Dagur - 25.06.1969, Síða 1

Dagur - 25.06.1969, Síða 1
BEZTA HUSHJÁLPIN ÞRIFUR ALLT FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJOSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Lðx lekinn berum höndum UM HELGINA voru þeir tengdafeðgar Ragnar Kjartans- son forstöðumaður fatahreins- unar K. Þ., Húsavík og Haukur Logason innkaupastjóri, ásamt venzlafólki í sumarskála við Vestmannsvatn í Reykjadal. Þá gerðist það, er börn voru að leik við vatnið, að drengur einn kall aði og sagðist sjá lax i vatninu. Þeir fullorðnu töldu það fjar- stæðu og litu ekki til fyrr en annar drengur kallaði: Víst er lax. Þá var brugðið hart við og nema hvað? Gljáandi lax hélt sig örstutt frá landi. Haukur steig öðrum fæti í vatnið, greip um sporð laxins og kippti hon- um á land. Laxinn var 8 punda nýgengin hrygna og hinn feg- ursti fiskur. Mikill fiskur barst á land á Húsavík í vikunni sem leið og ekki var aflinn allur langsóttur, því bátar voru að veiðum eigi mildu meira en tvö eða þrjú steinsnör utan hafnargarðsins. Gamlir sjómenn sátu öðru hverju á kirkjutröppunum með sjónauka og fylgdust af áhuga með veiðunum. Þ. J. Sláttur er að hefjast Konur úr Suður Þingeyjarsýslu Nýja Hekla og á bak við er skipasmíðahúsið. (Ljósm.: E. D.) Stærsta innlenda skipið sjósell á Ak. Smíðað á Akureyri og lilaut nafnið HEKLA EKKI mun sláttur hafinn í Eyja firði svo heitið geti, að því er eyfirzkir bændur tjáðu blaðinu á mánudaginn. En grasspretta hefur verið ör að undanförnu og því mun óhætt að telja, að slátt ur muni fara að hefjast á þeim Kasthvammi 14. júní. Það var hvítt niður að Laxá í morgun, og niður í miðjar brekkur í gær morgun, og krapahríð í allan gærdag, en ekki hefur verið hvasst, svo þolanlegt hefur ver- ið á lömbum, en kalt sýndist þeim vera í morgun. Það má líklega ekkert segja við þessu hreti fyrst það kom ekki fyrr, og er ekki verra, eða ekki orðið verra, en ennþá er en gott hefði verið að losna við snjóáfelli eitt vor. Maímánuður og fyrsta vika júní voru betri en um mörg undanfarin ár, það var að vísu kalt fram um 20, en þó ekki svipuð frost og sum hin árin og þó alveg sérstaklega í fyrra. Sauðburður gekk ágæt- lega hjá flestum, þó voru tölu- verð veikindi í lömbum á ein- um bæ, og nokkur vanhöld. Mikið var tvílembt og sumstað- ar með mesta móti. Hér í Kast- hvammi var fyrstu einlenibum sleppt 29. maí, þá á betri gróður en undanfarin ár, aðrir svo þar aftur úr. Sumstaðar eru tví- lembur töluvert enn heima á túnum. Kal virðist ekki mikið nýlegu og óskemmdu túnum, sem alfriðuð hafa verið í vor og snemma fengu áburð. Allvíða munu tún hafa kalið í vor, en ekkert í líkingu við það, sem undanfarin ár hefur kalið. □ eftir veturinn, en hins vegar eig um við fýrningar frá fyrri árum einkum þó á túnum og áborn- um löndum við Laxá frá í fyrra, þar sem stóra hlaupið eyðilagði mest. Minna hefur orðið vart við mink en sum undanfarin ár, eitt greni hefur verið unnið og komu úr því 8 stykki. Dálítið sá ég af rjúpum í heið inni í vor, — fyrrihluta maí — en hér niðri í dalnum verður þeirra ekki vart núna. Fuglalíf