Dagur


Dagur - 04.03.1970, Qupperneq 2

Dagur - 04.03.1970, Qupperneq 2
(Framhald af blaðsíðu 1) nýlunda, þótt ekki sé það eins- dæmi, því Sigurður Einarsson Hliðar gaf út „Dagb'aðið" á ár- unum 1914—1915 og það v?.r dagblað, þótt ekki vœri það stórt í sniðum og kcm út í 3—4 mánuði, .En ekki dr.cgur það úr gildi þess blaðs, sem nú á dag- lega að ,koma út, á meðan vetr- arhátiðin stendur og h.eitir VHr blaðið eða Vetr.aríþi'ótía'blaðið. Ábyrgðarmaðu.r er Haraldur M. Sigurðsson. Sögusýning var opnuð í Landsbankasalnum á sunnu- dagskvöldið. Sýnir hún þróun yetrai'íþrótta í landinu. Þar er margt merkilegra muna, yngri og .eldri, og íþróttatæki frá ýms um tímum. Haraldur Sigurðs- son bankagialdke.ri, sem sá að mestu um uppsetningu sýning- arinnar, skýrði hana fyrir boðs gestum við opnun hennar. Skíðakeppnin hófst svo í Hlíðarfjalli á mánudag og fara hér á eftir nokkur úrslit.: 17—19 ára. 1. Ásgrímur Konráðsson, Ólafs firði 27 og 30 m. 142.6 stig. 2. Ingólfur Jónsson, Siglufirði 23 og 25 m. 106.4 stig. 15—-16 ára. 1. Árni Helgason, Ólafsfirði 26.5 og 28 m. 128.6 stig. 2. Drn Jónsson, Ólafsfirði 23.5 og 23.5 m. 106.1 stig. 3. Már Jónsson, Ólafsfirði 21 og 23.5 m. 101.1 stig. Stórsvig 15—16 ára drengir. Brautin var 1300 m., fallhæð 300 m. og 36 hlið. 1. Haukur Jóhannsson, Akur- eyri 76.8 sek. 2. Gunnlaugur Frímannsson, Akureyri 80.'4 sek. 3. Halldór Jóhannesson, Akur- eyri 83.2 sek. Stórsvig stúlkna 13—15 ára. Brautin var 900 m., fallhæð 250 m. og 28 hlið. 1. Margrét Baldvinsdóttir, Ak- ureyri 71.39 sek. Reyni Sveinssyni úr Fljóturre til liamingju með sigurinn í 5 km. Trausti Sveinsson núverandi íslandsmeistari í 15 km. göngu, ósk;ar göngunni. (Ljósm.: Myndver) Skíðastökk 20 ára og eldri. 1. Dag Jensvoll, Noregi 41 og 41 m. 220.1 stig. 2. Ilpo Nuolikvi, Finnlandi 39.5 og 40 m. 211.1 stig. 3. Björn Þór Ólafsson, Ólafs- firði 33.5 og 32 m. 172.4 stig. 4. Sveinn Stefánsson, Ólafsfirði 31 og 32 m. 158.9 stig. 5. Berður Guðlaugsson, Siglu- firði 28 og 30.5 m. 155.8 stig. 2. Svandís Hauksdóttir, Akur- eyri 72.69 sek. 3. Anna Hermannsdóttir, Akur eyri 78.65 sek. Ganga 15—16 ára, 5 km. 1. Reynir Sveinsson, Fljótum 28.56 mín. 2. Freysteinn Björgvinsson, Fljótum 27.05 mín. 3. Guðmundur Ólafsson, ísa- firði 28.54 mín. Hvers vepa fór hún? - HÚN er fædd og uppalin frammi í Eyjafii’ði, rauð að lit, 9 v.etra, tamin, þæg en ekki fjörmikil, svo sem vænst var, s'kagfirzk í móðurætt en undan Sandhóla-Rauð í Eyjafirði. Heima á hún í Hólsgerði, eig- andi Hjálmar Jóhannson bóndi þar eða dóttir hans. í sumar gekk Rauðka í Vill- ingadal með öðrum hrossum en fór frá þeim yfir í Torfufells- - Vetraríj)róttahátíðin (Framhald af blaðsíðu 4). þegar háðir þessum ófögn uði. Verkefnin hafa því aldrei verið meiri en nú eða skeleggrar forystu og fyrir- mynda meiri þörf. Styðjum íþróttahreyfinguna til þeirra miklu verkefna, sem fram- undan eru. □ dal og var þar ein. Hinn 6. júlí var hún þar enn og virtist ró- leg, þar til hún allt í einu tók á rás fram Torfufellsdal Þá var brugðið við, samdægurs og aft- ur næsta morgun, en án