Leikfélag Akureyrar „Óvænta
heimsókn“ eftir John B. Priest-
ley í Samkomuhúsinu. Leik-
stjóri er Gísli Halldórsson.
Höfundurinn, fyrrum hermað
ur, síðan blaðamaður og mikil-
virkur rithöfundur, hefur sam-
ið fjölda leikrita, m. a. Hættu-
legt horn, Óvænt heimsókn, Ég
hef komið hér áður og Tíminn
og við. Sum leikrit hans eru tal
in á mörkum þess raunverulega
og mjög spennandi. Svo er um
það leikhúsverk, sem L. A. frum
sýnir á morgun.
Leikfélagið var svo heppið að
fá hingað norður Gísla Hall-'
dórsson, hinn kunna leikhús-
mann, til að setja Óvænta heim
sókn á svið. Er líklegt, að fimm
vikna dvöl ,svo vandvirks leik-
stj'óra hér á Akureyri, beri
þann árangur, sem vert sé að
veita athygli, ekki sízt þar sem
einnig er um að ræða sérstætt
og mérkilegt leikrit.
Leikendur eru: Júlíus Odds-
son, Sigurveig Jónsdótir, Ólafur
Axelsson, Guðlaug Hermanns-
dóttir, Sæmundur Guðvinsson,
Laufey Einarsdóttir og Guð-
mundur Gunnarsson. □
arflokkar verða í sumar sem
hér segir:
7. til 21. júní: Drengir, 9 ára
og eldri (fæddir 1959).
28. júní til 12. júlí: Stúlkur, 9
ára og eldri.
12. júlí til 19. júlí: Stúlkur, 11
ára og eldri.
19. júlí til 9. ágúst: Drengir,
9 ára og eldrf.
9. ágúst til 23. ágúst: Drengir,
11 ára o g eldri.
Vegna aukinnar eftirspurnar
er fólki bent á, að hafa sam-
band við skrifstofu sumarstarfs
ins sem fyrst. □
EINN GLEYMDIST
I frásögn af fundi þessum féll
niður nafn þess mannsins, sem
mest undirbjó þennan ágæta
fund, Eiríks Sigurðssonar, fyrr-
um skólastjóra, og er hér með
bætt úr því. í viðræðum við
ýmsa borgara um bindindismál
að undanförnu, virðist það álit
manna, að áhugi sé vaxandi á
þeim og er vel ef svo er. Og í
sambandi við að endurtaka
fundinn um bindindismálin eða
halda annan jafn vel undirbú-
inn, vill blaðið eindregið hvetja
til þess.
BREZKT KYNÞÁTTA-
VANDAMÁL
Árlegur innflutningur hörunds-
dökkra manna og kvenna til
Bretlands er nú talinn um fimm
tíu þúsundir. Mál þetta er orð-
ið pólitískt hitamál og er það
haft eftir kunnum stjómmála-
manni, að það væri hið mesta
brjálæði að leyfa slíkan inn-
flutning og með því væri
brezka þjóðin að safna viði í
sinn eigin bálköst. En í þinginu
er þessa dagana rætt um stjóm
arfrumvarp, sem afnema á allt
kynþáttamisrétti í landinu.
SVARTUR BLETTUR
Fréttir herma, að 90 þúsund
Indíánar liafi verið myrtir í
eigur hinna myrtu, nauðguðu
ekkjum og seldu þær síðan, svo
og börnin. Fréttir þessar hafa
vakið viðbjóð og sorg um allan
heim. Brazelísk stjórnarvöld
liafa nú heitið því, að taka í
taumana og réfsa hinum seku
hlífðarlaust, eftir að málið var
kært og tjaldið dregið frá sviði
þessara óliugnanlegu mála.
UNGT FÓLK OG IÐNAÐUR
Sextugt ungmennafélag í Hruna
mannahreppi samþykkti á af-
mælisfundi sínum að hvetja
menn til að styrkja íslenzkan
iðnað. Og félagsmenn sam-
þykktu að leggja fram fjámiagn
til þessa. Skömmu áður höfðu-
menntaskólanemar á landsþingi
samþykkt að skora á almenn-
ing í landinu að taka íslenzkan
iðnað fram yfir erlendan. Þökk
sé hinum ungu mönnum.
