Dagur - 06.06.1968, Blaðsíða 8
SMÁTT OG STÓRT
KETTIRNIR
Margir hafa beðið blaðið að
koma þeirri ósk á framfæri, að
kattaeigendur gæti katta sinni
vel, loki þá inni eða hengi
bjöllu um háls þeirra á meðan
varptími þrasta, auðnutittlinga
og fleiri fugla er í bænum
verpa, stendur yfir. Fuglar þess
ir eru mjög mörgum kærir,
bæði ungum og öldnum. Mörg
barnstár hafa verið felld yfir
því, er kettirnir drepa ófleyga
unga við hreiðrin.
VERNDUM VARPIÐ
Varpið stendur nú sem hæst. í
bæjarlandinu, í hólmum Eyja-
fjarðar og við flugvöllinn, er
nokkurt varp, bæði æðarvarp,
gæsa, kríu, hettumávs o. fl. Á
hverju vori laumast eggjaræn-
ingjar í hólinana, þrátt fyrir
nokkra viðleitni til verndar.
Taka þarf mál þetta fastari tök-
líklegt að þeir eignist hana í
næstu framtíð. En sorpinu er
ætlaður staður upp með Glerá
og til umræðu að velja því ann-
an stað. Hér sem annars staðar
er sorphreinsun og sorpeyðing
verulegur þáttur heilbrigðis-
mála. Ber því að rækja þau vel,
með aðstoð allra góðra manna,
við þau skilyrði, sem við hæfi
þykja á hverjum tíma.
LEYSIR GÖTUSÓPARA
AF HÓLMI
Mikil göturyksuga bæjarins er
komin og bíður þess að vera
leyst úr álögum tilskilinna
gjalda. Hún mun væntanlega
leysa götusópara af hólmi að
mestu leyti, ef hún vinnur þau
verk, sem henni eru ætluð, þ. e.
að hreinsa allar steyptar götur.
Vonandi gerir hún það fljótar,
ódýrar og betur en þeir, sem
áður höfðu þessi störf með
Tveir lukkuriddarar á Auslurlandi
um í gæzlu, svo að engum geti höndum.
liðist að fremja spellvirki í nátt
úrunni um varptímann, hvorki JÓN KOMINN AF STAÐ
Egilsstöðum 4. júní. ísinn er
enn ó Reyðarfirði og Eskifirði
og lokar siglingaleiðum. En sigl
ingaleið er utan fjarðanna. Ekki
er þó enn fært fyrir Langanes.
Menn líta nú bjartari augum
á framtíðina en áður, eftir þann
góðviðriskafla, sem verið hefur
undanfarið. Tún eru græn og
næstum sauðgróður kominn í
úthaga. En klaki er enn í jörð.
Á laugardaginn var fyrsta
skóflustungan tekin að nýrri
kirkju í Egilsstaðakauptúni.
Gerði það biskupinn, herra Sig-
urbjörn Einarsson, og flutti við
það tækifæri snjalla ræðu. Þar
söng kirkjukór Egilsstaðasókn-
ar og séra Ágúst Sigurðsson las
bæn.
Kirkjunni var valinn staður
á bjargi, samkvæmt boði Biblí-
SAUÐBURÐUR GEKK
I MJÖG VEL
Stórutungu 4. júní. Sauðburður
hefur gengið ágætlega og á sum
um bæjum eru flestar ær tví-
lembur. Gróðri hefur fleygt
fram enda ágætis veður síðasta
hálfan mánuð. Margar eða lík-
lega flestar ærnar ganga enn á
túnum en sauðgróður er að
koma í úthaga.
Vegir eru sæmilegir, eftir því
sem hér gerist, og nú eru áburð
arflutningar að hefjast. Þótt
bændur séu ekki bjartsýnir,
sem ekki er von, hefur góða
tíðin sin góðu áhrif. Þ. J.
unnar um þau hús, sem lengi
eiga- að standa og þjóna eiga
þörfu , og helgu hlutverki. Öll
var. þessi. athöin hin hátíðleg-
asta.. Brúnás.byggir kirkjuna í
sumar og róðgert að hún verði
komin, undir- þak í haust, ef guð
og peningasjóðurinn lofar.
Við bíðum eftir því með eftir
væntirtgu,. að vita hvað verður
ákveðið í raforkumálunum —
hvort okkur verður fengið skott
ið frá Þingeyingum austur yfir
fjöll óg fýrnindi eða virkjað hér
eystra. Ekki svo að skilja, að
við höfum eitthvað út á Þing-
eyinga að setja, heldur þá lausn
raforkumála, sem kennd er við
Laxá.
