Dagur - 05.10.1968, Qupperneq 7
BIFREIÐAVERKSTÆÐI - BIFREIÐAEIGENDUR
Lj ósasamlokur
6 — 12 og 24 volta
Bílaperur og stefnuljósablikkarar
6 — 12 og 24 volta
mar
Varahluta verzlun
FRÁ
Félagi sjónvarpsáhugamanna
ÁAKUREYRI
Félagsstjórnin hefur ákveðið að taka tilboði Raforku
h.f. um uppsetningu sjónvarpsloftneta.
Félagsmönnum, sem óska að notfæra sér þessa þjón-
ustu, er bent á að snúa sér til Raforku h.f. og sýna fé-
lagsskírteini sín.
Stjómin.
Bílíiámera-happdrættið 1968
Vinningar: Þrjár bifreiðar eftir frjálsu vali.
Verð miðans er 100 kr. Dregið á Þorláksdag.
Þeir Akureyringar og Eyfirðingar, semækki hafa feng-
ið happdrættismiðann með eigin bílnúhieri heimsend-
an, geta vitjað hans til undiritaðs.
JÓHANNES ÓLI SÆMUNDSSON
Lönguhlíð 2, Akureyri (Verzlunin Fagrahlíð).
■?
f
f
é
| ÞAKKARÁVARP.
Mínar alúðarfyllstu pakkir færi ég öllum þeim vinum
S og skyldmenmim, ffær og nær, er minntust min d 60
í ára afmæli mínu 25. september s.l. með heimsóknum,
S gjöfum og skeytum, og gerðu mér daginn ógleyman- %
I
í
lega gleðistund.
, Sérstakar þakkir flyt ég kirkjukór Gfenivíkurkirkju ©
t fyrir fagra og liöfðinglega gjöf, um leið og ég flyt því
$ fólki þakkirmínar fyrir ómetanlegt samstarf — i kirkju
f og utan — á liðnum árum. f
f Þá vil ég þakka ykkur börnum mínum, tengdabörn- f
é um og barnabörnum, fyrir fagr.ar og góðar gjafir til X
$ okkar foreldra ykkar, um þessi timamót. f
± Guð og gæfan fylgi ykkur öllum.
INGOLFUR BENEDIKTSSON,
Dal.
f
I
*
Elsku litli drengurinn okkar
DANIEL VIÐAR
lézt af slysfömm 1. október. — Jarðarförin fer fram að
Möðruvöllum í Hörgárdal, þriðjudaginn 8. þ. m. kl.
2 e. h.
Kristjana Ólafsdóttir,
Finnur Hermannsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda saxnúð og vináttu við
andlát og útför fóstursystur minnar
PÁLÍNU SIGURVEIGAR JÓNSDÓTTUR.
Guðrún Árnadóttir
og aðrir ættingjar.
OKKUR VANTAR
UNGLING
EÐA
KRAKKA
til að bera út blaðið í
efri hluta Glerárhverfis.
AFGREIDSLA DAGS
Sími 1-11-67
- Stofnaukinn
númer þrettán
(Framhald af blaðsíðu 5).
efnalega afkomu, ef við van-
rækjum skyldur okkar við þá,
sem við taka.
Viðtalinu er lokið og ég
þakka svörin. Ég finn það enn
einu sinni, hver sálubót það er,
að ræða við kjarnafólk í bænda
stétt — ræða við það fólk, sem
enn er kjölfestan í þjóðfélagi
okkar. E. D.
Enn fara íslendingar á Ólympíiileika
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 6. okt. Sunnu-
dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn
4 ára og eldri hjartanlega vel-
komin. Samkoma kl. 8.30 e. h.
Vitnisburðir. Ræða. Almenn-
ur söngur. Allir hjartanlega
velkomnir. — Kristniboðsfé-
lag kvenna, KFUM og KFUK.
Á LAUGARDAGINN héldu 8
íslenzkir íþróttamenn áleiðis til
Olympíuleikanna, sem að þessu
sinni verða háðir í Mexikó. Far
arstjóri er Björn Vilmundarson
en þjálfari Siggeir Siggeirsson.
íþróttamennirnir eru þessir:
Óskar Sigurpálsson lyftinga-
maður, Guðmundur Hermanns-
son kúluvarpari, Jón Þ. Ólafs-
son hástökkvari, Leiknir Jóns-
son sundmaður, Valbjörn Þor-
láksson tugþrautarmaður, Guð-
mundur Gíslason sundmaður og
Hrafnhildur Guðmundsdóttir og
Ellen Ingvadóttir sundkonur.
