Dagur - 09.10.1968, Blaðsíða 1
FIJLMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyrl
Sími 12771 • P.O. Box 397
SCRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Áburðarpantaniniar
þurfa að berast í tíma
..jwwwij
..... M
NÝJA dráttarbrautin og stálskipasmíðar á Akureyri vekja þjóðaratliygli. (Ljósmynd: E. D.)
FJÖLMÚRG HERUÐ ERU LÆKNISLAUS
EINS og auglýst er á öðrum
stað í blaðinu, þurfa bændur að
hafa skilað áburðarpöntunum
sínum fyrir 1. des. n. k.
Áburðarverksmiðjan hefur
m. a. vakið athygli á eftirfar-
andi, í sambandi við væntan-
legar áburðarpantanir bænda:
Af áætlaðri köfnunarefnis-
notkun landsins 1969 áætlum
vér að tæp 30% verði innflutt
köfnunarefni. Hið innflutta köfn
Ök olvaSur á
3 ganagndi
SAMKVÆMT viðtali við lög-
regluna á Seyðisfirði, gerðist
það aðfaranótt sl. föstudags, að
ökumaður, grunaður um ölvun,
ók á þrjá vegfarendur samtímis,
tvær stúlkur og einn pilt. Voru
stúlkurnar úr Eyjafirði og fót-
brotnaði önnur og hefur nú ver
ið flutt í sjúkrahús á Akureyri.
Hin tvö sakaði lítið, en öll voru
þau í vinnu eystra um stundar-
sakir.
Þessa nótt var töluvert um
ölvun í bænum, enda mörg skip
inni. í gær og fyrradag var ofur
lítil síldarsöltun á Seyðisfirði.
Haganesvík 8. okt. Nú verða
bændur í Stíflu að hafa gamla
lagið á og réka fé sitt til slátr-
unar, því þar hamlar snjór flutn
ingum á bílum. Féð reynist með
skárra móti þótt endanleg niður
unarefni mun væntanlega verða
fyrir hendi í kalkammonsalt-
pétri 26%, kalsium nitrati 15.5%
N (Noregssaltpétri), túnáburðar
blöndu 22—11—11 að viðbætt-
um 2.7% brennisteini, svo og í
tvígildum blöndum 26—14—0 og
22—22—0. Vér viljum taka fram
ennfremur, að ef óskir eru fyrir
hendi af yðar hálfu um að ein-
hvers hluta hins innflutta köfn-
unarefnis verði aflað í öðrum
tegundum en að framan greinir
munum vér að sjálfsögðu gera
oss far um að mæta slíkum ósk-
um.
Reiknað er með að rúm 70%
af köfnunarefnisáburðarþörf
landsins verði mætt með notkun
Kjarnaáburðar.
Að gefnu tilefni skal ennfrem
ur tekið fram, að ef þér óskið
eftir að vér höfum milligöng'u
um útvegun á áburðarkalki frá
Sementsverksmiðju ríkisins á
Akranesi, frekar en að þér pant
ið það beint frá Sementsverk-
smiðjunni, þá erum vér reiðu-
búnir til þess.
Vér munum leitast við, að
að klórsúrt kalí, sem nú verður
allt flutt inn í 60% KoO styrk-
leika verði afgreitt grófkornað,
en á síðastliðnu vori reyndist
ekki unnt að fá það allt grófn
kornað. Brennisteinssúrt kalí er
ekki fyrir hendi nema í 50%
(Framhald á blaðsíðu 7).
staða um vænleika fjárins liggi
ekki fyrir ennþá. Fólk, sem
vinnur við slátrunina, ekur
margt á dráttarvélum heiman
og heim og mun það kaldsamt
eins og nú viðrar. E. Á.
Á LÆKNARÁÐSTEFNU, sem
haldin var fyrir helgina í
Reykjavík, sagði Auður Angan-
týsdóttir frá reynslu sinni frá
Flateyri í fyrra, þar sem hún
starfaði um fimm mánaða skeið
sem héraðshjúkrunarkona. En
þar var enginn læknir, ljósmóð-
Á LAUGAEDAGINN verður
norræn listiðnaðarsýning opnuð
á Akureyri — á Hótel KEA og
í Landsbankasalnum. Hér er
um að ræða sýningu þá, er áður
var í Norræna húsinu í Reykja-
vík og var mjög vel sótt. En hér
er líka um að ræða eftirtektar-
vert sjónarmið Norræna húss-
ins, að flytja listina út um land.
Það ber sérstaklega að þakka.
Framkvæmdastjóri Norræna
hússins er Ivar Eskeland og
kemur hann sjálfur hingað
norður og opnar sýninguna
kl. 2 e. h.
