Dagur - 08.08.1968, Page 1
EFNAVERKSMIOJAN SJÖFN
LI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 8. ágúst 1968 — 33. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SERVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
OpnuS skrilstofa Félags
sjónvarpsáhugamanna
FÉLAG sjónvarpsáhugamanna
á Akureyri og nágrenni hefir að
undanförnu verið að safna upp-
lýsingum og tilboðum í sjón-
varpstæki og loftnet fyrir þau,
sem verða hér til sölu.
Mun félagið nú opna skrif-
stofu þar sem félagsmenn geta
kynnt sér þessar upplýsingar
áður en þeir ákveða sig um
kaup á tækjum. Á skrifstofunni
verða einnig' afhent félags-
slcírteini.
Skrifstofan verður í húsnæði
Tækniskólans á efstu hæð húss
Búnaðarbanka íslands, Geisla-
götu 5. Verður hún fyrst um
sinn opin frá kl. 5—-7 síðdegis
frá mánudeginum 12. þ. m. virka
daga nema laugardaga. Umsjón
með skrifstofunni hefir Aðal-
geir Pálsson rafmagnsfræðingur
og Jónatan Klausen útvarps-
virki. — (Fréttatilkynning).
SAMKVÆMT umsögn lögregl-
unnar á Akureyri var hin mikla
umferðarhelgi sem kennd er við
verzlunarstéttina, mjög slysa-
Greiðsluþrot 1
og stöðvun? I
SAMKVÆMT fréttatilkynn- I
ingu Sölumiðstöðvar hrað- %
frystihúsanna og Sambands j/
fiskframleiðenda, hefur ríkis ý
valdið enn þrjóskazt við ósk- Z
um fiskiðnaðarins um úr- %
bætur í málefnum hans. Af %
fréttatilkynnÍMgunum verður ý
naumast annað skilið en j/
greiðsluþrot og stöðvun fyr- 4
irtækjanna séu á næsta leiti, 4
að óbreyttu. X
Sölu- og flutningatregða %
fiskafurða er slík, að á sum- j'
um stöðum eru fiskveiðar
stöðvaðar vegna rúmleysis í ¥
frystihúsunum. □ %
*$>4©4<8><S*S>444<ÍKS><e>3^^
SjÁLFVIRKUR SÍMI
í HRÍSEY
Á FÖSTUDAGINN var opnuð
sjálfvirk símstöð í Hrísey og
eru símnúmer 60 talsins en bráð
lega verður bætt við 30. Við-
staddur var umdæmisstjóri,
sýslumaður, hreppsnefnd Hrís-
eyjar o. fl. Þessari framkvæmd
fagna allir Hríseyingar. S. F.
lítil. Aðfaranótt sunnudags valt
bíll norðan Fagraskógar. Grun-
ur leikur á, að bílstjórinn, sem
var einn í bílnum, hafi verið
ölvaður. Hann slapp lítt eða
ekki meiddur.
Presthjónin á Skútustöðum
slösuðust í bílaárekstri á Mý-
vatnsöræfum á sunnudaginn og
voru þau flutt í sjúkrahús á
Akureyri. Þau skárust í andliti.
Að öðru leyti urðu ekki telj-
andi slys. □
Dr. Kristján Eldjárn undirritar eiðstafinn.
©-7 *^©'H;S^<^*'^©'K5S-©'H!'rS-©'7*S'©'>-*S'©4'*'^ ©'>'*■)'©
ö f
I
í
I
i
Landbúnaðarsýningin
LANDBÚNAÐARSÝNINGIN í Laugardal verður opnuð 9.
ágúst n. k. og stendur til 18. ágúst. Biinaðarfélag fslands og
Framleiðsluráð landbúnaðarins standa að sýningunni, sem
verður sú yfirgripsmesta, sem haldin hefur verið hérlendis.
Tilgangurinn er að sjálfsögðu sá, að kynna framleiðsluna og
þróun þessa atvinnuvegar og þýðingu landbúnaðar og hlut-
verk. Hér er um að ræða búfjársýningar, vélasýningar, iðn-
sýningar, hlunnindasýningar, ásamt sögu- og þróunarsýn-
ingu. Um 60 þátttakendur kynna og sýna og má af því ráða
fjölbreytileika þessarar sýningar.
Mjög væri æskilegt, þótt annatími sé, að sem flestir ættu
þess kost eða sæu sér fært að sjá sýninguna í Laugardal, því
hún mun verða hin fróðlegasta og auka mjög skilning á hinu
mikla hlutverki, sem landbúnaðurinn gegnir meðal þjóðar-
innar og um þessar mundir á í verulegum erfiðleikum. □
; > Á mánudaginn var nýja dráttarbrautin á Akureyri reynd. Snæfell var fyrsta skipið, er tekið var «
og reyndist brautin eins vel og til stóð. Vígsla togbrautarinnar mun verða í næsta mánuði. «
(Ljósm.: E. D.) «
Er síldin gengin í Húnaflóann?
