Dagur - 29.10.1969, Síða 7
7
Eiff og annað frá bæjarstjórn
(Framhald a£ blaðsíðu 1)
nokkrar breytingar, þannig að
sjúkrarúmum þar fækki um 27.
Nettofjölgun sjúkrarúma verði
því 61, og verður heildarrúma-
fjöldi þá 179.
Stjórn sjúkrahússins gerði
ráð fyrir því fyrirkomulagi fram
kvæmda að allt húsið yrði gert
fokhelt á tveimur árum (1970
og 1971). Þrjár neðri hæðir
hússins yrðu fullgerðar á þrem-
ur árum (1972, 1973 og 1974) og
þrjár efri hæðirnar á þremur
árum þar á eftir (1975,. 1976 og
1977). Heildarkostnaður 1970—
1974 var áætlaður 87.5 milljón
krónur, þar af byggingakostn-
aður 74.3 millj. kr. og innbú 14
millj. kr. Hluti ríkissjóðs er tal-
inn 44.6 millj. kr. Sjúkrahús-
stjórnin taldi líklegt að Trygg-
ingastofnun ríkisins mundi lána
verulegar fjárhæðir til bygging
arinnar, en framlög bæjarsjóðs
fyrstu árin mundu fara eftir því
hve mikil lánsfjáröflun yrði
möguleg.
Bæjarstjóri lagði fram út-
reikninga á framkvæmda_ og
fjármagnskostnaði og hugsan-
legri fjáröflun miðað við átta
ára framkvæmdatímabil (1970
—1977) sem miðað var annars
vegar við ríkisframlag sam-
kvæmt gildandi reglum, en hins
vegar við að ríkið tæki nokkurn
þátt í kostnaði við innbú.
Var gert ráð fyrir að bæjar-
framlag fyrsta árið yrði í háð-
um tilfellum 3.0 millj. kr. en
hækkaði árlega sem næmi
vaxtagreiðslum. í fyrra tilfell-
inu var hlutdeild ríkisins 60.8
millj. kr. eða 7.6 millj. kr. á ári,
. en í því síðara 71.2 millj. kr. eða
8.9 millj. kr. á ári.
Samkvæmt gildandi reglum
og áðurnefndum forsendum, er
bæjarframlag, kostnaður og fjár
öflun sem hér segir:
Þessu til viðbótar fylgir svo
kostnaðaráætlun þessarar stækk
unar Fjórðungssjúkrahússins,
er hljóðar samtals upp á 144.7
millj. kr. Bæjarframlög á bygg-
ingartíma og lántökur vegna
bygginga og búnaðar er samtals
83.9 millj. króna.
Vatns- og hitalögn í Þingvalla-
stræti.
Með bréfi dagsettu 15. októ-
ber sl. frá vatnsveitustjóra ósk-
ar hann samþykkis bæjarráðs
til þess að mega hefja þegar
framkvæmdir við vatns- og hita
lögn í Þingvallastræti. Heildar-
kostnaður við verkið er áætlað-
ur kr. 3.580.000.00. Allt efni
(pípur) til verksins er til á lager
Vatnsveitunnar ca. kr.
1.250.000.00 og telur vatnsveitu-
stjóri möguleika á gjaldfresti
fyrir vélavinnu og bifreiðar til
næsta árs, en áætlar vinnulaun,
sem greiða þarf á þessu ári ca.
kr. 800.000.00.
Þar sem upplýst er, að nauð-
synlegt er að vinna verk þetta
á næsta ári heimilar bæjarráð
þessar framkvæmdir nú á
grundvelli þeirra upplýsinga
um taxta og gjaldfrest, sem
fram komu á fundinum. Telur
bæjarráð vatnsveitustjóra og
bæjarvei'kfræðingi að finna
hentugasta fyrirkomulag fram-
kvæmdanna.
Bótakröfur vegna hrossadauða.
Lagðar voru fram bótakröfur
frá Einari Trnari Grant, Fjólu-
götu 9, og Gunnari Sigursteins-
syni, Flúðum vegna hrossa-
dauða, og krafa frá Samvinnu-
tryggingum vegna tjóns á bif-
reiðinni A 2978.
Leitað hefir verið álits Frið-
riks Magnússonar hrl. á bóta-
kröfum þessum og á grundvelli
þess leggur bæjarráð til að bóta
kröfunum verði hafnað.