ÞEGAR blaðið hafði samband
við yfirverkstjóra Vegagerðar-
innar, Guðmund Benediktsson,
voru allir nálægir vegir sæmi-
lega greiðfærir en Múlavegur og
Vaðlaheiðarvegur þó aðeins fær
ir jeppum eða stærri bílum.
Vegurinn til Reykjavíkur var
sæmilega góður, einnig á Holta-
vörðuheiði, en þar eru tæki til
snjómoksturs, er greitt hafa
götur manna.
En víða er mikil hálka og
blindað. Varar Vegagerðin fólk
við ferðalögum án fyrirhyggju
því á skammri stund geti sumir
þeir vegir orðið ófærir, sem nú
eru opnir. En keðjur, skófla,
skjólgóður fatnaður og nestis-
ir eða hjúkrunarkona. Og sam-
gönguerfiðleikar eru þar miklir
á vetrum. En þar er sjúkraskýli.
Með leiðbeiningum héraðslækn
isins á Þingeyri og heimsókn
hans þegar mikið lá við, var
unnt að veita margvíslega hjálp.
Taldi Auður, að störf héraðs-
Sýningin verður opin í
14 daga.
Eins og áður hefur verið frá
sagt hér í blaðinu, eru sýningar
munir frá Norðurlöndunum öll-
um og unnir úr margvíslegu
efni, sumir úr dýrustu málmum,
aðrir úr tré, skinni, ull, gleri
o. s. frv.
Sýnhig þessi er talin bera vott
um ruikla hugmyndaauðgi og
hagleik, svo óhætt mun að ráð-
leggja fólki að leggja leið sína á
sýningarstaðina og gefa sér þar
góðan tíma. □
biti er flestum auðið að taka
með sér í ferðalög. □
SÍÐDEGIS í fyrradag settust
um 100 ungmenni að í stigum og
tröppum Austurþýzka sendiráðs
ins, þar sem fagnað var þjóð-
'hátíðardegi lýðveldisins. Hafði
fólk þetta áletruð mótmæla-
spjöld og neitaði að yfirgefa
staðinn. Kom þá til kasta lög-
reglunnar og urðu þar átök og
nokkrar meiðingar. Tíu ung-
menni vpru flutt í fangageymslu
hjúkrunarkvenna gætu víða
komið að góðu gagni þar sem
læknaskortur er svo tilfinnan-
legur, sem raun ber vitni ef vel
menntaðar og duglegar hjúkr-
unarkonur fást til starfa.
En nú er svo ástatt í landinu,
að í 57 læknishéruðum þess er
„tryggt ástand“ í aðeins 23, svo
sem fram kom á sömu ráðstefnu.
En nú er 12 læknishéruð læknis
laus en um næstu mánaðamót
er álitið, að læknislausu héruð-
in verði orðin 15 að tölu.
VÁ FYRIR DYRUM.
En samkvæmt framanskráðu
er vá fyrir dyrum í heilbrigðis-
málum og lítt þolandi, að mörg
svæði landsins séu læknislaus.
Að sjálfsögðu ber að stefna að
viðunandi úrbótum í þessu efni,
en hafa má jafnframt opin augu
fyrir hugsanlegri bráðabirgða-
hjálp, svo sem minnst var á hér
að framan. Eitt af því sem fólk
kvartar mest undan víða í dreif
býli, er læknisskorturinn. □
ÓK Á100
UNDANFARNA daga hafa lög-
reglumenn að sunnan og Akur-
eyrarlögreglan fylgzt með öku-
hraða manna á ýmsum stöðum
í bænum. Kom í ljós að margir
ökumenn virða ekki hraðatak-
mörk. Má til dæmis nefna, að
ökumaður fór á 100 km. hraða
á klukkustund úr bænum, var
eltur og tekinn. I fyrrakvöld
voru ellefu menn teknir í Gler-
árgötu — er óku á 50—70 km.
hraða þótt þá væri gatan klístr-
uð orðin og töluverð hálka.
Nokkrir minniháttar árekstr-
ar hafa orðið í bænum síðustu
daga.
Vert er að minna ökumenn á,
að meta akstursaðstæður hverju
sinni og haga hraðanum sam-
kvæmt því, innan marka ákvæð
anna um 35 km. hámarkshnað-
ann, sem í bænum gildir. □
T
ÞAÐ ER reyndar komið skautasvell. (Ljósmynd: E. D.)
^. ...... .......... J
Þeir þurfa að reka féð
HÁLKA Á VEGUM OG BLINDAÐ