Dagur - 02.04.1970, Síða 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstrætj 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Þórshamar í nýjum húsakynnum
ÞESSA dagana er verið að taka
nýtt húsnæði við Tryggvabraut
á Akureyri í notkun. Það er
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar,
sem það byggði og er að flytja
þangað starfsemi sína á 1900
fermetra gólfflöt, að nokkru á
tveim hæðum, bifvélaverkstæði,
verzlun og skrifstofur. Þarna
star.fa um 20 bifvélavirkjar.
Fyrirtækið kallar væntanlega
á fréttamenn er því þykir tími
til kominn og verður þá nánar
frá þessu sagt, en í gær varðist
það allra frétta. □
Sæluvikan hefsl 5. aprl
SÆLUVIKA Skagfirðinga hefst
5. apríl á Sauðárkróki og lýkur
DIMMALIMM
B ARN ALEIKRITIÐ Dimma-
limm hefur hlotið góðar við-
tökur á Akureyri. Fjórar fyrstií
sýningarnar hafa verið ágæt-
lega sóttar og sú fimmta er í
dag, fimmtudag, og sækja hana
m. a. skólabörn úr Hrafnagils-
og Saurbæjarhreppi.
Frú Helga Egilsson, höfundur
leikritsins, var viðstödd sýn-
ingu á sunnudaginn og var
hyllt með blómum.
Fjórar sýningar verða um helg
ina. Sýningum þarf að hraða og
fólki bent á, að missa ekki af
þessu skemmtilega leikhús-
verki. □
12. apríl. Hefst hún með messu
í Sauðárkrókskirkju kl. 14 á
sunnudag. En félagsheimilið
Bifröst annast framkvæmd
Sæluvikunnar.
Leikfélag Sauðárkróks sýnir
Lénharð fógeta flest kvöld,
Verkagvennafélagið Aldan sýn-
ir Svefnlausa brúðgumann,
Gagnfræðaskólinn er með
skemmtun á mánudaginn, eink-
um ætlaða börnum og ungling-
um, Karlakórinn Feykir—Heim
ir syngur á þriðjudag. Samkór
Sauðárkróks syngur á föstudag,
Sauðárkróksbíó sýnir valdar
kvikmyndir alla daga vikunnar.
Flamingó leikur fyrir dansi á
fimmtudagskvöld og næstu
kvöld til loka Sæluvikunnar,
gömlu dansarnir eru á fimmtu-
dagskvöldið. Samtals fer fram
31 skemmtiatriði. S. G.
Kópur á siglingu. (Ljósm.: G. P. K.)
Bátasmjðir hafa nóg að gera hér
FYRIR skömmu fengu Húsvík-
ingar nýjan 17 tonna bát, smíð-
aðan af Trausta Adamssyni og
Gunnlaugi Traustasyni skipa-
smiðum á Akureyri. Báturinn
heitir Sæborg ÞH 55, er með
134 hestafla Scania Vabis vél og
gengur 10 milur. Eigandi er
Karl Aðalsteinsson og synir á
Húsavík.
Rétt fyrir páskana var annar
nýr dekkbátur, smíðaður á Ak-
ureyri, af’hentur eiganda sínum,
sem einnig á heima á Húsavík,
Gesti Halldórssyni. Sá bátur
var smíðaður á Skipasmíðastöð
KEA, er 12 tonn og með 159
hestafla Perkins vél og kraft-
blökk. Báða bátana teiknaði
Tryggvi Gunnarsson skipasmið
ur á Akureyri. Kópur er 102. í
röðinni hjá Skipasmíðastöð
KEA. En í fyrradag vai' kjölur
lagður að jafn stórum bát þar
og fleiri pantanir liggja fyrir,
(Framhald á blaðsíðu 2)
Akureyringar komu heim
Islandsmeisfarafitla
VIKAN fyrir páska og páska-
helgin er orðin skíðavika skíða-
fólks víða um land. Að þessu
sinni var Skíðalandsmótið hald-
ið á Siglufirði og Unglinga-
meistaramót íslands á Seyðis-
firði og kepptu Akm-eyringax á
báðum stöðunum og fóru þang-
að 20 keppendur og 3 farar-
stjórar en til Siglufjarðar 12
keppendur og tveir fararstjórar.
Þetta skíðafólk frá Akureyi'i
kom heim á þriðjudagskvöldið
og hafði unnið 13 íslandsmeist-
aratitla og er það viðburður í
skíðaíþróttinni, sem bæjarbúar
geta fagnað af heilum huga.
Frímanni Gunnlaugssyni for
manni Skíðaráðs sagðist efnis-
lega svo frá við blaðið eftir
heimkomuna:
Til Siglufjarðar fórum við
með Drang á þriðjudag, 24.
marz, en landsmótið var sett
daginn áður. Við tókum þar
fyrst þátt í stórsvigi karla. Þar
sigi'aði Guðmundur Frímanns-
Raufarhöfn 1. apríl. Töluverður
snjór er hér og vegir ófærir hér
í nágrenninu en flugvöllurinn
er opinn.
