Dagur - 20.12.1969, Page 5
4
Skrifstofur, Hafnarstrœti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
*. " . 's
MEINBUGIR
Á
FJÁRLÖGUM
FJÁRLÖGIN fyrir árið 1970 voru
samþykkt á Alþingi miðvikudaginn
17. des. í ríkisfjárhirzlumar eiga að
koma á næsta ári 8 milljarðar og 400
milljónum betur. Þetta munu vera
fimmtu fjárlög núverandi fjármála-
ráðherra og hafa þau hækkað um
3—4 þús. milljónir króna í hans tíð,
þegar frá era dregnir ýmsir sérsjóðir
á vegum ríkisins, sem nú eru í fjár-
lögum en voru þar ekki fyrir 5 árum
(vegasjóður o. fl.). Varla verður sagt
um Magnús eins og séra Amljót
fyrrum:
„Þar fær enginn gull úr gjá
sem gamli Ljótur á að passa.“
Allir þessir milljarðar fara áreiðan
lega út úr fjárhirzlunum aftur og
miklu meira, því alltaf fara skattar,
tollar og einkasölugróði fram úr
áætlun. Á árunum 1966—1968 námu
þessar umframtekjur 16—1700 millj-
ónir samtals. Magnús geymir ekki
ríkiskassann í Hrafnagjá, eins og
séra Arnljóti var ætlað að gera, held-
ur í miðborg Reykjavíkur og ríkis-
stjórn, sem búin er að sitja lengur en
sætt er, þarf oft að snúa lykli í
skránni. Ráðherrann situr ekki einn
við kassann, verðbólgudraugurinn,
sem „viðreisnarstjómin“ átti að
kveða niður, situr þar hjá honum og
þarf ekki að kvarta.
Tekjuáætlun fjárlaganna er að
verulegu leyti „ólögleg“ að þessu
sinni. Þar er gert ráð fyrir, að tollar
og söluskattur fari eftir tollskrá og
söluskattsfmmvörpum, sem Alþingi
er ekki búið að samþykkja og því
ekki orðið að lögum. Áformuð sölu-
skattshækkun nemur, eftir þessum
stjórnartillögum, miklu hærri upp
hæð en tollalækkunin. Þessi fmm-
vörp komu ekki fram fyrr en um
síðustu helgi og fjármálaráðherra fór
fram á það við þingið, að þau yrðu
afgreidd á örfáum dögum. Og á þess-
um dögum vom þingmenn jafn-
framt önnxnn kafnir við sjálf fjár-
lögin og tillöguna um inngöngu í
EFTA. Gerðist þá kurr meðal þing-
manna og töldu þeir margir, að ekld
mætti minna vera, en að mönnum
gæfist tími til að rannsaka tollskrána,
sem er 200 blaðsíðna talnaskrá. Er
ráðherra hafði lokið ræðu sinni um
45% hækkun söluskattsins, kvöddu
10 alþingismenn sér hljóðs, svo að
segja samtímis í neðri deild. O
Hugleiðingar um íslenzka
MIKIÐ er nú búið að skrafa og
skrifa um íslenzka þjóðbúning-
imi þessi síðustu ár. — Það er
gaman að þetta mál hefur verið
rætt svona almennt. — Öll faugs
anleg stórveldi hafa lagt málinu
lið! — Og flestir hafa þessir
góðu menn gert ráð fyrir að
búningnum verði lítið breytt —
bara sniðnir af nokkrir van-
kantar.
En það er sérstaklega eitt
atriði, sem Heimilisiðnaðarfélag
íslands þarf að láta til sín taka
í þessu efni:
Að fá verksmiðjurnar til að
framleiða létt og lipurt efni úr
íslenzkri ull i búningana. — Is-
lenzka ullin er nú að ná miklu
áliti, sem betur fer, og hún á
bezt við í búningana. — Það er
ekki hætt við, að Heimilisiðn-
aðarfélag íslands verði í vand-
ræðum með þetta, það hefur nú
gert annað eins.
Og þá er að minnast á van-
kantana, sem þarf að sníða af:
Hafa prjónaskotthúfu, ekki
flauel.
Hafa dökkleita sokka við bún
ingana.
Hafa slegið sjal, ekki peysu-
fatakápu.
- SUMARDAGAR
í SVARFAÐARDAL
(Framhald af blaðsíðu 8).
fram að hugsa um þær konur
er. erfiðast áttu með að hreyfa
sig, engum gat dulizt að hún á
hlýjar hendur.
