Dagur - 03.12.1969, Page 8
Allir vegir eru nú greiðfærir
VEGIR eru nú greiðlærir í öllu
héraðinu og til Reykjavíkur.
Einnig til Húsavíkur og Mý-
vatnssveitar og jafnvel.á stór-
um bílum allt til Kóp&skers.
Þá var Múlavegur opnaður á
sunnudagskvöldið, en síðan hef
ur eitthvað rennt þar. Tvær
ýtur voru notaðar til að ryðja
snjó af Múlavegi. Þeu- höfðu
mörg snjóflóð fallið og var
nokkurt grjót í þeim. Snjóblás-
arinn var prófaður þarna dálítið
og hefur hann verið settur á
stærra dráttartæki, er Reykja-
víkurborg á. Blásarinn er engan
veginn fær um verkefni, eins og
Múlavegurinn var nú, með
grjóti og 'hörðum snjóflóðum. □
Sitjandi frá vinstri: Bergþóra Bergsdóttir, Guðný Pálsdóttir og Svanhildur Þorsteinsdóttir. Stand-
andi: Gunnþóra Árnadóttir og Júdit Sveinsdóttir, stjórn Baldursbráar. (Ljósm.: A. K.j
Kvenfélasfið Baldursbrá 50 ára
Á LAUGARDAGINN var þess
minnzt af konum á Hótel KEA,
að kvenfélagið Baldursbrá er
orðið 50 ára. Það var stofnað í
Glæsibæjarhreppi 8. júní 1919
af 33 konum í þeim tilgangi að
rétta fátækum hjálparhönd. En
þörf slíks félags hafði áður ver-
ið rædd á hreppsfundi og þar
skotið saman nokkurri peninga
upphæð í því skyni að örva kon
ur til starfa. Er þar sérstaklega
nefndur Stefán bóndi á Hlöð-
um, er lagði fram meira fé en
aðrir.
Guðrún Jóhannsdóttir frá Ás
láksstöðum var formaður hins
nýja félags 15 fyrstu árin og
með henni í fyrstu stjórn, Sig-
ríður Jónsdóttir, Bandagerði og
Björg Klemensdóttir, Bitru-
gerði. Kvenfélagið Baldursbrá
hefur til þessa dags starfað sem
líknarfélag.
í afmælishófinu bauð núver-
andi formaður, frú Guðný Páls-
dóttir, Stíflu í Glerárhverfi,
gesti velkomna en frú Svan-
hildur Þorsteinsdóttir flutti
sögu kvenfélagsins í stórum
dráttum. Um 70 manns sóttu
hófið og nutu sameiginlegra
kaffiveitinga.
Frú Laufey Vigfúsdóttir frá
Húsavík las kvæði og söng síð-
ar nokkur lög við undirleik Ás-
kels Jónssonar, er einnig stjórn
aði almennum söng. Frúrnar
Petrina Þórarinsdóttir og Gunn
fríður Hreiðarsdóttir sungu tví-
. söng' og Hjálmar Jóhannesson,
einn af nemendum Sigurðar D..
Franzsonar, söng einsöng.
Mörg ávörp voru flutt og
félaginu bárust blóm og skeyti,
ennfreimur kvæði eftir Laufeyju
Sigurðardóttur, er formaður las
upp. Þá var sérstaklega lesið
þakkarskeyti frá Jóhannesi Ola
Sæmundssyni, þar sem hann
þafckaði 100 þús. kr. gjöf kven-
félagsins til Sólborgar, og Heið-
HAPPDRÆTTIFRAM-
SÓKNARFLOKIÍSINS
NÚ ERU aðeins nokkrir dagar
etir, því dregið verður 10. des.
Þéir sem fengið hafa heimsenda
miða, eru vinsamlegast minntir
á að gera skil við fyrsta tæki-
færi. Þá vill skrifstofan hvetja
ailla umboðsmenn til að herða
söluna og grea skil sem allra
fyrst. Skrifstofan er opin alla
daga frá kl. 2—7 e. h. Sími 21180
rún Steingrímsdóttir þakkaði
f. h. Bjargs, gjöf frá kvenfélag-
inu. Að.síðústu var stiginn dans.
Af stofnendum Baldursbráar
eru enn á lífi þær Kristín Sig-
urðardóttir og Magðalena Bald
vinsdóttir.