við Laxá finnst mér enn hafa minnkað. Kærkomnir landnem- ar eru nú við Kringluvatn, en (Framhald á blaðsíðu 7) SKOÐUN bifreiða er nú lokið hér á Akureyri. Og nú er farin herferð á hendur þeim, sem ekkj hafa fært ökutæki til skoð unar, sagði lögreglan blaðinu í gær. KLUKKAN tvö eftir hádegi á föstudaginn var annað strand- ferðaskip ríkisins, sem eru í smíðum á Akureyri, sjósett að viðstöddu miklu fjölmenni. At- í VETUR var haldin sýning á Akureyri, um náttúruvernd í Bretlandi. Á þessari sýningu kom fram eindreginn áhugi margra sýningargesta fyrir Hafa lögregluþjónai' fengið þau fyrirmæli, að taka óskoðað- ar bifreiðar hvar sem til þeirra næst, samkvæmt auglýsingu þar um. (Framhald á blaðsíðu 7) höfnin hófst með því, að fram- kvæmdastjóri Slippstöðvarinn- ar h.f., Skapti Áskelsson, flutti ávarp. I»á tók Eggert G. Þor- steinsson ráðherra til máls og stofnun almennra samtaka eða félags um náttúruvernd á Norð urlandi. Að sýningunni lokinni, höfðu um 40 manns ritað sig sem þátttakendur í væntanleg- um stofnfundi samtakanna. Nú hefur verið afráðið, að boða til þessa fundar á Laugum í Reykjadal (Laugaskóla), laug ardaginn 28. júní, kl. 2 síðdegis. Fundurinn verður um leið eins konar ráðstefna, þar sem flutt verða erindi um ýmsar hliðar náttúruverndarmála og rætt um þau efni. (Framhald á blaðsíðu 7) kona hans, frú Jóna Jónsdóttir, gaf skipinu nafnið Hekla. Voru þá logskornar festingar og skipið rann fallega út úr skipasmíðaliúsinu fram í sjó, við mikinn fögnuð viðstaddra. Loftur Baldvinsson dró hið nýja skip siðan að nýja viðlegu- kantinum sunnan skipasmíða- stöðvarinnar, þar sem smíði verður Iokið síðar á þessu sumri eða í haust. Verður nú annað skip af sömu stærð og gerð, reist í skipasmíðahúsinu, fyrir sama aðila. Síðar sama dag hafði Slipp- stöðin boð inni fyrir starfsfólk sitt, ráðamenn bæjar- og hafnar mála, ráðherra og fleiri gesti, á Hótel KEA. Bjarni Jóhannes- son stjórnarformaður Slipp- stöðvarinnar flutti þar stutt (Framhald á blaðsíðu 7). Aðalfioodur SIS AÐALFUNDUR Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga hófst í Bifröst í Borgarfirði í gær, þriðjudaginn 24. júní. Fulltrúar víðsvegar af Norður landi fóru hér um í gær, á suð- urleið. □ Belra vor en undanfarin ár Teknir - hvar sem þeir finnasf Nállúruverndarráðslelna Ráðstefna um náttúruvemd á Norðurlandi verður haldin á Laugum í Reykjadal, dagana 28.-29. júní. — Aðalmál ráðstefnunnar verður stofnun samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi. KONUR úr Suður-Þingeyjar- sýslu, 76 að tölu, skoðuðu Lysti- garð Akureyrar á mánudaginn. Þær eru í fjögurra daga orlofs- ferð og voru á leið í Borgarfjörð og Snæfellsnes. Það er orlofs- nefnd S.-Þ., sem skipuleggur slíkar ferðir og er þetta sjöunda slík ferð og samtals hafa 700 konur tekið þátt í þeim. Orlofs- nefnd, sem jafnframt er farar- stjórn, skipa: Elín Aradóttir, Brún, Marina Baldursdóttir, Lundarbrekku og Katrín Jóns- dóttir, Húsavík. □ Þingeysku konurnar í Lystigarði Akureyrar á mánudaginn. (Ljósm.: E. D.)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.