Ég sendi kveðju mína að
Húsabakka til allra þeirra er ég
var með þessa ánægjulegu daga.
Starfsliði og öllum vinum er ég
hitti þar bið ég blessunar, einnig
heimili prófastshjónanna og
fjölskyldu þeirra.
Guð gefi ykkur öllum gleði-
Jeg jól og blessunarríkt nýár.
Hafið öll innilegar þakkir fyr
ir sólskinsdagana í sumar.
Akureyri 16. desember 1969
Laufey Sigurðardóttir
frá Torfufelli.
Ekki stutt pils (a. m. k. 25 sm,
frá gólfi).
Ekki silfurbelti við peysu-
búning.
Halldóra Bjarnadóttir.
Eikki í nærpilsi einu undir
samfe'llu, fer illa.
Eldri konur ættu að klæðast
peysufötum, ekki upphlut, með
hvíta treyju, brúsandL
Varast að hafa fald eða skott-
húfu aftaná hnakka, fylgi helzt
hárrótinni.
Athuganir um þjóðbúningana
almennt.
Auðsjáanlega er mikið af þjóð
•búningum til almennt, t. d. í
höfuðstaðnum, þó hann sé nú
minna notaður en áður. — Hann
var notaður af öllum stéttum
almennt fram yfir aldamót: Við
jarðarför Sveinbjamar Svein-
björnssonar, tónskálds, 1927
(mai'Z) vottuðu konur tónskáld
inu virðingu sína. — Komu til
kirkju 50 konur í skautbúningi
í einni fylkingu. — (Ingibjörg
H. Bjarnason, alþingismaður,
gekkst fyrir þessum samtökum)
Eða þegar heimafólk Helga
Magnússonar, stórkaupmanns,
hérna í Bankastrætinu, bauð 80
konum til kvöldfagnaðar 1943.
— Þær áttu allar að vera klædd
Fjórðungsþing fiskideilda
28. fjórðungsþing fiskideilda í
Norðlendingafjórðungi var hald
ið á Akureyri dagana 3. og 4.
desember sl., að Hótel KEA.
Á fundinum voru mættir alls
23 fulltrúar frá öllum deildum
fjórðungssambandsins frá
Skagaströnd til Raufarhafnar.
Ennfremur sátu sem gestir fund
arins fiskimálastjóri, Már Elís-
son, og fulltrúar hans, þeir
Jakob Jónsson og Þórarinn
Árnason.
Varaformaður samtakanna,
Magnús Gamalíelsson, útgm.,
Ólafsfiiði, setti þingið í fjarveru
foimanns, Valtýs Þorsteinsson-
ar, og bauð fulltrúa og gesti
þingsins velkomna.
Fyrir þinginu lágu mörg mál
og voru gerðar ýmsar samþykkt
ir og ályktanir varðandi þau öll
og ríkti mikill einhugur á þing-
inu varðandi öll hagsmunamál
samtakanna.
í stjóm voru kosnir: Angan-
týr Jóhannsson, Hauganesi,
Magnús Gamalíelsson, Ólafs-
firði og Bjami Jóhannesson,
Akureyri.
Endurskoðendur voru kjömir
þeir Gunnar Níelsson, Hauga-
nesi og Ingvar Jónsson, Skaga-
strönd.
Fulltrúar á Fiskiþing vom
kjömir: Angantýr Jóhannsson,
Hauganesi, Magnús Gamalíels-
eon, Ólafsfirði, Bjarni Jóhannes
son, Akureyri og Hólmsteinn
Helgason, Raufarhöfn.
Þinginu var slitið að kvöldi
4. desember með borðhaldi að
Hótel KEA. (Aðsent)
- Saga Sauðárkróks
(Framhald af blaðsíðu 1)
sónulegum kynnum sem heima-
maður. Hér er á ferðinni stór-
fróðlcg bók, fjölbreytileg að efni
og merkileg menningarheimild,
sagan af uppvexti íslenzks kaup
staðar frá frumbemsku til
manndúmsára, — úr verstöð og
verzlunarhöfn lausakaupmanna
upp í fullvaxta viðskiptamiðstöð
og útgerðarbæ, full af „saltlykt
og tjöruangan“ og krambúðar-
ilmi liðinnar tíðar, með súg af
lífsþrótti athafnastaðar í vexti
og lit af fjölbreytilegu mannlífi
hans. — En samofin vexti og
viðgangi Sauðárkróks er einnig
saga alls héraðsins.“
Saga Sauðárkróks er prentuð
í Prentverki Odds Björnssonar
h.f. en útgefandi er Sauðár-
krókskaupstaður. Meðal um-
boðsmanna eru þeir Gunnar
Helgason, sími 5233, Sauðár-
króki, Sigurjón Bjömsson, sími
81964, Reykjavík og Þórður
Friðbjamarson, safnvörður, Ak
ureyri.
búninginn
ar íslenzkum búningi og voru
það.