Bygginganefnd nýs skóla í
Glerárhverfi.
Lagt var fram bréf dagsett 2.
október sl. frá Valgarði Haralds
syni, námsstjóra, þar sem hann
bendir á nauðsyn þess að þegar
verði hafist handa með undir-
búning nýrra skólabygginga í
bænum og minnir á að bæjarráð
hafi ekki enn tilnefnt menn í
bygginganefnd fyrirhugaðs
skóla í Glerárhverfi.
Bæjarráð samþykkir að til-
nefna eftirtalda menn í bygg-
inganefnd nýs skóla í Glerár-
hverfi: Kristján Pálsson, Löngu
hlíð 15, Vilberg Alexandersson,
Helgamagrastræti 43, Pétur
Pálmason, Skarðshlíð 11 G, Guð
ný Pálsdóttir, Stíflu, Jóhannes
Óli Sæmundsson, Lönguhlíð 2.
(Framhald af blaðsíðu 4)
Vinnubrögð í barnaskólum
eru nú töluvert ólík því, sem
miðaldra fólk man frá bernsku
sinni, og þau breytast stöðugt.
Bekkjarkennsla, flokkavinna og
einstaklingskennsla skiptast á,
en yfirheyrsla með gamla lag-
inu hefir þokað um set. Heima-
verkefnin mótast af þeirri
kennsluaðferð sem kennarinn
notar og ekki er hægt að bera
saman bekk eða námsgreinar
hvað þetta snertir.
Heimavei'kefnum má skipta í
tvo megin flokka. Verkefni, sem
eru eins fyrir alla í bekknum og
verkefni sem eru ólík innan
bekkjarins og aðeins miðuð við
einstaklingana. Auk þess er
æskilegt að nemendur sjálfir
velji sér stöku sinnum verkefni
- Skólakostnaðarlögin
(Framhald af blaðsíðu 4)
sumum stöðum miklu
meira. Um þetta munu full-
trúar liinna nýju skóla liafa
verið að ræða við þingmenn-
ina um lielgina. Vonandi
tekst að bæta úr þeim mis-
tökum, sem orðið hafa við
setningu hinna nýju skóla-
kostnaðarlaga, en þau hafa
valdið hinum mestu von-
brigðum, þar sem verið er
að bæta menntunaraðstöðu
í hinum dreifðu byggðum.
- NATTURUVERND
(Framhald af blaðsíðu 8).
því, að auka skilning fólks og
áhuga á verndun fagurra og sér
kennilegra staða, gróðri og dýra
lífi. Gera tillögur um þá vernd
náttúrunnar, sem bezt er við
hæfi búsetu og til verndunar í
senn. Eru í því efni næg verk-
efni og nokkur þeirra mjög á
dagskrá á þessum tímum.
Erlendis eru náttúruverndar-
félög víða mjög starfsöm og
hafa við mikinn vanda að fást
vegna sívaxandi fólksfjölda á
takmörkuðu landi. Við getum
með réttu fagnað því, hve land
okkar er stórt og náttúran lítt
snortin víðast. Engu að síður
ber að vera vel á verði og koma
í veg fyrir þau óhöpp, er verða
í samræmi við þau áhugamál,
sem eru þeim efst í huga. Þetta
frjálsa val viðfangsefnis úr
vissri námsgrein gefur barninu
möguleika, sem það á sjaldan
kost á annars staðar.
Kennarinn leggur heimaverk
efnin fyrir með hliðsjón af þörf
um og námsgetu bekkjarins eða
einstaklinganna, og þegar for-
eldrum þykja verkefnin ekki
sæfileg stafar það stundum af
því, að þau þekkja ekki nema
sitt eigið barn, en kennarinn
verður að taka tillit til allra í
bekknum. Þegar skoðanir for-
eldra og kennara fara ekki sam
an í þessum efnum er nauðsyn-
legt að ræða málin til að fyrir-
byggja allan misskilning.
Eru börnin þreytt, þegar þau
vakna á morgnana?
Þótt undarlegt megi virðast
er nú tímabært að foreldrar og
aðrir uppalendur leggi þessa
spurningu fyrir sig, og ef svo
skyldi fara að einhverjir svör-
uðu henni játandi, hver er þá
ástæðan?