Olympíuleikarnir eru taldir
2700 ára gamlir, stofnaðir þeim
guði til dýrðar, sem Hellenar
töldu búa í Olympsfjalli. Hlaup-
ið var fyrsta íþróttagreinin. Kon
um var bannað að horfa á
keppnina og frjálsum mönnum
einum leyfðist þátttaka. Síðan
bættust fleiri greinar við. Kepp-
endur sóru eiða við altari Seifs,
sem var æðstur Olympsguða í
forngrískri goðafræði. Sigur-
vegarar hlutu pálmagrein í sig-
urlaun og múgurinn bar þá á
höndum sér.
En þessir sögulegu leikar lágu
niðri um aldir. Árið 1875 voru
hinir fomu Olympsvellir grafnir
upp og eftir það vaknaði áhugi
á því að endurvekja hinn foma
sið. Olympíuleikar þeir, sem
senn fara fram í Mexikó, eru
hinir 19. í röðinni, eftir að þeir
voru endurvaktir.
Til gamans má ryfja það
upp, að 1908 vakti Akur-
eyringur á sér mikla athygli
í London. En þar voru Olympíu
leikarnir haldnir þá. Það
var Jóhannes Jósefsson, sem
komst í fjögurra manna úrslit í
grísk-rómverskri glímu. En
hann var jafnframt fyrsti ís-
lenzki keppandi á Olympíuleik-
um. Á Olympíuleikunum í
Stokkhólmi 1912 keppti Jón
Halldórsson í spretthlaupi og
Sigurjón á Álafossi keppti í
rómverskri glímu. Báðir vöktu
þeir mikla athygli. Og þar var
íslenzk glíma sýnd.
Árið 1956 varm svo Vilhjálm-
ur Einarsson það afrek á Olym-
píuleikum í Astralíu, að verða
heimsmethafi í þrístökki. Stóð
það met að vísu ekki nema í
eina klukkustund. En hann
varð fyrstur íslendinga heiðrað-
ur Olympíuverðlaunum.
Ekki er því spáð við brottför
hinna íslenzku Olympíufara, að
þeir hljóti sigurlaun í Mexikó.
En velfarnaðaróskir fylgja þeim
öllum. □
BRÚÐHJÓN. Hinn 9. sept. sl.
voru gefin saman í hjónaband
í Kaupmannahöfn ungfrú
Grete Langer hjúkrunarkona
og Stefán Svanur Torfason
stud. Scient. frá Alcureyri. —
Heimili þeirra er að Irmin-
gersgade 3, Kaupmannahöfn.
LESSTOFA íslenzk-ameríska
félagsins, Geislagötu 5. Opin:
Mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl.
17—19.30, laugardaga kl. 16—■
18.
SMÁBARNAGÆZLUVELL-
IRNIR eru ennþá opnir.
MINNINGARSPJÖLDIN fyrir
kristniboðið í Konsó fást hjá
frú Sigríði Zakaríasdóttur,
Gránufélagsgötu 6. — Sími
11233.
Lesstofa Íslenzk-ameríska félagsns
LESSTOFA íslenzk-ameríska
félagsins, Geislagötu 5, hefir
byrjað vetrarstarfsemi sína.
Verður starfinu hagað svipað og
undanfarin ár, en afgreiðslutíma
breytt, og verður nú lesstofan
opin sem hér segir:
Mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl.
17—19.30, laugardaga kl. 16—18.
AUÐVELT
OG LETT
í NOTKUN
GEFUR
GLÆRA
Eins og að undanförnu hefir
lesstofan til útlána allmikið safn
bóka um hin margvíslegustu
efni, bæði til fróðleiks og
skemmtunar, og auk þess mikið
af uppsláttarbókum til afnota
á staðnum. Þá fær lesstofan
reglulega um 50 tímarit, sem
bæði eru ætluð til afnota í les-
stofunni og til útlána. Auk þess
lánar lesstofan hljómplötur og
kvikmyndir.
Afnot af því, sem lesstofan
hefir að bjóða, eru öllum heimil
ókeypis, hvort sem þeir eru fé-
lagar í íslenzk-ameríska félag-
inu eða ekki.
(F réttatilkynning)
- SMATT OG STORT
(Framhald af blaðsíðu 8).
fiiðmi segja svo tun framferði
Belga í þessu efni:
„Það er hart,“ segir í sam-
þykkt hinna finnsku samtaka,
„að fuglar, sem njóta algerrar
friðunar í sumarheimkynnum
sínum, séu murkaðir niður þús
undum sanian á ferðurn þeirra
til vetrarheimkynna sinna eða
þegar þeir eru komnir þangað.
Innan landamæra Belgíu bíða
þeirra 28 þúsund veiðifantar
með spegilsnörur sínar, net sín,
límgreinar og önnur veiðitæki.“
sjálígljáandi plastbón
fyrir linoleum, vinylflísar, plastdúk,
gúsnmí, parket og terrazo.
Næsi auðveldlega af með veikri
ammoníak-upplavisn.