Dagur - 06.11.1968, Blaðsíða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaSur:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prcntverk Odds Bjömssonar h.f.
Blómið sem dó
EINU SINNI samdi Gylfi Þ. Gísla-
son lag við ljóð eftir Tómas Guð-
mundsson:
„Ég er dularfulla blómið
í draumi hins unga manns
og ég dey ef hann vaknar.“
Gylfi var ungur í þann tíð og
fékkst við tómsmíðar. En hann var,
eins og menn vita, einnig hugfang-
inn af hagfræðinni og hefur sjálfsagt
dreymt hitt og þetta um framtíðina
á því sviði.
Nú dreymir liann í stjórnarráðinu
og hefur dreymt undanfarin tólf ár.
Gamansamur maður segir í Reykja-
víkurblaði, að gjaldeyrisvarasjóður-
inn, sem svo er nefndur, hafi verið
dularfulla blómið í draumi viðskipta
málaráðherra. Nú fari það saman, að
dularfulla blómið sé dáið og ráðherr
ann vaknaður við vondan draum í
stólnum sínum.--------
Við þetta ævintýri er svo því að
bæta, að Stefán Jónsson fyrrum skrif
stofustj. gjaldeyrisnefndar hefur nú
um mánaðamótin talið sig geta fært
sönnur á það, að dularfulla blómið,
þ. e. gjaldeyrisvarasjóðurinn, hafi
aldrei verið til í raunveruleikanum.
Röksemdafærsla Stefáns Jónssonar
er í stuttu máli sagt á þessa leið: Til
þess að fyrirtæki geti myndað vara-
sjóð, þarf að vera um tekjuafgang að
ræða. Líta má á utanríkisviðskipti ís
Iands í heild, sem fyrirtæki. Þá er að
athuga hvort samanlagðar tekjur
hennar á tilteknu tímabili t. d. þau
9 ár, sem Gylfi hefur verið viðskipta-
málaráðherra, hafi verið meiri en
útgjöldin, þannig að þar liafi verið
eitthvað til að leggja í varasjóð fyrir-
tækisins.
Tekjur utanríkisverzlunarinnar ár
hvert eru, eins og sést í skýrslum
Seðlabankans, útfluttar vörur og út-
flutt þjónusta (í þágu annarra landa).
Útgjöldin eru innfluttar vörur og
innflutt þjónusta. Með þjónustutekj-
um og þjónustugjöldum teljast t. d.
vextir af lánum og innstæðum. Stef-
án gerir síðan upp reikning hvers
árs, samkvæmt reikningstölum Seðla-
hankans og er mismunurinn íslandi
í hag (-f-) eða í óhag (-^-), sem hér
segir
Árið 1959 584 millj. kr.
Árið 1960 468 millj. kr.
Árið 1961 -f- 225 millj. kr.
Árið 1962 + 363 millj. kr.
Árið 1963 -f- 204 millj. kr.
Árið 1964 -^- 324 millj. kr.
Árið 1965 + 246. millj. kr.
Árið 1966 -f- 321 millj. kr.
Árið 1967 -f- 2350 miUj. kr.
Þegar tímabilið er gert upp, kem-
ur í ljós, að í lok þess var ekki um
(Framhald á blaðsíðu 7)
Dúfnaveizlan svnd -
Utvarpsleikrit æft
RÆTT VIÐ ÞORSTEIN Ö. STEPHENSEN
LEIKARA 0G LEIKLISTARSTJÓRA
UM ÞESSAR MUNDIR er stadd
ur hér á Akureyri leiklistar-
stjóri Ríkisútvarpsins, Þor-
steinn Ö. Stephensen leikari.
Hann leikur pressarann hjá L.
A. í Dúfnaveizlu Halldórs
Laxness og náði blaðið tali af
honum á mánudaginn og svar-
aði hann góðfúslega nokkrum
spurningum þess. Þótt Þor-
steinn sé þjóðkunnur maður er
rétt að gera ofurlitla grein fyrir
þessum viðmælanda Dags.
Þorsteinn Ö. Stephensen er
Reykvíkingur, varð stúdent frá
Menntaskólanum i Reykjavík
1925 og settist síðan í lækna-
deild. Á stúdentsárunum komst
hann í snertingu við leiklistina,
er hann fór að leika í mennta-
skólaleikjum, tók slíku ástfóstri
við hana, að hann hætti háskóla
námi en sneri sér að leikstörfum
og hefur unnið að þeim fram á
þennan dag. Um skeið var hann
meðal nemenda Konunglega
leikhússins í Kaupmannahöfn.
