Dagur - 21.03.1970, Page 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Dreifing
menntasfofnananna
ÞINGMENN Framsóknarflókksins
í Norðurkkjördæmi eystra, Ingvar
Gíslason, Gísli Guðmundsson og
Stefán Valgeirsson, flytja á Al-
þingi tillögu til þingsályktunar um
dreifingu menntastofnana, áætlun
um skólaþörf og eflingu Akureyrar,
sem miðstöðvar mennta og vísinda
utan höfuðborgarinnar. Lagt er til
í tillögunni, að Alþingi lýsi yfir
þeim vilja sínum, að stefnt skuli að
eðlilegri dreifingu hvers kyns
mennta- og menningarstofnana um
landið og tillit tekið til þeirrar
stefnu í framkvæmd byggðaáætlana.
Ennfremur, að nauðsynlegt sé að
gera heildaráætlun um skólaþörf
landsmanna næstu 10—15 ár, bæði
er varðar almenna skóla og sérskóla,
og skuli að undanfarinni rannsókn,
í samráði við hlutaðeigendur, gerð
áætlun um skólastaði í samræmi við
þá meginstefnu, að mennta- og
menningarstofnunum skuli dreift
eðlilega um landið. Loks er lagt til
að Alþingi lýsi yfir því, að sérstak-
lega skuli að því stefnt, að Akureyri
verði efld sem skólabær og miðstöð
mennta og vísinda utan höfuðborg-
arinnar.
í greinargerð segir m. a.: Akur-
eyri er þegar tiltölulega öflugur
skólabær, m. a. vegna menntaskól-
ans, sem þar hefur starfað í meira
en 40 ár, og iðnskólinn er mjög á
eflingarbraut vegna nýrra og mynd-
arlegra húsakynna sem smám saman
eru að komast í gagnið, undirbún-
ingsdeild tækniskóla hefur starfað
þar í nokkur ár og vélskólakennsla
fer að nokkru fram á Akureyri, tón-
listarskóli er einnig í bænum og er
unnið að endurbótum á húsnæði
hans, rætt er um stofnun garðyrkju-
skóla á Akureyri, en ýmsar liindran-
ir hafa verið lagðar í götu þess máls,
svo ekki hefur orðið af framkvæmd-
um. Minna má á, að Þórarinn heit-
inn Bjömsson skólameistari var þess
fýsandi, að kennaradeild yrði stofn-
uð og rekin í tengslum við Mennta-
skólann. Ástæða er til að nefna tvo
skóla, sem mjög kæmi til greina að
reka á Akureyri. Annars vegar væri
norðlenzkur verzlunarskóli. Hins
vegar fullkominn tækniskóli. Heim-
ilt er eftir lögum að starfrækja tækni
skóla á Akureyri. Fjarri fer því, að
þessarar lagaheimildar hafi verið
neytt, þótt undirbúningsdeild tækni-
skóla hafi að vísu starfað á Akureyri
um árabil. Tækniskóli Islands er
ung stofnun og fátæklega að honum
(Framhald á blaðsíðu 2)
ARAMOTAIIUGLEIÐING
VIÐ setningu Alþingis 10. okt.
sl. talaði hinn nýkjörni vígslu-
biskup Norðlendinga í Dóm-
kirkjunni. Úr þessari þingsetn-
ingarræðu er mér sérstaklega
ein setning minnisstæð. Vígslu-
biskupinn sagði: „Ef hugsjónin
lifir, þá lifir þjóðin.“
Þetta sagði vígslubiskupinn.
Hann sagði það á réttum stað,
við löggjafa og landsstjórn, í
áheyrn alþjóðar, og á réttup
tíma. Því að margt er nú á
hverfanda hveli, og það er því
miður hvergi nærri fulltryggt,
að íslenzka þjóðin sem slík
verði héðan af langlíf í landi
sínu. Nú er ástæða til að spyrja:
Er hægt að tryggja það, að
þjóðin lifi?
Margt er það, sem íslending-
ar á 20. öld hafa talið eftirsókn-
arvert og flest af því er það líka
sjálfsagt á sinn hátt. En þar
með er ekki sagt, að það sé allt
sérstaklega til þess fallið að
tryggja þjóðinni langlífi í landi
sínu, eða sjálfstæði þjóðríkis á
íslandi. Hin almenna framfara-
barátta er lífsnauðsyn. En ef
íslendingar ganga svo langt í
því að keppa við ríkustu þjóðir
heims um tekjur og lífsþæg-
indii), að þeir geti ekki neitað
sér um neitt án þess að skella
skuld á land sitt og þjóðfélag,
getur farið að losna um tengsl
„Fjallkonunnar“ við börn sín.