Skagaströnd 6. ágúst. Undan-
farnar vikur hefur verið gerður
út einn bátur á togveiðar og 4—
5 færabátar og hafa þeir aflað
sæmilega. Hefur því verið mikil
vinna í hraðfrystihúsinu Hóla-
nesi h.f., sem er eina hraðfrysti-
húsið á Skagaströnd.
Dettifoss tók 3 þús. kassa af
fiski á Skagaströnd á laugar-
daginn og von er á tveim skip-
um öðrum til að taka fisk og
fiskimjöl. Núna, þegar bátamir
fóru út eftir helgina, tilkynnti
frystihúsið, að framvegis yrði
ekki tekið á móti minni fiski en
53 cm.
Fyrir skömmu fannst síld í
Húnaflóa og hefur væn síld, full
rauðátu komið í trollið hjá
Helgu Björgu og fleiri bátum.
Hér er mikill áhugi á því, að
þetta sé rannsakað nánar.
Elzti borgari kauptúnsins,
Gísli Einarsson fyrrum bóndi í
Viðvík á Skagaströnd, varð 93
ára í gær. Hann er vel ern. X
SLYSALÍTIL HELGI
Nýr lorseli lók við embætti fyrsta ágúsl
Dr. Kristján Eldjárn
HINN 1. ágúst sl. tók hinn ný-
kjörni forseti íslands, doktor
Kristján Eldjárn við embætti,
við hátíðlega athöfn, fyrst í
Dómkirkjunni, þar sem biskup-
inn, herra Sigurbjörn Einarsson
flutti ávarp. En í Alþingishúsinu
lýsti forseti Hæstaréttar, Jóna-
tan Hallvai'ðsson, forsetakjöri,
las kjörbréfið og eiðstafinn, sem
hinn nýi forseti síðan undirrit-
aði. Að því búnu gengu forseta-
hjónin út á svalir Alþingishúss-
ins og mannfjöldinn hyllti þau.
Síðan flutti 'hann þjóðinni
ávarp. Viðstaddir athöfn þessa
undirritaði eiðstafinn og
í Dómkirkju og Alþingishúsi
voru ráðherrar, hæstaréttardóm
arar, sendimenn erlendra ríkja,
formenn ýmsra landssamtaka,
að ógleymdum fráfarandi for-
seta, herra Ásgeiri Ásgeirssyni.
Þótti athöfnin hin virðulegasta.
Forseti íslands, dr. Kristján
Eldjárn bar gullfesti forseta-
embættisins en forsetafrúin,
Halldóra Ingólfsdóttir, klæddist
skautbúningi.
Ávárp forsetans.
Nýkjörinn forseti íslands,
dr. Kristján Eldjárn, minntist
flutti þjóðinni ávarp
í upþhafi ávarps síns fyrri for-
seta landsins, þeirra Sveins
Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirs
sonar á virðuegan og verðugan
hátt. Síðan vék hann að nútíð
og framtíð og mælti þá m. a.:
„Þegar ég nú hef tekið við
embætti forseta íslands, sem
þessir tveir ágætu menn hafa
gegnt á undan mér, verður mér
það fyrst að hugsa til ættjarðar-
innar og sögu 'hennar, sem er
örlög þjóðarinnar í blí'ðu og
stríðu. Oft hef ég sett mér fyrir
hugskotssjónir þetta eyland í
(Framhald á blaðsíðu 2).
I- <3
•*->-©-H*4-<^*4-©'í'#'>-©'H*'4-©-V*'1-©-H;fr©©'1'*©©'E'*'í'©'**S-©'H:i^©-1-*S'©
GOÐAR HORFUR MEÐ HEYSKAP
OG KARTÖFLUUPPSKERUNA
SAMKVÆMT viðtali við Skúla
Jónasson kaupfélagsstjóra á
Svalbarðseyri, hefur heyskapur
gengið mjög vel á Svalbarðs-
strönd og margir langt komnir
með tún sín og von um háar-
sprettu nokkur. Verkun heyj-
anna hefur tekizt með ágætum.
Um heymagn er enn ekki gott
að segja, en sennilega verður
það ekki minna en í fyrra.
Því miður var lítið sett niður
af kartöflum því útlit með
kartöflusprettuna er orðið sæmi
legt, svo mjög hefur sprottið
síðan hundadagar byrjuðu. Þá
kom sú hitabylgja, sem enn
stendur.
Veiði hefur verið mikil og góð
í Fnjóská í sumar. Hafa að jafn-
aði veiðzt 10—12 laxar á dag á
neðsta veiðisvæðinu og nú er
laxinn einnig genginn á mið-
svæðið. Bleikjugengd er einnig
talsvert milcil í Fnjóská í sum-
ar.