Dagur - 08.10.1969, Síða 2
2
Æfingar í Iþróttaskemmunni
Akureyringar héldu velli í tyrstu deild
ANNAR leikur ÍBA og Bi-eiöa-
bliks úr Kópavogi um 8; sætið
í 1. deild næsta áiy fór fram hér
á vellinum sl. sunnudag, í blíð-
skapar veðri, en bleytu nokk-
urri, svo illt var að fóta sig. Er
skemmst af því að segja, að
leikurinn var nokkuð jafn, fyrri
hálfleikinn. Þá skoruðu sunnan
menn tvö mörk, bæði góðj gegn
einu norðanmanna. En að leik-
hléi loknu tóku norðanmenn
góða skorpu og skoruðu tvö
mörk á nokkrum mínútum.
Lauk leiknum þannig, og leika
því Akureyringar í 1. deild
næsta ár.
Segja má, að loknum eltingar
leik við fótbolta í allt sumar að
uppskera ÍBA sé fremur rýr.
Þó verður að taka það með í
reikninginn að sjálfsagt hefir
ekkert lið í 1. deild orðið fyrir
öðru eins mannfalli og okkar
lið. Báðir bakverðirnir, Ævar
og Aðalsteinn, hafa ekki leikið
með um sinn, vegna meiðsla og
veikinda, Jón Stefánsson, burð-
arás liðsins um árabil, svo til
ekkert í síðari umferð og Stein-
grímur Björnsson, marksækn-
asti maður liðsins, fótbrotinn.
Valsteinn meiddur, ekki leikið
með frá í vor og þar til nú síð-
asta leikinn, Kári kom inn í
iiðið nú síðustu leiki, og var
ekki nema svipur hjá sjón, mið
að við fyrri ár. Guðni hætti á
miðju sumri. Þetta er mikil
blóðtaka fyrir eitt knattspyrnu-
lið á einu sumri. En segja má
að það sé lítil breidd í knatt-
spyrnunni í 10 þús. manna bæ
að geta ekki bætt í skörðin.
Oft hefir maður heyrt í áhorf
endum á leikjum í sumar,
skammir um einstaka leik-
menn. Svo sem: Því er Skúli
ekk settur útaf, hann getur ekk
ert. Hvað er verið að þvæla með
Eyjólf, seinan og slíthræddan.
Til hvers er Sævar þarna, að-
eins til að sparka til mótherj-
anna og svo Magnús, sem aldrei
spilar af neinu viti, aðeins
hlaup, loftspyrnur og ruddaleg-
ur leikur.
Já, mönnum eru mislagðar
fætur eigi síður en hendur.
Skúli hefir verið mistækur,
eins og fleiri, en tveir síðustu
leikir hans hafa verið ágætir,
enginn maður liðsins hefir neitt
nálægt því eins góða knattmeð-
ferð og hann, en hann er seinn
og fylgir ekki nógu vel sókn-
inni eftir upp að markinu.
Eyjólfur bróðir hans ber
nokkurn keim af Skúla, hann
vantar hraða, er nokkuð grófur
stundum, hann er ungur enn
17 eða 18 ái-a, en hefir leikið sig
nokkuð örugglega inn í liðið í
sumar.
Sævar, sem alloftast hefir
leikið tengilið í sumar með
Magnúsi bróður sínum, virðist
vera undir of miklum áhrifum
frá Magnúsi, hann er oft sein-
heppinn, gefur knöttinn alltaf
fram miðjuna, oft nokkuð seint,
en gleymir köntunum, gæti ég
trúað að hann komi betur út
sem sóknarmaður.
Magnúsi hefir verið mjög mis
lagðar fætur í sumar, hefir
aldrei verið neitt nálægt því,
sem hann var, fyrirfarandi ár,
hann kom bezt út sem tengi-
liður í samspili við Guðna.
Hann sparkar fast, veður völl-
inn þveran og endilangan, en
oft með sorglega litlum árangri.