GÓÐUR HLJ ÓMGRUNNUR
Iðnaðuriim hefur búið við vax-
andi örðugleika undanfarin ár
og staðnað, enda vegið að lion-
um með tvennum hætti. Erlend
um iðnvarningi hefur verið
lirúgað inn í landið til að veita
vissum aðilum viðskiptagróða,
og verðbólgan innanlands hefur
torveldað samkeppnisaðstöð-
una. En í umræðum og deilum
um iðnað hefur gleymzt að
(Framhald á blaðsíðu 2).
Fræðslukvöld um hreinlætisniál
EÐVARÐ Friðriksen eftirlits-
maður heilbrigðismála dvaldi á
Akureyri nokkra daga og sýndi
þá kvikmyndir og skuggamynd
ir, kennslumyndir frá Osló, um
ýmsa þætti heilbrigðismála,
einkum varðandi meðferð mat-
væla og hráefna til þeirra. En
hreinlætið er þar veigamikill
þáttur og í þeim efnum víða
pottur brotinn hér á landi.
Þessi kynning stóð þrjú kvöld
og lánaði íslenzk-ameríska fé-
lagið húsnæði og sýningarvélar.
Eðvarð lét þess getið er blað-
ið ræddi við hann litla stund að
kynningu lokinni að Kjötiðn-
aðarstöð KEA og Mjólkursam-
lagið hefði óskað sérstakra
kynninga fyrir sig, hvort í sínu
lagi. En kynningunni lauk á
sunnudagskvöld með sýningum
fyrir matvörukaupmenn bæjar-
ins. Sjálfur flutti Eðvarð skýr-
ingar og þótti þetta bæði þörf
kynning og mjög vekjandi. Að-
sókn var yfirleitt góð, enda
margt fólk hér í bæ, sem á einn
eða annan hátt vinnur að mat-
vælaframleiðslu og sölumaður
Minkur fer í róður
Guðlaug og Sæmundur í hlutverðum sínum. (Ljósmyndast. Páls)
ÞAÐ bar við fyrir skömmu á
Sævari frá Grenivík, þegar bát-
urinn var kominn 8 mílur norð-
austur af Gjögrum, að formað-
ur sá mink fram á hádekkinu.
Hafði hann farið með í þennan
róður. Formaðurinn — Sævar
Sigurðsson — hægði ferðina og
vakti háseta sinn og ætluðu
þeir að ná dýrinu. Það tókst
ekki og hvarf það. Mun hafa
stokkið fyrir borð, því vandlega
var leitað í bátnum, en án ár-
angurs.
Frá Grenivík eru nú gerðir
út þessir þilfarsbátar: Sævar,
Frosti, Haraldur, nýkeyptur 35
tonna bátur, Víðir og Brúni. —
Ennfremur er gerður út dekk-
bátur á hrognkelsaveiðar og 4
trillur stunda sjóinn, þar af ein
4 tonna.
Línufiskur Grenivíkurbáta er
oftast tregur, einnig á þeim
slóður, þar sem togbátar afla
mjög mikið. □
sagði, að fólk tæki frðslu og
ábendingum mjög vel, því flest-
ir vildu standa vel í stöðu sinni
en gerðu sér oft ekki nógu ljósa
ábyrgð sína í meðferð hinna við
kvæmu og þýðingarmiklu hrá-
efna í matvælaiðnaðinum og í
verzlunum.
Þeir Eðvarð og Björn Guð-
mundsson ‘heilbrigðisfulltrúi,
sögðu blaðinu, að unnið væri að
því að undirbúa nokkurra daga
hópnámskeið hér og víðar um
land, til fræðslu á þessu sviði.
En kennslan nýtist bezt í
flokka- eða hópkennslu fyrir
hinar ýmsu greinar. □
Refir og refaskvttur
í BÁRÐARDAL lagði bóndi
einn út kindarskrokk hjá íbúð-
arhúsi sínu, sem mannlaust
hafði staðið um hríð. Klukkan 5
næsta morgun leit hann út og
sá þá ref, sem runnið hafði á
ætið, og skaut hann út um
gluggann. Tveim stundum síðar
kom annar og fór allt á sömu
leið. Annar Bárðdælingur elti
uppi tvo refi á snjósleða og
þriðji bóndinn skaut þrjá refi
úr skotbyrgi. □