Dagur - 10.12.1969, Blaðsíða 5

Dagur - 10.12.1969, Blaðsíða 5
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Siniar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Vilum hverju við sleppum - en ekki hvað við hreppum TILLOGU þeirri frá ríkisstjórninni um inngöngu íslands í EFTA, fylgir löng greinargerð eftir Guðmund Magnússon prófessor, sem hann lief- ur samið fyrir iðnaðarmálaráðuneyt- ið og nefnist „íslenzkur iðnaður og EFTA.“ Þetta er ca. 130 blaðsíðna bók í fræðimannastíl og nokkuð torskilin leikmönnum í hagfræði. En í upp- hafi hennar er efni hennar dregið saman á fáum blaðsíðunr í tölusett- um minnisatiiðum. Þar segir pró- fessorinn í lokin: „Niðurstöður rann sóknar minnar hníga að því að iðn- þróun muni eflast með aðild að EFTA með þeirri samningsgerð, sem nú er kostur á.“ Þessum „niðurstöðum“ fylgir þó svohljóðandi fyrirvari á öðrum stað í efnisútdrættinum: „Það er auðveldara að sjá hverju við sleppum en hvað við hreppum á mörgum sviðum, því það er ekki á eins manns færi að kveða upp úr með, hvaða útflutning við getum stundað.“ Þessi fyrirvari prófessorsins hefur vakið athygli. Hann sýnir m. a. að það er ekki nema von, að almenn- ingi geti veitzt örðugt að skapa sér skoðun á þessu máli að svo stöddu. Hjá mörgum vúkur hann líka þá hugsun, að áður en gengið yrði í EFTA, þyrfti að gera íslenzka iðn- þróunaráætlun, og þar þyrftu inarg- ir, bæði hagfræðingar og þeir sem einhverja reynslu hafa í iðnaðar- og markaðsmálum, að leggja hönd að verki. Um inngöngu íslands í EFTA virðast sumir liugsa sem svo: Annað hvort strax eða aldrei! En til þess eru milliríkjasamningar, sem kostur er á, lagðir fyrir löggjafarþing hér og annarsstaðar, að fulltrúar þjóðarinn- ar geri sér grein fyrir efni þeirra og afleiðingum og hafi þó sjálfir ráð- rúm til að gera þær athuganir og hafa um það samráð við aðra, er þeir telja nauðsynlegt. Margir spyrja nú: Hvaða iðnaður íslenzkur er hægt að selja til EFTA- landa? Og einnig: Er hægt að lækka tolla af vörum frá EFTA-löndum án þess að lækka jafnframt samskonar vörur frá öðrum löndum, sem nú kaupa mikið af útflutningsvörum ís- lendinga? □ SNORRI SIGFUSSON: Ferðiii frá Brekku, II Iðunn, Reykjavík 1969 í ÞESSIJ öðru bindi af sjálfs- ævisögu Snorra Sigfússonar segir frá skólastjórastarfi hans á Flateyri við Önundarfjörð og margvíslegum störfum öðrum. Því að auk skólastarfanna, sem hann hafði jafnan brennandi áhuga fyrir, kom hann víða við sögu í félagsmálum sem hrepps nefndaroddviti, sóknamefndar- maður, söngmaður, bindindis- frömuður og síldarmatsmaður, Snorri Sigfússon. auk þess sem hann plægði kú- fisk, fékkst við búskap og slapp nauðulega frá því að verða bankastjóri. Þá vann hann með miklum áhuga að stjómmálum. Hvarvetna var mikið líf í tusk- unum í kringum hann, enda var hann sjálfur manna glaðastur og hinn öruggasti til fram- kvaemda. Er þessi bók eins og hin fyrri fjörlega skrifuð, og brestur höfundinn hvergi at- orku né áhuga að rekja sinn fjöl skrúðuga minnissjóð. Skemmtileg er sagan um að- draganda