Dagur - 05.03.1969, Side 1

Dagur - 05.03.1969, Side 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJÖSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Margir æfla að Hrísey, 4. marz. Snæfellið land- aði 26 tonnum hér í gær. Tveir bátar, Auðunn og Eyrún, róa með net og fá 1—5 tonn. Haf- örninn er gerður út frá Rifi. Sigurveig hefur veitt sæmilega á færi, þegar gefið hefur. veiða grásleppu Vinna er nokkur við hrað- frystihúsið, en ekki nóg. Margir ætla að hefja grá- sleppuveiðar þegar líður að vori. í morgun tók Lagarfoss nokk uð af freðfiski. S. F. Gufurafstöðin í Bjarnarflagi reynd VÆNTANLEGA verður nýja rafstöðin í Bjarnarflagi, sú fyrsta hér á landi, sem knúin er jarðgufu, reynd um næstu helgi. Sú virkjun á að framleiða Flúðu ismn ÞRÍR Skagastrandarbátar, þeir Stígandi, Helga Björg og Auð- björg, eru farnir frá Skaga- strönd; flúnir vegna ótta við innilokun vegna hafíss. Stígandi fór til Bolungarvíkur, hinir til Grindavíkur. Heima er Guðjón Árnason og svo Arnar, sem mestar vonir eru bundnar við um öflun hrá- efnis. Hólanes h.f. hefur flutt sína starfsemi í gamla frystihús Kaupfélags Skagstrendinga og er tekið á móti fiskinum þar og vinna hafin, enda bátarnh byrj 'aðir að róa. □ 2500 kw, en orkan kemur úr iðrum jarðar, sjóðandi gufa úr borholu, er gerð var í sumar. En gufan í borholu þessari braut af sér öll bönd, sem kunn ugt er, en síðustu mánuði hefur boi'holan verið fóðruð innan og er enn unnið við að tryggja hana. í sumar er ráðgert að bora meira, því gufuorka sú, sem nú er fyrir hendi, mun ekki nægileg til fullra afkasta raf- stöðvarinnar, en ætti þó að gefa 1500 kw og er það mikils virði og leystj vararafstöðvarnar á Akureyri af hólmi að mestu, því að hin nýja rafstöð í Bjarn- arflagi verður strax tengd Lax- árveitukerfinu. Lausleg mæling á gufuorku borholu þeirrar, sem hér um ræðir, sýndi 30—40 tonn, áður en röskun varð. En um 50 tonn þurfa til að framleiða 2500 kw. (Samkv. lauslegu viðtali við raf veitustjóra, Knút Otterstedt). ■ ■ Grjótá tekur skreið á Akureyri og flytur áleiðis til Biafra. Landssöfnun ti! stuðnings íbúum (Ljósm.: E. D.) Gunnarsstöðum, 4. marz. Snjór er ekki mikill á þessum slóðum, en harðfenni mikil og þó minni svellalög en í fyrra. Jarðlaust er með öllu og standa allar skepnur í húsi. fshrafl sást hér um daginn, en er farið. Hrognkelsaveiðar eru hafnar. Bátarnir Dagur og Glaður eru farnir héðan og því dauft yfir sjósókn á Þórshöfn. Ó. H. Á NÝBYRJAÐRI föstu mun fara fram hér á landi víðtæk fjársöfnun til styrktar hinu bág stadda fólki í Biafra. Styrjaldar átök og hungursneyð hafa nú staðið þar hátt á annað ár — og verður ekki enn séð fyrir end- ann á þeim hörmungum. Þörf- in fyrir aðstoð er því mikil og er stefnt að því, að öllum lands- mönnum, sem eitthvað vilja láta af hendi rakna, gefist sem greiðastur kostur á að leggja skerf til söfnunarinnar — en meginátak hennar verður helg- ina 15.—16 marz n. k. Er þess vænzt, að söfnunin hljóti góðan stunðing, þar sem að undan- BREZKA náttúruverndarsýn- ingin var opnuð í Landsbanka- salnum á Akureyri s.l. laugar- dag (1. marz) að viðstöddum 40—50 gestum, sem boðið hafði verið víðs vegr aað úr hérað- inu. Formaður náttúruverndar- nefndanna, Ofeigur Eiríksson, bæjarfógeti, bauð gesti vel- komna og flutti þakkir. Þá flutti Helgi Hallgrímsson safn- vörður, stutt erindi um náttúru vernd. Gat hann þess m. a., að ætlunin væri að boða til fund- ar áhugamanna um náttúru- vernd á Akureyri í vor, og benti á innritunarlista, sem lægi frammi á sýningunni. Því næst