Dagur - 29.05.1969, Blaðsíða 7
z
SMATT & STORT
(Framhald af blaðsíðu 8).
tíma renni sá dagur upp, er
hundar vinna hundsverk þau,
er bændur vinna nú.
HRINGFERÐ UM ÍSLAND
Með staðsetningu flugvélar á
Akureyri, sem annast flug m. a.
til lsafjarðar og Egilsstaða opn-
uðust möguleikar til hringferð-
ar um Island.
Sé farið frá Reykjavík er
komið við á eftirtöldum stöð-
um: fsafirði, Akureyri, Egils-
stöðum, Hornafirði og þaðan til
Reykjavíkur. Flogið er milli
allra staða nema Egilsstaða og
Hornafjarðar, en sá kafli er
ekinn í áætlunarbíl. Hægt er að
hefja ferðina á hverjum þessara
staða sem er, og í hringferðun-
um geta farþegar stanzað á við-
komustöðum að vild.
ÖL OG AFENGISBÖL
Læknavísindin í mörgum lönd-
uni hafa komizt að þeirri niður-
stöðu undanfarin ár, að hættan
á drykkjusjúkdómum orsakist
af því áfengismagni, sem neytt
er daglgea en ekki livaða teg-
und áfengis er neytt.
Það er almenn reynsla, að öl-
drykkja verður frekar daglegur
vani heldur en neyzla strekra
drykkja.
Af því leiðir, að ölið verður
oftast raunveruleg frumorsök
drykkjusjúkdóma og drykkju-
böls.
G. T. blaðið 19/3 1969.
Áfengisvarnaráð.
STEFNUFESTA!
Öðru hverju er landslýður
fræddur á því, hve mikilsvert
það sé að eiga „stefnufasta“ rík-
isstjórn, eins og þá er nú situr.
Örlítið dæmi um „stefnufest-
una“ fer hér á eftir: Visitölu-
trygging launa var bönnuð árið
1960, lögboðin 1964, numin úr
lögum 1967, samningsbundin
1968 og á því herrans ári 1969
er vísitölutrygging launa for-
boðin.
- Jón Sigurgeirsson
(Framhald af blaðsíðu 5).
óbugandi starfsvilja og búinn
þeim hæfileika að sjá jafnan til
sólar þó að óveðursskýin hrann
ist upp fyrir augum fjöldans.
Hugsun hans er fersk og frjó og
hann verður alltaf ungur þó að
áratalan hækki samkvæmt
kirkjubókinni. Þess óska ég
Jóni Sigurgeirssyni sextugum,
að æ fari fjölgandi þeim blóm-
um, sem vaxa í sporum hans og
að hann megi enn um langa tíð
heill og glaður vinna að hug-
sjónum sínum og áhugamálum
sjálfum sér til sæmdar og yndis
og öðrum til aukinnar menn-
ingar. — Á vegi vökumanns
með vor í hjarta verður ávallt
bjart.
(Framhald af blaðsíðu 1)
ins ráðstefnuna og Arnþór Þor
steinsson forstjóri kynnir verk
smiðjur SÍS.
Kl. 14.30 verða skoðaðar
verksmiðjur SÍS og KEA, Út-
gerðarfélag Akureyringa og
Niðurlagningarverksmiðja K.
Jónssonar & Co.
Kvöldverður verður snædd
ur kl. 19. Þá talar Jakob Frí-
mannsson kaupfélagsstjóri um
Kaupfélag Eyfirðinga. Kl.
20.30 heldur ráðstefnan áfram.
Bjarni Einarsson bæjarstjóri
flytur erindi um hlutverk ís-
lenzks iðnaðar og framtíðar-
möguleika, en að því loknu
verða fyrirspurnir og frjálsar
umræður.
Kl. 8 á laugardagsmorgun
- Sólborg
(Framhald af blaðsíðu 8).
rými leyfir þó e. t. v. fleiri. Þörf
in fyrir slíkt heimili er mjög
brýn.
Er fréttamenn höfðu skoðað
byggingar, var boðað til kaffi-
drykkju í Bjargi og þar skýrði
Jóhannes Óli Sæmundsson fram
kvæmdastjóri og driffjöður
framkvæmda frá málavöxtum,
og ennfremur formaður bygg-
ingarnefndar, Jóhann Þorkels-
son.
Við þetta tækifæri færði
Júdit Jónbjörnsdóttir kennari á
Akureyri heimilinu að gjöf 100
þús. kr. til minningar um Sig-
nýju Hjálmarsdóttur, Bergi í
Aðaldal, til sjóðsstofnunar, er
nefnist „Vinarhöndin" og búið
er að gera skipulagsskrá fyrir.
Var gjöfin þökkuð við þetta
tækifæri.