Dagur sendir kvenfélaginu
Baldursbrá hinar beztu ham-
ingjuóskir. □
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti eftirfarandi á síðasta
fundi sínum, samkvæmt bókun:
Á fundinum komu nú vatns-
veitustjóri og Pétur Pálmason,
verkfræðingur, til viðræðna við
bæjarráð um aukna vatnsöflun
fyrir Akureyri.
Jafnframt var lögð fram álits
gerð frá Stefáni Stefánssyni,
bæjarverkfræðingi, um vatns-
öflunina, þar sem hann gerir
samanburð á valkosti I, vatns-
öflun í Hörgárdal, og valkosti
II, vatnshreinsunarstöð við
Glerá.
Bæjarráð telur, að framkomn
ar greinargerðir um vatnsöflun
fyrir Akureyri skeri ekki ótví-
rætt úr um, hvort hagstæðara
er að afla vatns með gerð vatns
hreinsistöðvar við Glerá eða
Akureyrarbær er stór atvinnuveifandi
Reikningar bæjarsjóðs Akureyrar árið 1968
REIKNINGAR bæjarsjóðs Ak-
ureyrar fyrir árið 1968 voru
lagðir fram til annarrar um-
ræðu á bæjai-stjórnarfundi í
gær.
Reikningamir bera það með
sér að bæjarstjórn hefir lagt á
það áherzlu að efla atvinnu í
bænum, þegar eftirspum eftir
vinnuafli dvínaði á almennum
markaði, og er það í samræmi
við þá skoðun að opinberir aðil-
ar verði að aúka framkvæmdir,
ef það dofnar yfir öðru atvinnu
lífi.
Tekjur bæjarsjóðs árið 1968
voru áætlaðar 113.4 millj. kr.,
en urðu 114.1 millj. kr., eða að-
eins ca. Vú'% hærrí. Þeir liðir,
sem færðir em upp sem rekstr-
argjöld voru áætlaðir 99 millj.
kr., en urðu 107.4 millj. kr., ca.
8.5% yfir áætlun.
Til nýbygginga húsa og véla-
kaupa var varið 10.3 millj. kr.
eða eins og í áætlun.
Við athugun á reikningunum
kemur í ljós að á rekstrarreikn-
ingi eru fjölmargir liðið og sum
ir mjög stórir, sem í rauninni
eiga þar ekki heima, ef um
venjulegt fyrirtæki væri að
ræða. Þetta veldur því að eigna
myndun bæjarsjóðs kemur elcki
í ljós með því að líta á eigna-
breytingareikninginn einan. Til
þess að skýx-a þetta má nefna að
framlag til nýrra gatna og hol-
ræsa er fæi't á rekstrargjöld, en
er í rauninni eignamyndun,
ekki síður en húsbygging sem
kostað hefði sömu upphæð. Hús
byggingin hefði hins vegar kom
ið fram sem eignaaukning.
Reikningarnir yfir i-ekstrar-
útgjöld bera það með sér að
flestir þeir liðir sem mest fara
fram úr áætlun fela í sér at-
vinnumyndun. T. d. sézt í undir
liðurn gatnagerðar, að viðhald
gatna og holræsa hefir orðið
6.35 millj. kr. í stað 4.0 millj. ki'.
og að til nýrra gatna, holræsa
og gangstétta og endurbyggingu
gamalla gatna og húsakaupa við
Glex'árgötu var varið 15.9 millj.
kr. í stað 14.3 millj. kr., þ. e. nær
4 millj. kr. meii'a en áætlun
gerði ráð fyrir á þessum liðum.
Götuhreinsun, sorphreinsun og
holræsahreinsun fóru samtals
1.2 millj. kr. fram úr áætlun en
snjómokstur vrað 0.34 millj. kr.
minni en áætlað var.
Liðurinn menntamál fór 900
þús. kr. fram úr áætlun, en und
ir þeim lið eru skólagarðar og
svo unglingavinna, sem tekin
var upp eftir áætlunai'gerð, en
þessir tveir liðir hækkuðu um
560 þús. kr. og viðhald skóla
fór 240 þús. kr. yfir.
Liðurinn félagsmál var áætl-
aður 27.9 millj. kr. en vai’ð 30
millj. kr. Þar undir eru helztu
hækkunarliðir: Til trygginga
19.2 millj. kr. (hækkun 0.6 millj.
kr), til framfærslu 5.2 millj. kr.
