Dagur - 06.06.1968, Blaðsíða 7
- HANDRIT GAUTREKSSÖGU FÓRU VÍÐA
(Framhald af blaðsíðu 5).
ferðinni. En hér er vor og ég
naut sannarlega sólarinnar, sem
ekki veitir af eftir þrásetur í
bókasöfnum undanfarna mán-
uði. Svo naut ég þess að sjá
himininn logagylltan rétt fyrir
miðnætti, á sama tíma og
myrkrio grúfir yfir öllum þeim
löndum, sem sunnar eru á hnett
inum, segir lektorinri, en innan
tíðar eru fornu viðfangsefnin
efst í huga hans á ný og hann
þylur þetta niðurlag Hrólfssögu
Gautrekssonar:
Undrist menn það eigi þó að
sumir menn hafi verið ágætari
að afli og vexti en nú. Hefur
það satt verið, að þeir hafa
skammt átt til risa að telja, en
nú er fólkið jafnara, er blandast
ættirnar. Er það trúlegt, að
smáir menn hafi margir hnigið
fyrir þeim, er vopn þeirra hafa
svo þung verið, að einn óstyrk-
ur maður hefur varla eða eigi
fengið létt af jörðu, má þá
marka, hvort nokkuð smámenni
mun það staðizt hafa, er þeir
hjuggu af miklu afli með bitur-
legum eggjum til þeirra, er þó
lamdist allt fyrir, þó að ekki
biti á. Þykir mér og þeim bezt
sanna að finna, er fær er til að
bæta. En hvort sem satt er eða
eigi, þá hafi sá gaman af, er það
getur, en hinn leiti annars, þess
er meira gaman verður að.
Gleði Guð þann er ritaði og
sagði og alla þá er til hlýða og
ljúkum vér sögu Hrólfssögu
Gautrekssonar.
©
Ég sendi öllum rriinar beztn kveðjur: sjúklingurri,
stárfsfólki á Kristneshœli og öðruhi kunningjum, sem
glöddu mig með gjöfum og á arinán hátt á fimmtugs-
afmœlmu mínu, 30. maí síðastliðinn.
BENEDIKT KRISTINSSON.
*
©
%
±
©
&
ý
©
-5-
íljartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömiriu,
MARGRÉTAR JÓHANNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við félögum úr karlkórnum
„Geysi“ og Ivirkjukór Akureyrar fyrir góðan söng.
Oddur Kristjánsson, Jóhann Oddsson,
Júlíus Oddsson, Valgerður Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna frá-
íalls
GUÐMUNDAR B. ÁRNASONAR,
Bjarmastíg 11, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri og stúkunnar Brynju nr. 99.
Sigurveig Guðmundsdóttir.
Árni Guðmundsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Jón Guðmundsson, Sigurlína Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
ÞORSTEINS VALDIMARSSONAR,
símstöðvarstjóra og hreppstjóra, Hrísey.
Sérstakar þakkir færum við hreppsnefnd Hrísevjar-
hrepps, sem fyrir hönd Hríseyinga vottaði honum
þakklæti og virðingu með því að kosta útför hans.
Lára Sigurjónsdóttir, börn, tengdabörn
og bamabörn.
Maðurinn minn,
GUNNAR ÁGÚST BENEDIKTSSON,
lézt 3. þ. m. á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. —
Guðrún Snorradóttir.
Eiginmaður minn og faðir,
GEORG JÓNSSON, bifreiðastjóri,
Gránufélagsgötu 6, Akureyri,
andaðist að Fjórðungssjúkralnisinu á Akureyri 30.
maí síðastliðinn. — Jarðarförin ákveðin síðar.
Sigríður Zakaríasdóttir.
Ingólfur Georgssoti.
Það er orðið sjaldgæft að
heyra íslendinga mæla fram
kafla úr fornsögum. Enn sjald-
gæfara er að heyra slíkt af vör-
um útlendings. Dagur þakkar
viðtalið um leið og hann óskar
fræðimanninum góðs og mikils
árangurs í rannsóknarstörfum
hans á fornum bókmenntum ís-
lenzkum. E. D.
ÆSKULÝÐSBLAÐIÐ
ÆSKULÝÐSBLAÐIÐ, blað
æskulýðsfélaga í Hólastifti und
ir ritstjóm séra Bolla Gústavs-
sonar er komið út. í því er m. a.
viðtal við biskupinn, herra Sig-
urbjörn Einarsson, Aðalgeir
Pálsson ritar um starfsfræðslu,
sagt er frá hinum ýmsu störf-
um æskulýðsfélaganna og
margt fleira er í blaðinu bæði
til skemmtunar og fróðleiks.
