Dagur - 26.02.1969, Síða 7
7
Nauðsynlegt að sími
komi í Sesseljubúð
AÐ GEFNU tilefni vill Slysa-
varnadeild kvenna á Akureyri
upplýsa, að í skýlinu á Oxna-
dalsheiði voru sett öll þau
áhöld, sem til matseldar þarf og
það í stórum stíl, og matur svo
sem kaffi, sykur, te og brauð.
Einnig 6 Gefjunar-teppi, 2
stoppteppi og ullarleistar. En
umgangur hefur verið með
þeim hætti, eftir því sem blöðin
greina, að flest er hoi'fið úr skýl
inu. Hvað upphitun snertir var
eldunartækið talið mjög gott,
en enginn getur ráðið við þótt
Kári eða önnur skemmdaröfl
svipti röri ofan af, ofar þaki
skýlisins.
Við teljum aldrei nógu vel
brýnt fýrir fólki, sem gengui'
um þessi skýli, að yfirgefa þau
ekki í iakara ástandi en þegar
í þau var komið. Fyrripartinn
í vetur létum við endurnýja
ýmislegt, sem þá var horfið.
Jafnvel sjúkrakassinn og sjúkra
börur virtust ekki vera frið-
helg. Allir ættu að geta séð,
hvað af því getur hlotist, að
rýja skýlin þannig', því enginn
veit hvenær lífsnauðsyn er, að
allt sé í lagi.
Við höfðum óskað eftir síma,
löngu áður en skýlið var byggt,
þar sem fyrirfram var vitað um
erfitt loftskeytasamband á þess
um stað. Við viljum nú vona,
að hrakningar þessara sunnan-
manna geti orðið til þess, að
opna augu manna fyrir knýjandi
nauðsyn þess að fá símann í
skýlið og að umgangur um skýl
ið vérði eins og siðuðu fólki
sæmir.
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins
á Akureyri.
Mörg dugleg börn seldu merki fyrir Kauða krossinn á öskudaginn.
Tvær telpur, Erna Þórarinsdóttir og Elín Gúðmundsdóttir, skiluðu
2.1G5.00 krónum. (Ljósm.: E. D.)
Þrjár telpur, Guðbjörg Sigurðardóttir, Hildur Friðleifsdóttir og
Jóna Þórðardóttir, talið frá vinstri, skilúðu 2.530.00 krónum.
Jarðarför mannsins míns, föður, sonar og bróður
okkar
ÁRNA GUNNARS TÓMASSONAR,
sem lézt af slysförum 15. febrúar, verður gerð frá
Akureyrarkirkju miðivikud. 26. febrúar kl. 2 sd.
Halldóra Gunnarsdóttir og dætur.
Þorbjörg Jóhannesdóttir, Tómas Kristjánsson
og systkini.
Faðir okkar
STEFÁN HÖSKULDUR STEINDÓRSSON
andaðist þann 24. febrúar.
Guðný Stefánsdóttir.
Steindór Stefánsson.
Innilegar þakkir viljum við votta öllum þeim,
sem sýndu okkur sarnúð og hlýhug við andlát og
jarðarför
ÁGÚSTS SIGURGEIRSSONAR
frá Geiteyjarströnd.
Hólmfríður Benediktsdóttir, börn og barnabörn.
E\ HULD 59692267. IV/V 2.
I.O.O.F. Rb. 2 — U72268F2 —
I.O.O.F. — 150228814: —
MESSAÐ verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. Sálmar: 299 — 337
— 130 — 370 — 203. Bílferð
verður úr Glerárhverfi kl.
1.30. — B. S.
AKURE YR ARKIRK J A. Séra
Þórhallur Höskuldsson pre-
dikar við föstumessu í kvöld
kl. 8.30.
FÖSTUMESSA í Akureyrar-
kirkju miðvikudagskvöld kl.
8.30. Sungið úr Passíusálm-
unum: 5. sálmur vers 1—5;
6. sálmur vers 1—6; 8. sálmur
vers 20—25. — P. S.
GUÐSÞJÓNUSTA í Akureyrar
kirkju n. k. sunnudag kl. 2.
Sálmar nr. 241 — 330 — 130
— 314 — 582. — P. S.
SVALBARÐSKIRKJA. Barna-
og æskulýðsguðsþjónusta n.k.
sunnudag kl. 2 e. h. Fólk á
öllum aldri velkomið. Ferm-
ingarbörn komi til viðtals að
lokinni guðsþjónustu. —
Sóknarprestur.