alþingiskosninganna 1923, þegar Ásgeir Ásgeirsson forseti var fyrst kosinn á þing. Höfundurinn hafði verið feng- inn til að syngja á sarhkomu inni í Dýrafjarðarbotni gegn lof orði um að honum skyldi verða skilað seinna um daginn út að Gemlufalli, þar sem fundur skyldi hefjast á ákveðnum tíma um framboð. Vél bátsins bilaði, að því er haldið var „eftir áætl- un“, og tók þá Snorri það til ráðs að hann hljóp út með Dýra firði norðanverðum allt til Lambadals og náði þar hrossi og kom í tíma til fundarins. Móti Ásgeiri var í framboði mikil kempa: Guðjón frá Ljúfu stöðum, og þótti hinum eldri mönnum sumum óviturlegt að hafna þessum gamalreynda þing manni og kjósa ungan mann og óreyndan, líkt og óskrifuð póesi bók væri tekin fram yfir Eddu. En Vestfirðingar fylktu sér samt sem áður um Ásgeir og fylgdu honum æ síðan með fá- gætum drengskap, hvernig sem sjólagið var í stjórnmálunum um áratugi. Fjöldi manna kemur við sögu í þessari endui'minningabók, ekki aðeins um Önundarfjörð og Flateyri, þar sem staldrað er víð svo að segja á hverjum bæ, heldur og víðs vegar um Vest- firði, og dregur höf. upp af þeim skýrar og eftirminnilegar myndir. Eru umsagnir hans margar hinar merkustu og vil ég skjóta því hér inn, af því að slíkt vill stundum gleymast í bókum eins og þessum, að æski legt væri að hafa með síðasta bindinu nafnaskrá yfir allt verk ið. Prýða og ritið fjölda margar mannamyndir. Er hér miklu efni þjappað saman og skil- merkilega greint frá mörgum þeim atburðum, er gerðust á þessum árum vestra og sögu- gildi hafa. Það lýsir höfundinum vel, er hann segir í foimála, að sumurn kunni ef til vill að þykja hann bera of mikið lof á samferða- ■menn sína. Hafi hann jafnan haft opnari augu fyrir því, sem vel var um náungann en hinu, sem ef til vill mátti að honum finna, enda talið minni ástæðu til að tíunda það. Þessi skemmti lega athugasemd mætti verða mörgum til fyrirmyndar, sem langminnugastir eru á það, sem æskilegast er að gleyma. Og þessi er efalaust líka ástæðan fyrh' því, hversu vel höfundur- inn hefur varðveitt gleði sína og sálarfjör, og hversu bjart er enn yfir honum, þó að nokkuð sé liðið á daginn. Bókin er harla vel prentuð og úr garði gerð. Það er sérlega vel til fallið að birda hina fögru hlífðarkápu með bókinni, og svo ætti að gera ætíð, ef vel er til vandað. Er bókin efcki framar heil, þegar kápan er orðin ónýt og af henni slitin, eins og oft vill verða. Benjamín Kristjánsson. Ákureyringar komu meðbikarinn (Framhald af blaðsíðu 1) framlengdum leik skoraði Kári Árnason. Þetta var 10. Bikarkeppni KSÍ og fyrsti úrslitasigur Akur- eyringa í þeirri keppni. — Til hamingju, knattspyrnumenn. BLAÐIÐ spurði Harald M. Sig- urðsson íþróttakennara um úrslitaleik Akurnesinga og Ak- ureyringa í Bikarkeppninni, er fram fór á Melavellinum í Reykjavík á sunnudaginn. Hann sagði efnislega á þessa leið: Þetta var mjög spennandi leikur frá upphafi til enda og jókst spennan auðvitað um all- an helming, er liðin skildu jöfn í leikslok 2:2. — Dómari var Valur Benediktsson. Akureyringar