ísland er að vísu gott land og
fegurt, og réttilega er á það
bent, að heilnæmi þess geti, er
stundir líða, orðið uppspretta
auðs. Samt er það svo, að í
veröldinni eru til ’hlýrri lönd og
frjórri, og auðugri að ýmiskon-
ar jarðefnum og verðum við að
sætta okkur við þá staðreynd,
enda fylgir þar víða böggull
skammrifi. Almennt er nú talið,
að hagnaður sé að batnandi sam
göngum og vaxandi viðskiptum
við önnur lönd, en í kjölfar
þessara framfara koma vaxandi
áhrif útlendinga og útlendrar
menningar — og ómenningar —
á hina fámennu íslenzku þjóð
og vaxandi möguleikar til bú-
ferla. Aðdráttarafl umheimsins
er mikið fyrir afskekkta eyþjóð
og fámenna.
Vissulega er það á sinn hátt
fagnaðar- og tilhlökkunarefni,
að vaxandi fjöldi ungra íslend-
inga stundi langskólanám innan
lands og utan og gerist kunn-
áttumenn á heimsmælikvarða á
mörgum sviðum. En reynslan
er nú að leiðá í Ijós, að önnur
lönd en ísland munu, er til
kemur, fá í sinn hlut bróður-
partinn af þeim dýrmætu starfs
kröftum, sem hér er um að
ræða. Til þess eru skiljanlegar
ástæður, sem ekki tjáir að æðr-
ast yfir. Hér heima á Fróni
verða menn að hugga sig við
það, að þessir Væringjar 20.
aldar njóti hæfileika sinna og
varpi ljóma á land sitt meðal
framandi þjóða.
Nú hafa menn almennt tékið
þá trú, aó hægt sé að láta bók-
vitið í askana. Og rétt er það.
En bó'kvitið eitt út af fyrir sig
tryggir ekki framtíð íslendinga
sem þjóðar. Hversu fróðir sem
menn verða, hversu mikil sem
velmegunin verður og lífsþæg-
indin, vofir það samt yfir, að
allt of margir fslendingar fari
að hugsa eins og fomaldarmað-
urinn, sem sagði: Ubi bene, ibi
patria, þ. e. þar sem gott er að
vera, þar er ættjörð mín, og að
þá slakni á tauginni, sem
„rekka dregur föðurtúna til.“
Hér er það hugsjónin, sem
máli skiptir, eins og vígslu-
1) Sbr. nýyrði Sig. Líndals: „Lifs-
þ.T-gindagricðgi."
vegur þjóðarinnar til langlífis.
Allt sem menn leggja á sig fyrir
framtíðarlandið og framtíðar-
þjóðina ber vott um það, að
framtíðarhugsjónin hfir og ef
það gerist nógu almennt, er
þjóðinni svo vel borgið, sem
verða má fyrir hennar atbeina.
Stephan G. Stephansen átti
mikinn hluta ævi sinnar heima
erlendis og hvíhr í framandi
mold. En hann var alla ævi þjóð
rækinn íslendingur, og trúlega
hefir honum orðið hugsað til
íslands og íslendinga, þegar
hann hvatti menn til þess
„að hugsa ekki í árum en
öldum,
að alheimta ei daglaun að
kvöldum,"
„því að svo lengist mannsævin
mest,“ sagði sá spaki maður.
Langt fram á þessa öld fundu
flest íslenzk ljóðskáld köllun
hjá sér til að yrkja ættjarðar-
Ijóð og glæða með þeim þá fram
tíðarhugsjón, sem tengd er
landi og þjóð. Andríki þeirra og
snilld stuðlamálsins var einn
helzti aflgjafi íslenzkrar menn-
ingar og íslenzks sjálfstæðis. f
skugga tveggja heimsstyrjalda
hefir ísland nú um sinn eignazt
skáld af öðru tagi, og hin há-
þróaða list stuðlamálsins er nú
minna metin en fyrr á hærri
stöðum, þó að hún eigi enn sem
fyrr marga aðdáendur meðal
alþýðu manna.
