Dagur - 03.07.1968, Blaðsíða 2
2
f JÚNÍMÁ.NUDI nálgast ævin-
týrafiskurinn, laxinn, landið og
í þessum mánuði eru laxagöng-
ur mestar upp í veiðiárnar. Sagt
var fyrrum, að enginn vissi
hvaðan vindurinn kæmi eða
hvert hann færi. Nú hafa veður
fræðingar kollvarpað þeirri
'kenningu. En ennþá má segja
það um laxinn, að lítið er um
það vitað, hvaðan hann kemur.
Hinsvegar hefur það aldrei ver-
ið neitt leyndarmál, hvert hann
- FÖIÍDREÍFAR
(Framhald af blaðsíðu 5).
ályktanir af því sem að eyrum
berst. Sannleikanum er oft ekki
trúað vegna þess að hann virðist
lygilegur og svo öfugt. En hv.aða
sögu hefir lögreglan að segja
eða prestarnir og öll þau ráð og
nefndir, sem starfrækt eru til
að halda umgengni manna og
velsæmi í réttu horfi.
ÞOTT fi'amangreindir liðir séu
ömurleg staðreynd, er þó hitt
engu síður hryggilegt, að sífellt
hallast á ógæfuhliðina, þrátt
fyrir þakksamlega viðleitni
margra mætra manna, að
sporna við þessum ásækna ætt-
jarðar-ósóma. Að % hlutar
þjóðarinnar geti talizt þjóð-
ræknari þegnar vegna þessa
innleggs í ríkissjóðinn, er eitt-
hvert óskaplegasta öfugmæli,
sem hugsað hefir verið og bor-
ið í munn íslenzkrar tungu.
AÐ íslendingar geti orðið ein
sál eða einn vilji eins og látið er
í veðri v.aka á jDessum síðustu
tímum, er lítt hugsandi, að það
verði í þessum hlutum, fyrr en
straumarnir taka að renna und-
an rifjahylkjum erlendra áhrifa
manna. Sem sagt, hér er um
mikilvægt rannsóknarefni að
ræða, m. a. hvort það eru lægst
launuðu þegnarnir eða auðkýf-
ingarnir, sem verja fjármunum
sínum á þennan veg. Einnig
hvort jafnrétti kynjanna á hér
orsök að, eða velsæmisfyrir-
myndir bregðist skyldu sinni.
ÞÓTT hægt sé að benda á ýmsa
menn, sem ölkærir hafa verið
og eru, er engin sönnun fyrir
því, ef lausiJJ hefðu vei-ið við
þann löst, nema þeir hefðu orð-
ið enn nýtari menn í þjóðfélag-
inu sínu. Það er við ekkert ann-
að hægt að miða en manninn
sjálfan, eins og hann kemur
fram hverju sinni, annað er ráð
gáta ein. Hitt er vitað að marg-
ur maðurinn hefir aðhafzt það
ölvaður, sem hann sízt vildi hafa
aðhaftst alls gáður. Og að síð-
ustu er öllum gott að hugfesta
það, að hvernig sem mál ráðast
í þjóðfélögum, þá er sitthvað
vakl en vilji og það getur orðið
óheillaþúfa, ef misskilið er.
EGÓ
fer. Hann gengur upp í þær ár,
sem ólu hann ungan og þar eyk
ur hann kyn sitt en gengur síð-
an til sjávar á ný. En um ferð-
ir hans í djúpum haísins vita
menn lítið ennþá.
Laxinn vex upp í ánum, í
göngustærð. Þá er hann bæði
magur og mjór og ekki girnast
menn hann á því aldursskeiði.
En útþráin býr með þessuni litla
fiski, sem nánast er enn seiði,
og náttúran býr hann til íerðar.