Leiðindatíð var hér í síðustu
viku og ísinn var kominn nærri,
en á laugardaginn fyrir páska
gerði norðaustan veður og þá
rak ísinn að landi og hálf fyllti
KNATTSPYRNA
Á LAUGARD4G
EINS og áður hefur verið sagt
frá hér í blaðinu leika íslands-
meistararnir í knattspyrnu ÍBK
og Bikarmeistararnir ÍBA fjóra
leiki, og er keppt um veglegan
bikar. Fyrsti leikurinn í keppni
þessari fer fram á Akurevri n.k.
laugardag, kl. 4 e. h., á malar-
vellinum við Sana. — Lið ÍBA
hefur ekki verið vahð, en búast
má við að Hermann Gunnars-
son þjálfari ÍBA-liðsins leiki
með því. — Trúlega láta knatt-
spyrnuunnendur sig ekki vanta
á þennan fyrsta knattspyrnu-
leik ársins 1970. □
son, Akureyri, Jóhann Vilbergs
son, Reykjavík varð annar, en
þriðji Reynir Brynjólfson, Akur
NÚ stendur yfir Húnavaka á
Blönduósi, sem Ungmennasam-
band A.-Húnvetninga heldur
árlega og hefur gert um fjölda
ára. En formaður sambandsins
er Magnús Ólafsson á Sveins-
stöðum.
Húnavakan hófst annan páska
dag og lýkur 5. apríl og er bæði
skemmti- og fræðsluvika.
Þarna eru þrjú Ieikrit sýnd,
Ævintýri á gönguför, Allir í
verkfall og Svefnlausi brúðguln
inn. Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps og Karlakórinn Vöku-
menn syngja og hjálparsveit
skáta sýnir „revíukabarett11.
Hljómsveit Ingimars Eydal með
höfnina af ís. Skemmdir urðu
þó ekki og nú er ísinn að mestu
horfinn hið næsta en íshroði
lengra út.
Mjög mikið atvinnuleysi er.
Togskipið Jökull hefur þó aflað
sæmilega og vel og er það mikil
atvinnubót, en ekki næg.
Grásleppu hefur lítið orðið
vart ennþá og naumast verða
netin lögð á ný fyrr en ísinn
fjarlægist meira. H. H.
meS þreffán
yeri, fjórði Árni Óðinsson, Aku!r
eyri og fimmti Ingvi Óðinsson,
Akureyri. Veður var bjart en
kalt. Svigkeppni fór fram á laug
aixlag í miður góðu veðri. Þar
sigraði Árni Óðinsson, Ak., ann
(Framhald á blaðsíðu 5).
sínum vinsælu söngvurum
skemmtir og einnig leika Ós-
menn. Aauk alls þessa eru svo
kvikmyndasýningar og dans.
Nýlokið er spurningakeppni á
vegum Ungmennasambandsins.
Sjö lið tóku þátt í keppninni og
lauk henni með sigri liðs Ung-
mennafélags Bólstaðarhlíðar-
hrepps. Fyrir það kepptu þeir
Sigurjón Guðmundsson, Foss-
um, Pétur Sigurðsson, Skeggja
(Framhald á blaðsíðu 2).
ÆSKULÝÐSBLAÐIÐ
FYRSTA tölublað Æskulýðs-
blaðsins í Hólastifti, undir rit-
stjórn séra Bolla Gústafssonar,
er komið út.
Fjallar það m. a. um eiturlyf
þau, sem mikið er um rætt á
síðustu vikum vegna uggvekj-
andi frétta um notkun þeirra
hér á landi. Séra Ingþór Indriða
son skrifar „Til Korintu með
Páli“, séra Stefán Snævarr pró-
fastur svarar spurningum og
séra Kolbeinn Þorleifsson á
Eskifirði ritar bréf að austan.
Auk þessa eru smáviðtöl, gam-
anmál, kvæði eftir Kristján frá
Djúpalæk og minning nafna
hans Sigui'ðssonar kirkjuvarðar
o. fl. Ritið er prentað á góðan
pappír og myndskreytt. □
Þeir æfla að sifja fyrir svörum
OFT ber það við, að fólk
liringir hingað á skrifstofu
blaðsins og ber frani spum-
ingar um hina ýnisu þætti
bæjarmála. Stundum er auð
velt að gefa svör eða vísa á
heimildir, en oft em svörin
ófullnægjandi. Nú liafa mál-
in skipazt á þaim veg, að
bæjarfulltrúar Framsóknar
hafa lofað að svara spuming
um Akureyringa um bæjar-
mál, og er gott að þær um-
ræður fari fram fyrir opnum
tjöldum.
Góðir lesendur! Sendið
blaðinu spurningar um bæj-
amiólin, sem þið óskið að fá
svör við, og blaðið mun birta
svörin jafnóðum. Sendið
nafn ykkar með spumingun-
um og takið fram um leið,
hvort þið óskið að þau verði
birt. □
Mikið atvinnuleysi á Raufarhöfn
Húnavakan á Blönduósi