Dagur - 03.07.1968, Blaðsíða 1
LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 3. júlí 1988 — 30. tölublað
FILMU kúsið
Hafnarstræti 104 Akureyri
Slmi 12771 • P.O. Box 397
SÉRVHRZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERiNG
UM HELGINA tóku menn eftir
því, að tvö hross á ísjaka rak
frá landi við ós Eystri-Héraðs-
vatna. Slysavarnamenn frá
Sauðárkróki réru út að jakan-
um og steyptu hrossin sér þá til
sunds og héldu til lands. Reynd
ust þetta vera trippi frá Hellu-
landi í Hegranesi.
Menn geta ímyndað sér hve
slíkt hefði örvað ímyndunar-
aflið, ef til trippanna hefði sézt
í rökkri og þeim ekki verið
bjargað! □
HVITTÚN
HINN 28. júní var aðalfundur
Búnaðarsambands Norður-Þing
eyinga haldinn á Kópaskeri. Þar
voru mættir fulltrúar úr iillum
búnaðarfélögum sýslunnar. Þar
var einnig staddur Pálmi Ein-
arsson landnámsstjóri og flutti
liann erindi á fundinum. En
aðalmál fundarins voru þær
ógurlegu kalskemmdir, sem nú
eru í sýslunni og yfirgnæfa önn
ur vandamál bændanna um þess
ar mundir. Álitið er, að þrír
fjórðu hlutar af öllum túnum í
sýslunni séu skemmdir af kali.
Geta menn af því séð, að hér er
á ferðinni stórkostlegt vanda-
Frú Ilalldóra Ingólfsdóttir. Doktor Kristján Eldjám.
mál.
Bjarni Guðleifsson jarðfræð-
ingur hefur rannsakað kal túna
sérstaklega í Svalbarðshreppi
og Axarfjarðarhreppi, á vísinda
legan hátt. En hann er búfræði-
kandídat frá Ási í Noregi og hef
ur þar sérstaklega kynnt sér
frostkal. Hann hefur frá því
sagt, að í Svalbarðshreppi séu
kal túna 78%. Þeir hlutar túna í
sýslunni, sem minnst eru
skemmdir, eru ársgamlar ný-
ræktir.
Ymsar ályktanir voru gerðar
á þessum aðalfundi, sem e. t. v.
verða síðar birtar. En hagur
bænda austur þar er mjög erfið
ur, eftir þrjú liarðindaár í þeim
landshluta. □
f FORSETAKOSNINGUNUM
30. júní sigraði dr. Kristján Eld-
járn með miklum yfirburðum.
Hann hlaut 67.564 atkvæði en
dr. Gunnar Thoroddsen hlaut
35.438 atkvæði. Dr. Kristján
hlaut yfir 60% atkvæða í öllum
kjördæmum landsins.
Dr. Kristján Eldjárn tekur \ið
embætti 1. ágúst en dr. Gunnar
Thoroddsen hverfur afíur til
Hafnar og verður áfram sendi-
herra íslands. Þegar kosninga-
úrslit voru kunn sendi dr. Gunn
ar hinum nýkjörna forseta
heillaóskir en dr. Kristján þakk
aði þjóðinni hið mikla traust.
Urslit kosninganna í hinum
einstöku kjördæmum urðu
þessi:
REYKJAVÍK.
Gunnar Thoroddsen 16900 atkv.
Kristján Eldjárn 26460 atkv.
Nokkur æviafriði hins nýkjörna forseta
HINN 30. júní var dr. Kristján
Eldjárn kjörinn forseti íslands
og tekur >h.ann við embætti um
næstu mánaðamót. Hann er
fæddur á Tjcirn í Svarfaðardal
6. desember 1916, sonur hjón-
anna Þórarins Eldjárns Kristj-
ánssonar og Sigrúnar Sigur-
hjartardóttur. En Þórarinn og
Sigrún bjuggu á Tjörn frá 1913
—1959 og þar býr nú Hjörtur
sonur þeirra. Ættir hins ný-
kjörna forseta verða hér ekki
raktar, en forfeður hans voru
margir kunnir menn í klerka
og bændastétt og faðir hans,
sem enn lifir er óumdeildur
gáfu- og drengskaparmaður,
sWp?: >*:;
sem notið hefur mikils trúnaðar
í héraði og heimili hans og Sig-
rúnar heitinnar konu hans var
mikið menningarheimili.
Kristján Eldjárn óx upp með
foreldrum sínum í Svarfaðardal
og í hópi systkina sinna: Þor-
bjargar, húsfreyju í Reykjavík,
Hjartar, 'búfræðikandídats og
bónda á Tjörn og Petrínar, hús-
freyju á Akureyri. Fjórtán ára
gamall tók hann próf upp í ann-
an bekk Menntaskólans á Akur
eyri og útskrifaðist þaðan stúd-
ent 1936 með lofsamlegum vitn-
isburði því hann var mikill og
fjölhæfur námsmaður. Sama ár
sigldi hann utan til náms í
(Framhald á blaðsíðu 7)
REYKJANESKJORDÆMI.
Gunnar Thoroddsen 5908 atkv.
Kristján Eldjám 10876 atkv.
VESTURLANDSKJÖRDÆMI.
Gunnar Thoroddsen 2168 atkv.
Kristján Eldjárn 4455 atkv.
VESTF J ARÐ AK J ÖRDÆMI.
Gunnar Thoroddsen 1796 atkv.
Kristján Eldjárn 3284 atkv.
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI
VESTRA.
Gunnar Thoroddsen 1709 atkv.
Kristján Eldjárn 3486 atkv.
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI
EYSTRA.
Gunnar Thoroddsen 2697 atkv.
Kristján Eldjárn 8528 atkv.
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI.
Gunnar Thoroddsen 1099 atvk.
Kristján Eldjám 4655 atkv.
SUÐURLANDSKJÖRÐÆMI.
Gunnar Thoroddsen 3161 atkv.
Kristján Eldjárn 5820 atkv.
Á kjörskrá í þessu*n forseta-
kosningum voru 113.719. At-
kvæði greiddu 103.907. □
Kór háskólanema í heimsókn hér
Hefur sungið í Bandaríkjunum og Ríisslandi
KÓR háskólanema (The Elíza-
bethan Madrigal Singers) frá
Wales í Englandi er á ferðalagi
urn ísland. Kórinn hefir á und-
anförnum árum heimsótt mörg
lönd m. a. Þýzkaland, Banda-
ríkin, Kanada, Rússiand og
ítalíu og sungið víða í þessum
löndum við mjög góðar undir-
tektir. Félagar í kómum eru um
tuttugu og stjórnandi er Jchn
Hearne nemi í tónlistarháskóla.
Hér norðanlands mun kórinn
syngja á tveim stöðum. Miðviku
daginn 10. júlí syngur hann í
Ólafsfjarðarkirkju kl. 9 e. h. og
fimmtudaginn 11. júií í Akur-
eyrarkirkju á sama tíma. □