Erlendis við framhaldsnám
eru tvær konur og einn maður,
Kolbrún Thorlacius, sem vei'ð-
ur forstöðukona, Valgerður
Jónsdóttir, sem verður aðstoðar
forstöðukona og Bjarni Krist-
jánsson, sem verður kennari.
Segja má, að Styrktarfélag
vangefinna hafi notið óvenju-
legs skilnings og stuðnings al-
mennings, enda hafa stjórnend-
ur þess ekki legið á liði sínu. □
verður siglt út Eyjafjörð með
Drangi, undir leiðsögn Jónas-
ar Kristjánssonar fyrrv. sam-
lagsstjóra og gefst mönnum
ennfremur tækifæri til þess
að renna fyrir fisk. Kl. 14 verð
ur komið að landi og kl. 15.30
heldur ráðstefnan áfram. Þá
talar Helgi Bergs bankastjóri
um íslenzkan iðnað og mark-
aðsbandalög og Knútur Otter-
stedt rafveitustjóri um þátt
raforkunnar í framtíðarupp-
byggingu íslenzks iðnaðar. Síð
an verða fyrirspurnir og um-
ræðu, og þátttakendur skipt-
ast í umræðuhópa.
Kvöldverður verður snædd
ur kl. 19 og að því búnu starf-
að í umræðuhópum, en kvöld-
ið ei’ frjálst þeim sem þess
óska.
8. júní hefjast störf í um-
ræðuhópum en hádegisverður
verður framreiddur kl. 12. Kl.
12.30 verður farið frá KEA í
Skíðahótelið í Hlíðarfjalli, og
þar fram haldið ráðstefnunni
og umræðuhópar skila áliti og
þau verða afgreidd. Kaffi verð
ur drukkið í boði Framsóknar
félags Reykjavíkur, en síðan
slítur Kristinn Finnbogason
formaður félagsins ráðstefn-
unni. Flogið verður til Reykja
víkur kl. 6 um kvöldið. □
NÝKOkíNAK
ÓDÝRAR
DÖMUPEYSUR
4 litir. - Verð kr. 255.-
og kr. 310.-
VERZLUNIN DRÍFA
TIL SÖLU:
BIFREIÐIN A-1205,
Chevrolet árg. 1955.
Nánari uppl. veitir
Friðfinnur Gíslason,
sími 1-10-85.
MESSAÐ í Akureyrarkirkju kl.
10.30 árdegis á sunnudaginn.
(Athugið breyttan messu-
tíma). Sjómannamessa. Sálm
ar nr. 511 — 665 — 659 —
681 — 660. — P. S.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 1. júní. Sam-
koma kl. 8.30 e. h. Lesið úr
bréfum frá Skúla Svavars-
syni. Jón Viðar og Reynir
Hörgdal tala. Tekið á móti
gjöfum til kristniboðsins í
Konsó. Síðasta samkoma að
sinni. Allir hjartanlega vel-
komnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN! Sam-
koma n. k. sunnudag kl. 8.30
e. h. Kapt. Morken og frú
tala. Allir velkomnir.
KRAKKAR! Sunnudagaskóli
Hjálpræðishersins fer í
skemmtiferð á laugardaginn
kemur, 31. maí, kl. 2 e. h. frá
hernum. Hafið með ykkur
nesti. Fargjald er 25.00 kr.
ST. GEORGS -GILDIÐ.
Fundurinn verður í
Hvammi mánudaginn 2.
júní kl. 8.30 e. h. Fréttir af
bandalagsþingi. — Stjórnin.
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Fundur n. k. fimmtudag
kl. 21.00 í Ráðhúsinu. Félagar
fjölmennið. — Æ.t.
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99.
Oformlegur fundur (Rabb-
fundur) fimmtudaginn 29.
maí kl. 20.30 í Kaupvangs-
stræti 4. Félagar fjölmennið.
— Æ.t.
AÐALFUNDUR Kvennasam-
bands Akureyrar verður að
Bjargi fimmtudaginn 29. maí
kl. 8.30 e. h. — Stjórnin.
MINJASAFNIÐ er opið á
sunnudögum kl. 2 til 4 e. h.
Tekið á móti skólafólki og
ferðafólki á öðrum tímum ef
óskað er. Sími safnsins er
1-11-62 og safnvarðar 1-12-72
FERMINGARBÖRN
að GRUND á Trinitatis.
