Dagur - 25.06.1969, Qupperneq 1
BEZTA HUSHJÁLPIN
ÞRIFUR
ALLT
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Lðx lekinn berum höndum
UM HELGINA voru þeir
tengdafeðgar Ragnar Kjartans-
son forstöðumaður fatahreins-
unar K. Þ., Húsavík og Haukur
Logason innkaupastjóri, ásamt
venzlafólki í sumarskála við
Vestmannsvatn í Reykjadal. Þá
gerðist það, er börn voru að leik
við vatnið, að drengur einn kall
aði og sagðist sjá lax i vatninu.
Þeir fullorðnu töldu það fjar-
stæðu og litu ekki til fyrr en
annar drengur kallaði: Víst er
lax. Þá var brugðið hart við og
nema hvað? Gljáandi lax hélt
sig örstutt frá landi. Haukur
steig öðrum fæti í vatnið, greip
um sporð laxins og kippti hon-
um á land. Laxinn var 8 punda
nýgengin hrygna og hinn feg-
ursti fiskur.
Mikill fiskur barst á land á
Húsavík í vikunni sem leið og
ekki var aflinn allur langsóttur,
því bátar voru að veiðum eigi
mildu meira en tvö eða þrjú
steinsnör utan hafnargarðsins.
Gamlir sjómenn sátu öðru
hverju á kirkjutröppunum með
sjónauka og fylgdust af áhuga
með veiðunum. Þ. J.
Sláttur er að hefjast
Konur úr Suður
Þingeyjarsýslu
Nýja Hekla og á bak við er skipasmíðahúsið. (Ljósm.: E. D.)
Stærsta innlenda skipið sjósell á Ak.
Smíðað á Akureyri og lilaut nafnið HEKLA
EKKI mun sláttur hafinn í Eyja
firði svo heitið geti, að því er
eyfirzkir bændur tjáðu blaðinu
á mánudaginn. En grasspretta
hefur verið ör að undanförnu og
því mun óhætt að telja, að slátt
ur muni fara að hefjast á þeim
Kasthvammi 14. júní. Það var
hvítt niður að Laxá í morgun,
og niður í miðjar brekkur í gær
morgun, og krapahríð í allan
gærdag, en ekki hefur verið
hvasst, svo þolanlegt hefur ver-
ið á lömbum, en kalt sýndist
þeim vera í morgun.
Það má líklega ekkert segja
við þessu hreti fyrst það kom
ekki fyrr, og er ekki verra, eða
ekki orðið verra, en ennþá er
en gott hefði verið að losna við
snjóáfelli eitt vor. Maímánuður
og fyrsta vika júní voru betri
en um mörg undanfarin ár, það
var að vísu kalt fram um 20,
en þó ekki svipuð frost og sum
hin árin og þó alveg sérstaklega
í fyrra. Sauðburður gekk ágæt-
lega hjá flestum, þó voru tölu-
verð veikindi í lömbum á ein-
um bæ, og nokkur vanhöld.
Mikið var tvílembt og sumstað-
ar með mesta móti. Hér í Kast-
hvammi var fyrstu einlenibum
sleppt 29. maí, þá á betri gróður
en undanfarin ár, aðrir svo þar
aftur úr. Sumstaðar eru tví-
lembur töluvert enn heima á
túnum. Kal virðist ekki mikið
nýlegu og óskemmdu túnum,
sem alfriðuð hafa verið í vor og
snemma fengu áburð.
Allvíða munu tún hafa kalið
í vor, en ekkert í líkingu við
það, sem undanfarin ár hefur
kalið. □
eftir veturinn, en hins vegar eig
um við fýrningar frá fyrri árum
einkum þó á túnum og áborn-
um löndum við Laxá frá í fyrra,
þar sem stóra hlaupið eyðilagði
mest.
Minna hefur orðið vart við
mink en sum undanfarin ár, eitt
greni hefur verið unnið og
komu úr því 8 stykki.