En nú ræður þjóðfélagið yfir
máttarvöldum, , sem ættu að
geta verið vel til þess fallin að
tryggja það, að hugsjónin lifi og
að þjóðin lifi, skólunum, sem
hafa hvert barn eða ungmenni
undir sínum handarjaðri heilan
áratug en oft miklu lengur, og
útvarpinu (þ. á. m. sjónvaip-
inu), sem er boðinn eða óboð-
inn gestur á flestum heimilum
mikinn hluta sólarhringsins.
íslenzkir skólar og íslenzkt út-
varp geta, ef lán er með, komið
mörgu góðu til leiðar og munu
auðvitað gera það. Þau munu í
vaxandi mæli skammta bókvit
í askana og margar tegundir
fræðslu og skemmtana í stíl
nýrra tíma. Vonandi bera þau
þá einnig gæfu til að glæða hug
sjónina, sem er fjöregg þjóðar-
innar. Ekki er ráð nema í tíma
sé tekið.
G. G.
Skíðavika
SKÍÐAVIKA verður á Akur-
eyri 23.—30. marz, en Skíða-
hótelið í Hlíðarfjalli annast
framreiðslu matar og drykkjar.
Þar verða og gufuböð, skó-,
stafa- og skíðaleiga, og skíða-
kennsla. Þá verður stólalyftan
í gangi og togbraut norðan við
hótelið. Nokkur skíðamót verða
haldin svo og gönguferðir farn-
ar. Snjóbíll og hjálparsveit eru
til staðar í fjallinu.
Kvöldvökur verða í Sjálf-
stæðishúsinu.
Áætlunarferðir í Hlíðarfjall
með Hópferðum s.f.: Hónudag
23. kl. 13.30 og 16.00. Þriðjudag
24. kl. 13.30, 17.30 og 20.00. Mið
vikudag 25. kl. 10.00, 13.00,14.00
og 15.00. Frá fimmtudegi til
loka skíðavikunnar eru ferðir
kl. 10.00, 11.00, 13.00, 14.00 og
15.00. Ferðir úr Skíðahótelinu
eru hálftíma síðar en auglýstar
ferðir úr bænum. Síðasta ferð í
bæinn er kl. 18.00. Farnar verða
fleiri ferðir ef þörf krefur. Við-
komustaðir á Akureyri: Glerár
stöð, Kaupvangsstræti 4 og
Sundlaugin.
(Úr fréttatilkynningu)
biskupinn á Norðurlandi sagði
í Dómkirkjunni 10. okt. Ef hún
lifir, þá lifir þjóðin. Hvaða hug-
sjón? Framtíðarhugsjónin, sem
tengd er við þetta land og þessa
þjóð. Útsýn hugans yfir land og
þjóð framtíðarinnar, útsýn yfir
það land og þá þjóð vonarinnar,
sem smátt og smátt á að verða
til fyrir eljusemi og sköpunar-
mátt fólksins, sem byggir þetta
land — hugsjón sem þarf að
vera þess eðlis, að hún sé sí og
æ að rætast og rætist þó aldrei
að fullu, því að slíkar eru þær
hugsjónir, sem veita hamingju
inn í mannlífið. Ef þjóð sér
sjálfa sig og land sitt á þennan
hátt, er ástæða til að ætla, að
hún haldi áfram að lifa í landi
Gísli Guðmundsson.
sínu. Slík hugsjón getur orðið
aflvaki kraftaverka. „Sú kemur
tíð“ er kjörorð hennar.
„Sú kemur tíð, að sárin
foldar gróa
sveitimar fyllast, akrar
hylja móa,
brauð veitir sonum móður-
moldin frjóa,
menningin vex í lundi
nýrra skóga,“
kvað Hannes um aldamótin.
Fyrir þjóð, sem ekki var komin
á stig vélvæðingarinnar og enga
vegi átti, kvað hann um skip og
vagna komandi tíma, sem ganga
mundu fyrir krafti fallvatn-
anna.