Rafmagnsveitur ríkisins eru
byrjaðar að leggja dreifilínur
um Út-Fell. Ákveðið mun að
virkja Smyrilsdalsá í Suður-
sveit í ár. En sú virkjun var
ákveðin í ráðherratíð Stein-
gríms Steinþórssonar og efni
ýmist komið á virkjunarstað
(Framhald á blaðsíðu 7).
ÍSINN FÆRIST NÆR LANDf
Mikil ísbreiða sigldi inn Eyjafjörð i gær
í SAMTALI við Veðurstofuna
síðdegis í. gær, kom það fram, að
ísinn hefur hvarvetna færzt nær
Norðurlandir Mikil ísbreiða sigldi
inn Eyjafjörð í fyrradag, frá
Htítuni, á Skaga bárust þær frctt-
ir.{ gær, að ísinn hefði færzt nær.
Frá Hornbjargi sagði að vikur
væru að fyifast af ís, við hafsbrún
■ yjtti.tsaptfelidaii: ís að sjá og mik-
ill en súndurlaus ís á siglingaleið
— fremur greið leið frá Bjargi og
austur fyrir Geirólf.
Við Langanes hafði siglinga-
leið aklrei opnazt en talið fært
fyrir Sléttu áður en norðanáttin
kom. I gær var mikil þoka á þess-
um slóðum og litlar fréttir bárust
af ísnum. Sumir Austfirðir eru
enn fullir af ís;
Liklegt er talið, að norðanátt
og kulda létti ekki í bráð.
I fyrrinótt var víða mjög mikil
rigning á Norðurlandi og sum
fjöli gránuðu af' snjó. Vegir spillt-
ust verulega.
hér við Akureyri eða á öðrum
stöðum.
TÍMI HREINGERNINGA
Samkvæmt fyrirmælum bæjar-
yfirvalda ber mönnum að þrífa
lóðir sínar hér í bæ þessa daga
og hafa lokið því fyrir 10. júní.
Þörf er slík viðleitni og áminn-
ingar nauðsynlegar. Tveir sorp
hreinsunarbílar eru stöðugt í
gangi, ásamt nauðsynlegum
starfsmönnum, og fjölmargir
húsa- og lóðaeigendur flytja
þess utan margskonar rusl á
öskuhaugana. En stundum vill
það við brenna, að ekki er nægi
lega vel um þetta búið á bílun-
um og hefur vegurinn til ösku-
hauganna borið þess leiðinleg
merki á stundum.
ÖSKUHAUGAR
Því miður eiga Akureyringar
enga sorpeyðingarstöð og ekki
Jón Kristjánsson, sem kunnur
er af störfum sínum að fegrun
og snyrtingu bæjarins, á veg-
um Fegrunarfélagsins, er ný-
lega kominn í bæinn, eftir langa
og heilsusamlega dvöl í
Hveragerði. Gengur liann nú
tvíefldur til starfs og er það vel
því margt þarf endurbóta við
og einhver þarf að segja mönn-
um til syndanna í fegrunarmál-
ununi.
ROÐFLETTUR SALTFISKUR
Frá því hefur verið sagt, að
Sovétmenn verki saltfisk á sér-
stakan hátt og selji fyrir hátt
verð á markaði í Suður-Evrópu.
Norskur saltfiskur, veiddur á
Grænlandsmiðum, komi ekki til
greina á þeim markaði. Fyrir-
tæki í Álasundi liefur keypfJ
slíkan fisk af Sovétmönnum og
sent suður á bóginn til sölu.
(Framhald á blaðsíðu 7).
Vinnuskóli verSur starfræktur í sumar
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI
30. maí sl. var kosin vinnuskóla
nefnd og er henni ætlað að ráða
bót á atvinnuleysi 13—15 ára
unglinga eftir því sem fært
reynist. í nefndinni sitja Jón
Ingimarsson, Jónas Guðmunds-
son garðyrkjustjóri og Tryggvi
Þorsteinsson. Nefndin hefur kr.
300 til ráðstöfunar.
Ákveðið er að reka hér vinnu
skóla fyrir þessa aldurflokka
um 10 vikna skeið og hefst hann
væntanlega 18. júní.
Skólinn mun taka um 60 ungl
inga í vinnu og verður tilhögun
Samvinnuhreyfing á síðari hluta 20. aldar
Ráðstefna S.U.F. á Akureyri um helgina
SAMBAND ungra Framsókn-
armanna efnir til ráðstefnu á
Akureyri dagana 8.—9. júní.