Og svo allir peysufatadagarn-
ir í skólunum! — Það er stund-
um verið að gera gys að þeim,
en sannarlega er gaman að sjá
ungu stúlkurnar einu sinni
svona virðulegar og fallegar.
Manni dettur stundum í hug
það, sem útlendur merkismað-
ur, sem hér var á ferð, sagði um
búningana: „Ef ég hefði hér
alræðisvald, skyldi ég lögbjóðá
að allar konur klæddust þjóð-
búningum!"
Svo óska ég öllum búninga-
samtö'kum hjartanlega til ham-
ingju, og þá íslenzku konunni,
fyrst og fremst, sem njóta skal
allra sigurvinninganna!
Halldóra Bjarnadóttir.
TREYSTIÐ VARLEGA
ÚTVARPIÐ hermdi síðla sum-
ars frá andláti umdeilds manns.
Það var fyrrverandi biskup,
Pike að nafni. Hann ók með
konu sinni út í eyðimörkina í
nánd við Dauðahafið til að
kynna sér það umhverfi, sem
ætla má, að Kristur hafi dvalið
í, þegar gerðist freistingarsagan,
er guðsspjöllin segja frá. En
bifreiðin festist í sandauðninni.
Kona hans geklc til byggða, 10
stunda göngu, en hann varð
eftir og skyldi bíða, unz hjálp
bærist.
Þegar farið var að leita,
fannst hann ekki á þeim stað,
þar sem hans var von. Hviar átti
þá að leita hans? Kona hans,
sem var andatrúar eins og hann,
var ekki í neinum vafa um, að
andarnir mundu vita það. Var
svo leitinni hagað mjög eftir
þeim upplýsingum, sem bárust
að handan. Var hann sagður
inni í helli.
Þegar svo lí'k hans fannst eftir
fimm daga leit, lá það á kletta-
stalli, en var ekki inni í helli.
Hvaða gagn er að slikum upp
lýsingum? Það, að fólk læri að
treysta því varlega, sem það
fréttir að handan. HeiJladrýgra
verður eftir dauðann að hafa
treyst boðskap Krists og breytt
eftir honum heldur en öðrum
upplýsingum, sem gefnar eru
um ástand manna eftir dauðann
og framhaldslífið.
Sæmundur G. Jóhannesson.
- MINKURINN ÍSLENZKT HÚSDÝR Á NÝ
(Framhald af blaðsíðu 8).
bakkahreppi, en er í undirbún-
ingi og Kaldbakur, frystihúsið,
verður væntanlega einn aðaJ-
hluthafinn.
Ætlunin er að byrja með 500
læðu bú, en þó fer það eftir
hlutafjármagni þegar þar að
'kemur. En slíkt bú kostar 6—7
milljónir, uppkomið. Hér er
reiknað með 10 þús. kr. stofn-
kostnaði fyrir hverja læðu, og
efast ég um að það hrökkvi, því
hér á landi þarf að vanda vel
til bygginganna.
Sennilega væri hagkvæmt, að
byrja að ári liðnu eða svo og fá
6 máiíaða dýr og hafa þá allan
búnað fyrir hendi.
Sigurður og Eggert, sem áður
eru nefndir, eru báðir í Noregi,
að læra loðdýrarækt. Við fórum
víða og kynntum okkur minka-
ræktina, sérstaklega á Jaðrin-
um. Þar og víðar er minkarækt
ein búgrein bænda, svona 100—
200 læður á býli, en á öðrum
stöðum eru stór loðdýrabú. Við
komum á eina fóðurblöndunar-
stöð, sem framleiðir minkafóður
fyrir nokkurt svæði. Þár er á
hverjum morgni ekið út 100
tonnum af „minkagraut", og er
'þetta bændum mikið hagræði.
En sjálfstæð minkabú, sem
byggjast á þeirri búgrein einni,
hafa 1000—2000 læður.
Reiknað er með, að hver læða
gefi af sér 4 hvolpa á ári, sumS-
staðar fleiri. Minkaskinn seljast
á 1200—1500 krónur, af 6—8
mánaðia dýrum, séu þau góð.
