Dagur - 02.04.1970, Blaðsíða 2
SKÍÐAMÓT Á HÚSABAKKA
Sæborg við bryggju.
(Ljósm.: G. P. K.)
- BátasmiSir
(Framhald af blaðsíðu 1)
því margir vilja nú eignast
litla þilfarsbáta.
Baldur Halldórsson á Hlíðar-
enda hefur í vetur afhent tvo
eða þrjá trillubáta og einn 7
á Akureyri
tonna og er þegar byrjaður á
öðrum af sömu stærð.
Jón Gíslason o. fl. hafa ný-
lega lokið við smíði rúmlega 4
tonna trillubáts, sem heitir
Langnesingur. □
SKAGFIRÐINGAR LEIKA
(Framhald af blaðsíðu 8).
tveggja þetta hefur bó allvel
tekizt hjá Leikfélagi Skagfirð-
inga. Auðvitað skila ekki allir
söngnum jafnvel, leiknum ekki
heldur, en þó finnst mér söng-
urinn jafn betri. Þegar á heild-
ina er litið er þó flutningurinn
á Ævintýrinu sómasamlegur og
um sumt ágætur.
Það hlýtur að vera erfitt verk
fyrir leikstjóra og ekki öllum
hent, að búa til flutnings leikrit
með fólki, sem þekkir lítt eða
ekki þann heim, sem leiksviðið
er. En engu að síður má það
vera ánægjuleg vinna þegar all-
ir leggja sig fram og allir taka
framförum. Ágúst Kvaran get-
ur með gleði litið yfir það starf,
sem hann hefur unnið undan-
farnar vikur hjá Leikfélagi
Skagfirðinga. Það hefur borið
góðan árangur.
Ég er ekki leikfróður og ætla
því ekki hér að dæma um
frammistöðu einstakra leik-
enda. Þó verð ég að segja, að
jafn bezt fannst mér meðferð
Knúts Ólafssonar á hlutverki
Skrifta-Hans og er naumast
nokkur vafi á því, að Knútur
býr yfir miklum leikhæfileik-
um. En öll er sýningin ánægju-
leg og þakkarverð.
Það fólk, sem sinnir leiklistar
málum úti um landsbyggðina,
vinnur gott starf. Undantekning
arlítið eru það áhugamenn, alls
ólærðir á leikUstarsviðinu. Með
hlitsjón af því ber að dæma við-
leitni þess, annað væri ósann-
gjarnt. En með óeigingjarnri
starfsemi sinni stuðlar það að
því, að auka á fjölbreytni í
menningar- og skemmtanalífi
dreifbýlisins og fyrir það á það
skilið fyllstu þakkir og allan
stuðning.
Ég vil hvetja fólk til þess að
sjá Ævintýrið hjá Leikfélagi
Skagfirðinga. Það leiðist eng-
um á meðan.
Árni Ingimundarson frá Ak-
ureyri annast undirleik við
söngvana í leikritinu og gerir
það svo, að ekki verður að
fundið. —mhg
NÁMSBÖKASPJALL
RÍKISÚTGÁFA námsbóka í
Reykjavík hefur sent frá sér
nokkrar nýstárlegar bækur,
sem vert er að vekja athygli á.
Þeirra á meðal MÓÐURMÁL
(tvö myndskreytt hefti) eftir
Ársæl Sigurðsson og LANDIÐ
OKKAR eftir Frímann Jónas-
son. Ferskur léttleikablær er á
móðurmálsbókunum og mjög
starfrænt snið. Bók Frímanns
er „lesbók um landafræði ís-
lands“, prýdd ágætum litmynd-
um og teikningum. Merkir at-
burðir, eins og Geysisslysið á
Vatnajökli og björgunarafrekið
við Látrabjarg, sundafrek Greít
is, hetju- og hannsaga þeirra
Bjargsbræðra í Drangey, tækni
ævintýrið við Þjórsá (Búrfells-
virkjunin) o. fl. o. fl. tengjast
cgleymanlega við héröð og
landshluta, en notast líkt og
leiksviðstjöld umhverfis atburð
ina. f ráði mun að gefa út fleiri
slík hefti og mun það vel ráðið,
leiða nemendur frá lexíuþræl-
dómnum og stuðla að frjálsara
námi.