Hann fær að vísu ekki nesti og
nýja skó, eins og karlssonur í
koti, en hann skiptir að nokkru
um lit, sem er betur við hæfi í
upphafi langrar ferðar. Eðlis-
ávísun hans beinir honum svo
til æskustöðvanna, stórum og
þroskuðum eftir eitt eða fleiri
ár og þá segir veiðigleði manns
ins til sín í orði og athöEn. Lög
landsins banna þó laxveiði í sjó
og verður því að bíða hans þar
til hann hefur vanizt ferskvatn
inu í árósnum og hefur synt
upp eftir ánni, stundum miklar
torfærur.
Laxveiðimenn eru þegai' byrj
aðir að veiða. Um helmingur
Jress magns, sem árlega veiðist
í laxám landsins, er veiddur á
stöng. Á skömmum tíma hafa
Á AÐALFUNDI Kaupfélags
Skagfirðinga, sem frá var sagt
í 28. tbl., voru samþykktar m. a.
svofelldar tillögur:
„Aðalfundur Kaupfélags Skag
firðinga, haldinn á Sauðárkróki
14. og 15. júní 1968, skorar á
ríkisstjórnina að gera ráðstaf-
anir og veita fjárhagslega fyrir-
greiðslu til þess, að helztu fóður
vöruverzlanir í þeim héruðum,
sem hafíshætta vofir yfir, geti
tryggt sér fyrir hver áramót a.
m. k. 4—5 mánaða birgðir af
fóðurvörum og öðrum lífsnauð-
synjum.“
I. „Aðalfundur Kaupfélags
Skagfirðinga, haldinn á Sauð-
árkróki 14. og 15. júní 1968,
mótmælir harðlega úrskurði
meirihluta yfirdóms í verðlags-
málum landbúnaðarins í dés-
embermánuði s.L, þar sem brot-
inn er tvímælalaust réttur
bændastéttarinnar til sambæri-
legra tekna við aðrar stéttir,
samanber 4. gr. laga nr. 101 frá
1966, og lýsir undrun sinni yfir
því, að ekki skyldi vera tekið
tillit t il framlagðra gagna um
kjarnfóðurkaup og áburðar, svo
og fleiri rekstrarkostnaðarliða.
II. Með tilliti til hins ranga
úrskurðar yfirnefndar sem cg
þess, að bændastéttin hefur að
ur.danförnu átt við að búa harð-
ara ái'ferði en áður um langt
íslendingai' tileinkað sér stang-
veiði, að hætti erlendra manna,
sem veitt hafa í íslenzkum ám
um tugi ára. Og nú er svo kom-
ið, að veiðiárnar eru metnar til
mikilla peningaupphæða og jafn
framt athugaðir mcguleikar á
því, að gera þær ár laxveiðiár,
sem ekki hafa verið það áður,
enda gerir laxaklak og eldi lax-
fiska í göngustærð það mögu-
legt, þótt viðkomandi ái' séu
þess ekki umkomnar, að ala upp
sinn eigin stofn.
Félög laxveiðimanna annars
vegar og félög landeigenda við
laxárnar eru nú orðin mörg hér
á landi. Leyfi til að veiða lax á
stöng einn dag kostar eitt til
þrjú þúsund krónur og má af
því ráða, hve verðmætur veiði-
rétturinn er. Hinu er svo ekki
aS leyna, að enn hefur ekki skap
azt sú hefð eða sjálfsagðar venj
ur við stangveiðar almennt, sem
margir erlendir veiðimenn hafa
tileinkað sér og er til fyrirmynd
ar hvað snertir umgengni við
árnar sjálfar og aðra veiðimenn,
en í þessu efni erum við þó á
réttri leið. Veiðiþjófnaðui' er
enn til og verður að taka hart á
slíku. Settum reglum við veiði-
ár er mörgum örðugt að virða
skeið, átelur fundurinn þá af-
stöðu ríkisstjórnarinnar, að
synja þverlega þröfum auka-
fundar Stéttarsambands bænda
í febrúarmánuði s.l., m. a. um
niðui'greiðslu á áburðarverði,
svo að nærri stappar neyðar-
ástandi víða um land.