Á búinu, þar sem Sigui-ðuir
vinnur nú, fékk bóndinn 2400
íslenzkar krónur fyrir hvert
karldýrsskinn að meðaltali, en
þau skinn eru stærri og dýrari
en af kvendýrum. Þessi skinn
voru af svartmink og árangur
Langt yfir það venjulega. En
svartminkurinn er mjög algeng
ur. Einnig er til hvítminkur og
litaafbrigði em mjög mörg.
Minkarnir, 6—8 mánaða, eru
aflífaðir með rafmagni, sumir
verka skinnin sjálfir, en aðrir
senda þau til verkunarstöðva.
Síðan er þessi vara seld á upp-
boðsmörkuðum. I Osló er ein
heljar mikil markaðsmiðstöð
fyrir loðskinn refa og minka',
þar sem væntanlegir kaupendur
hvaðanæva úr heiminum geta
skoðað vöruna í sérstökum sýn-
ingardeildum. Merki framleið-
anda og vottorð matsmanna
fylgja hverju skinni.
Við höfum reiknað með, að
læðan hingað komin, ásamt ein
um fimmta hluta karldýrs,
kosti um 4000 krónur. Ef vel
gengur, breyta minkarnir ýmis-
konar verðlitlu ruslfæði í dýr-
mætan gjaldeyri, og það er aðal
atriði minkaræktarinnar, en að-
eins 7—10% fóðursins, kolvetna
fóður, þarf að kaupa inn í land-
ið til þessarar framleiðslugrein-
ar, segir Jónas að 'lokum.
Til fróðleiks má geta þess, að
síðasta ársframleiðsla minka-
skinna í Skandinaviu var nær
10 milljónir skinna.
Þess er nú að vænta, að önn-
ur tilraun íslendinga í minka-
rækt, takist betur en sú fyrri og
verði arðbær atvinnugrein. Q
JÓLAKERTIN
Á JÓLABORÐIÐ
- margar gerðir, fallegir litir
(Aðsent)
5
©
i
&
t
I
t
I
t
I
t
i
I
t
&
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU.
MÚLALUNDUR - Reykjavík
*
t
I
t
f
*
4-
t
t
<r
*
4-
t
4-
t
©
4-
t
f
p/-
©
4-
©
4-
+
t
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU.
AXMINSTER HF. - Reykjavík
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU.
KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR
*
4-
©
4-
©
*
4-
©
4-
f
t
t
f.
*
ÓSKUM LANDSMÖNNUM ÖLLUM
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsæls nýárs!
ÞÖKKUM ÁRIÐ SEM ER AÐ LÍÐA.
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
f
t
f
t
!
0
4-
t
f
t
f
t
t
%
I
t
I
t
f
t
I
I
I
t
I
|
Ö
|
t
GLEÐILEG JÓL!
ÓSKUM ÖLLUM VIÐSKIPTAVINUM VORUM OG
STARFSFÓLKl GLEÐILEGRA JÓLA OG
FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI. | :
VÉLSMIÐJAN ODDI HF.
SAMEINUÐU VERKSTÆÐIN MARZ HF.
f
t
f
t *
f
t
f
t
*
4-
t
©
4-
0
4-
t
f
t
f
4-
t
f
t
0
4-
t
f
4>k4-©4'^©4'*4-©'i'i\'<4-©4'*4'©'i'*4-©4'*4-©4'*4'©'i'SW'©'i'*4-©4'*4-©4'*4-©4'*4-©4'*4-©'>f i'^t4-©4'*4-©4-*4-©4-*4-©'i'*4-©4'iii4-©4'*4-©4'*-4-©4'i\C-4-©'i'*4'©4'i!C-4-©4'*4-©4'*4-©4'*4-©4 *
V
f
0
4-
*
4-
0
4-
t
t
4
ÓSKUM SAMBANDSFÉLÖGUM VORUM OG
ÍSLENZKRI ALÞÝÐU
GLEÐILEGRA JÓLA
og gæfuríks komandt árs!
MEÐ ÞÖKK FYRIR SAMSTARFIÐ Á LIÐNA ÁRINU.
ALÞÝÐUSAMB.AND ÍSLANDS
f
I
t
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt komandi ár!
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU.
HAPPDRÆTTI S.Í.B.S.
f
|
f
t
f
*
4-
*
4-
t
t
f
?
*
4-
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt komandi ár!
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU.
HAPPDRÆTTI D.A.S. - Akureyrarumboð
f
t
f
t
f
?
f
?
t
f
t
4- X. 0