Dálítið sá ég af rjúpum í heið
inni í vor, — fyrrihluta maí —
en hér niðri í dalnum verður
þeirra ekki vart núna. Fuglalíf
við Laxá finnst mér enn hafa
minnkað. Kærkomnir landnem-
ar eru nú við Kringluvatn, en
(Framhald á blaðsíðu 7)
SKOÐUN bifreiða er nú lokið
hér á Akureyri. Og nú er farin
herferð á hendur þeim, sem
ekkj hafa fært ökutæki til skoð
unar, sagði lögreglan blaðinu í
gær.
KLUKKAN tvö eftir hádegi á
föstudaginn var annað strand-
ferðaskip ríkisins, sem eru í
smíðum á Akureyri, sjósett að
viðstöddu miklu fjölmenni. At-
í VETUR var haldin sýning á
Akureyri, um náttúruvernd í
Bretlandi. Á þessari sýningu
kom fram eindreginn áhugi
margra sýningargesta fyrir
Hafa lögregluþjónai' fengið
þau fyrirmæli, að taka óskoðað-
ar bifreiðar hvar sem til þeirra
næst, samkvæmt auglýsingu
þar um.
(Framhald á blaðsíðu 7)
höfnin hófst með því, að fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvarinn-
ar h.f., Skapti Áskelsson, flutti
ávarp. I»á tók Eggert G. Þor-
steinsson ráðherra til máls og
stofnun almennra samtaka eða
félags um náttúruvernd á Norð
urlandi. Að sýningunni lokinni,
höfðu um 40 manns ritað sig
sem þátttakendur í væntanleg-
um stofnfundi samtakanna.
Nú hefur verið afráðið, að
boða til þessa fundar á Laugum
í Reykjadal (Laugaskóla), laug
ardaginn 28. júní, kl. 2 síðdegis.
Fundurinn verður um leið
eins konar ráðstefna, þar sem
flutt verða erindi um ýmsar
hliðar náttúruverndarmála og
rætt um þau efni.
(Framhald á blaðsíðu 7)
kona hans, frú Jóna Jónsdóttir,
gaf skipinu nafnið Hekla.
Voru þá logskornar festingar
og skipið rann fallega út úr
skipasmíðaliúsinu fram í sjó,
við mikinn fögnuð viðstaddra.
Loftur Baldvinsson dró hið
nýja skip siðan að nýja viðlegu-
kantinum sunnan skipasmíða-
stöðvarinnar, þar sem smíði
verður Iokið síðar á þessu
sumri eða í haust. Verður nú
annað skip af sömu stærð og
gerð, reist í skipasmíðahúsinu,
fyrir sama aðila.
Síðar sama dag hafði Slipp-
stöðin boð inni fyrir starfsfólk
sitt, ráðamenn bæjar- og hafnar
mála, ráðherra og fleiri gesti, á
Hótel KEA. Bjarni Jóhannes-
son stjórnarformaður Slipp-
stöðvarinnar flutti þar stutt
(Framhald á blaðsíðu 7).
Aðalfioodur SIS
AÐALFUNDUR Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga hófst í
Bifröst í Borgarfirði í gær,
þriðjudaginn 24. júní.
Fulltrúar víðsvegar af Norður
landi fóru hér um í gær, á suð-
urleið. □
Belra vor en undanfarin ár
Teknir - hvar sem þeir finnasf
Nállúruverndarráðslelna
Ráðstefna um náttúruvemd á Norðurlandi verður haldin
á Laugum í Reykjadal, dagana 28.-29. júní. — Aðalmál
ráðstefnunnar verður stofnun samtaka um náttúruvernd á
Norðurlandi.
KONUR úr Suður-Þingeyjar-
sýslu, 76 að tölu, skoðuðu Lysti-
garð Akureyrar á mánudaginn.
Þær eru í fjögurra daga orlofs-
ferð og voru á leið í Borgarfjörð
og Snæfellsnes. Það er orlofs-
nefnd S.-Þ., sem skipuleggur
slíkar ferðir og er þetta sjöunda
slík ferð og samtals hafa 700
konur tekið þátt í þeim. Orlofs-
nefnd, sem jafnframt er farar-
stjórn, skipa: Elín Aradóttir,
Brún, Marina Baldursdóttir,
Lundarbrekku og Katrín Jóns-
dóttir, Húsavík. □
Þingeysku konurnar í Lystigarði Akureyrar á mánudaginn.
(Ljósm.: E. D.)