hófu leikinn og má um þá segja, að þeir lágu ékki á liði sínu, voru sívinnandi og á mikilli hreyfingu, og þeir náðu oft þessum ágæta og hnit- miðaða samleik. Leikur þeirra minnti mig mjög á leikinn við Keflvíkinga hér á Akureyri í sumar. Völlurinn var f rosinn og á pörtum mjög háll. Veðui' var gott. Akurnesingar gerðu fyrsta markið á þrettándu mínútu fyrri hálfleiks og var þar að verki Matthías Hallgrímsson, mjög efnilegur knattspymumað ur þeirra Skagamanna. Síðan Tvær Setbergsbækur ROBERT KENNEDY heitir ný- útkomin ævisaga, rituð af Gylfa Gröndal en Setberg, Reykjavík gefur út. Saga Kennedy-bræðranna er hin merkilegasta og á sér vart hliðstæðu. Bók um Robert mun því mörgum kærkomin, þótt mangt hafi verið um hann ritað. Bókin um Robert Kennedy er yfir 230 blaðsíður og skiptist í 23 kafla. Hún er saga um kjai'k- mikinn og drenglyndan hug- sjónamann, sem féll, eins og for Hrakf allabálkur SVO heitir nýútkomin bók eftir Rósberg G. Snædal rithöfund á Akureyri, en Skjaldborg s.f. gef ur bók þessa út. Hún er 160 blaðsíður með viðauka og mannanafnaskrá og er tíunda bók höfundar. Békin, sem ber þetta lítt að- 'laðandi nafn, fjallar um slys- farir, harðindi og önnur ótíð- indi í Húnaþingi á árunum 1600—1850. í .formála segir höf., að hér sé um að ræða alþýðlegt rit en ekki sagnfræði. Mætti ekki síð- ar kalla bókina annál, því frá- sagnir eru stuttar og á mörg mið er leitað til aðdrátta. Marg- ur fróðleikur er í bók þessari og eru margir atburðirnir efni í lengri, eða jafnvel langar rit- smíðar. En því miður njóta góð- ir rithöfundahæfileikar Rós- setinn bróðir hans, fyrir morð- ingja hendi. Sagan er hin læsi- legasta, prentun og band hið snyrtilegasta. Undir Jökli eftir Árna Óla rit höfund, segir sögu, sagnir og frá furðum náttúrunnar á Snæfells nesi á 250 blaðsíðum og er bók- in auk þess skreytt myndum. Þarna er af miklu að taka, sögu maður fróður og vanur að halda á penna og er bókin vottur þess. Snæfellsnes, þessi mjói fjall- garður, sem teygir sig 80 km. vestur í haf, er sérstætt sögu- svið, náttúra þess voldug, nán- ast kyngimögnuð, auk þess að vera fögur og fjölskrúðug. En bókin fjallar einkum um það svæði, sem nefnist „undir Jökli“, sem er vestasti hluti Snæfellsness. □ Rósberg G. Snædal. bergs sín hér ekki eins vel og í ýmsum fyrri bókum hans, þar sem frásagnarhæfileikum eru aðrar og minni skorður settar. - JOLAVERZL. HAFIN (Framhald af blaðsíðu 1) markaðri kaupgetu fólks en áður. Iðnaðarvörur KEA seljast mjög vel víða um land og greið- ar samgöngur á landi eru góðar. Þó urðum við fyrir því óhappi, að fulllestaður bíll með iðnvör- ur héðan frá verksmiðjum KEA og SÍS rann út af vegi í Norður árdal í Borgarfirði í mikilli hálku. Verið er að kanna skemmdir. Snæfell selur í Bretlandi á morgun, yfii' 50 tonn af fiski, þar af verulegur hluti koli. □ skiptust liðin á frumkvæði fyrri hálfleik til enda. Staðan var ekki glæsileg, 1:0. Þegar tíu mínútur voru liðn- ar af síðari hálfleik gerðu Skaga menn annað mark sitt og var þár að verki Teitur Þórðarson og