III. Þar sem afurðalán til
landbúnaðai'ins hafa, miðað við
hækkandi verðlag á rekstrai'-
vörum og vaxandi framleiðslu
búvara, farið lækkandi undan-
farin ár, til stórtjóns fyrir
bændastéttina og þau fyrirtæki,
sem hafa með höndum sölu
landbúnaðarvara, skorar fund-
urinn á landbúnaðarráðherra að
beita sér fyrir því innan ríkis-
stjórnarinnar, að afurðalánin
verði aukin frá því, sem þau
eru nú.“ □
Kjarvalssýning
HINN 30. júní lögðu 8—10 þús.
manns leið sína á sýningu Kjar-
vals í Listamannaskálanum. Sýn
ingarskrár seldust þann dag fyr
ir 121 þús. kr. Kostar skráin 100
krónur en þar er happdrættis-
miði innifalinn.
Málverkasýning Kjarvals hef
ur nú staðið í 3 vikur og aðsókn
in verið mjög mikil, svo sem
jafnan á sýningum hans. □
að fullu. Þeir, sem ekki njóta
nokkurs við veiðiá, nema að
draga fisk á land, ættu ekki að
kaupa mjög dýr veiðileyfi.
Hver veiðiá syngur með sínu
nefi, einnig hver foss og flúð og
blár, hvítfyssandi strengur. Ef
sá söngur snertir ekki veiði-
mann, hefur heyrnarlaus maður
villzt á hljómleika.
Stangveiðin á að göfga veiði-
manninn auk þess að veita hon-
um hvíld frá daglegum störfum.
En þá verður hann að bera virð
ingu, ef ekki lotningu fyrir ánni
og íbúum hennar, gróðri og
grjóti, lífi fugla og ferfætlinga
— sem í endurminningunni verð
ur samofinn ævintýraheimur,
og gerir menn að betri mönn-
um. □
55. ÁRSÞING Héraðssambands
Suður-Þingeyinga var haldið
16. júní 1968 í félagsheimilinu í
Köldukinn í boði umf. Gaman
og alvara. Mættir voru fulltrúar
frá öllum sambandsfélögunum
11 að tölu, auk gesta sem voru:
Gísli Halldórsson forseti ÍSÍ,
Stefán Kristjánsson formaður
SKÍ, Valdimar Oskarsson stjórn
armaður UMFÍ, Þóroddur Jó-
hannsson framkvæmdastjóri
UMSE og Sveinn Jónsson for-
maður UMSE. Ársþingið var
haldið mun seinna en venja er
og stafar það af vondu tíðarfari
í vetur og inflúensu í vor.
Formaður HSÞ, Óskar Ágústs
son, setti þingið og skipaði þing
forseta Sigurð Sigurbjörnsson,
Björgum og Þráin Þórisson,
Skútustöðum, og fundarritara
Gunnlaug Tr. Gunnarsson, Kast
hvammi og Eystein Sigurðsson,
Arnarvatni. Þá flutti formaður
skýrslu stjórnar sambandsins
sem lögð var fyrii' þingið prent-
uð. Ljóst var af skýrslu stjórn-
ar að starfsemi sarrtbandsins
hafði verið mjög margþætt og
umfangsmikil. Arngrímur Geirs
son gjaldkeri las og skýrði reikn
inga sambandsins. Voru niðui'-
stöðutölur rekstrarreiknings um
481.000.00 kr. og rekstrarafgang
ur um 38.000.00 kr. Eignir sam-
bandsins námu um 518.000.00
kr. Stærstu gjaldaliðir eru til
kennslu og þjálfunar 124.050.00
kr. og þátttaka í mótum
98.344.00 k-r., en stærstu tekju-
liðir styrkir 100.906.00 kr. og
íþróttamót og skemmtanir
185.605.00 kr.