árang- urs, því sú rauða sást hvergi, en slóð hennar sást norðaustur að Nýjabæjarfjalli. Segir svo ekki af Rauðku fyrr en hringt var í Hólsgerði vestan úr Skagafirði 15. febrú- ar. Rauðka hafði fundizt í ein- hverjum skálum hátt uppi í fjalli ofan við Merkigil. Þar var hún handsömuð eftir nokkra fyrirhöfn r>g faerð til byggða. Heim til sín kom hún á vöru- bíl á mánudaginn mögur orðin en þó með fuillum þrótti, sagði Hjálmar Jóhannsson bl'aðinu á mánudaginn. En hvar var sú rauða allan þennan tíma, á áttunda mánuð? Og hvers vegna hljóp hún upp á fjöll, yfirgaf heimahaga og hélt út í óvissuna? □ SKAUTAHLAUP. Skautahlaup fór fram í aust- anverðum Eyjafjarðarárhólm- um og hófst kl. 17. 500 m. hlaup. 1. Örn Indriðason, Akureyri 51.0 sek. 2. Gunnar Snorrason, Reykja- vík 54.0 sek. 3. Ólafur Gunnarsson, Akur- eyri 55.3 sek. 500 m. hlaup 15—17 ára. 1. Vil'hjálmur Hallgrímsson, Akureyri 61.4 sek. 2. Garðar Jónasson, Akureyi'i 62.5 sek. 3. Hermann Björnsson, Akur- eyri 63.3 sek. 300 m. lilaup 12—14 ára. 1. Jón Björnsson, Akureyri 39.9 sek. 2. Kristján Leósson, Akureyri 45.0 sek. 3. Ómar Stefánsson, Akureyri 45.8 sek. 3000 m. hlaup karla. 1. Örn Indriðason, Akureyri 6.51.6 mín. 2. Gunnar Snorrason, Reykja- vík 7.03.5 mín. 3. Sveinn Kristdói'sson, Reykja vík 7.18.0 mín. □ íþróttamyndirnar tók Matthías Gestsson — Myndver —. VAR ÓLAFSFJARÐARMÚLI AÐ HRYNJA? Strandbjörg landsins vaka í huga þjóðarinnar, sem traust- ustu stólpar til varnar og skjóls. Það má segja að fjöllin kring- um Eyjafjörð séu stórhreinleg, fögur, og bjóði af sér mikinn þokka og traust. Jafnvel sjálfur Ólafsfjarðarmúli, sem hefir reynzt erfiður og illur í kynn- ingu, hlýtur þó sinn skerf af aðdáun undir miklu óskaregni um að hann hefði aldrei verið til. Mundi það og mega teljast rétt, að kenna vofveiflega hluti við hugsanlegt hrun þessara stoltu og reisnmiklu strand- bjarga. Og nú hefir nýlega gef- izt tiiefni hér norðanlands, sem víkur hugum fólks að þeirri spurningu, hvort Ólafsfjarðar- múli hafi verið kominn að því að hrynja, annaðhvort af heil- agri vandlætingu eða í gríni, — nema hvortveggja hafi verið. Er hér mælt á táknmáli, sem jafnan skýrir betur atburði og þau í'ök er að þeim liggja, en löng orðabuna og lýsingar. Leikfélag Akureyrar, sem er virðulegt „mjök svo“, fjör- gamalt og þó fúalaust í hett- unni, hefir orðið fyrir ásökun- um, sem nálgast pólitískar of- sóknir. Kom árás þessi fram í reykvísku dagblaði, vel að merkja stjórnarstuðningsblaði. Og þar sem ýrs önnur blöð höf- uðstaðarins göluðu undir í mál- inu, ýmist með eða móti, skal ekki urn þetta atriði málsins rætt frekar hér. En aðeins þakk að fyrir skemmtunina: þegar kisur fara í stríð. Enda ber þeim, sem bera fram ásakanir, sjálfum að standa fyrir máli sínu og sanna það. Og fyrri en þær sannanir liggja fyrir, er vart hægt að ræða grundvöll og byggingu þessa tilfellis, að nokkru gagni. Eigi skal heldur færa hér í Björn Þór Ólafsson. Haukur Jóhannsson. letur þær þjóðsögur, sem ganga hér í bænum um Samkomuhús ið, þar sehi nefnt Leikfélag starfar jafnan að æfingum sjón- leikja