má kalla það hálfgert klúður mark. Kvennakór af Akranesi hvatti sína menn óspart, bæði í bundnu og óbundnu máli, en við, Akureyringarnir og aðrir norðanmenn, sem þarna vorum, voruni naumast nógu vongóðir eins og á stóð og vorurn nú hálf vegis farnir áð reikna með tapi ÍBA-liðsins. En þá snérist gæfu hjólið í „rétta“ átt. Magnús Jónatansson fyrirliði ÍBA af- greiddi knöttinn í net þeirra sunnanmanna og var það óverj andi skot af alllöngu færi. Færð ist nú líf í leikinn og ekki sízt í áhorfendur að norðan, sem reyndust nú hvorki raddlausir eða áhugalausir, svo ekki mun hafa hallazt á um hvatningar- orðin. Fimm mínútum síðar náði Kári boltanum og setti þeg ar á fulla ferð í átt að marki Akurnesinganna, með tvo fót- fráa Skagamenn á hælunum, og á glerhálum svellglotta gaf hann boltann nú allt í einu aft- ur fyrir sig til Valsteins, sem þegar sendi hann til Eyjólfs, er ■skallaði hann með ágætum í vinstra horn marksins. Þessi samleikur þriggja manna var alveg meistaralegur og svo hnit miðaður, að hvergi skeikaði, þótt aðstæður væru erfiðar. Nú var staðan 2:2, við vorum orðnir ákaflega spenntir, norð- anmennimir og létum það óspart í ljósi. Tækifæri buðust báðum liðum, en notuðust ekki, eins og þegai- Magnús skallaði í stöng, Valsteinn skaut í þver- slá o. s. frv., en sunnanmenn áttu einnig sín tækifæri. Leikn- um lauk með jafntefli. En nú varð að leika til úrslita og var leikurinn því framlengdur um 30 mínútur. Enn var sama spennan og ekki minni en áður. í fimrn mínútur skiptist á vörn og sókn, en á sjöttu mínútunni gaf Sævar knöttinn fram til Kára, sem þegar brunaði fram, með sínum kunna hlaupahraða og náði að skjóta fram hjá mark manninum, sem þegar hafði hlaupið fram á móti knettinum. Boltinn skall í innanverða stöng ina og þaðan í netið. 3:2 fyrir Akureyri. Nú reið á að halda þessari stöðu eða gera jafnvel eitt miark enn, en hvorugu lið- inu tókst að skora. Akureyring- ar gengu með sigur af hólmi og það var sætur sigur. Beztu menn hjá Akraneslið- inu tel ég vera þá 'Teit Þórðar- son og Þröst Stefánsson, en erfiðara er að dæma um okkar menn. Þeir voru jafnari nú en oftast áður, léttir og hreyfan- legir. Þar var enginn veikur lilékkur. ■ Framundan eru nú fjórir leik ir við íslandsmelstarana, Kefl- víkinga. Fara tveir þeirra fi'am á Akureyri en tveir í Keflavík, og eiga þeir að fara fram á fyrstu þrem mánuðum ársins. Æfingai- eru því framundan og ekkert hlé, segir Haraldur M. Sigurðsson að lokum. □ 5 Árni Jónasson FRÁ STEINKOTI HINZTA KVEÐJA TIL AFA, FRÁ ÁRNA, SIGFRÍÐI OG SIGRÚNU Kveðjum heitt í hinzta sinni herrann leiðir þig til sín, aldrei gleymum elsku þinni englar Drottins gæti þín. Hjartans þakkir elsku afi um þig sveipast náðarlín. Það er eins og ennþá stafi engilljóma á sporin þín. A friðar landi ljós þér skína að loknu starfi, sofðu rótt. fyrir alla elsku þína ástar þakkir, góða nótt. KVEÐJA FRÁ JÓHANNI ANGANTÝSSYNI OG GUÐRÚNU JÓHANNSDÓTTUR OG FJÖLSKYLDUM Þetta er innileg þakklætis kveðja þessa síðustu skilnáðarstund. Kæri vinur þú vildir okkur