Dagur - 02.04.1970, Blaðsíða 8

Dagur - 02.04.1970, Blaðsíða 8
8 Eitt og annað frá bæjarstjórn — SMATT & STORT Á BÆ J ARST J ÓRN ARFUNDI 24. marz gerðist m. a. þetta: Efsta hæð í Geislagötu 9. SamþykRt að fela arkitekt bæjarins að gera teikningar og 'kostnaðaráætlun af breytingu á efstu 'hæð skrifstofuhúss bæjar- ins með hliðsjón af því að þar verði innréttað húsnæði fyrir ðkrifstofur. Raðhús. Samþykkt að veita Stefáni Reykj.alín leyfi til að byggja 6 íbúða raðhús á lóðinni nr. 1 við Akurgerði og Smára h.f. sams- 'konar leyfi til að byggja tvo 6 íbúða raðhús á lóðunum nr. 4 og 6 við Einilund. Tilboð Strengjasteypunnar h.f. Lagt var fram tilboð frá Strengjasteypunni h.f. í fram- leiðslu strengjasteypueininga í Frostastöðum 22. marz. Eins og áður hefur verið frá skýrt hér í blaðinu hafa að undanförnu staðið yfir hjá Leikfélagi Skag- firðinga æfingar á sjónleiknum Ævintýri á gönguför, en Ágúst Kvaran leikstjóri á Akureyri annazt leiðbeiningar og leik- stjórn. Eru sýningar nú hafnar á leikritinu og þegar að baki tvær í Miðgarði og ein á Sauð- Lúðrasveitin SVANUR LÚÐRASVEITIN SVANUR úr Reykjavík mun verða hér um næstu helgi, leika á Húsavík á laugardaginn en síðdegis á sunnudaginn, eða kl. 2, í Sjálf- stæðishúsinu á Akureyri. Lúðrasveitin er skipuð 35 hljóðfæraleikurum og stjórn- andi hennar er Jón Sigurðsson, gamall Akureyringur. Lúðrasveitin Svanur ‘hefur mjög fjölbreytta og forvitnilega efnisskrá. □ BÚIÐ er að ákveða framboðs- lista Framsóknarmanna á Sauð árkróki og skipa efstu sætin þessir menn: Guðjón Ingimund arson kennari, Mai'teinn Frið- riksson framkvæmdastjóri, Stef án Guðmundsson bygginga- meistari, Kristján Hansen bif- reiðastjóri, Stefán Petersen ljós myndari, Sveinn Friðvinsson hafnargerð sunnan Oddeyrar. Er hór um að ræða staura, plöt- ur og bita samtals fyrir kr. 6.203.600.00. Verðið er miðað við einingarnar afgreiddar á flutningatæki á verksmiðjulóð. Söluskattur er ekki innifalinn í verðinu. Hafnarstjórn felur hafnar- stjóra að ganga frá samnings- uppkasti við Strengjasteypuna h.f. á grundvelli ofangreinds til boðs og þeim drögum að verk- samningi, sem borizt hefir frá Hafnarmálastofnun ríkisins. Samningsuppkastið verði lagt fyrir næsta fund hafnarstjórnar. Skipulag við Sandgerðisbót. Lagt var fram bréf dagsett 20. marz 1970 frá Bátafélaginu Verði, þar sem óskað er eftir að hafnarstjóm láti skipuleggja hafnarsvæðið í Sandgerðisbót, þannig að þar skapist lóð undir árkróki, jafnan við húsfylli og ágætar undirtektir. Munu fleiri framundan hér heimafyrir og óefað sýnir félagið leikinn einn- ig utan héraðs. Ekki er ástæða til að fara mörgum orðum um þetta verk Hostrups gamla því það hefur verið sýnt víðsvegar um land í áratugi og jafnan þótt góð skemmtun, — en er heldur naumast meira. Þetta er söng- og gleðileikur, raunar með nokkrum votti af alvarlegum og kristilegum undirtón, ástföngn- um unglingum og fyrirmönn- um, sem ekki eru skynsamir um skör fram. Þó að leikritið sé hvorki ýkja efnismikið né til- takanlega viðkvæmt í meðför- um er þó ekki alltaf erfiðalaust að velja leikendur til flutnings á því. Þeir þuifa bæði að hafa nokkra leikhæfileika og sæmi- legar söngraddir en það vill ekki alltaf fara saman. Hvoru- (Framhald á blaðsíðu 2) bifvélavirki og Sæmundur Her- mannsson sjúkrahúsi'áðsmaður. Bæjarstjórn Sauðárkróks er skipuð 7 mönnum. Framsókn hefur 3 fulltrúa, Sjálfstæðis- flokkur 2 fulltrúa, Alþýðuflokk ur 1 og Alþýðubandalag 1, og fengu tveir