Margt mætti um aðra leik-
menn segja, svo sem Pétur og
Gunnar Austfjörð. Þar leika
saman tveir góðir og farsælir
varnarleikmenn. En gaman
hefði ég að sjá Gunnar leika í
framlínu. Ég trúi ekki öðru en
þar mundi verða sprett úr spori
til marksóknar, slíkum gæðingi.
Samúel er oft á tíðum ágætur
markmaður, vantar samt keppn
isskap og sjálfstraust.
En góðir hálsar. Vertíðinni er
lokið. Ég þakka margar stundir,
sem áhorfandi að leik ykkar í
sumar. Ég segi ekki ánægju-
stundir, því sorglega oft hefir
maður horfið heim, að loknum
leik þar sem þið hafið átt leik-
inn, en aðeins vantað endh-
hnútinn, sá hnútur verður von-
andi rekinn á svo hressilega
næsta sumar, að baukurinn
hafni norðan fjalla næsta haust.
Essbé.
SL. MÁNUDAG hófst vterar- 5.00- - 5.45 KA 4. fl. karla,
starfið í íþróttaskemmunni. handknattl.
Eins og sést á töflunni hér á 5.45- - 6.30 KA 3. fl. karla,
eftir þá hafa KA og Þór 2 daga handknattl.
hvort félag í húsinu. KA mánu- 6.30- - 7.15 KA, handknattl.
daga og miðvikudaga, en Þór kvenna
þriðjudaga og fimmtudaga. 7.15- - 8.00 KA, körfuknattl.
Æfingar hófust sl. mánudag kvenna
hjá KA og mætti mikið fjöl- 8.00- - 9.00 KA 2. fl. og mfl.,
menni á fyrstu æfingu. Þjálfari körfuknattl.
hjá KA fyrst um sinn verður 9.00- -10.00 KA 2. fl. og mfl.,»
Gísli Blöndal og þjálfar hann handknattl.
alla flokka. 10.00- -11.00 Skúli Ágústss. o.fl.
Þá hafa félögin ákveðið að
æfingagjald í vetur verður kr. FIMMTUDAGAR.
500 fyrir hvern þátttakanda. 2.45- - 3.30 Lögreglan
Æfingatimar í íþróttaskemm- 3.30- - 4.15 Þór 4. fl. karla,
unni verða sem hér segir í handknattl.
vetur. 4.15- - 5.00 Þór 4. fl. karla, körfuknattl.
MÁNUDAGAR. 5.00- - 5.45 Þór 3. fl. karla,
2.45— 3.30 ÍMA, handknattl. körfuknattl.
3.30— 4.15 KA 4. fl. karla, 5.45- - 6.30 Þór 1. og 2. fl. kv.,
körfuknattl. körfuknattl.
4.15— 5.00 KA 3. fl. karla, 6.30- - 7.15 Þór 3. fl. karla,
körfuknattl. handknattl.
5.00— 5.45 KA 4. fl. karla, 7.15- - 8.15 Þór 1. og 2. fl. kv.,
handknattl. handknattl.
5.45— 6.30 KA 3. fl. karla, 8.15- - 9.15 Þór mfl. og 2. fl.,
handknattl. handknattl.
6.30— 7.15 KA, handknattl. 9.15- -10.30 Þór mfl. og 2. fl.,
kvenna körfuknattl.
7.15— 8.00
8.00— 9.00
9.00—10.00
10.00—11.00
KA, körfuknattl.
kvenna
KA 2. fl. og.mfl.,
körfuknattl.
KA 2. fl. og
handknattl.
ÍMA, blak
FOSTUDAGAR.
mfl.,
ÞRIÐJUDAGAR.
2.45— 3.30 Lögi'eglan
3.30— 4.15
3.30— 4.15
4.15— 5.00
5.00— 5.45
5.45— 6.30
6.30— 715
7.15— 8.15
8.15— 9.30
9.30— 10.30
ÍMA, handknattl.
ÍMA, körfuknattl.
Bæjarfógeti
ÍMA, knattsp.