Afgreiðslumaður er Jón A.
Jónsson, Hafnarstræti 107. □
- LUKKURIDDARAR
(Framhald af blaðsíðu 8).
eða í geymslur í Reykjavík. En
nú á að hefja verk, sem gera
átti fyrir 10 árum og má segja,
að betra er seint en aldrei.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs
sýnir Lukkuriddarann um þess
ar mundir, bæði á Egilsstöðum
og í gær var sýning í Neskaup-
stað en í kvöld verður sýning á
Seyðisfirði. Svo kemur hér
annar lukkuriddari og sýnir sig
í Valaskjálf og vill verða for-
seti. V. S.
- Það er gott að vera
íslendingur í Kanada
(Framhald af blaðsíðu 4).
og gagnkvæmar heimsóknir
aukizt?
Mjög mikið. Fólk er alltaf að
leyta uppi ættingja og nú er
orðið auðvelt að ferðast og fljót
legt, þótt höf skilji á milli. Nú
er t. d. verið að undirbúa hóp-
fei'ð að vestan, með 150 þátttak
endum. Hópurinn, sem verður
tvískiptur, leggur af stað hingað
til lands 30. júní og 1. júlí. Sig-
urður Sigurgeirsson form. Þjóð
ræknisfélagsins í Reykjavík
vinnur nú ötullega að undir-
búningi þessarar heimsóknar.
Hinn 5. júlí tekur forsetinn á
móti hópnum á Bessastöðum. í
þessu sambandi ber að minnast
þess, að síðustu þrír íslenzku
biskuparnir hafa heimsótt ís-
lendingabyggðh-nar í Vestur-
heimi, þeir Sigurgeir Sigurðs-
son, Ásmundur Guðmundsson
og Sigurbjörn Einarsson, og for
seti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson heimsótti okkur í fyrra
og Bjarni Benediktsson forsætis
róðherra heimsótti okkur fyrir
þrem árum. Allt varð þetta til
að treysta vináttuböndin. En
vinna þarf að hagkvæmari flug
ferðum milli Kanada og íslands.
Hverju er nú spáð um fram-
tíð þessara vináttu og frænd-
semisbanda?
Ég vil engu spá, en tel, að
hrakspár þar um verði sér til
minnkunar eins og áður, því
það er okkur mikilvægt, og ætti
að vera báðum aðilum hagstætt,
að halda menningarleg, vinar-
og frændatengsl sem allra
lengst. Á ferðum mínum hér á
landi og vestra finn ég ávallt
þennan sama skilning og vona
ég að hann haldist enn um
langa stund, um leið og ég
þakka móttökurnar á íslandi að
þessu sinni og ber fram hjartan
legar hamingjuóskir um, að enn
megi gæfa og gengi þjóðarinnar
eflast, segir Grettir Leó Jó-
hannsson ræðismaður að lokum
og þakka ég viðtalið. E. D.
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl.
10.30 f. h. Sálmar: 530 — 6 —
108 — 26 — 29. B. S.
SJÓNARHÆÐ. Samfélagsstund
um Guðs orð n. k. sunnudag.
Allir hjartanlega velkomnir.
SUMARSKÓLI guðspekisinna
verður í Skíðahótelinu í Hlíð
ai'fjalli dagana 16.—18. ágúst
n. k. Nánar auglýst síðar. —
Sumarskólanefndin.
KENNARAKVARTETT Hlíðar
dalsskóla mun syngja á sam-
komunni í Laxagötu 5, laugar
daginn 8. júní kl. 21.00. Einn-
ig sunnudaginn 9. júní kl.
21.00. Mikill og fjölbreyttur
söngur. Allir hjartanlega vel-
komnir. — Sjöunda-dags Að-
ventistar.
ÓLAFSFJÖRÐUR. Samkomur
í Tjai'narborg laugardaginn 8.
júní kl. 17.00 og sunnudaginn
9. júní kl. 15. Kennara-
kvartett Hlíðardalsskóla mun
syngja. Fjölbreyttur söngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
— Sjöunda-dags Aðventistar.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
Rússar roðfletta fiskmn ný-
veiddan og er þetta kallaður
„hvíti saltfiskurinn“ á markað-
inum. Eflaust fylgjast íslenzkir
sjómenn og útvegsmenn með
þessum málum, sem öðrum á
sviði markaðsmála.
- VINNUSKÓLI
(Framhald af blaðsíðu 8).
skortur verði á vinnuafli full-
orðinna.
Kaup unglinganna verður það
sama og greitt verður í Vinnu-
skóla Reykjavíkur, sem var kr.
18 fyrir unglinga 13—14 ára og
kr. 21 fyrir unglinga 14—15 ára
sumarið 1967, en verður senni-
lega eitthvað hærra á þessu
sumri.