Ráðstefnan fjallar um Sam-
vinnuhreyfinguna á síðari
hluta tuttugustu aldar og
verða flutt erindi um ýmsa
þætti þess efnis. Einnig munu
fara fram viðræður við for-
ystumenn samvinnuhreyfing-
arinnar um störf og helztu
vandamál hreyfingarinnar í
dag. Þátttaka í ráðstefnunni
er heimil öllu áliugafólki um
samvinnumál.
Fyrri dag ráðstefnunnar,
laugardaginn 8. júní, mun
Jakob Frímannsson, forstjóri
KEA og stjórnarformðaur SÍS,
flytja ávarp. Hjörtur Hjartar,
framkvæmdastjóri, flytur er-
indi um Samvinnuhreyfing-
una: Viðhorf og vanda á líð-
andi stund. Indriði Ketilsson,
bóndi á Ytra-Fjalli, fjallar um
sögu Samvinnuhreyfingarinn-
ar á íslandi og Erlendu rEin-
arsson, forstjóri, flytur erindi
um þróun samvinnustarfs með
öðrum þjóðum. Halldór Ilall-
dórsson, kaupfélagsstjóri á
Vopnafirði, flytur erindi um
framtíð kaupfélaganna. Á laug
ardag verður einnig sérstakur
viðræðutími, þar sem forystu-
menn Samvinnuhreyfingar-
innar, Jakob, Erlendur og
Hjörtur munu svara fyrir-
spurnum ráðstefnugesta um
hina ýmsu þætti í starfi hreyf
ingarinnar í dag og vandamál
hennar.
Síðari dag ráðstefnunnar,
sunnudaginn 9. júní, mun
Einar Olgeirsson, fyrrv. al-
þingismaður, flytja erindi,
Samvinnuhreyfing: þjóðfélags
hugsjón og veruleiki, og
Indriði G. Þorsteinsson, rit-
stjóri, fjallar um félagslegt og
menningarlegt hlutverk Sam-
vinnuhreyfingarinnar. — Að
þessum erindum loknum
verða almennar umræður og
málahópar munu fjalla um
einstaka þætti ráðstefnuefnis-
ins.
Ráðstefnan verður haldin á
Hótel KEA og hefst báða dag-
ana kl. 9.30 árdegis. Þátttaka
í ráðstefnunni er heimil öllu
áhugafólki um samvinnumál
og tilkynnist hún til skrifstofu
Framsóknarflokksins í Reykja
vík eða til Svavars Ottesen á
Akureyri. □
ÍÍÍ4ÍÍÍÍÍÍÍ5ÍÍÍÍÍSÍ<ÍÍ4ÍÍÍÍ4ÍÍÍ4ÍÍÍ4ÍÍÍÍÍSÍÍÍÍÍÍÍÍ4Í4ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ4ÍÍÍÍ4ÍÍÍ4ÍÍÍ4ÍÍÍÍÍÍÍÍÍ44ÍÍÍÍÍ4ÍÍÍÍ4ÍÍ4ÍÍ$Í4ÍÍ$Í4ÍÍÍÍ444ÍÍÍÍ«<SÍ4ÍÍÍÍÍ4ÍÍÍÍ^^
sú, að myndaðir verða tveir
vinnuflokkar. Annar flokkur-
inn vinnur frá kl. 8—12 f. h. en
hinn frá kl. 1—5 e. h. Skipta
þeir vikulega um vinnutíma.
Með flokkunum verða tveir
verkstjórar.
Verkefnin vérða aðallega
fegrun og hreinsun í bænum,
auk þeirrar vinnu sem ef til vill
má fá hjá ýmsum atvinnurek-
endum. Ekki er gert ráð fyrir
að unglingarnir gangi inn á al-
mennan vinnumarkað nema
(Framhald á blaðsíðu 7).
SUNGIÐ í TJARNAR-
BORG 0G MELUM
KARLAKÓR AKUREYRAR
syngur í Tjarnarborg í Ólafs-
firði næsta laúgardag, 8. júní
kl. 9 e. h. og á sunnudaginn, 9.
júní á Melum í Hörgárdal á
sama tíma. Söngstjóri er Guð-
mundur Jóhannsson.
Karlakór Akureyrar hefur ný
lega haldið þrjár söngskemmt-
anir á Akureyri við ágætar und
irtektir fjölda áheyrenda. □