SJÓNARHÆÐARSTARFIÐ! -
Sunnudagur: Sunnudagaskóli
kl. 1.30 e. h. Öll börn vel-
komin. — Almenn samkoma
kl. 5 e. h. Allir velkomnir. —
Mánudag: Drengjafundur kl.
5.30 e. h. Allir drengir vel-
komnir. — Þriðjudag: Telpna
fundur kl. 5.30 e. h. Allar
telpur velkomnar.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. Barnaguðs-
þjónusta verður að Möðru-
völlum n. k. sunnudag, 2.
marz, kl. 2 e. h. — Sóknar-
prestur.
SAMKOMUR að Kaupvangs-
stræti 4, II hæð. Biblíuskóli
og þjónustusamkoma fimmtu
daginn 27. febrúar kl. 20.30.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 2. marz. Sunnu
dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn
velkomin. — Samkoma kl.
8.30 e. h. Ræðumaður Jónas
Þórisson. Allir hjartanlega
velkomnii'.
A FUNDI Aðaldeildar
í kapellunni kl. 8.30 á
fimmtudagskvöldið
flytur Timothy Ger-
bracht frá Indíana í Banda-
ríkjunum, erindi með skugga
myndum. Skemmtiatriði, veit
ingar. — Stjói'nin.
I.O.G.T. KAFFISALA til ágóða
fyrir Friðbjarnarhús að Vai'ð
borg sunnudaginn 2. marz frá
kl. 3—6 e. h. Skyndihapp-
drætti. Allir velkomnir. —
Nefndin.
BRÚÐHJÓN. Hinn 22. febrúar
voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju ung-
frú Elísabet Erla Kristjáns-
dóttir hjúkrunarkona og
Reynir Brynjólfsson múrari.
Heimili þeii’ra vei'ður að
Harðangri, Akureyri.
Ljósmyndastofa Páls.
TIL Rauða krossins. Frá ösku-
dagsliði Hjördísai' og Sigrún-
ar kr. 215, frá M. G. kr. 45,
frá öskudagsfl. úr Langholt-
inu kr. 55, frá sjö ki'ökkum af
Eyrinni kr. 130, frá öskudags
fl. Ketils Guðmundssonar kr.
150, frá öskudagsfl. Sólveigar
og Helgu kr. 240, frá Jóhönnu
Gunnlaugsd. kr. 100, frá Guð
jóni Finnastöðum kr. 500, fi’á
Ragnheiði Antonsd. og Árna
Frey Antonss., öskudagsgjöf,
kr. 910, frá öskudagsfl. Hall-
gríms Ingólfss. kr. 280, frá
N. N. kr. 1.000, frá Lárusi V.
Lárussyni og Ögmundi
Snorrasyni ki’. 160, frá Reyni
Harðarsyni kr. 45.
TIL Ragnars Ánnannssonar. —
Frá öskudagsliði Helgu og
Guði’únar kr. 330. Frá H. H.
kr. 300. Frá N. N. kr. 100.
FÉLAGAR Golfklúbbs Akur-
eyrar. Munið aðalfundinn á
laugardaginn 1. marz að Hótel
KEA.
IJONSKLÚBBUR
Éngfe AKUREYRAR
Fundur í Sjálfstæðis-
húsinu fimmtudaginn
27. febrúar kl. 12.
HLÍFARKONUR! Fundur verð
ur haldinn í Amarohúsinu
uppi fimmtudaginn 27. febr.
kl. 8.30 síðd. Nefndarkosning-
ar, skemmtiatriði og kaffi. —
Stjórnin.
BINDINDISFÉLAG ökumanna,
Akureyri, heldur aðalfund að
Cafe Skandia laugardaginn 1.
mai-z kl. 3 e. h. — Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. —
Erindi: Helgi Hannesson,
Reykjavík, umferðarkvik-
mynd. Félagsmenn eru ein-
di-egið hvattir til að mæta. —
Stjói-nin.
GJAFIR: Til Ragnars Ármanns
sonar. Frá Höllu og Hrönn
kr. 241.65. — Til Biafrabarn-
anna. Frá flokki Margrétar og
Emelíu kr. 165, frá Pálínu
Daníelsdóttur kr. 1.000, frá
N. N. kr. 100, frá Helga Vig-
fússyni kr. 125, frá Stefáni,
Erni, Sveini, Aðalsteini,
Tryggva, Jenný og Bergþóru
kr. 165, frá Köru Melstað og
Gyðu Halldórsd. og flokki
þeirra kr. 350. — Til Rauða
krossins. Frá Önnu Maríu,
Sæbjörgu Ingigerði Richards
dætrum, frá Evu Pétursdótt-
ur kr. 200, frá fjórum telpum
kr. 30. - Beztu þakkir. - P. S.