„Trúðu á sjálfs þíns hönd en
undur eigi,“ kvað Einar Bene-
diktsson. Hann sá fyrir sér í
draumi íslenzkt framtíðarland,
og því, sem honum birtist í
draumnum, lýsti hann í Ijóði:
„Menn lutu ei öðru en
eigin lögum
og íslands heill var þeirra
gifta,
menn höfðu auga á eigin
högum
með alúð þess sem vill ei
skipta.“
Þannig vildi hann hugsa sér
fólkið í landinu eftir að það
hefði fengið sjálfstæðið og þjóð
fánann. Fólk sem treysti mætti
sínum og kærði sig ekki um að
fá allt upp í hendurnar, en teldi
það hamingju, að eiga heima á
íslandi og legði fúslega á sig
það, sem til þess þyfti, að fá að
vera íslendingur.
Unga fólkið um aldamótin
talaði um að „klæða landið“ og
um „ræktun lýðs og lands.“ Þó
að bændum landsins hafi fækk
að ört í seinni tíð og tún kali
stundum, halda þeir stöðugt
áfram að rækta. Þeir gera það
ekki aðeins vegna sín og sinna
heldur vegna jarðanna, sem
þeir vilja bæta og fegra, því að
ræktun er ekki mikill gróða-
vegur. En ræktunin og allt, sem
er í ætt við hana á hinum
mörgu sviðum þjóðlífsins, er
Fréttir frá Rúnaðarþiiiginu
Sigurvegarar í boðgöngunni. Frá vinstri: Trausti Sveinssin, Ás-
mundur Eiriksson, Jón Ásmundsson og Magnús Eiríksson, Fljóta-
menn. (Ljósmyndastofa Páls)
Ættir Þingeyinga
ÆTTIR ÞINGEYINGA eftir
Indriða Indriðason er fyrsta
bindi mikils ritverks er kom út
sl. haust. Útgefandi er Sögu-
nefnd Þingeyinga, og bókaút-
gáfan Helgafell.
Þetta á ekki að verða ritdóm-
ur, því ég er ekki nægilega
kunnugur til að vera fær um að
dæma þetta verk, en hitt veit ég
af löngum kynnum, að höfund-
urinn kastar ekki höndum til
neins sem hann fæst við, og
ekki spillir að undirstaðan er
traust þar sem eru verk föður
•hans.
Ég vildi með þessum fáu orð-
uim vekja athygli á ágætri bók
um uppáhaldsfræðigrein
margra íslendinga og um leið
rifja upp það sem flestir skilja
og viðurkenna er um það hugsa,
að ættfræðin er ein af undir-
stöðum allra sögurannsókna, og
þekking áa og niðja hefur verið
eitt af því er bezt dugði og-hald
ið hefur lífi í þjóðinni á liðnum
þrautatímum. Væri illa farið ef
ytri velmegun og menning hins
nýja tíma slævði þá þekkingu
vel það er höfundur á ósagt við
lesendur, og það tel ég að komi
hér sérstaklega vel frám. Það
ber að hafa í huga við lestur
þessa rits eins og allra slíkra
bóka að menn þurfa að leggja
það á sig að hugsa, og fyrst skul
um við þá byrja á því að lesa
formálann og lesa hann vel, því
segja má að hann sé lykillinn
að því að skilja uppsetningu
bókarinnar, því þetta er braut-
ryðjandaverk að formi til. Það
hefur enginn gert tilraun til að
semja slíka bók á íslandi. Niðja
tal getur ekki komið í staðin
fyrir þetta fyrirkomulag; — en
þetta er heldur ekki niðjatal,
og má því ekki gera til þess þær1
kröfur, það ber að hafa í liu-ga.
Hér eru á kerfisbundinn hátt
teknir allir íbúar Þingeyjar-
sýslna 1950 og reynt að draga
þá saman í ættbálka og um leið
rakin eftir því sem hægt er
franiætt hvers ættbálks fyrir
sig í karllegg.
Fljótt á litið virðist formið
óaðgengilegt. En ef við lesujn
formálann með athygli og nenn
um að hugsa, þá gengur þetta
fljótt og við skiljum þetta fyrir-
(Framhald á blaðsíðu 2).
ERINDI Egils Bjarnasonar um
framtíðarstörf búnaðar- og
ræktunarsambandanna.
Ályktun:
Búnaðarþing ályktar að kjósa
þriggja manna milliþinganefnd
til að endurskoða lög Bún. ísl.
og tengsl þess við búnaðarsam-
böndin og búnaðarfélögin.
Nefnd þessi taki einnig ti'l at-
hugunar framtíðarstarfsemi bún
aðarsambandanna og ræktunar
sambandanna og geri m. a. til-
lögur tun eftirfarandi:
1. Framtíðarverkefni búnað-
ar- og ræktunarsambandanna.
