Dagur - 26.06.1968, Page 5
4
S
Skriístofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Forseta-
kosningarnar
EORSETI íslands gegnir æðsta emb-
ætti þjóðarinnar, ekki valdamiklu
nema í sérstökum tilvikum, en þýð-
ingarmiklu og áhrifaríku í höndum
mikilhæfra manna. Þjóðin kýs sjálf
forseta sinn, þegar fleiri en einn mað
ur býður sig fram til forsetakjörs.
Núverandi forseti var kjörinn af
þjóðinni árið 1952 og liefur verið
sjálfkjörinn síðan, þar sem enginn
hefur keppt við hann um kjörfylgi.
En hvert kjörtímabil er fjögur ár.
Engin hefð hefur hér á landi skap-
azt um val forseta. Árið 1952, þegar
þjóðin kaus sér núverandi forseta,
studdu Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn opinberlega
einn hinna þriggja frambjóðenda,
sem þá var kosið um. Þjóðin hafnaði
forsjá hinna pólitísku flokka, sem
eftirminnilegt er. Reynslunni ríkari
ákváðu allir fjórir stjómmálaflokk-
arnir í vetur, að standa utan við þær
forsetakosningar, sem nú fara í hönd.
Fólkið hefur því algerlega óbundnar
hendur við val forsetans að þessu
sinni og var því að sjálfsögðu vel
fagnað meðal almennings, sem tví-
mælalaust vill liafa það val í eigin
hendi og vill eiga þjóðliöfðingja, sem
er sameiningartákn og fulltrúi allra
liinna mörgu stríðandi stétta og
flokka í landinu — sem allir geta
treyst —. Gagnstætt þessu sjónarmiði
°g gagnstætt okkar stjórnarskrá eru
hins vegar forsetaembætti ýmsra ann
arra þjóða, þar s em þjóðhöfðingjan-
um er gefið mikið pólitískt vald, svo
sem í Bandaríkjunum og hann kos-
inn lireinni jxditískri kosningu
stjómmálamanna. Ekki em allir á
einu máli um, hvort heppilegt sé fyr
ir okkur íslendinga, að forsetaemb-
ættið skipi valdamikill pólitískur
flokksforingi hverju sinni, kosinn
pólitískri kosningu, eða valdalítill,
þjóðkjörinn þjóðhöfðingi. En stjóm
arskrá okkar sker úr um þetta atriði
hvort sem mönnum líkar betur eða
verr. Pólitískur valdamaður í for-
setaembætti og flokkspólitískar kosn
ingar fara saman. En þjóðkjörinn for
seta, eins og hér á landi, sem situr á -
friðarstóli hvort sem vinstri ménn
eða hægri sinnaðir fara með hús-
bóndavaldið í ríkisstjóm og á Al-
þingi, vill þjóðin sjálf kjósa, án leið-
sagnar stjómmálaflokkanna. □
Viðtal við Jón Sæmundsson, skipstjóra
Á SÍÐASTA ÁRI sigldi nýtt og
vel búið hafrannsóknar- og fisk
veiðiskip fram og aftur með
ströndum Austur-Pakistan og á
nálægum slóðum. Áhöfnin var
af ýmsu þjóðerni. Þar voru
tveir rússneskir fiskifræðingar,
haffræðingur frá Perú, fiskiðn-
fræðingur frá Kanada og veið-
arfærasérfræðingur frá Japan,
hásetar og yfimienn dökkir eða
gulir nema skipstjórinn. Hann
var íslendingur, Jón Sæmunds
son af nafni, sonur Sæmundar
Sæmundssonar skipstjóra og
Sigríðar Jóhannesdóttur frá
Þönglabakka konu hans. En
Sæmundur var norðlenzkur
atgervismaður á sjó og landi,
sem Hagalín gerði landskunn-
ann með ævisögu hans, Virkum
dögum.
