Dagur - 22.12.1969, Blaðsíða 8

Dagur - 22.12.1969, Blaðsíða 8
8 Akureyri, við kyrrlátan fjörðinn þykir bæja fegurstur, en þar verða menn þó að greiða sín gjöld, samanber grein á öðrum stað af fjárhagsáætlun kaupstaðarins fyrir næsta ár. Ýmsar Iramkvæmdir á EgilsstöSum Egilsstöðum 22. des. Hér fæst ekki Akureyrar-maltöl og þyk- ir mikið á skorta hinn nauðsyn lega undirbúning jóla og mikil afturför í iðnaði ykkar manna í höfuðstað Norðurlands. Hér er snjólétt og fært til Reyðarfjarðar, Oddsskarðí löng um haldið opnu, svo og Fjarðar ■heiði. Skipaferðir eru strjálar í vetur en f 1 ugsamgöngur all- góðar. Um helgina fóru héðan tveir vörubílar til Mývatnssveitar og gekk sæmilega. Reyndist veg- urinn víðast góður, en smáhöft á nokkrum stöðurn í Möðrudals fjallgarði. Vegurinn á hálendinu er svo vel upp hlaðinn, að hann verður ekki fyrr ófær en marg- ir byggðavegh'. Þykir okkur það sanngjarnt, eins og nú hag- ar til um snjólag, að vegurinn sé gerður fær bifreiðum einu sinni í viku. Bílarnir fluttu einangrunarplast vestur en komu með milliveggjasteina til baka. GliLLNA FARIÐ eltir ARTHUR HAILEY Þcfisi spennandi skáldsaga hcfur orðið niargföld metsöiulrók hvarvctna sem hún ficfur komið út, cn fyrri bækur Haileys, „Hinzta sjúkdómsgreiningin" og „Hótel“ hafa eintiig notið ólicmju vinsælda. í „Gtillna farinu" ojmar Hailcy lesandanum sýn inn í tnarg- víslega leyndardóina fiugsamgangnanna, sem almenningi cr yfirleitt ókunnugt um, og kynnir fólkið sein starfar við eða kringum flugið. Samkvæmt fjárlögum verður ýmislegt unnið hér í rétta átt í fjárveitingarmálum. Veittar eru 3 millj. kr. til læknamiðstöðvar og verður byrjað að vori og 0.5 millj. eru ætlaðar til Sjúkra- Skylisins, sem fellur þarna inní. Svo er ætlað til barnaskólabygg ingar 3.5 millj. frá ríkinu en þar á móti kemur jafn mikið fram- lag að heiman. En barnaskólinn hér, er fyrir löngu allt of lítill orðinn og eru í honum 130 börn og unglingar. Lagt er til læknis bústaðar fyrir Austurhérað 420 þús. og til endurbóta á læknis- bústað fyrir Vesturhérað 176 þús. Sjálfvirk símstöð og pósthús er hér í byggingu og er búið -að byggja vélastöð fyrir símann og verður vélvirkur búnaður senni lega búinn í marz í vetur. Skólafólkið er farið heim úr skólunum. Talið er, að hingað sé komin margnefnd Honig Kong inflúensa. V. S. Tveir amhas.sadorar HARALDUR Ki'öyer hefur ver ið 9kipaður ambassador í Stokk hólmi og Sigurður Bjarnason ■aimbassador í Danmörku. □ Hannibal og Bjöm sfofna þingflokk BJÖRN Jónsson og Hanni'bal Valdknarsson hafa stofnað nýj- an þingflokk. Las forseti upp bréf þess efnis á fundi í sam- einuðu Alþingi í síðustu viku. Verður þessi þingflokkur minnsti þingflokkurinn, meðlim ir eru aðeins tveir, aðrir þing- flokkar eru Alþýðubandailag (8), Alþýðuflökkur (9), Fram- sóknarflokkur (18) og Sjálf- stæðisflokkur (24). □ íbúðarskúr brann ÍBÚÐARSKÚRINN Ránargata 11, Akureyri, ónýttist af eldi á laugardiagsmorguninn. Þar bjó einn maður og safcaði Itann eikki, að því er lögreglan tjáði blaðinu í morgun. □ SMÁTT & STÓRT LITLU-JÓLIN Litlu-jóILn hafa verið haldin í bamaskólimi bæjarins við mik- inn fögnuð barna, einkum yngri barnanna. Á laugardaginn gafst fréttamönnum kostur á að virða