(hækkun 1.1 millj. kr.) og leik-
vallagerð 1.0 millj. kr. (hækkun
0.23 millj. kr.).
Rökstur íþróttamannvirkja
gekk illa á árinu og varð í'ekstr
arhalli 1.3 millj. kr. meiri en
áætlað var, þar munar mestu á
í'kestri Skíðahótelsins, en tapið
á því varð 909 þús. kr. en var
áætlað 385 þús.
Kostnaður við stjórn bæjar-
ins og skrifstofur vai'ð 4.3 millj.
kr. og fór 442 þús. fi'am úr áætl
un, en þar af er hækkun á
tveim undirliðum vegna flutn-
ings í nýja skrifstofuhúsið á ár-
inu 1967, samtals 467 þús. kr.
Þessir liðir eru áhöld, bækur og
innréttingar, sem áætlaður var
500 þús. kr. en varð 802 þús.kr.
og ræsting, ljós og hiti, sem
áætlað var 370 þús. kr. en vai'ð
535 þi'is. ki'.
Vextir af lánum á árinu urðu
nær 2.4 millj. kr. en voru áætl-
aðir 1.4 millj. kr. Er þessi hækk
un aðallega vegna bráðabirgða-
lána (yfirdráttur í Landsbank-
anum), ,en mikil nauðsyn var
að getá haldið uppi framkvæmd
um enda þótt tekjurnar kæmu
seint inn á árinu.
Kostnaður við löggæzlu varð
bæjai-sjóði léttari en áætlun
gerði ráð fyrir, þar sem breyt-
ing varð á endurgreiðslukerfi
ríkissjóðs vegna þátttöku hans
í kostnaðinum. Breytingin er
fólgin í því að endurgreiðslan
kemur fyrr, en skiptingarhlut-
fallið bi-eyttist ekki. S. Ó. B.
með vatnsflutningi úr Höi'gár-
dal. En vegna bi'ýnnar þarfar á
nýrri vatnsöflun fyrir Akureyri
leggur bæjarráð til, að þegar
verði hafizt handa um nauðsyn-
legar framhaldsi'annsóknir á
vatnstöku á Þelamörk.
Tillaga um kosningu vatnsveitu
stjómar.
Vegna mikilla vei'kefna, sem
framundan eru hjá Vatnsveitu
Akureyi'ar og sívaxandi rekstr-
ar, leggur meii'ihluti bæjarráðs
til, að kosnir verði 5 menn og
5 til vara í vatnsveitustjórn.
Bæjarverkfræðingur sitji fundi
nefndarinnar með málfrelsi og
tillögurétti. Nefndin verði bæj-
arstjórn og vatnsveitustjói'a til
í'áðuneytis urn fi'amkvæmdir,
rekstur og áætlunargerð vatns-
veitunnar. Kjörtímabil 4 ár.
Fundargerðir nefndarinnar
vei'ði lagðar fyrir bæjarstjórn
til afgreiðslu.
Við atkvæðagreiðslu um tiil-
löguna lagði Ingólfur Árnason,
bæjarráðsmaður, til að bæjar-
vei'kfi-æðingur yrði 6. maður
nefndarinnar með atkvæðis-
rétti. □
Brönugrasið rauða í síðasfa sinn
SÍÐASTA sýning L. A. á Brönu
gi'asinu rauða eftir Jón Dan,
verður n. k. fimmtudagskvöld.
Þá eru jafnframt síðustu forvöð
að kaupa áskriftarskírteini fé-
lagsins sem veita 25% afslátt.
Um leikritið segir E. D. í leik
dómi 19. nóv.: „Huglæg fi'am-
vinda þess gefur því dálítið heill
andi inntak, sem er styrkur
þess og jafnframt veikleiki.“
Og Magnús Kristinsson segir
í þönkum um sýninguna:
„Áhrifameiri leikmeðferð en þá,
sem þarna sést bezt, hef ég ekki
oft séð á sviði hér.“
Eins og komið hefur fram hér
í blaðinu bauð Leikfélag Reykja
víkur L. A. að sýna Brönugrasið
í Reykjavík. Vegna ýmissa vand
kvæða hefur L. A. orðið að af-
þakka þetta ágæta boð.
(Fréttatilkynning)