Þórshamar
Old boys
KRA, knattsp.
Badmintonráð
r
Enn setur Ingunn Islandsme!
•
4.15— 5.00
5.00— 5.45
5.45— 6.30
6.30— 7.15
7.15— 8.15
8.15— 9.15
9.15—10.30
DAGANA 27.-28. sept. sl. fór
fram á íþróttavellinum á Akur-
eyri keppni i tugþraut karla og
fimmtarþraut kvenna.
Úrslit í tugþrautinni
þessi:
Vilhjálmur Ingi Árnason
Halldór Matthíasson
Halldór Jónsson
urðu
stig
5.292
4.773
4.604
Langstökk 5.02 m.
200 m. hl. 26.3 sek.(ísl.met).
Ingunn, sem aðeins er 14 ára,
er tvímælalaust ein allra efni-
legasta íþróttakona sem fram
hefur komið á íslandi, og verð-
ur gaman að fylgjast með henni
næsta sumar. □
Þór 4. fl. karla,
handknattl.
Þór 4. fl. karla,
körfuknattl.
Þór 3. fl. karla,
körfuknattl.
Þór 1. og 2. fl. kv.,
körfuknattl.
Þór 3. fl. karla,
handknattl.
Þór 1. og 2. fl. kv.,
handknattl.
Þór mfl. og 2. fl.,
körfuknattl.
Þór mfl. og 2. fl.,
handknattl.
MIÐVIKUDAGAR.
2.45— 3.30 ÍMA, handknattl.
3.30— 4.15 KA 4. fl. karla,
körfuknattl.
4.15— 5.00 KA 3. fl. karla,
körfuknattl.
LAUGARDAGAR.
9.00—10.00 Slippstöðin
SUNNUDAGAR.
10.00—11.30 J. Franklín o. fl.
- VÍÐA BREYTINGAR
(Framhald af blaðsíðu 1)
vörur víða um land í vaxandi
mæli.
Sláturtíð stendur nú sem
hæst. í sláturhúsum KEA á
Akureyri og við Eyjafjörð verð
ur í haust lógað um 53 þús. fjár
og lýkur slátrun 23. eða 24. okt.
Um 85% dilkakjötsins fer á
Bretlandsmarkað. 120 mánns
vinna við sláturstörfin. Meðal-
fallþungi dilka er 14.2 kg. og er
það svipuð þyngd og í fyrra.
Fólk kaupir mikið af slátrum,
enda munu það hagstæð kaup.
- Átta ára „vanþróun” í virkjunarmálum
í fimmtarþraut kvenna sigr-
aði Ingunn E. Einarsdóttir á
nýju íslandsmeti og hlaut alls
3.238 stig, eldra metið átti Sig-
rún Sæmundsdóttir, HSÞ, 3.188
stig. í 200 m. hlaupi fimmtar-
þrautarinnar hljóp Ingunn á
26.3 sek., sem er nýtt íslands-
met, gamla metið átti Kristín
Jónsdóttir, UMSK, en hún setti
það á Evrópumeistaramótinu í
Grikklandi fyrir skömmu, 26.5
sek. Árangur Ingunnar í ein-
stökum greinum fimmtarþraut-
arinnar var þessi:
100 m. grindahlaup 16.0 sek.
Kúluvarp 8.15 m.
Hástökk 1.15 m.
Firmakeppni í handknattleik
FYRIRHUGAÐ er að halda ár-
lega firmakeppni í handknatt-
leik. Hefst keppnin 18.—19. þ.m.
í íþróttaskemmunni. Þátttöku-
tilkynningar og þátttökugjald
óskast fyrir þriðjudaginn 14.
þ. m. og sendist í pósthólf 150,
Akureyri. Þátttökugjald er kr.
600. Heimilt er tveimur fyrir-
tækjum að senda sameiginlegt
lið. Leiktími er 2x15 mín. Fyrir
komulag verður ákveðið eftir
fjölda fyrirtækja.
Ilandknattleiksdeild Þórs.