Jón Sæmundsson hefur, síðan
hann komst til nokkurs þroska,
stundað sjóinn, fyrst með föður
sínum og skipstjóri hefur hann
verið þrjátíu ár eða lengur, á
mótorbátum, síldarskipum og
togurum og aflað með öllum
þeim algengu veiðai-færum, sem
notuð eru í sjó hér við land.
Það bar svo til að hann var hér
á ferð fyrir norðan um síðustu
stórhátíð og fundum okkar bar
saman stundarkorn. Hann er
þrekvaxinn maður, án þess að
vera feitur, léttur í spori, stælt-
ur og vel á sig kominn. Hann er
líka léttur í máli og virðist búa
yfir mikilli lífsorku. Gránað hef
ur hann í vöngum með aldrin-
um, en hann er kominn yfir
sextugt. Líklegtx þykir mér, að
hann skapi sér á mörgum svið-
um skoðanir, bæði á einstökum
málefnum og hinum ýmsu stefn
um, sem hann ógjarnan muni af
láta, fremur en aðrh- þeir menn,
sem ekki eru kallaðir talhlýðn-
ir. En í dómum um menn og
framandi þjóðir er hann ekki
dómgjarn þótt þar komi íslend-
ingi mai-gt undarlega fyrir sjón
ir, þegar tími er til að skyggn-
ast um. Kona Jóns er Helga
Sigurðardóttir, ættuð af Austur
landi og eiga þau þrjú upp-
komin börn.
Á snöggri ferð um Norður-
land, eða hvað?
Ég er að heimsækja vini og
vandamenn og er eiginlega ekki
á snöggri ferð. Ég ætla að eyða
nokkrum næstu vikum eða jafn
vel mánuðum á landi — þykist
vel áð því kominn að taka mér
ofurlitla hvíld —.
Þú rnunt liafa verið í þjón-
ustu Sameinuðu þjóðanna?
Ég var í þrjú ár á vegum
einnar stofnunar þeirra, árin
1955, 1956 og 1957 og dvaldi þá
á Ceylon og kenndi innfæddum
fiskiveiðar. Við notuðum troll,
reknet og snurpinót og raunar
fleiri veiðarfæri. Það var mjög
fróðlegt fyrir mig að dvelja
þama. Það var þó aðal erindið
að fræða aðra og vona ég að
starf mitt hafi borið einhvem
árangur og að fróðleikurinn
hafi þá verið gagnkvæmur. Þeg
ar ég kom svo heim, að þessari
útivist lokinni, var næsta verk-
efnið að fara með íslenzkan bát,
mannaðan íslendingum til ír-
lands og veiða síld í snurpinót.
Það var á „þorskastríðsárun-
um.“ Viðkvæmni landhelgismál
, anna og fiskigöngurnar upp að
frlandsströndum trufluðu árang
ur þessarar tilraunar. En það
voru írar, sem fengu mig til
þessarar ferðar. En þama var
fiskur í sjó, um það var ekki
að villast.
Svo fórstu síðar aðra ferð á
vegum Sameinuðu þjóðanna?
Já og kom úr þeirri för eftir
síðustu áramót. Ég tók að
mér skipstjórn á hafrannsókn-
ar- og fiskiskipi, sem smíðað
var í Japan. Það var út af fyrir
sig ævintýri, að ég skildi vera
eini íslendingurinn um borð og
jafnframt skipstjórinn, ekki að-
eins sjálfs mín vegna, heldur
vegna þeirra tilfinningar íslend
ings, að vilja hvarvetna standa
sig á borð við aðra, þegar um
einstaklingana er að ræða, þótt
við getum ekki stært okkur af
fólksmergðinni. Þetta var auð-
vitað nánast tilviljun hvað mig
Jón Sæmundsson, skipstjóri.
snerti, því að mjög margir ís-
lenzkir sjómenn eru vel til þess
fallnir að kenna þeim þjóðum
fiskiveiðar, sem enn eru
skammt á veg komnar á því
sviði. Já það voru margra þjóða
menn um borð, sundurleitur
hópur, flestir litaðir, eins og
kallað er.