2. Skipulagningu í fram-
kvæmd þeirra verkefna.
3. Hve mikla og hvaða starfs-
krafta sé eðlilegt að hvert bún-
aðarsamband hafi.
4. Fjáröflunarmöguleika sam
bandanna.
Erindi Allsherjarnefndar um
stækkun Áburðarverksmiðjunn
ar og verðlagningu á tilbúnum
áburði.
Samþ. var breytingartillaga
frá Jarðræktamefnd við álykt-
un Allsherjarnefndar með 23
atkv. svohljóðandi:
Nú stendur fyrir dyrum að
- ÁSKORUN
(Framhald af blaðsíðu 8).
vænta ef söfnuðurinn þekkir
ekki sinn vitjunartíma. Því
minnir Safnaðarráðið öll safn-
aðarsystkin á Akureyri á það,
að þau eiga skyldum að gegna
við kirkju sína, og að blómlegt
safnaðarstarf hlýtur að byggj-
ast á þátttöku þeirra í guðs-
þjónustunum og öðru, sem
kirkjan er að vinna að.
Þess vegna beinum við þeirri
áskorun til ykkar allra, að
sækja vel hinn fagra helgidóm,
sem við Akureyringar eigum og
eiga þar samfund við Guð og
frelsai-ann Jesúm Krist öllum
til ævarandi blessunar.
Safnaðarráð.
endurbyggja og stækka Áburð-
arverksmiðju ríkisins og auka
og bæta áburðai'framleiðsluna.
í tilefni af því ítrekar Búnaðlar-
þing fyrri samþykktir sínar um:
1. Að framleiddar verði fjöl-
breyttari áburðartegundir, s. s.
alhliða blandaður áburður og
kalkiblandaður köfnunarefnis-
áburður og leggur þingið sér-
staka áherzlu á að verksmiðjan
verði samkeppnisfær við inn-
fluttan áburð, um verð og gæði.
2.. Að ríkisstjórnin hlutist til
um að byggingarkostnaður verk
smiðjunnar vei'ði eins lágur og
kostur er, meðal annars með
því að gernýta allar lieðir til
fjáröflunar innanlands og feHa
niður tolla og söluskatt af vél-
um og efni til verksmiðjubygg-
ingarinnar.
3. Að ríkisstjórnin hlutist til
um að raforkuverð til fram-
leiðslu áburðar verði ekki óhag
stæðara en til Álverksmiðjunn-
ar í Straumsvík.
4. Búnaðarþing felur stjóm
Bún. ísl. að fylgjast með þess-
um málum eftir því sem hún
hefir aðstöðu til.
5. Búnaðarþing minnir á, að
mikilvægt er að ná sem hag-
stæðustum farmgjöldum á inn-
fluttum áburði, svo sem með
því að taka erlend leiguskip til
flutninganna ef hagkvæmara
reynist.
Erindi Sigurðar J. Líndal og
Lárusar Ág. Gíslasonar um
lausaskuldir bænda.
I Ályktun:
Búnaðarþing telur að brýna
nauðsyn beri til að gera eftir-
taldar ráðstafanir, vegna lausa-
skulda bænda og skorar á land
búnaðarráðherra að beita sér
fyrir framkvæmd þeirra:
1. Að lengdur verði frestur til
að sækja um lausaskuldalán til
1. júlí 1970, og að sú ákvörðun
verði tilkynnt rækilega.
2. Að þeir bændur, sem annað
hvort hafa ófullnægjandi veð,
eða skulda meh'a en svo að Veð
Frá aðalfundi Sjálfsbjargar á Akureyri
Indriði Indriðason.
og áhugann á mannfræði meðal
þjóðarinnar. Þá fyrst mundi ég
óttast að hætt væri þeim gnmni
er menning okkar stendur á.
En þessu er ekki þannig farið.
Áhuginn fyrir þessum fræðum
hefur aldrei verið meiri en nú.
Niðjatöl koma út árlega, sum
stór að vöxtum, framættir
fylgja þeim sumum. Ábúenda-
töl eru gerð fyrir heil héröð og
æviski'ár. Allt er þetta sprottið
af meðfæddri löngun okkar til
að vita: Hver er maðurinn?