gleðja vertu sæll, nú er harmur í lund. Bjart frá hæðum mun ljós guðs þér lýsa lyftist blæja frá augunum tveim. Englar drottins er veginn hér vísa eru vinir sem fylgja þér heim. H. J. KVEÐJA FRÁ FJÖLSKYLDUNNI f VALLHOLTI Við þökkum þér alla þá ánægju stund okkur var kynning þín gróði. Nú hcldur þú vinur á frelsarans fund friður guðs sé með þér góði. Frelsarinn réttir þér fagnandi hönd í faðm sinn þig tekur sem bróðir. Á himnum þú sérð yfir sólbjarta strönd því svona er Drottinn vor góður. Við kveðjum þig vinur í síðasta sinn með söknuð og minning í hjarta. Lýsi svo ætíð á legstaðinn þinn ljósið guðs himneska og bjarta. Þig venzlamenn kveðja og vinimir heitt og votta þér þökk fyrir árin. Þig hefur Drottinn í ljóssali leitt við lítrnn þitt bros gegnum tárin. Halldór Jónsson. Bókin sem aldrei var rituð í BRÉFI til Halldórs Friðriks- sonar yfirkennara, rituðu í Kaupmannahöfn 15. ágúst 1874, kemst Jón Sigurðsson svo að’ orði: „Vilt þú ekki styrkja til þess, að Sveinn Sveinsson gæti verið hér í vetur og komist til að sjá búnaðarskóla, verkfæri etc.? Hann gæti fengið 100 rd. hjá Landbúst (j órnar ) -f él aginu. Gæti þitt félag lagt til 100 rd. FYRRI GREIN og stjórnin svo sem 200 rd., þá gæti það gengið. Blessaður, gerðu hvað þú getur til þess.“ Með orðunum „þitt félag“, á Jón auðvitað við Búnaðarfélag suðuramtsins, þar eð Halldór var þá forseti þess. En Halldór vissi öll deili á Sveini, er að til- stuðlun dönsku stjórnarinnar og stiptsamtmanns hafði þá tek ið til starfa hjá félaginu. Eitthvað niun Halldór Frið- riksson hafa látið Jón forseta á sér skilja, að sér findist mikils ■krafist Sveini til handa, því 26. sept. 1874 skrifar Jón Halldóri aftur um málið og segir svo: „Hvernig getur þú talað, að ásaka mig fyrir heimtufrekju. Eg heimta ekkert, en ísland heimtar einna fremst af öllu að allt sé gjört jarðyrkjunni til' framfara, sem gjört verður. Það er ekki einungis til að „þefckja“ verkfæri, sem Sveinn byrfti að vera hér, heldur til að taka sér fram, til að sjá ýmislegt og geta „fylgt með“, til að ljúka við rit- gerð sina og til að standa fyrir útbúnaði hennar, og svo fleira, sem um væri að gjöra. Þú sér það sjálfur, minn kæri, að með öðru eins áhaldi og hingað til hefir verið í þeim efnum enda í Suðuramts húss- og (bústjdrn ar)félagi, sem þó hefir gert mest, þá gengur ekki neitt, og Oskjuhlíð verður með sama sandroki á næstu þúsund ára hátíð einsog nú. Þú verður að skrúfa Finsen, annaðhvort dírekte til að veita nokkuð, eða indírekte til að mæla með, því eg skal gera allt hvað eg get. Þó að þ"ið getið ekki drifið upp nema 300 rd. nú jæja! þá það.