Hvar voruð þið við þessar
rannsóknir og fiskveiðar?
Við landamæri Burma og
Pakistan. Við eyju eina, sem
Pakistanar þykjast eiga og
kennd er við Sankti-Martin,
fundum við lobster, lostæta
krabbategund og mjög verð-
mæta. Strax voru gerðar ráð-
stafanir til að fara að veiða
krabbann til útflutnings og til
sölu á betri hótelum. Pakistanar
þurfa mjög á auknum útflutn-
ingi að halda og sjálfir vilja
þeir ekki eta fiskinn. Þeir flytja
líka út mikið af rækju. Þegar
við höfðum fundið lobsterinn og
tekið sýnishorn, tóku aðrir við
veiðunum á litlum bátum. Þeir
veiða á grunnu vatni með
hraunbotni.
Hvað sástu skemmtilegast á
ferðum þínuni?
Því er örðugt að svara. Það
má fremur segja, að maður sjái
margt nýstárlegt en ekki er það
allt jafn skemmtilegt. Eitt af því
eftirminnilegasta var að sigla
með hraðbáti upp Gangesósana
og nokkur hundruð kílómetra
inn í landið. Eiginlega var öll
þessi leið um Gangesósana því
landið er sundurskorið af þeim
langt upp eftir. Það er svolítill
fiskur þarna og við sáum menn
veiða á handfæri og í lítil net.
Þarna sáum við innfætt fólk að
hverskonar störfum. Við sáum
til dæmis sjö manna fjölskyldur
á 20—22 feta bátum, sem byggt
var yfir miðjuna á. Þetta er
heimili fjölskyldunnar daga og
nætur, sumar og vetur. Þetta
fólk er á stöðugu ferðalagi um
fljótið og veiðir fisk sér til mat-
ar. Hræddur er ég um, að ein-
hverjum þættu þægindin lítil
um borð á þessum heimilum.
ISn krókódílar og hákarlar?
Krókódílamir eru enn ofar í
fljótinu og sáum við þá ekki, og
hákarlarnir halda sig við sjó-
inn. Við kynntumst ekki þess-
um skepnum neitt. Þegar siglt
er á flutningaskipum af sjónum
og upp í Ganges, verður að fara
á flóðinu því straumurinn er
mikill, eða 8—9 mílna straum-
ur. Svo þegar komið er inn fyr-
ir, verður straumsins ekki mik-
ið vart og þar opnast hálfgerðir
firðir og flóar fljótsins. Gróður-
inn er mikill á bæði borð og
hvert sem litið er. Skógurinn
mikilfenglegur og allur gróður
stórvaxinn og á sumum stöðum
mjög litfagur.
Komust þið í kast við inn-
fædda?
Naumast er hægt að segja
það. Þetta er meinlaust fólk og
virðist margt af því sinnulítið
og slappt. Sólarhitinn er lam-
andi og flestir bera þess merki.
Maður stofnar ógjarnan til sam
skipta, nema nauðsyn krefji og
sannast að segja er það naum-
ast hægt. Hins vegar er óþarfi
að spai'ka því frá sér með fyrir-
litningu eins og sumir munu
gera, að því er sagt er. Það er
hægt að halda sig frá óæskileg-
um félagsskap og unnt að halda
fólki í hæfilegri fjarlægð á ann
an hátt, eftir því sem hver og
einn telur við hæfi. Því er ekki
að leyna, að maður kynnist
ýmsu misjöfnu, sem ekki er svo
auðvelt að skilja. En þegar
fátæktin, ásamt menntunar-
skorti er höfð í huga, kemst
maður þó nær því að skilja
bæði eitt og annað í siðum og
ósiðum og lífsviðhorfi fólksins.
Fjöldinn býr við fátækt, en að
sjálfsögðu hefur auðlegð safn-
azt saman á vissa staði, svo sem
hvarvetna í heiminum. Þjófn-
aðurinn, morðin, betlið og allt
hið óhugnanlega verður ekki til
af engu og naumast af því, að
um „verra“ fólk sé að ræða.