þeh' síðasttöldu jöfn atkvæði í síðustu kosningum, 96 atkvæði hvor. S. G. venbúðir fyrir bátaeigendur. Hafnarstjóm leggur til, að svæðið við Sandgerðisbót verði skipulagt hið fyrsta og þar gert ráð fyrir verbúðalóðum, sem hægt yrði að hefja byggingar á nú í vor. Atvinnuásíand í bænum. Samlkvæmt skýrslu vinnu- miðlunarskrifstofunnar voru þann 28. febrúar sl. alls 118 manns á atvinnuleysisskrá, 88 kárlar og 30 konur. Af körlum njóta 32 elli- og örorkubóta og (Framhald á blaðsíðu 7) SKOÐANAKÖNNUN Á DALVÍK EINS og frá var sagt áður hér í blaðinu efndu Framsóknar- menn á Dalvík til skoðanakönn unar, sem fram fór sl. fimmtu- dag og laugardag. Þátttaka var mikil því 155 greiddu atkvæði. Þessi sex hlutu flest atkvæði: Baldvin Magnússon bóndi, Gylfi Björnsson verzlunarmað- ur, Hilmar Daníelsson sveitar- stjóri, Valgerður Guðmunds- dóttir húsfreyja, Sveinn Jó- hannsson sparisjóðsstjóri og Árni Oskarsson verkamaður. □ Skagaströnd 1. aprfl. Hér hlóð niður miklum snjó um páskana, en vegurinn til Blönduóss er ruddur jafnharðan. Jarðlaust er með öllu og hér er ofurlítiil hrossahópur, sem flækist á göt- unum og leitar uppi sorptunn- urnar. Bændur í nágrenninu eiga þessi hross en hirða ekki um þau. Lögreglan mun hafa verið látin athuga þetta mál í gær. Norðlenzkur bókamarkaður ÞAÐ hefir verið ákveðið að halda í fyrsta skipti norðan- lands bókamarkað Bóksalafé- lags íslands á Akureyri dagana 4. til 12. apríl n. k. að báðum dögum meðtöldum í Amarohús inu, Hafnaj-stræti 99, annarri hæð (áður Bólstruð húsgögn). Hugmyndin er að hafa markað þennan eins fjölbreyttan og full kominn sem kostur er. (Fréttatilky nning ) BERGMÁL AÐ SUNNAN Jón G. Sólnes lét nýlega hafa það eftir sér í blaðaviðtali, að Sjálfstæðismenn' á Akureyri stefndu nú að því að mynda „ábyrgan meirihluta“ í bæjar- stjórn Akureyrar. Gísli Jóns- son, efsti maður lista þeirra gerði orð hans að sínum og rit- stjóri íslendings-ísafoldar át þau síðan upp og mun þeim öll- um hafa þótt þetta góð hug- myndafræði, en ný er hún nú ekki. Þetta er meðal kosninga- slagorða borgarstjórnaríhalds- ins í Reykjavík, sem notuð eru við hverjar kosningar syðra, og eiga að því leyti við þar, að þar hefur íhaldið um áratugi verið í raunverulegum meirihluta og farið með völd samkvæmt því. Það er óneitanlega dálítið bros- legt bergmál, þegar þessi slag- orð heyrast frá flokksbræðrum þeirra á Akureyri, sem eiga að- eins þrjá fulltrúa af ellefu í bæjarstjórn, og minnir á hið gamla máltæki: Miklir menn erum við Hrólfur minn. í HVERJU ER MEIRI STYRKUR? Þeir Sjálfstæðismenn, sem hér var vitnað til, telja bænum mikla þörf á „ábyrgum meiri- hluta“. í því sambandi er rétt að spyrja: Eru Sjálfstæðismenn í bæjarstjóm óábyrgir fulltrú- ar? Eða em einhverjir aðrir óábyrgir þar? Er meira traust eða ábyrgð í því fyrir hina al- mennu borgara þessa bæjar, að í bæjarstjóm sé einhver fyrir- fram ákveðinn svokallaður „ábyrgur meirihluti“ og ábyrg- ur eða óábyrgur minnililuti- Eru þær ákvarðanir traustari og ábyrgðarmeiri, sem naxunur meirihluti stendur að, t. d. sex af ellefu, en þegar allir bæjar- fulltrúarnir, ellefu að tölu, ákveða þá hluti er gera skal? Eruj ekki ákvarðanir naums meirihluta að jafnaði veikari en alger samstaða? Eða er það ekki sterkara fyrir bæjarstjórnina og bæjarfélagið t. d., að fjárhags- áætlunin, sem er stefnuskrá TVEIR ungir menn, annar utan bæjarmaður, hafa játað á sig innbrot það og þjófnað í Þórs- Atvinna er of lítil, þó aflar