Dagur - 29.10.1969, Page 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Svarfdælir sækja Hólaskóla á ný
f SVARFAÐARDAL hefur stór
jaröýta ræktunarsambandsins
unnið í allt sumar og fer bæ frá
bæ og er byrjuð aðra hringferð
um sveitina, sagði Klemenz Vil
hjálmsson í Brekku í Svarfaðar
dal, er blaðamaður Dags hitti
hann snöggvast að máli á mánu
daginn.
Þessi undirbúningur rækt-
unar er sá mesti sem ég man
eftir og ber það ekki merki um
neina uppgjöf í búskap eða und
anslátt, þótt mér að öðru leyti
virðist nokkur deyfð í dalnum.
Jónas Ingimarsson frá Dalvík
er ýtustjórinn.
Ásetningsmenn sveitarinnar,
þeir Olafur Tryggvason, Ytra-
Hvarfi og Sigurvin Sigurhjartar
son, Skeiði, er komu til mín um
helgina, sögðu mér, að aðeins á
einum bæ í sveitinni vantaði
nokkurt heymagn. En víðast
varð heyfengur sæmilegur og
jafnvel mikill þótt erfitt væri að
þurrka, enda seldu Svarfdæl-
(Framhald á blaðsíðu 2).
RÆTT VIÐ SIGURJON STEINSSON RAÐU-
NAUT EYFIRÐINGA í NAUTGRIPARÆKT
EYFIRZKIR bændur og sam-
vinnumenn, sem stofnuðu fyrsta
mjólkursamlag landsins á sín-
um tíma, urðu einnig fyrstir til
að ná þeim eftirsóknarverða
ófanga í nautgripræktinni,
að senda á markaðinn mjólk,
sem til jafnaðar var með meira
en fjögur prósent fitu, en það
gerðu þeir í fyrra. En þá var
mjólkurmagnið á samlagssvæði
KEA um 20 milljónir lítra. Það
ár framleiddi eitt bú í héraðinu
yfir 200 þús. lítra mjólkur og
hefði það einhvern tíma þótt
saga til næsta bæjar, en fram-
UM síðustu helgi voru staddir
hér á Akureyri flestir alþingis-
menn úr Norðurlandskjördæmi
eystra. Munu þeir hafa komið
hingað af fjórðungsþingi Norð-
lendinga á Sauðárkróki, sem þá
var nýlokið. Á laugardaginn
fyrir hádegi komu forsjármenn
skólabygginga í kjördæminu til
viðræðu við þá. En eftir hádegi
ræddu þingmenn við héraðs-
nefnd Þingeyinga í Laxármál-
inu, en í þeirri nefnd eru: Her-
móður Guðmundsson, Árnesi,
Vigfús Jónsson, Laxamýri, Sig-
urður Þórisson, Grænavatni,
Teitur Björnsson, Brún og Sig-
urður Jónsson, Yztafelli. En
með þeim mætti- á fundinum
sýslumaður þingeyinga, Jóhann
Skaptason, og Guðmundur
Bændaklúbbsfundur
verður næsta mánudagskvöld
kl. 9 á Hótel KEA. Umræðu-
efni eru niðurstöður kúasýning
anna i sumar og fóðrun naut-
gripa. Frummælandi verÖur
Jóhannes Eiríksson ráðunautur
B. í. □
Gunnarsson verkfræðingur og
ennfremur var með þeim for-
maður Búnaðarsambands N,-
Þingeyinga, Þórarinn Haralds-
son, Laufási. Síðar þennan sama
dag ræddu svo þingmennirnir
við stjórn Laxárvirkjunar, en
hana skipa: Arnþór Þorsteins-
son, Steindór Steindórsson,
Gísli Jónsson, Björn Jónsson og
Jón G. Sólnes.
Á fundi þessum voru einnig
bæjarstjórinn á Akureyri,
Bjarni Einarsson, og að sjálf-
sögðu rafveitustjórinn, Knútur
Otterstedt.
Fulltrúar frá Laxárvirkjunar
stjórn og héraðsnefndanna
ræddust svo aftur við um deilu-
mál sín á sunnudaginn. Var sá
fundur ákveðinn á laugardag-
inn og hefur blaðið ekki fengið
fregnir af honum.
Á fimmtudagskvöldið héldu
Framsóknarfélögin á Akureyri
fund í félagsheimili sínu, Hafn-
arstræti 90, og mættu þar og
fluttu fróðleg ávörp, þingmenn
flokksins í þessu kjördæmi og
var fundurinn vel sóttur og
tóku margir fundargestir þátt í
umræðum. □
Ætla að gefa lækningatæki
LIONSKLUBBURINN Huginn
er 10 ára um þessar mundir. Á
laugardaginn munu klúbbfélag-
ar gera vart við sig og kveðja
dyra hjá bæjarbúum og bjóða
til sölu ljósaperur. Ágóðanum
ætla þeir að verja til kaupa á
lækningatæki við augnlækning
ar, sem hér vantar á Fjórðungs
sjúkrahúsinu. En til þessa hefur
aðeins eitt slíkt tæki verið til í
landinu, í Reykjavík. Er það
notað við augnauppskurði, en
nafn á því kann blaðið ekki.
Minna má á, að sömu aðilar
hafa áður gefið sjúkrahúsinu
ágæt tæki, sem komið hafa að
góðum notum. □
Eyfirzku kynbófanautin verða flutf fil Hvanneyrar
Fyrstu verðlaunanaut Búfjárræktarstöðvarinnar á Lundi.