“ Enn skrifar Jón um Svein í bréfi til Halldórs dags. 12. marz 1975: „Sveinn Sveinsson hefir gengið á fyrirlestra á landbún- aðarskólanum og kynnzt við prófessor Jörgensen, og sýnt honum ritgjörðtí sínar og skýrslur, sem Jörg. hefir líkað vel. Eg held honum finnist miklu meira til Sveins en hann vænti, og hann hefir fengið 100 rd. hjá landbúst(jórnar)félag- inu, en heldur er minna um und irtektir íslenzku stjórnarinnar." — Og síðar í sama bréfi: „... skrifar hann (Sveinn) líklega landshöfðingja og þá væri nú vænt ef þú styrkttí hann---------, svo hann gæti fengið svo sem 100 dali til, og svo nokkuð til verkfæra ef vel væri, því þess þurfum við nauð- synlega. Hann býr til uppdrætti á ýmsum jarðyrkjuverkfærum, sem eiga að fylgja kveri hans, og eg ver til þess því sem eg get, þó það fari yfir þá 200 íxl. sem til þesskonar voru ætlaðtí af félaginu, því eg álít öllu því bezt varið, sem gengur til fram- fara landbúnaðar og sjávarút- vegs. Þú mátt með engu móti telja efttí Sveini það sem hann fær, því það er sannarlega ekki of mikið, — “. Enn ræðir Jón hið sama, í bréfi til Torfa Bjamasonar, dags. í Kaupmannahöfn 20. marz 1875. Þar segir hann: „Núna verður prentuð rit- gjörð eítir Svein með uppdrátt- um af helztu jarðyrkjuverkfær- um, og vona eg hún veroi til nokkurs gagns. Hér er nú sem stendur ekki kostur á öðru betra, en verður það kannske . síðar, og bá er eg fús til að . styrkja' það eftir megni. Beztu verkfæri af þeim sem kunnug Árni G. Eylands. eru mega vera brúkanleg ef menn leggja sig til m.eð það og fá tilsögn. En það versta er, að landar vorir kaupa heldur syk- ur og kaffi og brennivín heldiur en slífc verkfæri, og sarna er eg hræddur um að verði urn önn.ur ný, nema þér fáið þá til að reyna þau af fprvitni.“ — x — Það sem hér er í efni, er Jón Sigurðsson stendur svo vel í ístaðinu með Sveini Sveinssyni — það gerði hann raunar bæði fyrr og síðar — er sú staðreynd að Sveinn sat við í Kaupmanna höfn veturinn 1874—75, að semja bækling — sem hann kall ar svo — LeiSarvísir til að þefckja og búa til hin almenn- ustu Landbúnaðar verkfæri. Með 58 uppdráttum. Bók þessa gaf Þjóðvinafélagið út 1875, er formáli Sveins fyrir bókinni dag settur í Kaupmannahöfn 2. apríl 1875. Lesmál bókarinnar er ekki langt né mikið, 36 blaðsiður, en uppdrætttínir eru metía til f rá- sagnar, 58 uppdrættir á 5 stór- um uppdráttablöðum. Allir eru þetí mjög vel gerðir og augljóst að mikil vinna hefir verið í þá lögð, enda getur Jón forse.ti þess — sjá hér að framan — að til þeirra hafi verið ætlaðir 200 rd. og gefur um leið í skyn, að sú upphæð muni ekki hrökkva til. Ekki er mér kunnugt hvað upplag þessai-ar bókar Sveins hefir verið stórt, né hvernig sala hennar gekk, en svo mifcið er víst að eftir 49 ár er hún enn eigi uppseld hjá forlaginu — Þjóðvinafélaginu. Það mun hafa verið 1949 og 1950 sem ég keypti þau 10—20 eintök af bókinni, sem þá voru enn óseld. Notaði ég þau til gjafa, flest erlendis. En þótt þessi bók Sveins Sveinssonar væri ekki rifin út, verður ekki annað sagt með ■sanni, en að hún var allmerki- legt rit, á sinni tíð. — x — Nú varð 75 ára hlé á, að ritað væri um búnaðarverkfæri og búvélar, svo orð færi af, að minnsta kosti ekki í bókarformi. En árið 1950 gefur Bókaútgáfa Menningarsjóðs út bókina Bú- vélar og ræktun, er ég hafði sett saman. Þetta var allmikil bók, 476 bls. í stóru broti með 527 myndum. Bókin var unnin vet- m-na 1947—48 og 1948—1949. Að bók Sveins Sveinssonar