Dagur - 26.11.1969, Blaðsíða 1

Dagur - 26.11.1969, Blaðsíða 1
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 26. nóv. 1969 — 46. tölublað FILMU húsið Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJOSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Laugarvafn í 50 Dalvík 24. nóv. Bílfæri milli Dal víkur og Akureyrar hefur verið mjög þungt undanfarna daga en verið er að skafa veginn í dag. Aflabrögð eru sáralítil nú, enda annar báturinn, Björgúlf- ur, bilaður. Auk þess er óstill- ing og nú má búast við mjög vaxandi atvinnuleysi. Oll síldin er farin og tók Eld- vík það síðasta á föstuda'ginn. Á föstudaginn verður árshá- Eliefu kindur Stórutungu 24. nóv. Vetur sett- ist snemma að, að þessu sinni. Fé sem ekki var hægt að farga fyrr en um miðjan okt. var búið að hafa á hey- og miatargjöf í hálfan mánuð. Lömb vom held- ur vænni en sl. ár. •Spretta á túnum var misjöfn og þegar á heildina er litið í lakara lagi. Mikið bar á kali og slæmri nýtingu áburðar. Úthagi var aftur á móti betur sprottinn en undanfarin sumur. Jarðabætur voru töluverðar, jarðrækt, landþurrkun og bygg ing peningshúsa. Félagslíf er þegar hafið. Spil- að er bridge einu sinni í viku og fellur ógjarnan niður þótt veður og færi séu oft ekki ákjós íbúðir á Dalvík tíð Framsóknarfél. á Dalvík. Enn er unnið við hitaveituna og unnið að því að koma vatni í þau hús, sem aðalæð var kom- in að. Líklega eru 50 íbúðir nú upphitaðar með laugarvatni frá Hamri, auk verkstæða o. fl. bygginga, og er fólk mjög ánægt með skiptin. Hér á Dal- vík kostar húsakynding um 5 millj. á ári og er til mikils að vinna, að fá hitaveituna í stað- inn. J. H. vantar enn anleg og þeir sem lengst eiga að sækja þurfi iað fara 20 km. vega lengd. Haldið er uppi ferðum til Húsavífcur með mjólk, þó hefir færi verið þungt öðru hvoru. Barnaskólinn tók til starfa 14. okt. Hann starfar í vetur í þrem deildum, eldri og yngri deild barna og unglingadeild, sem ekki befir verið áður. Við skól- ann eru tveir kennarar, Svan- hildur Hermannsdóttir skóla- stjóri og Jón Albert Pálsson á Lækjavöllum. Starfsstúlkur eru tvær, Sigríður Baldursdóttir, Grýtubakka, ráðskona og Ás- hildur Sigurðardóttir, Sand- haugum til aðstoðar og annast hreingerningu skólans. Á Oddeyrartanga er umiið við framtíðar vöruhöfn og þar er vöruhús Eimskips í smíðum. — (Ljósm.: E. D.) Borað verður á ný að Laugalandi á Þelamörk Stór samningur NÝLEGA var undirritaður samningur milli fslendinga og Sovétmanna um kaup á olíu- vörum frá Sovétríkjunum. Verð mæti umsamins magns er 7— 800 millj. íslenzkra króna. Er hér um að ræða svipaða samn- inga og áður hafa verið gerðir um olíukaup. □ LOFTUR Júlíusson þýddi eftir farandi grein úr Fishing News International og birtist hún í Sjómannablaðinu Víkingi: Rússneski tveggja skrokka (Catamaran) skuttogarinn Ex- periment er einn af 3—4, sem Rússar eru að byggja. Liður í tilraunum í breyttri gerð nýrra fiskiskipa. Skipið er 40 metrar á lengd, 19 metrar á breidd og 3.5 metr- ar á dýpt. Stærð 300 rúmlestir. Undirstaðan eru báðir skips- skrokkarnir með dekki á milli skrokka, en á því er fyrirkomið stýrishúsinu og öllum manna- íbúðum auk ýmsum tækjum og tækjaútbúnaði á millidekkinu. LEIKFÉLAG AKUREYRAR hefur haft nokkrar sýningar á sjónleiknum Brönugrasið rauða eftir Jón Dan, nýstárlegt og hugnæmt verk. Aðsókn hefur verið misgóð en sjónleiknum ágæta vel tekið. Sýningar L. A. hafa jafnan staðið og fallið með aðsókn sveitafólks úr nágrannabyggð- Hinn 7. nóv. gerði hríð og var féð úti á Mýri og Bólstað og í Stórutungu að nokkru. Eftir hríðina vantaði 13 kindur. Tvær fundust dauðar en 11 vantar enn og er óttast að þær hafi lent í Mjóadalsá eða farist á annan hátt. Sæmileg beitai-jörð er fremst í Bárðardal en meiri snjór noi’ð ar og jarðlítið. Þ. J. Eftir fyrsta túrinn sem tók 56 daga á nokkrum stöðum í N,- Atlantshafi eins og í Norðursjó og undan ströndum Noregs, þá snéri skipið til baka til Kalinin- gi’ad" til skoðunar. Á þessum 4.500 sjóm. langa ferðalagi hreppti skipið stonuasamt veð- ur