Ríkisútgáfan hefur gefið út
lesbókaflokk eftir Jennu og
Hreiðar, fjögur mjög læsileg
hefti, búin sömu góðu kostun-
um og aðrar bækur þessara vin
sælu barnabókahöfunda. Þá
skipa íslandssögulesbækur Stef
áns Jónssonar virðulegan sess
í safni Ríkisúlgáfunnar, merkis
bækur og hinar þörfustu í
þeirri grein.
(Framhald á blaðsíðu 5)
FÖSTUDAGINN 20. marz fór
fram að Húsabakka í Svarfaðar
dal skíðamót Árskógs- og Húsa
bakkaskóla í ágætu veðri. Þetta
er í fyrsta skipti, sem þessir
skólar efna til sameiginlegs
skíðamóts, og reið Húsabakka-
skóli á vaðið og bauð Árskógs-
strendingum til mótsins. Um 40
nemendur Árskógsskóla ásamt
skólastjóra og kennurum. komu
með rútu Ævars Klemenssonar
að Húsabakkaskóla kl. 1.00 e. h.
Mótið hófst á keppni í svigi
og stórsvigi í fjallshlíðinni fyrii'
ofan skólann. Keppendur vovu
26, bæði drengir og stúlkur, og
luku 23 keppni. Að afloknu mið
degiskaffi fór fram keppni í
stökki og voru keppendur 15
piltar og luku allir keppni.
Tvær stökkbrautir höfðu verið
útbúnar í þessu tilefni, önnur
(15 m.) í fjallshlíðinni fyrir
ofan skókmn, en hin (10 m.)
með upphlöðnum atrennupalli í
bakkanum, sem skólinn er
kenndur við. Var keppt í þeirri
síðarnefndu. Að lokum var
keppt í göngu. Keppendur voru
42 bæði drengir og stúlkur og
luku 40 keppni. Göngubrautin
var u. þ. b. 2 km. að lengd fyrir
(Framhald af blaðsíðu 5).
mál væru í heiðri höfð. — Hann
var söngvinn svo af bar, og í
söngmálum kirkjunnar var
hann um fjölda ára, bezta drif-
fjöðrin, enda byrjaði hann á
unga aldri að syngja við guðs-
þjónustui' í Grenivíkurkirkju,
og hélt því þar til nú á síðustu
árum. Telst mér svo til að hann
hafi verið virkur þátttakandi í
kirkjusöngnum um 60 ára skeið.
Dáðist ég oft að því og undrað-
ist hve mikið hann kunni. Það
virtist næstum því sama hvar
flett var upp í sálmabókinni.
Mun hann þar hafa notið þess,
hve mikið og gott sönglíf var
hér í Grenivík, undir hand-
leiðslu Ingimundar Árnasonar á
öðrum og þriðja tug þessarar
aldar. Enda minntist Þórhallur
jafnan með þakklæti starfs Ingi
mundar í þágu söngmálanna
'hér í kirkjunni og utan.
Þegar Kirkjukór Grenivíkur-
kirkju var formlega stofnaður
1943, var Þórhallur strax kos-
inn þar í stjórn og formaður fi'á
1946 til 1952 er hann óskaði eftir
að losna úr því starfi, vegna
þess er hann sagði, við það tæki
færi „teldi sig ekki mann til,
vegna aldurs síns, að sinna þess
um málum eins og hann vildi
og vert væri.“
Við það tækifæri gerði kór-
inn hann að heiðursfélaga, og
vildi með því votta honum þökk
og virðingu fyrir vel unnin
störf. — Og enn hélt hann
áfram að syngja í kirkjunni ef
veður eða krankleiki hamlaði
ekki — þar til árið 1964, en þá
hætti hann alveg, — röddin bil-
aði — en samur var áhuginn
um framgang söngsins — og
ánægjan af því að hlýða á söng
til hinztu stundar.