Eftir matai'hlé tóku gestir
þingsins til máls, en að því
loknu hófust framsöguræður
um hin einstöku mál sem lágu
fyrir þinginu. Kl. 6 skiluðu
nefndir störfum og verður nú
getið helztu tillagna sem komu
fram:
HVER BLETTUR
SLEGINN
TALIÐ ER, að víða um land
verði hver sláandi blettur lands
sleginn, jafnvel þótt þar þurfi
að vinna með orfi og hrífu að
gömlum sið. En á ýmsum stöð-
um eru harðvellislönd, sem bera
þyrfti á tilbúinn áburð nú þeg-
ar, í von um uppskeru seint í
sumar. Hefur búnaðarmála-
stjóri hvatt til þessa og væntan-
lega verður það tekið til greina
eins og unnt er. Sýnt er nú þeg-
ar, að hey á næsta hausti verð-
ur dýr vara og dýrmætari eign
en flest annað. Q
Gjaldeyrissíaðan
SAMKVÆMT fréttatilkynningu
Hagstofunnar hefur vöruskipta
jöfnuður í maímánuði verið
óhagstæður um tæpar 163 millj-
ónir kr. en var á sama tíma í
fyrra óhagstæður um 288 millj.
Útflutningur nam nú um 461
millj., en 374 millj. í fyrra og
hefur því aukizt að verðmæti
um tæpar 90 millj.
Sé litið á tímabilið frá árs-
byrjun, hefur verðmæti útflutn
ings fremui' minnkað, en verð-
mæti innflutnings aukizt svo að
vöruskiptajöfnuðurinn hefur
verið um 235 millj. óhagstæðari
það sem af er þessu ári en 1967.
MINNINGARSPJÖLDIN fyrir
kristniboðið í Konsó fást hjá
frú Sigríði Zakaríasdóttur,
Gránufélagsgötu 6. — Sími
11233.
Fundurinn lítur svo á að HSÞ
hafi sízt minni ástæðu en önnur
héraðssambönd til að vinna að
landgræðslumálum og samþykk
ir að kjósa nefnd til að annast
framkvæmdir í því máli svo
fljótt sem verða má og hafi hún
samband við Landgræðslu rík-
isins.
Ársþing HSÞ samþykkir að
komið verði á spurningakeppni
milli hreppsfélaga á sambands-
svæði HSÞ og verði 3 mönnum
falið að sjá um framkvæmd
hennar.
Aðalfundur HSÞ leggur til að
leitað verði samstarfs við UMSE
um framkvæmd fjölþrautar-
móta í framtíðinni.
Aðalfundur HSÞ felur stjórn
sambandsins að semja reglu-
gerð fyrir ’bikarkeppni unglinga
liða HSÞ og leggui' til að mótið
verði haldið 18. ágúst. Síðan
verði haldið mót á Laugum 1.
sept. sem boðið sé til keppend-
um frá öðrum héraðssambönd-
um.
Aðalfundur HSÞ leggur til að
íþf. Völsung verði falið að sjá
um héraðsmót HSÞ á skíðurn
veturinn 1968—1969. Ennfrem-
ur leggur nefndin til að ráða-
menn Laugaskóla stuðli að efl-
ingu skíðaíþróttai'innar meðal
nemenda.
Eftirfarandi frjálsíþróttamót
voru ákveðin: Héraðsmót HSÞ
27.-28. júlí og unglingakeppni
HSÞ 18. ágúst.
Úr stjórn sambandsins áttu að
ganga: Óskar Ágústsson, Stefán
Kristjánsson og Arngrímur
Geirsson og voru þeir allir end-
urkosnii'. Stjórn HSÞ er þannig
skipuð: Óskar Ágústsson, for-
maður, Vilhjálmur Pálsson,
varaformaður, Sigurður Jóns-
son, ritari, Arngrímur Geirsson,
gjaldkeri og Stefán Kristjáns-
son, meðstjórnandi.
Fréttaritari HSÞ.
ÁRSÞING HSÞ