nokkrum sinnum og laskað- ist lítilsháttar í einu þeirra, en sem gott sjóskip þá var útkom- an mjög eftirtektarverð eftir skýrslu skipstjórans E. Mokhov að dæma. ( Experiment hefur tvær 600 hestafla Diesel aflvélar með tveim skrúfum og sérstæðum stýrisútbúnaði. Mannaíbúðir fyrir 25 manns, urn, en það á enn eftir að sjá leik þennan, enda illt færi oft- ast, eftir að sýningar hófust. Heyrzt hefur, að Leikfélag Reykjavíkur hafi boðið L. A. heim með þessa sýningu og er það vel, ef boðið verður þegið og Brönugrasið rauða skemmtir höfuðborgarbúum. □ BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur nú borizt álitsgerð Jarð- hitadeildar Orkustofnunarinnar um jarðboranir eftir heitu vatni á Laugalandi á Þelamörk, með hitaveitu á Akureyri fyrir aug- um. Mun bæjarráð hafa lagt til á síðasta fundi sínum, að fela bæjiar\'erkfræðingi sínum að hefja endurskoðun á áætlunum fyrir hitaveitu og jafnframt leggur bæjarráð til, að leitað eins og tveggja-manna klefar rúmgóðir og vel útbúnir. Með yfirbygginguna miðskips hefur skipið fullar tvær dekk- lengdir, eina sitt hvoru megin með dekkvindum staðsettar vel framarlega til að hífa veiðarfær in inná dekk. Þetta fyrirkomu- lag gefur þrefalt meira dekk- pláss miðað við það sem unnið er á um borð í venjulegu síðu- togskipi. Aðal trollvindunni er fyrir- komið aftarlega miðskips. Víra- gálginn nær þvert yfir skutinn að aftan með hreyfanlegum tog vírarúllum. Tvær skutrennur, ein á hvaru dekki, þar sem ann að trollið er látið fara um leið og hitt er komið innfyrir, einnig hægt að hafa tvennskonar veið- arfæri í gangi, t. d. flottroll og botntroll, og kasta án táfar. Einn veigamesti kosturinn við skipið er hinn góði stöðugleiki þess. Mesti halli í venjulegu sjó iagi var 6 gráður, en í verulega vondu sjólagi aðeins 12 gráður. Annar veigamikill kostur í vond um veðrum er að hafa tvö stýri og tvær vélar. Kaffærist annar skrokkurinn í þá helzt stöðug- (Framhald á blaðsíðu 5) verði samninga við Jarðhita- deild Orkustofnunarinnar um tilraunaboranir á Laugalandi í vetur, þó þannig, að borholur verði í vinnsluvídd, þ. e. nær 10 þumlunga fóðring. En svo stiend ur á, að ef ekki verður borað nú í vetur, fæst ekki heppilegur jarðbor að sinni. En Norður- landsborinn gamli, nokkuð endurbættur og auðveldari en áður var, er í Mývatnssveit nú, en er ætlað sérstakt verkefni með vorinu er endast mun allt næsta ár, frá næsta vori að telja. Orkustofnunin er ákaflega bjartsýn um árangur af borun á Laugalandi og telur þann stað hinn eina, í nágrenni bæjarins, sem staðið geti undir hitaveitu kaupstaðarins. Þar er borhola frá 1965 með 90 gráðu heitu vatni. Á síðasta ári fór fram til- raunadæling í þessari borholu og gaf hún 18 lítra á sek. En það svarar til fimmtungi þess vatnsmagns eða meira, sem nota þarf til að hita upp 10 Náttúruverndar- sýningin SÝNINGIN „Náttúruvemd á Norðurlandi“ hefur nú staðið í um það bil mánuð, í Myndasal Náttúrugripasafnsins. Sýningin hefur aðeins verið opin á laug- ardögum og sunnudögum. Að- sókn að sýningunni hefur verið góð, og munu um 500 manns hafa komið á hana. í þessari viku verður sýning- in opin alla daga, kl. 4—7 sd., á laugardag kl. 2—7 og á sunnu- dag allan daginn, eða frá kl. 10 f. h. til kl. 10 e. h. Sýningunni lýkur á sunnu- dagskvöld. Aðgangur er ókeypis þúsund manna bæ. En dælan náði niður í 35 metra dýpi. Heita vatnið rennur inn í bor holuna á mörgum stöðum eða allt frá 160 metra dýpi niður á 640 metra dýpi. Reiknað er með, að þessi borhola á Laugalandi hafi gefið svo mikinn og góðan árangur, að óhætt sé að leggja í meiri framkvæmdir. Frá Laugalandi á Þelamörk (Framhald á blaðsíðu 2) BERNHARÐ STEFÁNSSON LÁTÍNN BERNHARÐ STEFÁNSSON fyrrverandi alþingismaður og bankastjóri andaðist á heimili sínu Þórunnarstræti 128, Akur- eyri, að morgni hins 23. nóvem- ber, áttræður að aldri. Þessa vitra og drenglynda manns verður síðar getið hér í blaðinu. Tveggja skrokka skipið „Experimenf" Brönugrasið rauða sýnf syðra?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.