Mannslífin eru ekki hátt metin,
enda af miklu að taka því mann
fjölgunin er vandamál. Það er
ekki verið að gera sér rellu út
af því þótt einhverjir týnist eða
farist.
Dæmi um fátækt?
Ég get hvorki eða vil ræða
það mál nánar, það þyi'fti svo
miklar skýringar. En ég skal
aðeins nefna eitt dæmi af öllu
því, sem ég sá af því tagi. Ég
var einu sinni að koma frá borði
og gekk upp í bæinn. Ég gekk
þar hjá, sem rusli hafði verið
safnað saman. Ogurlegur fjöldi
hrafna eða líkra fugla gæddi
sér á ýmsu á haug þessum. Og
mitt í hrafnagerinu var kona.
Hún var líka að leita að ein-
hverju ætilegu. Ég brá upp
myndavélinni minni og tók eina
mynd af þessu, án þess að nema
staðar. Ekki hafði ég lengi geng
ið þegai' sæmilega vel klæddur
maður ók á mótorhjóli upp að
hliðinni á mér og sagði mér, að
ef ég sæist taka fleiri slíkar
myndir, mundi myndavélin mín
brotin í smátt. Hér var um hót-
un að ræða, sem engum gat
dulist, enda var maðurinn auð-
sjáanlega reiður — og hann var
viðkvæmur fyrir fátækt landa
sinna —. Það fannst mér heiðar
legt. Ahorfandinn getur að sjálf
sögðu dæmt að eigin vild. Eln
hann þekkir e. t. v. ekki þau
rök, sem að baki liggja.
Hvemig var lífið í sjónum?
Gagnstætt því sem maður
gæti í fljóti bragði álitið, var
lítið líf í sjónum og sagði haf-
fræðingurinn mér, að of lítið
væri af kolsýringi til að venju-
legar fiskitegundir gætu lifað
þar, nema helzt á grunnmiðum,
næst ströndinni, enda var ljóst,
að því lengra frá landi og á
meh-a dýpi, þess minna af dýra-
lífi í sjónum. Við fórum með-
fram ströndinni eins og hún
leggur sig, vestur að landamær-
um Indlands og suður að landa-
mærum Burma. Það er náttúr-
lega gaman að sigla þarna um
og ferðast á landi á þessum slóð
um. En sannleikurinn er sá, að
þarna lifir fólk mjög frumstæðu
lífi, nálega allt svart. Hvirfil-
vindar valda stundum tjóni. Tré
rifna upp með rótum, hús fjúka
og bátar farast. Það fórst einu
sinni 140 bátar í einu slíku
veðri, meðan ég var þama. Það
var lítið um þetta rætt. Fólk
virtist ekki hafa miklar áhyggj-
ur af slíku. Það voru þó 4—8
menn á hverjum báti.
Vorið þið viðstaddir brúð-
kaup eða jarðarfarir?
Ekki vorum við hú beinlínis
í brúðkaupsveizlum. En maður
varð var við þau. Þá fer fólkið
í betri fötin og mikið eru bumb
ur barðar og leikið á ýmis önn-
ur hljóðfæri og sungið. Ég held
þetta sé nokkuð hátíðlegt. Brúð
kaupsveizlumar fara fram í
húsi og húsagarði, þar sem há
girðing er umhverfis. Óviðkom
andi er ekki ætlaður inngang-
ur. En jarðarfarirnar voru aftur
á móti fyrir allra augum. Við
sáum oft fjóra menn bera lík á
börum, oftast á öxlum sér og
láta þau í fljótið. Líkbrennsla
er þó orðin mjög algeng. Á
Ceylon sér maður oft þrjú
svört flögg. Þá er einhver dáinn
í því húsi. Stundum er þá verið
að brenna hinn látna í húsa-
garðinum eða á bak við húsið.
Nokkur vandræði með sjó-
mennina þína?