(Ljósm.: E. D.)
urstöðum af þeim. Dætrahóp-
arnir eru látnir skera úr um
kynbótahæfni feðranna og hef-
ur það borið ótrúlega mikinn
árangur.
Nú eru að verða þáttaskil í
nautgriparæktinni, á þann veg,
að hin eyfirzku kynbótanaut
munu öll flutt suður til Hvann-
eyrar á nýja sæðinga- og rann-
sóknarstöð þar. Hér heldur þó
sæðingastöðin áfram að sinna
sínum verkefnum, en mun í
framtíðinni nota djúpfryst sæði
frá Hvanneyri. Aftur á móti
skapast við það tækifæri til að
efla afkvæmarannsóknir hér á
Akureyri við þessa breytingu
og verður það væntanlega not-
(Framhald á blaðsíðu 5).
ÆSKULÝÐSSTARF
TEMPLARA
Sigurjón Steinsson ráðunautur.
leiðendur á svæðinu voru 420
og meðalframleiðsla hvers
bónda um 47 þús. lítrar.
Eyfirzkir bændur stofnsettu
fyrstu sæðingastöðina fyrir
nautgriparæktina og hafa um
mörg undanfarin ár framkvæmt
afkvæmarannsóknir og valið
kynbótanautin samkvæmt nið-
INNAN skamms tíma mun
æskulýðsstarfsemi hefjast á veg
um Góðtemplarareglunnar hér
á Akureyri í Kaupvangsstræti
4, áður skrifstofur Sjúkrasam-
lagsins. Þar hefur húsnæði ver-
ið breytt og er þar nú dálítili
salur, fyrir 40—50 manns.
Þarna verða nú sett upp leik-
tæki fyrir börn og svo föndur-
námskeið fyrir unglinga og jafn
vel fullorðna einnig. Þessari
starfsemi stjórna Sveinn Krist-
jánsson og Ingimar Eydal, með
aðstoð fleiri manna.
Nánar verður sagt frá þessu
hér í blaðinu síðar. □
Eitt og annað frá bæjarstjórn
Stækkun Fjórðungssjúkrahúss-
ins.
Lögð var fram fundargerð
framkvæmdaáætlunarnefndar
dagsett 21. október sl., þar sem
fjallað er um væntanlega við-
SAMKVÆMT frásögn Stefáns
Jasonarsonar í Vorsabæ, vantar
bændur í Rangárvallasýslu 100
þús. hesta heys á meðallieyskap
og annað eins í Árnessýslu.
Hann sagði ennfremur, að
enn væri nokkuð af túnum
óslegin syðra, en þegar á leið
sumarið var ekki unnt að koma
Á LAUGARDAGINN var hluta
félagið Loðfeldur h.f. formlega
stofnað á Sauðárkróki. Adolf
Björnsson er formaður stjórnar
og með honum í stjórn eru:
Stefán Guðmundsson, Egill
Bjarnason, Kristján Hansen og
Stefán Ólafur Stefánsson.
Hið nýja hlutafélag hyggst
stofna loðdýragarð og framleiða
minkaskinn. Hlutafjársöfnun er
byggingu við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri.
Bæjarráð leggur til við bæjar
stjórn, að skipuð verði fimm
manna nefnd, fjórir menn lcosn
ir af bæjarstjórn en bæjarstjóri
nokkrum tækjum við til hey-
skapar vegna bleytu. Víða eru
hey úti nú um veturnætur,
ýmist flöt og orðin ónýt eða í
sátum og lönum, sagði hann.
Bændum syðra verða veitt lán
með viðráðanlegum kjörum til
að mæta þessum áföllum, sem
þó verða ekki bætt að fullu. □
í gangi og var hlutaféið orðið
á aðra milljón á stofnfundinum
og hluthafar orðnir um áttatíu
talsins, flestir á Sauðárkróki.
Á stofnfundinum var Her-
mann Bridde bakari, mikill
áhugamaður um loðdýrarækt
og hefur gefið okkur mörg góð
ráð varðandi loðdýrarækt.
(Upplýsingar frá Stefáni Guð
mundssyni, Sauðárkróki).
sjálfkjörinn, til þess, annars veg
ar, að kanna hentugasta fyrir-
komulag framkvæmda og í öðru
lagi að leita eftir samningum
við fulltrúa ríkisvaldsins.
Bæjarráð leggur til að eftir-
taldir menn verði kosnir í nefnd
ina: Bragi Sigurjónsson, Ingi-
björg Magnúsdóttir, Jakob Frí-
mannsson og Jón Helgason.
í framkvæmdaáætlunarnefnd,
á fundi 21. október, er þetta
bókað m. a.:
Fyrir var tekið kostnaðar-
áætlun um viðbyggingu við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri, sem bæjarráð vísaði til
framkvæmdaáætlunarnefndar á
fundi sínum 15. október sl.
í áætluninni er gert ráð fyrir
16.313 rúmmetra byggingu á 5
hæðum auk kjallara. Er gert
ráð fyrir að í byggingu þessari
verði heilsuverndarstöð, rann-
sóknardeildir, röntgendeild, end
urhæfingardeild, þrjár sjúkra-
deildir og kennslustofur. Þá er
gert ráð fyrir að í viðbygging-
unni verði 88 sjúkrarúm. Þegar
viðbyggingin yrði tekin í notk-
un er gert ráð fyrir að dregið
verði úr þrengslum í eldri hluta
sjúkrahússins og gerðar þar
(Framhald á blaðsíðu 7)
SUM TÚNANNA ENNÞÁ ÓSLEGIN
Undirbúa minkarækt á Sauðárkr,
Viðræður um Gljúfurversvirkjun