rækjubáturinn allvel þegar veð ur leyfir og skapar töluverða atvinnu. Margir búa sig undir að veiða grásleppu nú í vor og nota háa verðið á hrognunum, sem nú verður greitt. En ógæftir koma enn í veg fyrir þær veiðar. ísinn höfum við ekki séð enn þá, en sagður var hann nær- göngull norður á Skaga en mun nú horfinn. Fólk sækir Húnavökuna tölu vert þessa daga og skemmtir sér vel. X. Loðmiaflinii 152 þ ús. t. LOÐNUAFLINN var orðinn 152 þús. tonn um síðustu helgi. Heildaraflinn í fyrra varð 162 þús. tonn. Nær helmingur þess afla hefur verið lagður upp í Vsetmannaeyjum. Aflahæsta' skipið er Súlan KA með 4706 tonn en fjögur önnur skip voru eirrnig komin með yfir 4000 tonna afla sl. laugardag. □ bæjarins frá ári til árs, skuli samþykkt með öllum atkvæð- um en ekki með naumum meiri hluta gegn atkvæðum minni- hluta? ALLIR ERU ÁBYRGIR Á meðan svo hagar til á Akur- eyri, að fylgi kjósenda nægir ekki neinum einum flokki til að stjórna bænum, verður sam- starf fleiri flokka að koma til, hvort sem menn vilja eða ekki. Hve viðtækt það samstarf á að vera, getur auðvitað ætíð verið álitamál. En það fellur að sjálf- sögðu í hlut þess flokks, sem flesta fulltrúa fær kjörna, að vera hinn leiðandi flokkur eða hafa á hendi forystuna. Það féll í hlut Framsóknarmanna við síðustu bæjarstjórnarkosningar. Þeir tóku þann kostinn, að fá aðra flokka til samstarfs um öll helztu málin, lögðu í það vinnu að gera hvern og einn bæjar- fulltrúa ábyrgan í afstöðu til mála, án tillits til stjórnmála- skoðana. Þetta hefur tekizt svo vel, að það er öllum til sóma, og vitna verkin bezt um það á yfir standandi kjörtímabili. Og jafn framt er þetta mesti styrkur bæjarstjórnarinnar bæði út á við og inn á við. BæjarfuIItrú- arnir hafa ekki skotið sér á bak við fyrirfram gerða samningá um meirihluta og minnililuta. ERU ORÐ ÞEIRRA ÓMERK? Menn geta, þrátt fyrir þetta, velt því fyrir sér, hvort ekki liefði nú verið ennþá betra ef „ábyrgur meirihluti“ í bæjar- stjórn hefði einn borið ábyrgð á framkvæmdum og stjórn bæj arins á undanförnum árum, svro sem eins og í ríkisstjórninni eða' í borgarstjórn Reykjavíkur. Sjálfstæðismenn telja sig máski ekki ábyrga fyrir því, að hafa, ásamt öðrum veitt Sambands- verksmiðjunum fyrirgreiðslu eftir brunann mikla eða Slipp- stöðinni og Sana aðstoð? Eða voru atkvæði þeirra ómerk þeg ar ákveðið var að byggja nýja hafskipahöfn, nýtt iðnskólahús, (Framhald á blaðsíðu 7) hamri á Akureyri, sem áður var frá sagt hér í blaðinu. En þá var þýfið fundið en þjófarn- ii' ekki. Nú um páskana var innbrot reynt á Saumastofu Gefjunar við Ráðhústorg, en tókst ekki. Hins vegar var brotist inn í verkstæðishús Landssímans við Gránufélagsgötu, en lítils mun þar saknað. Flesta daga verða bifreiða- árekstrai' í umferðinni og marg ir suma daga og valda þeir ótrú lega miklu tjóni, þótt ekki verði slys á fólki. (Samkv. viðtali við lögregl- una). Valgarður Baldvinsson endurráðinn ÞAU tíðindi hafa gerzt, að Val- garður Baldvinsson bæjarritari, sem sagði star-fi sínu lausu, hef- ur verið endurráðinn, sam- kvæmt eindregnum tilmælum bæjarráðs og síðan bæjarstjórn- ar. Mun því vera fagnað af þorra manna, að Valgarðm- gaf þess kost, að endurskoða af- stöðu sína og síðar að fallast á að halda áfram bæjarritara- störfum, þar sem hann hefur notið bæði trausts og vinsælda á liðnum árum. □ Skagfirðingar leika Listi Framsóknar á Sauðárkróki Ungir menn játa þjólnað

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.