Nei, ég lenti ekki í neinum
vandræðum með þá. Þeir
mættu betur til skips en vænta
mátti í öllu seinlætinu. Hins
vegar eru það hrein vandræði
að fá menn til að vinna í landi,
þegar einhvers þarf með. Þegar
eitthvað þarf að láta gera í
landi, telja flestir það litiu máli
skipta eða alls engu, hvort verk-
ið er gert í dag eða á morgun —
eða bara í næstu viku. Þetta
gengur okkur illa að þola, sem
vanir erum að vinna eftir
klukku eða a. m. k. dagatali. En
sjónarmið okkar skilja inn-
fæddir bara alls ekki. Það tók
mig einu sinni viku að fá lóðs
um borð til að færa skipið ör-
lítið. Annað er eftir því. Sein-
lætið er svo óskaplegt, að það
er ekki hægt að hugsa sér neitt
annað eins.
Sýndist þér fólkið myndar-
legt?
Mjög margt Asíufólk er frem
ur illa vaxið, slappt og dauft og
einhvern veginn hálf kræklótt.
Kannski er það af næringar-
skorti í uppvexti eða vaxarlag-
ið er bara svona. Eflaust gefa
ungir menn ungum stúlkum
hýrt auga, éins og gengur og
gerist. Ég held fæstum íslend-
ingum mundi lítast á kvenfólk-
ið, svona við fyrstu sýn. Sam-
göngurnar eru heldur lélegar á
sjó og landi. Veðurfregnirnar
koma stundum of seint, t. d.
sagt frá vonda veðrihu daginn
eftir að það skellur á.
Dýralífið á landi?
Tigrisdýrin sá ég ekki lifandi,
aðeins skinnin af þeim. Þau
voru seld á 12 þús. kr. stykkið,
eins og þau komu af skeppn-
unni. Af slöngum og höggorm-
um sá ég meira en nóg. Þessi
kvikindi voru allsstaðar. Við
ókum einu sinni yfir þriggja
álna slöngu, sem var að skríða
þvert yfir veginn. Hún dasaðist
og við rotuðum hana með trjá-
grein. Tamda fíla sá ég líka. Það
eru mikil dýr og vitur. Ekki eru
fílarnir liðlegir, en komast þó
leiðar sinnar yfir hvaða veg-
leysur og torfærur sem er. Þeir
eru mikið notaðir yið að flytja
tré úr skógunum að bílvegum.
Keðja er um háls þeirra, sem
bundin er í trén, sem flytja skal.
Ekki eru fílarnir teymdir, eins
og hestar, heldur er þeim bent.
Og þegar þeir eru búnir að fara
eina ferð, þræða þeir sömu slóð
ina. Svo sáum við náttúrlega
öll ósköp af fuglum, sem marg-
ir voru mjög litskrúðugir og
beinlínis fallegir, en fæsta
þeirra kann ég að nefna. Enn-
fremur sá ég hina stóru ög gráð
ugu hrægamma, sem eru eins-
konar sorpeyðingarstöðvar.
Ekki eru það fagrir fuglar. Yfir
leitt er bæði jurta- og dýralif
á landi bæði mikið og fjölskrúð
ugt. En hvorki hafði ég dýra-
fræðing eða grasafræðing við
hendina þegar í land var farið.
Ég vil svo að1 lokum leggja
áherzlu á, að þótt margt kæmi
undarlega fyrir sjónh' manns
norðan af íslandi og sumt jafn-
vel hörmulega, eins og ég hefi
áður sagt, ber að dæma varlega,
því til þess að dæma þarf mikla
þekkingu. Og þess ber þá einnig
að geta, sem vel ér og ber vott
um hið gagnstæða. En áð saman
lögðu held ég, að flesth' íslend-
ingar, sem þarna kunna að
koma eða dvelja lengur eða
skemur, geti glaðst yfir þeirri
ættjörð, sem þeir eiga, jafnvel
miklu meira að ferð lokinni,
segir Jón Sæmundsson skip-
stjóri að lokum og þakka ég við
talið. E. D.