Anna Friðriksdóttir, Kristnesi
Helga Tryggvadóttir, Vöglum
Jónína Kristín Ingvarsdóttir,
Möðrufelli
Kristín Hlín Gestsdóttir, Litla-
garði
Sigríður Bernharðsdóttir,
Laugaborg
Sigrún Guðlaugsdóttir, Merki-
gili
Jón Ingvar Hjálmarsson, Hóls-
gerði
Jón Ólafur Jónsson, Ytra-Felli
Jósef Lilliendal Sigurðsson,
Torfufelli
Lárus Örn Steingrímsson,
Kroppi
Randver Víkingur Rafnsson,
Hólum
Sigurgísli Sveinbjörnsson,
Hrísum
Sigurður Rúnar Tryggvason,
Melum. □
ELDRI-DANSA
KLÚBBURINN
Dansleikur í Alþýðuhús
inu laugardaginn 31.
maí og hefst kl. 9 e. h.
Miðasalan opnuð kl. 8.
Góð músík.
Stjórnin.
BRÚÐHJÓN. Hinn 24. þ. m.
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju brúðhjón-
in Áslaug Sigríður Kristjáns,-
dóttir og Kristján Ingvar Jó-
hannsson ketil- og plötusmið
ur. Heimili þeirra er að
Hamarsstíg 27, Akureyi'i.
BRÚÐHJÓN. Hinn 24. maí
voru gefin saman í hjónaband
á Akureyri ungfrú Herdís
Ingvadóttir og Friðrik Þ.
Árnason sjómaður. Heimili
þeirra verður að Skarðshlíð 2,
Akureyri.
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband í Akureyrar-
kirkju ungfrú Þórey Ólafs-
dóttir og Benedikt S. Sigur-
björnsson húsasmiður. Heim-
ili þeirra verður að Skarðs-
hlíð 21, Akureyri.
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband á Akureyri ung-
frú Magnea Steingrímsdóttir
og Birgir Halldór Pálmason
iðnverkamaðui'. Heimili
þeirra verður að Hafnarstræti
84, Akureyri.
Hinn 26. maí voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju ungfrú Benna
Stefanía Rósantsdóttir og Atli
Viðar Jóhannesson sjómaður.
Heimili þeirra verður að
Strandgötu 39, Akureyri.
HLÍFARKONUR! Komið í
kirkjuna n. k. sunnudag.
Minnzt verður sumarstarfsins
í Pálmholti. Athugið breyttan
messutíma.
KVENFÉLAG AKUREYRAR -
KIRKJU heldur þrítugasta
aðalfund sinn föstudaginn 30.
þ. m. kl. 8.30 e. h. Félagið var
stofnað í þeim tilgangi að
vinna að byggingu nýrrar
kirkju hér á Akureyri og síð-
an að hlúa að henni eftir
mætti. Félagið hefur því frá
fyrstu tíð gefið kirkjunni, og
síðar æskulýðsstarfinu við
Vestmannsvatn, marga nauð-
synlega muni, nú síðast bólstr
un kirkjubekkjanna. Það er
nokkuð dýr framkvæmd fyrir
lítið kvenfélag, en þó eru fé-
lagskonur langt komnar að
greiða þá skuld og bjartsýnar
á framtíðina. Þó félagið starfi
af þrótti væri æskilegt að
fleiri bæjarkonur kæmu til
starfa fyrir kirkju sína og eru
þær innilega velkomnar á
þennan aðalfund. Félagskon-
ur! Mætum allar.
ÁHEIT á Akureyrarkirkju kr.
800 og á Strandarkirkju kr.
500 frá K. B. — Beztu þakkir.
— Birgir Snæbjörnsson.
- Margt fer öðruvísi
(Framhald af blaðsíðu 4).
segja sína sögu um kák og
úrræðaleysi, auk alls annars.
Það er sannarlega mál til
komið, að hvíla núverandi
ráðherra um stund og lofa
þeirn að safna kröftum. □
Ný sending.
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61
f . #
Hjartans pakklœti sencli ég öllmn þeim, sem
glöddu migd sjötugsafmœli minu þann 10 mai
I
©
siðastliðinn með gjöfum, skeytum og heimsókn- *
um. ©
-?•
Guð blessi ykkur öll. . . |;
JÓHANN FR. JÓNSSON, Sandvik, Hauganesi. J!
1
Eiginmaður minn,
JÖRUNDUR GUÐMUNDSSON
frá Hrísey,
andaðist að Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar
þriðjudaginn 27. þ. nt.
Engilráð Sigurðardóttir.
Þökkum innilega auðsýnda sannið og vinarhug
við andlát og jarðarför
MARÍU JÓNSDÓTTUR,
Munkaþverárstræti 21 — Akureyri.
Ólafur Jónsson, börn og tengdabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð \ ið and-
lát og jarðarför
ÁSGEIRS ÞORVALDSSONAR
frá Sólborgarhóli.
Börn, tengdabörn og barna-barnabörn.
Jórunn Ólafsdóttir
frá Sörlastöðuni.
- IÐNAÐARMÁLARÁÐSTEFNA
>•