í sóknarnefnd var Þórhallur
í 29 ár eða frá 1937—1966 og
lengi formaður. Þar var áhugi
hans hinn sami og í söngmál-
unum um að gera hlut kirkju-
og safnaðarlífs sem beztan, enda
var hann einlægur trúmaður og
taldi kirkju- og trúarlíf eitt hið
nauðsynlegasta í lífi hvers
manns.
Þegar nálgaðist 75 ára afmæli
Grenivíkurkirkju — en það var
árið 1960, — beitti Þórhallur
sér fyrir því, að þau tímamót
yrðu gerð sem hátíðlegust. —
drengi og stúlkur á barnaskóla-
aldri og stúlkur í unglinkask.,
en 4 km. (2 hringir) fyrir pilta
á unglingastigi. Úrslit í keppnis
greinum urðu þessi:
Svig og stórsvig (samanl. tími).
Piltar í ungl.sk.: sek.
Jón Halldórsson, H. 101.3
Kristján Hjartarson, H. 103.6
Jón Hjaltason, H. 127.1
Stúlkur í ungl.sk.
(styttri braut): sek.
Sólborg Friðbjörnsd., H. 125.6
Ingibjörg Helgadóttir, H. 139.9
Soffía Sveinsdóttir, H. 145.7
Piltar í barnask. (sama braut
og stúlkur í ungl.sk): sek
Skarphéðinn Sigtryggss., H. 87.9
Helgi Halldórsson, H. 88.9
Óskar Árnason, H. 96.7
Stúlkur í barnask.: sek.
Guðrún Kristjánsd., H. 135.3
Stökk.
Piltar í ungl.sk.: stig
Gunnlaugur Sigurðss., Á. 112.5
Kristján Hjartarson, H. 112.5
Jón Hjaltason, H. 105.0
Barðist hann fyrir því að fram
færi endurnýjun og uppbygg-
ing kirkjunnar, og tímamótanna
minnzt á svo veglegan hátt og
unnt væri. Vann hann að fram-
gangi þessa máls, af einhug og
árvekni, og munu ótalin þau
spor, er hann átti til stuðnings
og styrktar, bæði við fjársöfnun
og annars sem við þurfti. —
Þennan draum sinn sá hann
rætast, er fram fór endurvígsla
kirkjunnar og afmælishátíð
haustið 1960 öllum sóknarbörn-
um til mikillar ánægju.
Ég minnist með hlýjum hug
og þakklæti þessa horfna vinar
míns. Fram í hugann koma
margar hugljúfar minningar frá
samverustundum okkar á elsku
legu heimili þeirra hjóna. Þau
reyndust mér eins og foreldrar
í fölskvalausri vináttu, sem
aldrei bar skugga á, auk óverð-
skuldaðrar aðstoðar, er ég átti
í erfiðleikum. — Slíkt verður
aldrei þakkað, eins og vert er,
— en lýsir eins og kyndill sem
ber birtu á lífið.
Fluttar eru þakkir frá kirkju
kór, sóknarnefnd og kirkjunni
hans, sem var honum svo dýr-
mæt í lífinu.
Við leiðarlok er gott að líta
til baka og muna góðan vin og
samstarfsmann. — Hann hefir
lokið heillaríkri og langri ævi,
kvatt elskulega eiginkonu, börn
og aðra vini, — en aðeins um
stundarsakir samkvæmt hans
eigin skoðun og trú. Helgur
reitur kirkju bans, hefir vafið
líkamsleifar hans sinni mjúku
mold. — Hann er enn kominn
til kirkju.
Ég votta eiginkonu hans og
öllum ástvinum fjær og nær
mína dýpstu samúð — um leið
og ég enda þessar fátæklegu
línur með erindi eftir Ólínu
Andrésdóttur sem er eins og
talað út af munni þessa vinar
míns.
Þó missi ég heyrn og mál
og róm
og máttinn óg þverra finni.
Þá sofna ég hinzt við
dauðadóm.
Ó, Drottinn gef sálu minni
að vakna við söngsins helga
hljóm
í himneskri kirkju þinni.