fyrir sér „litlu-jólin“ í Sól- borgu, þar sem 14 ungmenni dvelja á daginn við nám og starf og hafa þá sérstöðu, að þroskast seint. En þessi börn nutu söngsins, jólasveinsins, jólatrésins, ekkert síður en önnur börn. FYRIRTÆKI SEM BLÓMSTRAR Ríkisfyrirtæki það, sem kennt er við tóbak og áfengi og skilar árlega hundruðum milljóna í ríkiskassann, hefur flutt í ný hús, notar tækni, hefur sagt upp verulegum hluta starfsfólks, en býðst til að kosta þjálfun þess við önnur störf. Þá hefur þetta fyrirtæki í liyggju að flytja út brennivín í vaxanldi mæli og hugga aðrar þyrstar þjóðir. ÚTGAFU AÐ LJÚKA Útgáfu bóka fyrir jólin er nú lokið og árangurinn er til sýnis í verzlunum. En bækur eru ekki allar þar sem þær eru séðar í búðarglugga og getur það verið hrós eða last eftir atvikum. Ytra útlit segir manni lítið, þegar höfundarnafni sleppir. Ritdóm- ar birtast, miklir að fyrirferð í stærri blöðunum, en þykja ekld nema miðlungi góðir vegvísar og þar kreppir skórinn. I hinu erfiða vali bóka, sem kaupandi ætlar að lesa sjálfur eða gefa öðrum, velja flestir þann kost- inn, að láta bókadómana lönd og leið, en hafa eigin smekkvísi að leiðarljósi. KVARTAÐ UM HNUPL Á höfuðborgarsvæðinu er kvart að um mjög vaxandi hnupl. Kveður rammt að þessu í jóla-< kauptíðinni og ber margt til. Þá er ös í verzlunum og auðveld- ara að hnupla. Og þá er miklu fleira dreifbýlisfólk á ferðinnl og margt af því er sagt minna' tortryggið og farangur þess því auðveldari bráð. En stórþjófn- aðir fara þar einnig mjög í vöxt, innbrot og rán, svo sem fregnir herma. Kjörbúðarfyrirkomulag ið, sem þykir annars mjög vin- sælt og hefur ýmsa kosti, liefur þann ókost, að freista margra til að linupla. Hér á Akureyri virðist þessi óknyttaalda ekki ná og er ástæða til að fagna þvi, EFTA OG SÖLU- SKATTURINN í sambandi við inngöngu fs- lands í EFTA, verður söluskatt- urinn illræmdi hækkaður í 11%. f Alþingistíðinduni frá fyrri ár- um er margan fróðleik að finna, m. a. Iivaða skoðun formenn A1 þýðuflokksins hafa haft á sölu- skattinum. HARALDUR GUÐMUNDS- SON SAGÐI: „Ég álít, og Alþýðuflokkurinn er sömu skoðunar, að mér ligg- ur við að segja, að af öllum toll- urn, sem eru lagðir hér á hjá (Framhald á blaðsíðu 4) Safnað í brennu. (Ljósm.: E. D.) Brennur á gamlarskvöld ÞAÐ et' garnall siður að brenna út gamla árið og hafa ungir og gamlir gaman af því, enda brennur stundum stórar og e’kki sparaður eldsmatur. Bæði í Reykjavík og á Akur- eyri, og eflaust víðar, hefur lög- regiarí skipulagt þennan þátt er gamalt ár er kvatt. En á þeim tímamótum hefur einatt viljað við brenna, að ýmiskonar óæski legar hneigðir ungmenna hafa brotizt út í ikjánalegum athöfn- um. Brennumar virðast halda huga fjölda ungmenna föngnum og fullnægja að miklu leyti tiJ — breytingarþörtfinni. Undanfarnar vikur hefur mátt sjá unga drengi rogast með tiimburbrak og 'annað brennan- legt efni í stóra kesti, á þeim stöðum í bænum, er lögreglan 'leyfir. Er þetta raunar urn leið ver-uleg hi'einsunarherfer'ð. í gær tjáði lögreglan blaðinu, að búið vœri að sækja um leyifi fyrir fimm brennum og eru sum ir kestii'nir orðnii' stórir og munu loga vel þegar þar að kemur. Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.