og uppfærslu þeirra. En þaðan spinnast nú lopar um draugagang á nóttum. Og þó að, sem kunnugt er, almanna- rómur Ijúgi sjaldan, þá gerir hann það stundum, ef til vill í viðlögum að helmingi og þaðan af meira, — ef hentar. Mundu ekki og svo Vottar Jehóva fegn ir vilja taka að sér að rannsaka draugaganginn, þar sem þeir eru kunnir að góðu:m áhuga fyrir dularfullum fyrirbrigð- um? En það sem blaðamönnum og öðru ritfæru fólki hér á staðn- um kemur við, í sambandi við Leikfélag Akureyrar, er breyt- ing sú á Gullna hliðinu, vin- sælasta sjónleik Davíðs frá Fagraskógi, sem það á einn eða annan hátt hefir talið sig haifa haft leyfi til að gera. Og hefir Leikfélagið sýnt þetta ágæta leikrit nú um sinn, við ágætan orðstír, — annan en þennan. Þó er ókunnugum eigi ljóst hvort þarna hefir til komið leyfi, þeirra er ráða fyrir rithöfundar rétti skáldsins, eða að alls ekk- ert leyfi hefir verið veitt. Og er þá hér um mál að ræða, sem varðar við lög. Er þá komið að þeirri spurningu: Hvaða aðilar stóðu að því, að gera tilraun til þess, meira að segja á snjó- þyngsta tímabili ársins, að velta fjallinu Ólafsfjarðarmúla yfir Fagraskóg? Það verk verður aldrei til lofs og dýrðar, þeim sem því hafa valdið. Fjarlægðin hefir aldrei gert Ólafsfjarðar- múla bláan. Og nú þegar lcks er lokið að sýna þessa afbrigði- legu nýgerð á Gullna liliðinu, hverfur hún út í moldrok, eins og skemmtileg en einskisverð grínmynd, sem ekkert skaðar sjálft listaverkið, aðeins til- raunamennina. Þess vegna er Dag Jensvoll. Ilpo Nuolikvi. amen þessa máls á þá leið, að á fyrirbrigðið verður litið likt og grænan snjó, sem félli úr lofti, einn dag — eða svo! Sig. Draumlantl. BORGARI SPYR! Hvernig er það, er ekki í gildi bann við því að hundar gangi lausir í bænum? Hinum al- menna borgara virðist, sem svo sé ekki, nema þá sem pappírs- gagn eitt. Það er kunnara en frá þurfi að skýra, að nú sl. ár hefir hundaeign bæjarbúa þotið upp sem gorkúlur á haug, þeim fjölgað svo hreinni undrun sæt ir, og nálgast brjálæði. í sum- um bæjarhlutum er hundur í hverju húsi, og það jafnvel fleiri en einn! Þessi dýr ganga meira og minna laus, eðlilega ganga þau svo „örna“ sinna hvar sem þeim sýnist, bæði í húsagörðum — á götuim úti og víðar. Er þetta elcki „fínt“ bæði frá þrifnaðar- ■legu og heilbrigðislegu sjónar- miði séð? — Nú undanfarin ár hafa bæjaryfirvöld með heil- brigðisnefnd í broddi fylkingar, farið hamförum gegn öllu skepnuhaldi í bænum. Þrifnað- arástæður sögðu þeir vísu menn m. m. En ef við eigum svo að fá hundasaur með tilheyrandi í staðinn er það þá ekki það, sem kallað er: „Að fara úr öskutini í eldinn“? spyr sá er ekki veit!! Borgari. Borgari hefur hér lokið máli sínu um hundahald, Hér á Akureyri er hundahald tak- mörkunum háð og þarf leyfi til þess hverju sinni, samkvæmt reglum þar um. Ef þeim reglum er fylgt, munu naumast vand- ræði af hundahaldi. En of mörg brot gegn þeim leiða hugann að því hvort endurskoðun sé nauðsynleg eða betra eftirlit. í þeim efnum má ekki bíða eftir hunda-plágu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.