Aðalfundur K. S.
(Framhald af blaðsíðu 1).
kr., sem er um 1 millj. hærra en
árið áður.“
„Hagur félagsins út á við hef-
ur versnað, sem m. a. stafar af
stórauknum afurðabirgðum.
Birgir Mjólkursamlagsins hafa
aukizt sem nemur um 10 millj.
kr. frá árinu áður — auk inn-
stæðu hjá Osta- og smjörsöl-
unni um áramót 7.3 millj. rösk-
lega, sem eru raunverulega
mjólkurvörubirgðir en ekki
gjaldkræf skuld fyrir áramót.
Birgðir ýmissa annarra inn-
lendrá vára hafa og aukizt, enda
mjög treg sala innanlands og
utan.“
Fiskiðja Sauðárkróks h.f. var
rekin með 1.3 millj. kr. halla og
skuldar kaupfélaginu um 5.3
millj. kr.“
Á árinu 1967 greiddi K. S. í
opinber gjöld — þar með talinn
söluskattur — 7.4 millj. kr. tæp-
ar, þar af til Sauðárkróksbæjar
rösklega 1.4 millj. Launagreiðsl
ur á vegum félagsins námu á
árinu, sem fyrr greinir, tæplega
32 millj. kr.
Ur félagsstjóm átti að ganga
Bessi bóndi Gíslason í Kýrholti,
er setið hefur í stjórn K. S. í 21
ár, en gaf nú ekki kost á sér til
endurkjörs. Þakkaði fundar-
stjóri Bessa sérstaklega farsæl
og óeigingjörn störf í þágu Kaup
félags Skagfirðinga, og tóku
fundarmenn undir með almennu
lófataki. Kosinn var í stjóm til
þriggja ára Jón bóndi Eiríksson
í Djúpadal. Aðrir í stjóm K. S.
eru: Tobías Sigurjónsson, Geld-
ingaholti, formaður, Gísli Magn
ússon, Eyhildarholti, vai’afor-
maður, Jóhann Salberg Guð-
mundsson, -Sauðárkróki, ritari
og Björn Sigtryggsson, F::am-
nesi, meðstjórnandi. Fram-
kvæmdastjóri er Sveinn Guð-
mundsson. Endurskoðendur eru
Ámi Gíslason, Eyhildarholti og
Vésteinn Véstemsson, Hofstaða
seli.
Ályktanir aðalfundarins bíða
næsta blaðs. □
Á stuðningsmannafundi Kristjáns Eldjárns á Akureyri 22. júní var þröng á þingi. (Ljósmyndasíofa Páls)
Fjöfmennur stuðningsmannafundur Krisfjáns Eldjárns á Ákureyri
STUÐNIN GSMENN KristjánS
Eldjárns í Norðurlandskjör-
dæmi eystra boðuðu til almenns
kynningarfundar á Akureyri sl.
laugardag, 22. júní. Upphaflega
var ætlunin, að þetta yrði úti-
fundur á íþróttavellinum, en
vegna vetrarveðurs á Akureyri
á laugardagsmorguninn var
ÞÓ AÐ MARGT sé ólíkt um
forsetaframbjóðendurna, Gunn-
ar Thoroddsen og Kristján Eld-
járn, þá hefur svo verið talið til
þessa, að framboð þeirra beggja
væru óháð stjórnmálaflokkum.
M. o. ö. stjórnmálaflokkarnir
voru ekki taldir eiga hlut að
framboðum þeirra. Á þetta hafa
báðir frambjóðendur, svo og
talsmenn þeirra, lagt áherzlu.