ÞÝZK-ÍSLENZKA FÉLAGIÐ.
Kvöldskemmtun félagsins
verður föstudaginn 7. marz.
Vönduð skemmtiatriði. Aug-
lýst nánar í næsta blaði. —
Stjói'nin.
TIL Biafrasöfnunarinnar. Frá
öskudagsfl. Sigvalda og Hall-
dórs kr. 125, frá öskudagsfl.
Halldórs Pétuissonar kr. 69,
frá H. H. kr. 300, frá ösku-
dagsfl. Odds og Kristins kr.
310, frá Arndísi, Aldísi,
Agnesi og Sigrúnu kr. 215,
fi'á öskudagsliði Hörpu Brynj
áí'sdóttur kr. 330, frá A. P. kr.
1.000.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur fimmtudaginn
27. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Alþýðu
húsinu. Fundarefni: Vígsla
nýliða, upplestur o. fl. Eftir
fund. Kaffi, dans (harmon-
íka). — Æ.t.
fiFRÁ SJÁLFSBJÖRG.
Aðalfundur félagsins
verðui' haldinn í
Bjai-gi sunnudaginn 2.
marz kl. 2 e. h. Venju-
leg aðalfundarstörf. Kaffi. —
Stjói-nin.
SKOTFÉLAGAR. Æfing föstu-
dagskvöld kl. 8.15 til 9.15. —
Munið einnig aðalfundinn í
íþróttavallarhúsinu fimmtu-
daginn 27. kl. 8.30 e. h.
GJAFIR: Til Ragnars Ármanns
sonar. Kr. 13.700 frá starfs-
fólki Slippstöðvai'innar, kr.
1.800 frá starfsfólki ónefnds
fyrirtækis, kr. 500 frá fimm
litlum systkinum og kr. 185
frá öskudagsliði Hrannar
Laufdal. — Til barnanna í
Biafra. Kr. 1.000 frá N. N., kr.
200 frá tveimur systkinum í
Sunnudagaskóla Akureyrar-
kirkju, kr. 300 frá öskudags-
liði Guðrúnar Albertsdóttur
og Hildar Gísladóttui', kr. 160
frá öskudagsliði Sigrúnar
Bjarnad., Hrafnhildai' Vig-
fúsd., Ernu Jóhannsd. og
Lovísu Jónsd., kr. 151.95 frá
öskudagsliði Árna, Elsu, Jóns,
Ólafs, Gunnars og Svanhildar
og kr. 120 frá öskudagsfl.
Þráins, Sigurðar, Jóhönnu og
Birgis. — Beztu þakkir. —
Birgir Snæbjörnsson.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
við mörg gefin loforð. En til
þess, að enginn skuli nú samt
álíta, að verið sé að drótta ein-
hverju að blessaðri stjórninni,
segir blaðið í lokin: „Sem betur
fer njótum við forystumanna,’
sem skilja þessa nauðsyn“! Það
sér líka á. Málið hefur um langt
árabil verið í loppnum höndum
Sjálfstæðismanna.
- Kirkjuvikan
(Framhald af blaðsíðu 8).
Samleikur Maríu B. Juttner og
J akobs Tryggvasonar, ávörp
skiptinema Þjóðkirkjunnar,
söngui', orgelleikur, samlestur,
aítarisþjónusta og ávörp, eru
meðal þess, er fram fer. Rétt er
að benda sérstaklega á skálda-
kvöldið, sem verður á laugar-
daginn 8. marz.
Þá verður Davíðs Stefánsson
ar minnzt með ræðu Gísla Jóns
sonar og lesið verður úr verk-
um skáldsins. Síðasti dagur
kii'kjuvikunnar er sunnudaginn
9. marz og sunnudagaskóli ár-
degis og guðsþjónusta síðdegis.
Sóknarnefnd Akureyrar
skipa: Jón Júl. Þorsteinsson,
Jón Sigui'geirsson, Finnbogi S.
Jónasson, Bjarni Halldórsson
og Ólafur Daníelsson. □
HETTUKÁPUR.
PILS, svört og mislit í
miklu úrvali.
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61 -