(Framhald af blaðsíðu 8).
Ef Dettifoss hefði verið virkj-
aður, þyrftu þeir, sem saman
þurfa að vinna að þessum mál-
um, ekki að deila í dag. Frá 100
þús. kw. Dettifossvirkjun hefði
fengizt ódýr raforka fyrir Norð
ur- og Austurland allt, eins og
þarfir eru nú, og að auki til stór
felldrar iðnaðaruppbyggingar
og húsahitunar í þessum lands-
hlutum.
En í stað framþróunar í anda
„Dettifoss-hreyfingarinnar11
kom 8 ára vanþróun. Máttar-
völd syðra reiknuðu Dettifoss
úr leik og þóttust þá þegar geta
sagt fyrir um verð orkunnar.
En nú er það komið í ljós, sem
marga grunaði, að „fullnaðar-
rannsóknin“ sem Alþingi hafði
mælt fyrir um að hraða skyldi,
var aldrei lokið að fullu.
Nú, eftir 8 ár, er sagt að þessi
lokarannsókn standi yfir og taki
sinn tíma. En þegar framvindan
tók þessa stefnu, fóru ýmis hér-
uð eða landshlutar að svipast
um eftir öðrum úrræðum, hver
á sínu svæði, sem eðlilegt var.
Á vestanverðu Norðurlandi
kom fram hugmynd um sér-
staka virkjun þar, Austfirðing-
ar fóru að vinna að virkjun
Lagarfoss, Akureyringar að
stækkun Laxárvirkjunar, Norð
ur-Þingeyingar, sem búið hafa
við disilstöðvar eru nú í ár að
reyna að fá virkjun í Sandá í
Þistilfirði, eða háspennulínu frá
Laxá, en Laxárvirkjun er fyrir
löngu of lítil orðin. En allsstað-
ar er sagan hin sama! Engin
Norðvesturlandsvirkjun, engin
Norðausturlandsvirkjun, engin
stækkun Laxárstöðvar, engin
Lagarfossvirkjun, engin viðun-
andi úrræði fyrir N.-Þingey-
inga, svo vitað sé. Ástandið
óbreytt frá því sem það var fyr-
ir 8 árum, að undanteknum
disilstöðvum og tilraunafram-
leiðslu á orku í smáum stíl frá
jaröhita.
Þegar lögin um Búrfellsvirkj
un — og síðar álbræðslu í
Straumsvík — voru sett, var úr
lausnin fyrir Norður- og Aust-
urland sú, að Laxárvirkjun,
sem er sameign ríkisins og Ak-
ureyrarbæjar, var heimilað í
lögum að framkvæma 12 þús.
kw. viðbótarvirkjun í Laxá.
Hinn kosturinn var, að auka
disilstöðvar. Laxárvirkjunar-
stjórn var auðvitað ljóst, að raf
magn frá 12 þús. kw. stöð yrði
dýrara en frá 100 þús. kw. stöð
við Búrfell eða Dettifoss. Þess
vegna er hið nýja áform um 55
þús. kw. stöð í áföngum, stífl-
una miklu og flutning vatns
milli stóránna, til komið. En
þessi fyrirætlun sætir mótmæl-
um Suður-Þingeyinga, sem
ekki eru aðilar að fyrirtækinu
Laxárvirkjun, telja ýmis verð-
mæti sín í hættu. Sumir álíta,
að í Skjálfandafljóti séu góðir
virkjunarmöguleikar og vilja
ekki láta minnka fallvatnið þar.
Þannig standa málin á þessu
herrans ári vanþróunarinnar og
nú er þörf á, að samstarfshugur
og tillitssemi ráði hér norðan
fjalla, hvað sem fjarstýringunni
að sunnan líður, því mikill
vandi er á ferð. Úfar þeir, sem
í'isið hafa milli stjórnar Laxár-
virkjunar og þingeyskra bænda,
gætu til þess leitt, að 8 ára „van
þróun“ í norðlenzkum raforku-
málum yrði enn lengri. □