Enda er það rétt, að stjórnmála-
flokkamir réðu hvorugu fram-
boðanna. F'rambjóðendurnir
hafa báðir notið stuðnings
manna úr öllum stjórmnála-
flokkum. Er með sanni hægt að
segja, að eftir að framboðin voru
birt, hafi ríkt þegjandi samkomu
lag um hlutleysi blaða og stjórn
málaflokka. Þetta þegjandi sam
komulag hefur nú verið rofið að
nokkru leyti. Útgefendur Morg-
unblaðsins (H.f. Árvakur) lýsa
yfir því í forystugrein blaðsins
sl. sunnudag, að þeir hafi ákveð
ið að veita Gunnari Thoroddsen
fjdlsta stuðning í kosningunum.
í þessu sambandi er þó vert að
benda á, að Sjálfstæðisflokkur-
inn sem slí'kur hefur ekki tekið
flokkslega afstöðu með Gunnari,
þannig að ákvörðun útgefenda
Morgunblaðsins bindur flokks-
menn í sjálfu sér ekki.
Þessi ókvörðun Morgunblaðs
ins er harmsefni. Yfirleitt verð-
ur ekki annað sagt en að kosn-
ingabaráttan hafi farið skaplega
fram, — þótt með undantekn-
ingum sé —, og aðalástæðan til
þess að svo hefur verið er vafa-
laust sú, að dagblöðin og flokks
málgögnin hafa haldið sig utan
við deilurnar. Hin sérstöku kosn
ingablöð forsetaframbjóðend-
anna hafa gengt því hlutverki
að vera vettvangur umræðna og
deilna í kosningunum. Fer vel
á þessu, og æskilegt hefði verið,
að ]>essari baráttuaðferð hefði
verið haldið til loka. Svo mun
hætt við það, og fundurinn hald
inn í íþróttaskemmu bæjarins á
Gleráreyrum. Fundarsókn varð
geysimikil, eða um 2500 manns.
Er það langmesta fundarsókn í
mannaminnum hér nyrðra, enda
margir fundarmenn langt að
komnir. M. a. höfðu 50—60 bílar
Þingeyinga samflot vestur yfir
þó ekki verða að fullu og öllu
vegna ákvörðunar útgefenda
Mbl. Af einhverjum ástæðum
brast þá þolinmæði, og blaðið
gengur nú erinda Gunnars Thor
oddsens þvert ofan í yfirlýstan
vilja flokks þess, er að ‘blaðinu
stendur.
Ég vænti þess fyrir mitt leyti,
að önnur blöð virði drengskap-
arsættir flokka og stjórnmála-
blaða um hlutleysi í forsetakosn
ingunum, og þykir miður farið,
að Morgunblaðið skyldi bresta
þor til þess að gera hið sama.
- SJÁLFSBJÖRG
(Framhald af blaðsíðu 8).
verksmiðju og eru miklar vonir
við hana bundnar. Þar verður
meðal annars framleitt raflagna
efni.
Þingið gerði ýmsar markverð
ar samþykktir, sem væntanlega
verða birtar síðar.
(Úr fréttatilkynningu).
- Fermingarbarnamót
(Framhald af blaðsíðu 1).
nagla'boðhlaupi bæði við pilta og
stúlkur og höfðu þeir einnig
sigur þar. Um kvöldið var fjöl-
breytt kvöldvaka. Þar var með-
al annars leikþættir, upplestur,
söngur, einleikur á píanó og svo
heimsótti dr. Finnur Guðmunds
son fuglafræðingur mótið og
sagði frá rjúpunni og Hrísey.
Mótið sóttu sex prestar og um
240 börn. Veður var gott og ég
held að óhætt sé að segja að
mótið hafi tekizt vel.
í undirbúningsnefnd mótsins
voru: Staðarpresturinn sr. Kári
Valsson, Ingþór Indriðason far-
andprestur Olafsfirði og Stefán
Snævarr settur prófastur Völl-
um.
Völlum í Svarfaðardal,
4. júní 1968.