Er það sjónvarpið, of mikil
félagsstörf, of mikil heima-
vinna, eða eitthvað annað, sem
færa má til betri vegar?
Því má nefnilega aldi’ei
gleyma, að utanaðkomandi
áhrif mega ekki verða svo
sterk, að barnið hafi ekki frið
til að njóta þess í ró og næði að
vera eðlilegt barn, segír Tryggvi
Þorsteinsson skólastjóri að lok-
um. □
I-
I-
I
Hugheilar þakkir fceri ég öllum þeim, er sýndu *
mér vinarliug með blómum, heillaskeytum og ©
gjöfum á 90 ára afmælinu minu, 3. október sið-
astliðinn.
Guð blessi ykkur öll.
ÁRNI JÓNASSON.
i
I
1
<•>
Hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig á sjötiu
ára afmœlinu með heimsóknum, góðum gjöfum,
blómum, heillaskeytum og hlýjum handtökum.
Guð blessi ykkur öll.
ÞÓR ÞORSTEINSSON, Bakka.
<3
Hsic-<-a-fstJ^-a-fsic-<'a-f-:;;’!-s-^-(-a-f-*-f-a-N*-í-'a-f'-.ií'C-a-f'í'í4-®-f-4c-f-'a-f-*-^s-^'<'
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu i\ ið andlát og jarðarför
BRAGA, sonar okkar.
Guðrún Sigurðardóttir,
Siglús Axfjörð
og aðrir vandamenn.
vilja í náttúrunni, þar sem efnis
byggjan ein ræður. □
- Samvinna heimila og skóla
m HULD 596910297 VI. — 1
I.O.O.F. 15110318V2
AKUREYRARKIRKJA. Mess-
að kl. 2 e. h. á sunnudaginn
kemur. Allra heilaga messa.
Minning látinna. Sálmar nr.
304 — 451 — 472 — 454 —
484. — P. S.
GLERÁRHVERFI! Sunnudaga-
skóli í skólahúsinu kl. 1.15
n. k. sunnudag. Öll börn vel-
komin.
KRISTILEG samkoma í Barna
skólanum í Glerárhverfi mið-
vikudaginn 29. okt. kl. 20.30.
Allir velkomnir. — Calvin
Cesselman og Eldon Knudson
tala.
KRISTILEG samkoma í Alþýðu
húsinu föstudaginn 31. okt.
kl. 20.30. Allir velkomnir. —
Calvin Casselman og Eldon
Knudson tala.
FÍLADELFÍA, Lundargötu 12.
Sunnudagaskóli n. k. sunnu-
dag kl. 1.30 e. h. Öll börn vel-
komin. — Almenn samkoma
kl. 8.30 e. h. Allir velkomnir.
— Fíladelfía.
ÉFRA SJALFSBJÖRG.
Vetrarfagnaður í
Bjargi laugardaginn 1.
nóv. kl. 8.30 e. h. —
Félagar! Mætið vel. —
Sjálfsbjörg.
TELPUR! Verið velkomnar á
saumafundina að Sjónarhæð
hvert mánudagskvöld kl. 5.15.
DRENGIR Munið fundina að
Sjónarhæð hvert mánudags-
kvöld kl. 5.30.
AKUREYRINGAR! Verið vel-
komnir að Sjónarhæð n. k.
sunnudag kl. 5 e. h.
MINJASAFNIÐ er opiö á
sunnudögum kl. 2 til 4 e. h.
Tekið á móti skólafólki og
ferðafólki á öðrum tímum ef
óskað er. Sími safnsins er
1-11-62 og safnvarðar 1-12-72
FRÁ Slysavarnadeild kvenna:
Hverfisstjórar og verðandi
hverfisstjórar eru vinsamlega
beðnar að mæta allar í Þing-
vallastræti 14 kl. 8.30 á
fimmtudagskvöld.
HJÁLPRÆÐISHERINN. —
Sunnudaginn kl. 4.00 e. h.
verður sérstök samkoma í
salnum. Athugið breyttan
tíma. Fjölbreytt efnisskrá.
Allir velkomnir.
DRENGIR! Munið
fundinn í kapellunni
kl. 8 á fimmtudags-
kvöldið. Hvítsmára-
sveitin sér um fundarefni.