Skömmu siðar var hann ráðinn
aðstoðar þulur ihjá Ríkisútvarp-
inu, síðan aðalþulur og hafði þá
með höndum margvísleg störf
önirur ;hjá stofnuninni, svo sem
undirbúning dagskrár, umsjón
með barnatímum og svo var
hann leikari og leikstjóri
margra leikrita, sem Ríkisút-
varpið flutti. Síðan 1947 hefur
hann verið leiklistarstjóri út-
. varpsins og er það enn. Hann
var einn af aðalleikurum Leik-
félags Reykjavíkur um árabil
og var einn þeirra, sem nauðsyn
taldi að það félag héldi áfram
störfum þótt Þjóðleikhúsið rísi
á ' legg. Allir landsmenn
þékkja rödd Þorsteins Ö. Step-
herísen og þarf ekki að kynna
hana. Sjálfur er maðurinn þrek
legur, mjög gerðarlegur í sjón,
gráhærður orðinn, hæglátur í
fasi en traustvekjandi. En nú
höfum við ekki þennan formála
lengri en leggjum þess í stað
spurningar fyrir leikarann og
leiklistarmanninn Þorstein Ö.
Stephensen.
Þú hafðir kynni af Dúfna-
veizlunni og höfundi hennar
áður en þú komst hingað?
Já, Leikfélag Reykjavíkur tók
hana til meðferðar seint á leik-
ári og hafði svo 20 sýningar í
einni lotu. Við tókum hana svo
aftur um haustið og sýningar
urðu alls fast að 70 og aðsókn
var jafnan mjög góð. Höfund-
urinn, Halldór Laxness, var
mikið með okkur í verki, var
oft á æfingunum og gerði ýms-
ar smábreytingar á meðan verið
var að æfa. Samvinna við hann
var framúrskarandi skemmtileg
og lærdómsrík.
Hvað viltu segja um leikritið,
Dúfnaveizluna?
Leikritið er samið upp úr sam
nefndri smásögu. Ekki veit ég
hvort skáldið hefur haft leikrit í
huga þá strax, en svo mikið er
víst, að þetta efni sótti á huga
þess og svo varð leikritið til. Ég
held, að öllum muni finnast
grunntónninn í verkinu ljós og
einfaldur. Settir eru upp í verk-
inu tveir pólar, ef svo mætti
segja. Annars vegar það mann-
líf, sem byggist á einfaldleikan-
um og innra gildi hlutanna og
hins vegar er eftirsókn eftir
vindi eða ofgnótt lífsþæginda og
lífsnautna. Um byggingu verks-
ins má segja, að það er samið að
hluta í gamalli raunsæisstefnu,
þó með þeim skáldlegu ýkjum,
sem höfundur notar tíðum, svo
sem fram kemur t. d. í viðhorfi
pressarahjónanna til peninga.
En þótt þetta tilheyri raunsæis-
bókmenntum, bregður höfund-
urinn á spretti þar sem hann fer
inná módernismann. Verkið er
því með tvennskonar stíl.
Hvernig líkar þér að vinna
með Ieikurunum hér á Akur-
eyri?
Ég hef haft hina mestu ánægju
af samstarfinu við leikara bæjar
ins. Þegar stjórn L, A. bað mig
að koma, gat ég ekki svarað því
strax, því ég sá fram á, að í þetta
myndi fara mikill tími. Varð ég
því að haga vinnubrögðum mín-
um með tilliti til þessa, ef af því
ætti að geta orðið. Það gerði ég
og kom svo norður, en auðvitað
Radiobúðin lieitir verzlunin, sem þessi mynd er úr og er hún til
húsa í Strandgötu 7. Þetta er sérverzlun með radiovörur frá hinu
heimsþekkta merki „Nordmende“. Eins og sést á myndinni eru sjón
varpstækin aðalvaran um þessar mundir, en þau uppfylla kröfur
hins vandláta kaupanda, segir í auglýsingu á öðrum stað í blaðinu.
Þorsteinn Ö. Stephensen.
er ég ekki slitinn úr tengslum
við starf mitt syðra þótt ég sé
hér. Ég kynntist leikurum hér í
fyrra, í sambandi við upptöku
leikrits. í því sambandi háttar
svo til, að hér fannst enginn góð
ur staður fyrir þesskonar upp
töku. Þetta var mikið vandamál
því leiklistin hér skilar sér ekki
eins vel og eðlilegt er, nema skil
yrði til upptökunnar séu góð. Ég
hef unnið að því með öðrum,
m. a. form. L. A., Jóni Kristins-
syni, að bæta úr þessu og held
ég að málið fari nú að leysast.
En upptaka útvarpsleikrita?