Vaðlaheiði og hefði þó orðið
miklu meiri sókn þaðan, éf söng
mót norðlenzkra karlakóra
hefði ekki verið háð þar þann
dag. Frú Halldóra og Kristján
Eldjárn voru á fundinum. Fund
arstjórinn, Árni Kristjánsson,
menntaskólakennari, bauð þau
velkomin, og lítil stúlka færði
frú Halldóru fagran blómvönd,
en fundai-menn risu úr sætum
og hýlltu þau hjónin með lófa-
taki. Þessir menn fluttu síðan
ávörp: Sigurjón Jóhannesson,
skólastjóri, Húsavík, Hreggvið-
ur Hermannsson, héraðslæknir
í Ólafsfirði, Eggert Ólafsson,
bóndi, Laxárdal, Þistilfirði, frú
Sigríður Angantýsdóttir, hús-
freyja, Akureyri, Árni Jónsson,
bókavörður, Akureyri, séra
Poplar Crescent, Saskatoon,
Sask., í Kanada, lézt af hjai'ta-
slag í Saskatoonborg 1. júní
1968, þar sem hann hafði átt
'heima sl. 19 ár. Jarðarför hans
fór fram frá kapellu útfarar-
stofu Saskatoonsborgar þriðju-
daginn 4. júní, kl. 3.30. Var hann
lágður til hvíldar í Woodlawn
kirkjugarði. Dr. Rex R. Dolan
jarðsöng.
Óskar var fæddur á íslandi 2.
nóv. 1898 og flúttist með for-
eldrum sínum og systkinum til
Winnipeg árið 1910. í fyrri
heimsstyrjöldinni gekk hann í
herdeildina Winnipeg Grená-
diers 78 og var 3 ár í !Frakk-
landi, bæði að Vimy Rídgé og
Somme. (Báðir þessir stáðir eru
frægir úr fyrri heimsstyrjöld-
inni fyrir miklar og mannskæð-
ar orustur, er háðar voru þar).
Var Óskar sæmdur heiðurs-
merki (Military Medal) fyrir
vasklega framgöngu þar.; • •
Óskar var lehgi bóndi í Eston;
Sask. og átti þar líka lengi verzl
un. Ennfremur var hann með-
eigandi í fyrirtæki í borginni,
Canada Dry, Ltd! í mörg ár.
Hann var félagi í mörguhi félög
um, svo sem: Royal Canadian
Legion, Saskatoon klúbbnum,
Verzlunarráði Saskatoon
(Board of trade), Eston Lodge
nr. 134 A.F. og A.M. Einnig var
Bolli Gústavsson, prestur í
Laufási, og Kristján skáld frá
Djúpalæk, sem mælti í ljóð-
stöfum. Loks flutti Kristján Eld
járn ávarp.
Lúðrasveit Akureyrar lék í
fundarbyrjun og við fundarlok,
Að fundinum loknum veittu
stuðningskonur kaffi í tveimur
samkomuhúsum, og hitti for-
setaefni menn að máli á báðum
þeim stöðum. Einnig skruppu;
þau hjónin í frystihús Ú. A., að
eindreginni ósk starfsfólksins í
frystihúsinu, ©n það komst ekki
á fundinn vegna anna við ný-
landaðan togaraíarm.
(Fréttatilkynning frá stuðn-
ingsmönnum Kristjáns Eld-
járns).
Fálkaorðunnar.
í seinni heimsstyrjöldinni var
hann flugformgi í nr. 2 Air,
Eston. Eftirlifandi kona hans er
Gladys Finnbogason. Systkini.
hans þrjú eru búsett á íslandi:
Albert Finnbo^nson. hóndi að
Hallkelshólum, Grímsnesi, frú
Borghildur Jónsdóttir, kona
Jakobs Frímannssonar, fram-
kvæmdastjÓTa, og frú Rannveig
Þór, kona Vilhjálms Þór, banka
stjóra.
Óskar varð 69 ára gamall.
(Tekið úr fréttablöðum frq
Saskatoon, Kanada).
INGVAR GÍSLASON, alþingismaður:
Ákvörðun NorgunbiðlSsins
Ós!
;ar rintiBCösso;
Saskatchewan landnemi dáinn
ÓSKAR FINNBOGASON, 213 w sæmdur riddarakrossi