Hvaðan er hann? Hvað verður
um hann? Ungur maður giftist:
Hvaðan er konan hans? er oft
fyrsta spumingin sem fram
kemur þegar talið berst að frétt
inni. Svona er hægt að ræða og
rita endalaust; en þetta átti að
vera stutt.
Formálar fyrir bókum eiga að
vera glöggir og helzt stuttir, en
umfram allt þarf að skýra þar
AÐALFUNDUR Sjálfsbjargar,
félags fatlaðra á Akureyii og
nágrenni, var haldinn sunnu-
daginn 1. rnarz í húsi félagsins,
Bjargi.
í skýrslu formanns kom fram,
að félagslíf hefur staðið með
allmiklum blóma, en þó hefur
nokkuð dregið úr aðsókn að
fundum og föndurkvöldum, og
er sjónvarpinu kennt tmi.
Á síðasta ári var gengið frá
leiksviði -við samkomusalinn í
Bjargi, og má segja, að þar með
sé lokið framkvæmdum við hús
byggingu félagsins. Aðalsteinn
Vestmann málarameistari gerði
fagra og skemmtilega mynd
fyrir enda Ieiksviðsins og gaf
félaginu það verk. Þá var lóðin
fyrir framan húsið malbikuð á
árinu, og sáu bæjarstarfsmenn
um það verk.
Höfuðverkeifnum félagsins
má skipta í þrennt:
1. Félagsstarfsemi. Skemmt-
anir voru margar og vel sóttar,
einnig fundir og föndurkvöld.
Vörur þær, sem unnar voru á
föndurkvöldunum, voru seldar
á bözurum, og gaf það góðan
hlut til félagsstarfsins.
2. Atvinnurekstur. Plastverk-
smiðjan Bjarg starfaði ailt árið,
en lengst af með aðeins tveim
til þrem starfsmönnum. Unnið
er að aukningu starfseminnar,
svo að þama verði unnt að
veita fleirum atvinnu.
3. Endurhæfing. Unnið hefur
verið áð undirbúningi sjúkra-
þjálfunarstöðvar á vegum fé-
lagsins, og á aðalfundinum var
samþykkt að koma slíkri stöð
upp á þessu ári og stefna að því,
að hún taki til starfa á næsta
hausti.
f júlímánuði var haldinn í
Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli við
Akureyri fundur stjómar VNI,
Norðurlandasambands fatlaðra',
og var það bæði ánægjulegur
Og gagnlegur atburður fyrir
Akureyrardeildina.
Á aðalfundinum var formað-
ur félagsins, Heiðrún Stein-
grímsdóttii’, einróma endurkjör
inn, svo og vararitarinn, Sig-
valdi Sigurðsson. En Sveinn
Þorsteinsson gjaldkeri baðst
ujjdan endurkosningu eftir
margra ára starf, og var Jón G.
Pálsson kjörinn í hans stað.
Stjórn félagsins nú er þannig
skipuð: Heiðrún Steingríms-
dóttir formaður, Hafliði Guð-
mundsson varaformaður, Jón
G. Pálsson gjaldkeri, Valdimar
Pétursson ritari og Sigvaldi
Sigurðsson vararitari.
Þá var á aðalfundinum kosið
í ýmsar nefndir á vegum félags
ins, þar á meðal stjóm Plast-
verksmiðjunnar og undir-
búningsnefnd endurhæfingar-
stöðvar.
Framleiðsla Plastverksmiðj -
deild Búnaðarbankans geti veitt
þeim lausaskuldalán skv. lög-
um og reglum um þau, fái með
löggjöf aðstoð til skuldaskila
þannig að þeim verði fjárhags-
lega kleift að halda áfram bú-
skap.
3. Að Seðlabankinn verði
skyldaður til að kaupa, á nafn-
verði, bankavaxtabréf þau, sem
gefin eru eða gefin verða út til
að breyta lausaskuldum bænda
í föst lán. Skylda Seðlabankans
verði að kaupa öll bréfin á
næstu fjórum árum, samkvæmt
ákveðnum reglum, sem þar um
verði settar.
Samþ. með 23 atkv.
Erindi Sveins Jónssonar,
Ingim. Ásgéirssonar, Sigurðar
J. Líndal, Össurar Guðbjarts-
sonar og Benedikts Grímssonar
um markaðsmál landbúnaðar-
ins.
Ályktun:
Búnaðarþing skorar á stjóm
Stéttarsambands bænda að hlut
ast til um við eftirgreinda aðilia:
Landbúnaðarráðuneytið, Bún.