Það er tvennt ólíkt að æfa
leikrit fyrir útvarp og æfa leik-
rit fyrir leikhús. Sannast að
segja er ég nú að æfa, hér á Ak-
ureyri, útvarpsleikritið Blákald
an sannleikann eftir Christian
Bock. Þetta er æft á réttan hátt
til flutnings í útvarpi, og ætti
geta leikara hér á Akureyri að
koma betur í ljós en áður hefur
verið. Og þetta verður þá í
fyrsta skipti, að útvarpsleikrit
er æft hér, sem slíkt.
Viltu segja nokkuð um ein-
staka leikara hér eða leikstjóra?
Leikstjórinn, Ragnhildur
Steingrímsdóttir, vann vel að
þessari sýningu og setti á hana
samræmdan svip, ennfremur
kom hún með eftirtektarverða
nýjung í sjálfum veizluhöldun-
um, þar sem aðeins er brugðið
upp táknmyndum, og finnst mér
þetta fara mjög vel. Ég var svo
heppinn þegar ég lék pressarann
í Reykjavik, að fá á móti mér
leikkonu, sem að mínum dómi
náði réttum tókum á hlutverk-
inU og hinum rétta tón. Hún
náði hinum hljóðláta anda, sem
ríkir hjá þeim pressarahjónum
og samstillingu við höfuðhlut-
verkið. Þessi kona var Anna
Guðmundsdóttir. Ég kveið fyrir,
ef ekki tækist að velja vel í
þetta hlutverk hér. En að feng-
inni reynslu af Þórhöllu Þor-
steinsdóttur í þessu hlutverki,
er ég mjög ánægður. Ungir leik-
arar, sem ég hef nú lítillega
kynnzt hér, hafa vissulega orðið
mér efni ýmsra hugleiðinga,
sem ég kom nokkuð inná í svo-
lítilli ræðu að frumsýningu lok-
inni. Það er nauðsyn, að ungt
fólk, sem sýnir áhuga og hefur
hæfileika í leiklistaráttina, fái
tækifæri til að þroska leikgáf-
una og auðga um leið menning-
arlíf það í bænum, sem leiklistin
er hverju bæjarfélagi.
Hvernig heldur þú að það
verði bezt gert?
Hér er tíu þúsund manna bær.
Ungir leikarar eiga ekki að
þurfa að flytjast burt til að
njóta hæfileika sinna. Ég stakk
upp á því í áðurnefndri ræðu,
að bærinn réði til sín ungan og
menntaðan leikhúsmann, sem
(Ljósm.: E. D.)
hefði því hlutverki að gegna að
vera leiðbeinandi og leikari, enn
fremur gæti hann kennt fram-
burð móðurmálsins o. fl. í skól-
um bæjarins. Hér þarf leiklistin
að geta þróast eðlilega.
Hvernig finnst þér leikhúsið?
Skemmtilegt. Það er af þeirri
stsérð, þar sem tengsl leikara og
leikhúsgesta geta orðið hin
beztu. Salurinn finnst mér við-
kunnanlegur. Leiksviðið er að
vísu ekki alveg nógu stórt og þó
við hæfi þessa salar. Aðbúnaður
leikara í búningsherbergjum er
góður, nema loftræsting þyrfti
að vera betri.
Taka leikhúsgestir ekki leikn-
um vel?
Jú, og mjög skynsamlega og
ekki þarf að kvarta yfir aðsókn-
inni það sem af er. Það er gott
að leika fyrir þetta fólk. En í
sambandi við Dúfnaveizluna
dettur mér í hug, að ýmsir hafa
éinhverskonar andúð á höfundi
hennar ög lesa jafnvel ekki verk
hans að nokkru ráði. Þetta
undrar mig mikið. Halldór Lax-
ness er ekki aðeins kunnur höf-
undur, heldur líka óvenju snjall.
Mér finnst það bera vott um of
mikla deyfð, að lesa hann ekki.
Hann hefur auðgað íslenzkar
'bókmenntir og andlegt líf þjóð-
arinnar með verkum sínum.
Hitt er svo annað mál, að leikrit
hans hafa sætt gagnrýni.
Ríki og bær munu geta stutt
leiklisíina?
Ég er á móti metingi milli
landsfjórðunga og byggðarlaga
þegar hann er í þeim tón, sem
kalla má hreppapólitík. En hitt
er skoðun mín, að bæir og
byggðir út um land eigi að
heimta rétt sinn til jafns við
Reykjavík, ef þær kröfur eru
byggðar á sanngjörnum og eðli—
legum samanburði. Á ég þar við
nauðsynleg fjárframlög til menn
ingarmála, svo sem til leiklist-
arinnar. Við höfum Þjóðleikhús
syðra og verjum til þess mörg-
um miljónum á ári, og er ég
ekki að telja það eftir. Er þá
ekki með réttu hægt að ætlast
til þess, að Akureyri fái fjár-
hagslegan stuðning frá hinu
opinbera til að leggja grundvöll
að auknu leiklistarlífi hér?