I. B.
Piltar í barnask.: stig
Helgi M. Halldórsson, H. 118.5
Halldór Reimarsson, H. 99.0
Hjörleifur Hjartarson, H. 90.0
Ganga.
Piltar í ungl.sk. (4 km.): mín.
Vignir Hjaltason, Á. 16:41.0
Gunnl. Sigurðsson, Á. 18:08.0
Angantýr Árnason, Á. 19:12.0
Stúlkur í ungl.sk. (2 km.): mín.
Sigfríð Valdemarsd., Á. 10:21.0
Sigurbj. Snorradóttir, Á. 10:54.0
Elsa Halldórsdóttir, Á. 11:17.0
Piltar í barnask. (2 km.): mín.
Marinó Þorsteinsson, Á. 9:57.0
Jón Ingi Sveinsson, á. 10:20.0
Haukur Snorrason, Á. 10:49.0
Stúlkur í barnask. (2km.): mín.
Sigrún Þorsteinsd., Á. 10:21.0
Svanfríður Sig.dóttir, Á. 10:47.0
Signý Sigurðard., Á. 13:34.0
Þess má geta, að Hjörtur E.
Þórarinsson keppti sem gestur
í 2. km. göngu í flokki með
barnaskólastúlkum og varð
þriðji á 12:06.0 mín.
Fyrir beztan tíma í göngu
nnan Húsabakkaskóla er á ári
■hverju veittur farandgripui',
sem Snorri Sigfússon fv. náms-
stj. gaf skólanum árið 1956. A5
þessu sinni urðu hlutsköi-pust
Guðrún K. Þorgilsdóttir á
12:38.0 mín. (2 km.) og Jón
Hjaltason á 20:05.0 mín. (4 km.)
Að afloknum kvöldvei'ði var
efnt til dansleiks í nýjum sam-
komusal Húsabakkaskóla og
voru þar veitt vei'ðlaun fyrir
beztan árangur í hverri grein.
Hljómsveit Pálma Stefánssonar
lék fyrir dansi af miklu fjöri.
Mótsstjóri var Jón Halldórs-
son skíðakennari frá Dalvík og
lagði hann einnig svigbrautirn-
ar. Stökkbrautirnar byggðu
þeir Jón Halldói-sson, Björn
Daníelsson og Ingvi Baldvins-
son, og göngubrautina lagði
Óttar Einarsson. Allt fór mótið
vel og skipulega fi-am og varð
þetta hinn ánægjulegasti dagur
fyrir alla aðila.
(Fi-á Húsa'bakkaskóla).
IÍA leikur til úr-
slita í 2. deild
ÖRUGGT mun nú, að það verð
ur KA, sem leikur til úrslita í
2. deild í handknattleik við sig-
urvegarana úr Suðui'landsriðlin
um, sem vei'ður ti’úlega ÍR. Sl.
laugardag féll dómur í héi'aðs-
dómi ÍBA út af leik KA og
Þói'S, er Hei-mann Gunnarsson
lék með Þór, og var KA dæmd-
ur sigur í leiknum, og er KA
nú með 6 stig, en á eftir að leika
seinni leik sinn við Dalvíkinga
og fer hann fram n. k. mánu-
dag. Þór og Dalvíkingar leika
svo síðasta leilrinn í 2. deild á
fimmtudag í næstu viku. □
- HÚNAVAKAN
(Framhald af blaðsíðu 1).
stöðum og Birgir Ingólfsson,
Bollastöðum. í öði'u sæti varð
lið Ungmennafélags Svínvetn-
inga.
Nú stendur yfir sveitakeppni
í skák á vegum Ungmennasam-
bandsins. Fjögur lið taka þátt í
keppninni. Skákþingi Húnvetn-
inga er nýlokið á Blönduósi.
Tefldar voru sex umferðir í ein
um flokki eftir Monradkerfi.
Jónas Halldói'sson, Leysingja-
stöðum varð Skákmeistari Hún
vetninga. Þetta er í þriðja sinn,
sem Skákþing Húnvetninga er
háð, en samvinna er um mót
þetta milli U.S.A.H. og U.S.V.H.
- Þórhallur frá Finnastöðum