Auk áðurnefndra verkefna
verður unnið að nokkrum lag-
færingum á opnum svæðum.
Vinnuskólanefnd hefur beðið
vinnumiðlunarskrifstofuna að
taka á móti umsóknum um
skólavist og ættu þeir, sem hug
hafa á henni að snúa sér þangað
hið allra fyrsta.
Vinnuskólanefnd.
Fólksfjölgunin verðui
ekki stöðvuð strax
VANÞRÓUÐ lönd voru fyrr-
um álitlegir matvælaútfly tj -
endur. — Umframmagnið af
neyzlukorni nam árlega 14,3
milljónum tonna á tímabilinu
1934—38, en nú nemur nettó-
innflutningur þeirra á neyzlu-
korni 11,6 milljónum tonna ár-
lega. Meginorsökin til þessarar
breytingar 'hefur verið hin öra
fólksfjölgun eftir seinni heims-
styrjöldina.
íbúatala vanþróuðu landanna
eykst um 43 milljónir á ári
hverju, sem er 7 sinnum meira
en fólksfjölgunin í iðnaðarlönd-
unum. Með hjálp ýmissa stofn-
ana Sameinuðu þjóðanna leitast
vanþróuðu löndin við að móta
og hrinda í framkvæmd áætl-
unum um takmörkun barn-
eigna. Þessi viðleitni getur þó
ekki haft nein veruleg áhrif á
fólksfjölgunina fyrstu 15 til 20
árin. □
BRÚÐHJÓN. Hinn 1. júní voru
gefin saman í hjónaband á
Akureyri ungfrú Oddný Sig-
ríður Ragnarsdóttir og Ove
Höyer Andersen kjötiðnaðar-
maður. Heimili þeirra verður
að Hafnarstræti 95, Akureyri.
Sama dag voru gefin saman í
hjónaband á Akureyri ungfrú
Bjarney Sveinbjörnsdóttir og
Eiríkur Franz Ragnarsson sjó
maður. Heimili þeirra verður
að Byrgi, Glerárhvei'fi, Ak.
FERMING í GRÍMSEY. — Á
sunnudaginn 9. júní verður
ferming í Miðgarðakirkju.
Fermd verða þessi börn: Ás-
rún Anna Alfreðsdóttir, Bás-
um. Guðmundur Hafliði Guð
mundsson, Nýja-Sjálandi.
Gunnar Stefán Ásgrímsson,
Vallakoti. Þorleifur Ólason,
Sveinsstöðum.
FRÁ Sumarbúðunum Vest-
mannsvatni: Enn er mögulegt
að koma börnum í suma flokk
ana. Þeir sem hefðu hug á
tali við prestana sem allra
fyrst. — Sumarbúðanefndin.
ÁHEIT á Akureyrarkirkju frá
H. S. kr. 2000.00 og á Strand-
arkirkju kr. 700.00 frá N. N.
Beztu þakkir. — Birgir Snæ-
björnsson.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚS-
INU hafa borizt minningar-
gjafir um Ágústínu Gunnars-
dóttur ljósmóður frá eigin-
manni hennar Tryggva Jóns-
syni og börnum þeirra kr.
50.000.00. Frá Ó. J. kr. 500.00.
Með beztu þökkum. — Torfi
Guðlaugsson.
KONA hér í bæ, er ekki vill
láta nafns síns getið, hefur
gefið 2000.00 kr. til gróður-
beltisins við barnaheimilið
Pálmholt. — Beztu þakkir. —•
Laufey Sigurðardóttir.
SUMARBÚÐIRNAR við Vest-
mannsvatn byrja 14. júní n. k.
Þau börn, sem hafa óskað eft-
ir dvöl í fyrsta flokknum fá
sendar upplýsingar eftir
nokkra daga um ferðina aust
ur og annað sem varðar sum-
ardvölina. — Sóknarprestar.
- Sjónvarpsnotendur
(Framhald af blaðsíðu 4).
sjónvarpstæki og að hafa af
þeim góð not.
Þeir sem skipa undirbún-
ingsnefnd félagsstofnunai-
innar eru: Aðalgeir Pálsson,
verkfræðingur, Alfreð Möll-
er, forstjóri, Freyr Ófeigs-
son, fulltrúi, Halldór Helga
son, skrifstofustjóri, Hörður
Svanbergsson, prentari, Jóna
tan Klausen, útvarpsvirkji,
Kári Hermannsson, verzl-
unarstjóri, Örn Steinþórs-
son, prentari. □
PEYSUSETT
Verð kr. 640.00
MARKAÐURJNN
SIMI 1-12451