Viðtalinu er lokið og þakkar
blaðið svörin. Þarf naumast að
taka það fram, að síðustu orðum
Þorsteins O. Stephensen verður
hér svarað játandi. E. D.
Aðalfundur FUF
AÐALFUNDUR Félags ungra
Framsóknarmanna á Akureyri
verður haldinn fhnmtudaginn 7.
nóv. kl. 8.30 e. h. í skrifstofu
flokksins, Hafnarstræti 95. —
Venjuleg aðalfundarstörf. Önn-
ur mál. Stjómin.
5
SMATT & STORT
(Framhald af blaðsíðu 8).
nægja eftirspurn, Hér við Eyja-
fjörð er ónotuð verksmiðja, sem
bíður verkefna. Á Akureyri er
nauðsyn að bæta við nýjum iðn
greinum, jafn mikil nauðsyn og
að efla þær, sem fyrir eru.
SEKTÍR OG SÝNDAR-
MENNSKA
Á Alþingi var dómsmálaráð-
herra spurður um sektir vegna
landhelgisbrota. Ráðherra gaf
þau svör, að sektir stóru skip-
anna, þ. e. togaranna, hefðu all-
ar verið innheimtar, en inn-
heimtu sekta bátanna hefði ver-
ið frestað. Þess vegna er spurt,
hvaða þýðingu það hafi, að taka
báta að veiðum í landlielgi,
kannski 10—15 á einu bretti,
eins og komið hefur fyrir, til-
kynna landslýð tökuna, réttar-
höld o. s. frv. en innheimta svo
ekki sektarféð? Hér virðist vera
veikur hlekkur í dómsmálunum.
FÆR SÆMILEGT TÍMAKAUP
Maður einn, sem leit inn á skrif
stofur Dags nýlega, sagði efnis-
lega svo frá: Ég hugsaði margt
á ferð miríni um Eyjafjörð um
daginn. Á einum stað sá ég léleg
ustu fjárliús. Það var bragga-
skrifli og skúr utan á honum.
Hey stóð þar hjá en engin hlaða.
Við eftirgrenslan kom í ljós, að
bóndinn hafði 18 kg. meðalvigt
á dilkum sínum í haust og voru
þó flestir þeirra tvílembingar,
cg taldi sig hafa sæmilegt tíma-
kaup við sauðfjárbúskapinn.
FÉÐ LÁ ÚTI
Þessi sami bóndi lætur liggja
við opið allan veturinn, gefur á
garða einu sinni á dag, en féð
kýs oftast að liggja úti. Stofn-
kostnaður bygginga er sama
sem enginn, kjarnfóðurgjöf lítil,
féð mjög hraust og eins og fyrr
segir, gefur þessi búskapur bónd
anum góðar tekjur. Og svo bætti
sögumaður við: Ekki veit ég
hvort þetta er nú til fyrirmynd-
ar, a. m. k. eru byggingamar
ekki fyrir augað. Samt leiðir
þetta hugann að því, hvort
draga megi úr vissum kostnaðar
liðum í sauðfjárbúskapnum yfir
leitt.
UNDIR SNJÓNUM
Allvíða er grænfóður undir snjó,
bæði fóðurkál og hafrar og er
ekki útlit fyrir, að það verði hér
eftir að gagni. Kartöflur eru enn
óuppteknar á ýmsum stöðum,
þ. e. einhver hluti garðlanda.
Samanlagt er hér um mikil verð
mæti að ræða. Og því miður er
enn úti hey á nokkrum norð-
lenzkum bæjum. Sumarið var
stutt og vetur settist snemma
að. Nauípeningur kom þrem vik
um fyrr á fulla gjöf en venja
er til. Enn hefur það orðið á
þessu hausti, að liey hafa brunn
ið í hlöðum og Iíklega að full
þörf sé á því, að athuga hey-
liitann enn um hríð.
Jón Laxdal sjötugur
JÓN LAXDAL, Brekkugötu 33,
Akureyri, varð sjötugur á laug-
ardaginn, 2. nóvember. Hann
foyggði nýbýlið Meðalheima á
Svalbarðsströnd 1930 og bjó þar
rúman aldarfjórðung. Eiftir það
fluttist hann til Akureyrar og
hefur unnið við ullarmat hjá
fyrirtækjum samvinnumanna.