frá 1875 ólastaðri, var Búvélar og ræktun, auðvitað frumsmíð á sínu sviði, og bar þess nokkur merki. Ekki veit óg með vissu hve stórt upplag bókarinnar var, hygg að það hafi verið eitthvað nálægt 2500 eintök. Þannig gætti bjartsýni við útgáfu bók- ■arinnar. Munaði þar mest um Valtý Stefánsson, sem þá var íormaður Menntamálaráðs, má segja að það væri honum að kenna eða þalcka að ég samdi bókina og að hún kom út. Bókin hlaut yfirleitt góða dóma og seldist vel fyrsta sprett inn. Mætir menn sfcrifuðu vin- samlega um bókina, má til nefna menn eins og Runólf Sveinsson skólastjóra, Ólaf Jónsson tilraunastjóra, Jónas Jónsson frá Hriflu, Ásgetí Bjarnason alþingismann, Jón Sigurðsson á Reynistað, Finn Jónsson alþisgismann, Snæ- björn Jónsson rithöfund, Stein- dór Steindórsson frá Hlöðum o. fl. Þó bar skugga á. Á leiðbein- inga óg fræðavettvangi Búnað- arfélags íslands var bókinni fyrst tekið með þumbara-þögn, en síðar með fullum fjandskap. Raunar kom stuttur ritdómur um Búvélar og ræktun í júní- blaði Freys 1950, var þar slegið úr og í ekki óvingjarnlega, en síðar var um bætt og áréttað heldur betur í Frey í maí—júní 1952. Þar kom hinn „stóri dóm- ur“ um bókina Búvélar og rækt un, sem ryðja átti til hliðar öllu sem áður hafði verið skrifað og sagt um þá bók, og forða bænd- um frá að kaupa hana. Dómurinn, sem er upp á nær fjórar síður í blaðinu, smáletr- aður, endar á þessum orðum: „------yftíleitt hefir höfund- urinn ekki valdið efninu. Mér virðist bókin sem heild vera! vansmíði, — fánýtt tildur, — og minnir mig helzt á digurt, feysk ið, en gljáfægt montprik, sem veifað er út í bláinn. Þrátt fj'rir hina góðu pósta, tel ég að bókin væri betur órit- uð. Meðal annars vegna þess, að ég óttast að hún kvekki bændur þannig, að þeir verði fyrst um sinn, ennþá ófúsari en áður til að kaupa búfræðileg rit, er bjóðast kunna, þó að hagnýt- ari verði um fróðleik.“ Já þannig hljóðandi dómur- inn. En hér var meira i efni en dómur einstaks fræðimanns, ráðunauts hjá Búnaðarfélagi ís lands. Dómurinn var ritaður í marz 1951, en hann birtist ekki, svo sem fyrr er sagt, fyrr en í maí—júní blaði Freys 1.952. Birt ing ritdómsins í fræða- og leið- beiningamálgagni Búnaðarfé- lags fslands var því á döfinni í um 14 mánuði. Svo langan tíma tók að athuga hvort höggið skyldi látið ríða, á mér sem höf_ undi bókarinnar Búvélar og ræktun, og forlaginu sem hafði gerzt svo djarft að gefa bókina út bændum til hi'emmingar. Um þetta fjölluðu ekki aðeins höf- undur ritdómsins og ritstjóri Freys, þetta kom auðvitað einn- ig til kasta útgáfunefndar Freys, stjórnar Búnaðarfélags fs lands og búnaðarmálastjóra. Alls var þetta þannig 7 manna hæstiréttur auk sækjandans, rit dómarans. Margt hefir orðið undan að láta fyrir því sem minna var. Ritdómur þessi kom of seint til að gtíða fyrtí sölu bókar- innar, því að obbinn af upplag- inu seldist á fyrsta ári, en nærri má g'eta, að slíkur vitnisburður forráðamanna B. í. dróg úr (Framhald á blaðsíðu 2) \

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.