SKRIFSTOFA Þýzk-íslenzka
félagsins er opin alla föstu-
daga frá kl. 8—10 síðd.
Akureyringar eru komnir í úrslií
1. DEILDARLIÐ ÍBA hefur
haft heppnina með sér í Bikar-
keppni KSÍ, og hefur tryggt sér
rétt til að leika til úrslita í
þeirri keppni, og væri mjög
ánægjulegt og óvænt ef liðinu
tækist að sigra í úrslitaleiknum,
eftir allan mótganginn í 1. deild
arkeppninni sl. sumar, en þar
varð liðið að leika tvo auka-
leiki um 8. sætið í 1. deild við
Breiðablik frá Kópavogi, og
tryggði sér nauman sigur í síð-
ari leiknum, sem fram fór hér
á íþróttavellinum, þrátt fyrir
áköf mótmæli Kópavogsmanna.
Það er ekki hægt að segja
annað, en ÍBA-liðið hafi verið
heppið með mótherja í Bikar-
keppninni, hefur aðeins mætt
liðum, sem ekki léku í 1. deild
sl. sumar, en ekki er ástæða til
að gera hlut liðsins minni þrátt
fyrir það.
Allir hljóta að fagna því hér
nyrðra, að ÍBA-liðið skuli í
þetta sinn hafa komizt í úrslit
Bikarkeppninnar.
Ekki er fullvíst hvenær
úrslitaleikurinn fer fram, né
hvaða liði ÍBA mætir. Vest-
mannaeyingar og KR-ingar
eiga eftir að leika, og það lið
sem sigrar í þeim leik mætir svo
Akurnesingum, og fyrst að
þeim leik loknum getur úrslita-
leikurinn farið fram. — Trúlega
fer úrslitaleikurinn fram á Mela
vellinum í Reykjavík, og ekki
er það ósanngjörn krafa þótt
farið sé fram á það við hljóð-
varpið, að útvarpað verði lýs-
ingu á t. d. síðari hálfleik úrslita
leiksins og er þeirri ósk hér með
komið á framfæri. — Þá er ekki
að efa, að marga knattspyrnu-
unnendur hér fyrir norðan fýs-
ir að fylgja liði sínu til úrslita-
leiksins og ekki er ótrúlegt að
F. í. veiti afslátt á flugfargjöld-
um í sambandi við leikinn. En
nánari fréttir verður væntan-
lega hægt að segja í næsta blaði.
Vonandi búa knattspyrnu-
menn okkar sig vel undir
úrslitaleikinn. S v. O.
FRÁ UNGUM FRAMSÓKNARMÖNNUM
AÐALFUNDUR FUF á Akur-
eyri var haldinn sunnudaginn
19. okt. Formaður félagsins,
Hákon Eiríksson, skýrði frá
starfsemi félagsins á liðnu starfs
ári og var hún allmikil. Margir
nýir félagar bættust við á árinu.
Fundir voru margir og flestir í
samvinnu við eldra félagið og
þótti það gefast vel
Fundurinn samþykkti eftir-
farandi ályktun:
„Aðalfundur FUF haldinn 19.
okt. 1969, ályktar að þar sem
Framsóknarflokkurinn hefur
gengið á undan með skoðana-
kannanir víða um land, verði
slík skoðanakönnun viðhöfð
fyrir bæjarstjórnarkosningar
hér í bæ á sumri komanda.“ □
Stjórn FUF næsta starfsár
verður þannig skipuð:
Formaður Hákon Eiríksson,
ritari Theodór Hallsson, gjald-
keri Guðmundur Ólafsson,
spjaldskrárritari Guðjón Bald-
ursson, meðstjórnendur Ari
Friðfinnsson og Jón Hensley. —
Varamenn: Svanberg Árnason,
Karl Steingrímsson, Páll Garð-
arsson.
Endurskoðandi: Ævar Ólafs-
son.
- SMATT OG STORT
(Framhald af blaðsíðu 8).
öflunar. 1 hópi þeirra, er þurfa
að fá nýtt skip, eitt eða fleiri,
er Útgerðarfélag Akureyringa
h.f. Það væri mjög hagkvæmt
að láta smíða á einni og sömu
skipasmíðastöð nokkur skip eft
ir sömu teikningunni. Væri
mikilvægt að kanna það mál,
með skipasmíðastöðina á Akur-
eyri í liuga.