Kona Jóns er Hulda Jóns-
dóttir frá Ólafsfirði og eiga þau
fjórar dætur á lífi.
Jón Laxdal er gestrisinn mað
ur, glaðvær og hjálpsamur í
bezta lagi og traustur maður í
hverju starfi. Blaðið sendir hon-
um árnaðaróskir. □
LEIÐRÉTTING. Það var kven
félagið Framtíðin á Akureyri
en ekki Hlíf, sem gaf Elli-
heimilinu í Skjaldarvík 25
þús. kr. og frá er sagt í síðasta
blaði. Leiðréttist þetta hér
með.
FORELDRAR - NEM-
ENDUR!
Get ennþá bætt við mig
nokkrum nemendum í
AUKATÍMA
í ensku, dönsku, íslenzku
reikning og eðlisfræði.
Uppl. í síma 1-20-80.
GEYSISKONUR!
Fundur í Lóni miðviku-
daginn 6. nóv. kl. 9 e. b.
Stjómin.
VERBÚÐ TIL SÖLU.
Veiðarfæri geta fýlgt.
Uppl. í síma 1-13-02, eft-
ir kl. 7 e. h.
BÍLSKÚR
eða á móta húsnæði, ca.
30—60 ferm, óskast til
leigu. Helzt upphitað,
Til sölu mjög góður
SKODA STATION.
Skipti á ódýrari bíl
konra til greina.
Uppl. í síma 1-22-35.
EINBÝLISHÚS! ÍBÚÐ!
Fjögurra til fimm her-
bergja íbúðarhæð óskast
í skiptum fyrir stórt ein-
býlishús, sem er í smíð-
um í Glerárhverfi. --
Upplýsingar gefur
Freyr Ófeissson, shni
2-13-89.
TVÖ HERBERGI
TIL LEIGU
á Ytri Brekkunni.
Uppl. í síma 1-17-67.
STÓRT HERBERGI
með innbyggðum skáp-
um, er til leigu á Eyr-
inni.
Uppl. í síma 1-20-77 eft-
ir kl. 7 e. h.
TIL SÖLU:
Þriggja herbergja
ÍBÚÐ.
Sími 1-14-08, kl. 9 til 6
virka daga.
TIL LEIGU
er tveggja herbergja
ÍBÚÐ.
Uppl. í síma 1-13-25.
Fjögurra herbergja
ÍBÚÐ TIL LEIGU
nú þegar.
Uppl. í síma 1-29-55.
3ja til 4ra herbergja
ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu á Akureyri sem
fyrst. — Vinsamlegast
hringið í síma 1-23-46.
Þórhallur Höskuldsson.
r
Búðarfundir Nýlenduvörudeildar
hefjast fimmtndaginn 7. nóvember með fundi i Strandgötu
25, kl. 6,30 stundvíslega.
Veitið atliygli auglýsingum í búðunum. (Fundirnir auglýstir
með tveggja daga fyrirvara á hverjum stað).
NÝÍENDUVÖRUDEILD
Taunus 20 M, ekinn 26
þús. km. Verð 180 þús.
Taunus 12 M 1963, góð-
ur bíll.
Land Rover, benzín,
1967, ekinn 13 þús. km.
Land Rover, diesel,
1964.
Bronco 1966, ekinn 30
þús. km.
Bedford, 6V2 tonn.
Alls konar skipti.
Opið frá kl. 4 til 6.
Skautar
Hoekeyskautar
Listskautar
Skautajárn
JÁRN OG GLERVÖRU-
DEiLD
DÖMUR, ATHUGIÐ!
KJÓLAR TIL SÖLU
úr fallegum og góðum
efnum — í Hafnarstræd
29, neðstu hæð.
Tek einnig í saum, yfir-
dekki hnappa og belti.
Sími 1-26-77.
TIL SÖLU:
ÞRJÁR UNGAR KÝR.
Jónmundur Zophónías-
son, Hrappsstöðum,
sími um Dalvík.
Til sölu: Pedegree
BARNAVAGN.
Sími 2-11-70.
Til sölu: Nýleg Elna
Supermatic
SAUMAVÉL.
Uppl. í síma 1-19-81.
SÓFI OG TVEIR
STÓLAR
til sölu í Oddeyrargötu
34, uppi.
Uppl. eftir kl. 6.
Sími 1-12-78.
BARNAVAGN,
barnakena og þvotta-
pottur til sölu.
Uppl. í síma 1-13-93.
Til sölu: Nýir
HOCKEY-SKAUTAR.
Uppl. í síma 1-15-76.