ísl., Framleiðsluráð landbúnað-
arins, Samband ísl. samvinnu-
félaga og Sláturfélag Suður-
lands, að haldin verði ráðstefna
um markaðsleit og sölu á ís-
lenzkum landbúnaðarvörum,
sérstaklega sauðfjárafurðum, á
erlendum mörkuðum.
Á þessari ráðstefnu verði m.
a. tekið til rækilegrar atliug-
1. Öflun nægilegs fjármagns
til leitar og könnunar á ei'lend-
um mörkuðum.
2. Hvort sé tímabært að fast-
ráða velhæfan mann til þess að
vinna að markaðsöflun erlendis.
3. Hvort unnt sé að ná sam-
vinnu við erlend fyrirtæki, sem
hafa markaðskönnun með hönd
um.
4. Hvort utanríkisþjónustan
geti ekki annast markaðsleit í
ríkari mæli en nú er og ís-
lenzk stjómarvöld haft meiri
forgöngu um millirikjasamn-
inga á þessu sviði.
Þingið leggur áherzlu á að
niðurstöður ráðstefnunnar
liggi fyrir á næsta aðalfundi
Stéttarsambands bænda.
Samþ. með 22 atkv.
: j
Frumvarp til laga um lífeyris
sjóð fyrir bændur og launþega
í landbúnaði og frumvarp til
(Framhald á blaðsíðu 2)
unnar Bjargs nam á síðasta ári
tæplega einni milljón króna að
verðmæti. Aðalframleiðslan er
raflagnaefni, þ. e. dósir og fleira
einangrunarefni. Unnið hefur
verið að aukinni fjölbreytni í
framleiðslunni, en þó aðallega
í sambandi við raflagnaefni.
Standa vonir til, að framleiðsl-
an aukist mjög á þessu ári og
þá verði unnt að veita fleha
fólki atvinnu.
Ætlunin er að hafa framvegis
á boðstólum allt einangrunar-
efni til raflagna. Plastið er mun
ódýrara en samskonar vörur úr
járni, auk þess öruggur einangr
ari og vægilegra í vinnslu.
Þá er unnið að athugun fleiri
framleiðslugreina, en hvað mið
ar í því efni veltur mjög á fyrir
greiðslu lánastofnana.
Formaður verksmiðjustjórn-
ar er Guðmundur Hjaltason vél
smiður, en verksmiðjustjóri er
Gunnar Helgason.
Sjúkraþjálfunar- og endur-
hæfingarstöðin, sem félagið hef
ur nú álkveðið að koma á fót,
er eitt mikilverðasta verkefni,
sem félagið hefur tekið sér fyr-
ir hendur, en einnig mikið fjár-
hagslegt átak. Félagar eru þó
bjartsýnir um að takist að
hrinda því í framkvæmd með
góðum stuðningi bæjarbúa og
opinberra aðila.
( Fr éttatilkynning )
KRISTJANA
JÓNSDÓTTIR
Frá Syðra-Holti
VINARKVEÐJA
Nú kveður kæra dalinn
hún Kristjana mín hér.
Ég átti ungur snialinn
mitt atlivarf bezt hjá þér.
Að læra af lífsbók þinni
var Ijós, er gafst þú inér,
það er mér enn í minni
og aldrei þaðan fer.
Þú reyndist mér sem móðir
á minni æskubraut.
Þó fenni í fornar slóðir
og fylli hverja laut.
Er vorið vermir hjarta
og viðkvæmt strýlsur kinn,
þá blessuð blómin skarta
um bjarta dalinn þmn.
Þér vaka englar yfir
á Edens bjartri strönd,
en minning ljósust lifir
um Iíknarmilda hönd.
Um háa himinsalinn
guðs heilagt ljósið skín,
og breiðir birtu um dalinn
á blessuð sporin þín.
Vertu sæl að sinni,
þig signi Drottins liönd.
Ég þakka kærleikskynni,
við knýttmn vinabönd.
Það geymast svona sögur,
en smnar gleymast fljótt
Þín braut var björt og fögur,
ég býð þér góða nótt.
Og að lokum þetta:
Nú er brotið blað á grein,
bærist hljóður strengur.
Brúnu augun, björt og hrein,
brosa ekki lengur.
HALLDÓR JÓNSSON
frá Gili.