sagði Jón Rögnvaldsson fömu hefur komið fram mikill skilningur og samúð hjá þjóð- inni með hinum hrjáðu íbúum Biafra. Þessu nýja átaki hérlendis til styrktar Biafra-búum var hleypt af stokkunum með ávarpi biskups fslands, herra Sigurbjörns Einarssonar, dr. Jóns Sigurðssonar, borgarlækn is, formanns Rauða kross ís- lands, frú Helgu Magnúsdóttur á Blikastöðum, formanns Kven félagasambands íslands, skáta- höfðingjans Jónasar B. Jóns- (Framhald á blaðsíðu 5) Svíar launa lífgjöfina Brezka nátt iíruverndarsýniíigin Á fundi með náttúruverndarnefndum. (Ljósm.:E. D.) garðyrkjumaður nokkur vel val in orð, og beindi máli sínu eink- um til vegagerðarmanna. Að svo búnu var gestum boð ið að skoða sýninguna, og að lokum var sýnd kvikmynd um náttúruvernd í Bretlandi. Klukkan 4 sama dag var sýn- ingin opnuð almenningi, og verður hún framvegis opin alla sýningardagana, kl. 4—10 síð- degis. Það er náttúruverndarnefnd Hins íslenzka náttúrufræðifé- lags, sem hefur fengið þessa sýn ingu til landsins, og stendur að henni hér, ásamt British Coun- cil. Aðstandendur sýningarinn- ar á Akureyri, eru þrír: Nátt- úrugripasafnið, Náttúruvernd- arnefndir Akureyrar og Eyja- fjarðarsýslu og Fegrunarfélag Akureyrar. Þá má geta þess, að Jón Sigurjónsson trésmíðameist ari hefur gefið eitt þúsund kr. til að greiða kostnað við sýn- inguna. Aðgangur er ókeypis, en sýnnigarskrá, sem inniheld- ur þýðingar á öllu lesmáli sýn- (Framhald á blaðsíðu 2) SNEMMA í vetur var frá því sagt, er ferðamenn tepptust á Fjarðraheiði í hinu versta veðri og ófærð. Þeir voru á leið til Seyðisfjarðar frá Egilsstöðum og lentu í miklum mannraun- um, þrátt fyrir vasklega fram- göngu héraðsmanna. Meðal ferðamannanna voru tveir sænskir síldarkaupmenn og Hrólfur Ingólfsson bæjarstjóri á Seyðisfirði. Dvöldu þeir nátt- langt, og lengur þó, í snjóbíl á heiðinni, sem bilaður var, en vélin höfð í gangi til að hita upp. Aðrir brutust til byggða eftir aðstoð. En það er af mönn um þessum að segja, að þeir voru allir meðvitundarlausir, er að var komið, bæði bæjarstjór- inn, sem hresstist þó brátt, og báðir Svíarnir. Mun hafa skeflt svo að bílnum, að útblástur vél arinnar hefur lent inn í bílinn að einhverju leyti, en slíkt get- ur verið banvænt. Mennirnir komust allir til heilsu. í gær voru Svíamir komnir til Reykjavíkur og afhentu þar Steinþóri Eiríkssyni, form. slysa varnadeildarinnar á Egilsstöð- um snjósleða að gjöf til deildar- innar, sem þakklætisvott fyrir karlmannleg björgunarstörf á Fjarðarheiði. Nöfnum Svíanna náði blaðið ekki í gær, en hafi þeir þökk fyrir góðan skilning á málefn- iim slysavarnadeilda og liarð- fengi björgunarmanna. □ Vitni óskast ÞRIÐJUDAGINN 18. febrúar, á tímabilinu frá kl. 19.15 til 20.00 var ekið á bifreiðina A 569 þar sem henni hafði verið lagt vest- an flugstöðvarbvggingarinnar á Akureyrarflugvelli. Allir þeir, sem einhverjar upplýsingar geta gefið í máli þessu, eru beðnir að tilkynna það lögreglunni. (Fréttatilkynning ) YFIRLIT UM ARNARSTOFNINN FUGLAVERNDARFÉLAG ÍS- LANDS hefur sent frá sér fréttatilkynningu um íslenzka arnarstofninn. Árið 1920 vreptu 20 arnar- hjón á öllu landinu og 10 árum síðar var hreiðurtalan eins. Árið 1940 voru hreiður 26 og 22 árið 1950. Bn 1959 voru arnarhreiður 10 og árið 1963 voru þau aðeins 4. Nú virðist fuglinum fjölga og urpu 13 hjón árið 1968. Það er einróma álit, að algert bann við því að eitra fyrir mein dýr, sé það eina sem bjargað geti íslenzka amarstofninum frá algerri útrýmingu. □

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.